Pressan - 16.09.1988, Blaðsíða 15
Föstudagur 16. september 1988
15
spáin
vikuna 17. — 24. september
(21. mars — 20. april)
Þú skalt búa þig undir aö lenda í ein-
hverjum erfiöleikum. Gættu þess að
segja ekkert, sem síöar gæti verið notað
gegn þér. Þú nýtur vinsælda um þessar
mundir og það vekur öfund annarra, en
taktu það ekki nærri þér.
(21. apríl — 20. inai)
Vonandi er sjálfstraustið orðið meira
upp á siðkastið, því nú fara hlutir að ger-
ast, sem geta breytt öllu lífi þínu. Þú
skalt reyna að komast að samkomulagi,
sem allir geta sætt sig við, ef í odda
skerst.
i~\ (21. mai — 21. jiiiu')
I þessari viku eru likur til þess að þér
takist að breyta sambandi þinu og ann-
arrar manneskju, sem ekki hefuroft verið
þérsammála. Upp frá því hittist þið oftar.
Það gerist eitthvaó skemmtilegt um
næstu helgi.
(22. júni — 22. jiili)
Það er ekki klókt að fresta þvi um
óákveðinn tima að leysa vandamál.
Ljúktu þessu frekaraf hið fyrsta. Þú mátt
búast við ósætti eðaóvissu i einkalifinu.
Reyndu að spara i stað þess að eyða.
(23. jiíli — 22. úniísl)
Eitthvað gerist, sem setur þig úr jafn-
vægi, en þú verður að vera yfirvegaður.
Þetta gæti tengst óvæntum útgjöldum
eða erfiðleikum í vinnunni. Heilbrigð
skynsemi þín ætti þó að nægja til að
leysa málið.
(23. ágiísl — 23. sept.)
Þú hefur lengi velt ákveðnu vandamáli
fyrir þér og nú virðist iausnin fundin.
Framundan er mikið happatímabil í lífi
þinu og þú þarft svo sannarlega ekki að
kvarta á næstunni. Gættu samt að þér i
fjármálum.
■ rv
W Cy (24. sepl. — 23. okl.)
Þriðjudagur og miðvikudagur verða
ekki auðveldir. Þeir verða þó mun bæri-
legri, ef þú notar kímnigáfuna. Ýmsir
árekstrar geta verið framundan og þetta
er ekki rétti tíminn til að stofna til vin-
áttusambanda.
hátíðar-
stemmning yfir mörgum dögum i þessari
viku og ýmislegt óvænt gerist. M.a.s.
fjármálin líta betur út. Notfærðu þér
þetta jákvæða ástand fyrir framtíðina.
(24. okt. — 22. nóv.)
Það verður sannkölluð
(23. nóv. — 21. des.)
Þú ert venju fremur glaöurog til I tusk-
ið og loks tekurðu ákvörðun, sem beðið
var eftir. Þú ert örugglega á réttri leið
núnaog þaðerum að gera að halda þeirri
stefnu. Láttu aðra ekki hafa áhrif á þig.
(22. des. — 20. jariúar)
Þú ert ekki fyllilega eins og þú átt að
þér að vera. Þreytuna hristir þú þó af þér
til að geta tekist á við verkefnin og náð
ákveðnu takmarki. Það lítur út fyrir að
ferðalag sé fyrir höndum.
(21. janiiar— 19. febriíar)
Þú ert eitthvað óöruggur þessa dag-
ana. Það má vel vera að mikið sé að ger-
ast bakvið tjöldin, en þaðeru ómerkilegir
hlutir. Ef þú neyðist til að ráða fram úr
vandamáli skaltu fara eftir eigin sann-
færingu.
(20. febrúar — 20. mars)
Þú átt orðið auðveldara með að starfa
í samvinnu viðaðra. Samt skaltu ekki láta
aðra hafa of mikil áhrif á þig, heldur fara
eigin leiðir. Það virðist einhver hreyfing á
rómantíska sviðinu, sem jafnvel endar
með alvarlegu sambandi.
lófalestur
AMY
ENGILBERTS
í þessari viku:
„JU “
Lífslínaii bendir tilþess að J.U.
þurfi að fara vel með sig eftir að
45 til 50 úra aldri er náð. Sem sagt:
huga vel að heilsunni, úthaldinu
og þrekinu.
Tilfinningalínan er svolítið
keðjótt, sem gœti bent til þess að
persónan sé sveiflukennd. J.U.
hefur oft áhyggjur af heUsufari
sínu og er ahnennt spennukennd-
ur einstaklingur og kvíðinn að
eðlisfari.
A yngri árum hefur þessi aðili
mikinn metnað, en honum tekst
einhvern veginn ekki að nýta sér
þá möguleika, sem hann hefur til
aökomast áfram. Þetta sést m.a. á
því hvað liin svokallaða greindar-
lína er lengi tengd lífslínunni. Og
J.U. á erfitt með að gera það upp
við sig hvert skuli stefnt — bœði
almennt í lífinu og í tilfinninga-
málum. Ég ráðlegði manneskj-
unni að leggja meira á sig til að
móta sér stefnu.
Þessi persóna ú í erfiðleikum
með að gerast óháð og sjálfstœð.
Hún vil! að sumu leyti vera barn.
Þetta getur komið fram í óeðlilega
sterkum tengslum vlð föðurhúsin,
vandamálum við ákvarðanatöku
eða þá að viðkomandi kemur sér
hjá því að axla þá ábyrgð, sem
fullorðlð fólk verður að gera.
Einnig getur verið um minnimátt-
arkennd að rœða. En það er ekki
þar með sagt að persónan geti
ekki hafl góða greind.
Þetta er lokaður og dulur
persónuleiki, sem er á varðbergi
gagnvart öðrum. Svolítill einfari.
pressupennar
Hjálpið bágstöddum
Mikið rosalega fer í taugarnar á
mér þetta væl og skæl endalaust í
öllum. Allir svo blankir, útgerðin á
hausnum, fyrirtæki gjaldþrota,
landbúnaðarmálin enn sem fyrr í
ólestri. — Samt er uppselt í flestar
hópferðir ferðaskrifstofanna, nýir
bílar við hverjar dyr og glæsihallir
rísa jafnt hjá einstaklingum, fyrir-
tækjum sem ríki og bæjarfélögum
en vandinn sem við blasir er alltaf
öðrum að kenna.
Einu sinni voru það bara stjórn-
málamenn sem gátu verið óábyrgir
orða sinna og gerða en nú fjölgar
þeim ágyrgðarlausu og svo virðist
sem einhvers konar ávöxtun eigi sér
stað í öllu þessu ábyrgðarleysi og í
beinu framhaldi af þvi.
Þá er það alveg ljóst að ég varpa
frá mér allri ábyrgð á því sem hér
stendur, því ég ætla ekki að láta
stefna mér fyrir að segja eitthvað
ljótt um einhvern sem ekki á það
skilið.
En þar sem mér virðist sem ráða-
menn þjóðarinnar séu gjörsamlega
gétulausir gagnvart þeim vanda sem
við blasir langar mig að benda hin-
um getulausu á nokkrar leiðir til úr-
bóta. En þess ber að geta strax að
þetta eru ekki skammtímalausnir
eins og að krukka í kaupið, gengis-
felling eða neitt í þeim dúr.
1. Landið eitt kjördœmi ogfækk-
un þingmanna um helming.
Þar með losnar þjóðin við óarð-
bært kjördæmapot þingmanna og
þá óráðsíu sem því hefur fylgt. Með
fækkun þingmanna minnkar bullið
sem fram fer í þingsölum, sem
væntanlega skilar sér í hraðari og
betriafgreiðslu þingmála. Ráðherr-
ar verði ekki jafnframt þingmenn
sem ætíð hugsa um endurkjör. Gott
á suma.
2. Burt með pólitíska bitlinga.
Öllum aðstoðarmönnum ráð-
herra verði sagt upp störfum og
ráðuneytisstjórar og starfsfólk
ráðuneytanna vinni þeirra störf sem
þeir og gerðu áður en þessum póli-
tísku bitlingum var komið á.
Bankaráð verði lögð niður sem
pólitískur bitlingur. Ekki aðeins
sparar það stórfé í beinum greiðsl-
um til bankaráðsmanna heldur
einnig þjóðinni ómælt fé sem hing-
að til hefur runnið út úr ríkisbönk-
unum eftir fyrirfram ákveðnum
pólitískum leiðum.
Útvarpsráð sem pólitískur bitl-
ingur verði lagt niður svo og allar
þær fjölmörgu nefndir sérfræðinga
og ekki sérfræðinga sem settar hafa
verið á laggirnar af því einhverjir
aðrir hafa ekki verið færir um að
vinna verkin sín (sbr. forstjóra-
nefndin).
3. Fœrri en belri útgerðarmenn.
Skussarnir í sjávarútvegi verði
látnir fara á hausinn en hinir sem
betur standa styrktir til að gera enn
betur. Það á ekki að vera neitt nátt-
úrulögmál í íslenskri pólitík að
styrkja alla þá sem langar til en geta
ekki stundað útgerð og fiskvinnslu.
„Mig langar í togara en á ekki til
nema u.þ.b. 5% af kaupverði" er og
verður liðin tíð.
4. Landbúnaðarsukkið stoppað
Milliliðirnir hverfi þegar í stað og
þó fyrr hefði verið. Bændum sem
stunda hefðbundinn kotbúskap
verði greidd rífleg mánaðarlaun til
að hætta búskap sem þegar hefur
kostað þjóðina offjár, en þeir snúi
sér í staðinn að Iandgræðslu, t.d.
skógrækt. Það myndi án efa skila
þjóðinni allri meiri verðmætum en
nokkur getur séð fyrir eða sagt um.
Horfið verði frá því þegar í stað
að styrkja þau sláturhús, sem ekki
höfðu leyfi til starfa, til að hœlta
störfum. Þetta er eitt fáránlegasta
dæmi sem hægt er að hugsa sér.
Styrkur til að hætta því sem ekki
var leyfilegt.
5. Fiskeldi
Ekki verði byrjað á sama sjóða-
sukkinu í fiskeldi og viðgengist hef-
ur í sjávarútvegi og Iandbúnaði.
Ráðamenn verða að reyna í það
minnsta að læra af reynslunni og
„athafnamenn" að skilja að þeir
geta ekki vaðið út í hvaða fjárfest-
ingu sem er með gróða í huga en
veinað síðan á styrki ef á móti blæs.
Ábyrgð er það sem gildir og því fyrr
sem það skilst því betra fyrir land
og þjóð.
Það hvarflar hins vegar ekki að
mér að þið farið eftir þessum ráð-
leggingum mínum, því ég veit að
hingað til hafið þið aðeins ráðist á
garðinn þar sem hann er lægstur,
þ.e.a.s. kurkkað í kaupið, en að taka
á vandanum hefur ekki verið ykkar
deild. Það skyldi þó ekki vera að
þeir flokkar sem þið eruð í forystu
fyrir hafi hagsmuna að gæta ein-
hvers staðar? Er einhver frammar-
inn á hausnum í útgerðinni? Sjálf--
stæðismaður að klúðra fiskeldinu?
Hvað með kratana, á einhver þeirra
sláturhús? Það skiptir í raun ekki
máli hvað þið heitið, því hagsmuna-
potið, flokks- og ættartengsf
stjórna þessu landi og eru að setja
það á hausinn. Það er öllum ljóst
nema ykkur, sem kallist ráðamenn
þjóðarinnar.
Satt best að segja gengur gjör-
samlega fram af mér sem sæmilega
vitiborinni manneskju að horfa
upp á þennan aumingjadóm ykkar
og kjarkleysi og til þess að lengja
dauðastríð ykkar ekki frekar; farið
þið þá frá og biðjið forsetann að
skipa starfsstjórn (sem ekki þarf að
hugsa um endurkjör og tekur því á
þeim vanda sem við blasir). Það
myndi án efa bæta geðheilsu mína
sem og annarra þegna þjóðfélags-
ins.
Bestu kveðjur og von um skjót við-
brögð.
i
ki I