Pressan - 16.09.1988, Side 10

Pressan - 16.09.1988, Side 10
10 Guðrún Fri.ðgcirsdónir cr æðstráðandi í Bréfaskólanum, scm er yfir þúsund marina skóli. Sjálf hcfur hún átt óvana- lcgan námsferil og sat síðast á skóla- bekk um fimmtugl — alcin í annarri hcimsálfu, fjarri ciginmanni og fjórum bórnum. Biðja um ómerkt umslög Flest höfuin við heyrt minnst á Bréfaskólann. Sum okkar muna líka eftir lestri úr kennslubréfum í út- varpinu á meðan ekki var til nema ein rás. Það hefur hins vegar farið minna fyrir þessari stofnun á seinni áru.m og hafa margir eflaust steingleymt tilvist henn- ar. Bréfaskólinn er þó svo sannarlega enn við lýði og þjónar mörghundruð íslendingum á ári hverju. Skólinn er sameignarstofnun BSRB, SÍS, Kvenlelagasambands ístands, ASÍ, Farmanna- og l'iski- mannasambandsins og Stéttar- sambands bænda. Fyrst og fremst er reynt að sinna þörfum félags- manna, en öllunt er þó heimilt að láta skrá sig í skólann. Það gerir l'ólk líka óspart. Á síðasta ári voru t.d. rúmlega ellefuhundruð nem- endur — frá tólf ára til áttræðs — á skrá hjá skólanum og lögðu stund á fjölda námsgreina. MARGIR HRÆDDIR VID SAMKEPPNINA Ekki hefur verið kastað ná- kvæmri tölu á það hvernig kyn- skiptingin er meðal nemendanna, en vitað er að konur eru í meiri- hluta og mun samviskusamari að skila verkefnunr en karlar. Það er hins vegar töluvert um að konur haldi því leyndu að þær stundi nám í Bréfaskólanum, ef marka má óskir um að verkefnin séu send i ómerktum umslögum. Blaðamaður spurði skólastjór- ann, Guðrúnu Friðgeirsdóttur, hvernig hún skýrði þetta. „Konurnar vilja kannski ekki aðannað fólk í húsinu viti að þær eru í bréfaskóla. Þeim finnst þetta eitthvað skammarlegt. Eins og að opinbera fávisku sína. Margar hafa jafnvel ekki sagt heimilis- fólkinu sínu frá þessu. Þetta eru að öllum líkindum konur, sem hafa föngun til að læra, en eru hálfhræddar við að fara af stað. Hræddar við dóm annarra. Þess vegna byrja þær hjá okkur í stað þess að fara í Námsflokkana, öld- ungadeild eða einhvern skóla, þar sem þær eru í samkeppnisaðstöðu við aðra. Skólakerfið er nú einu sinni þannig að einkunnir eru gefnar og nemendur bera sig sam- an og eru bornir saman. Annars eru margar ástæður fyrir því að fólk leitar til okkar í nám. Það er t.d. algengt að nem- endurnir séu að búa sig undir ákveðna sérskóla, svo sem bændaskóla, stýrimannaskóla eða jafnvel samræmdu prófin. Margir unglingar nota líka sumrin til undirbúnings undir skólann um veturinn. Síðan er það fólkið í dreifbýlinu, sem ekki hefur að- gang að öllum þeim menntastofn- unum sem höfuðborgarbúar geta valið úr. Aðrir búa kannski á Reykjavíkursvæðinu, en eiga erfitt með að komast að heiman, eða eru í vinnu á þeim tima, sem kennt er. Fyrir allt þetta fólk er bréfaskóli þægiíegur kostur. Nentendur geta farið yfir náms- efnið á sínunt eigin hraða, prófað sig svolítið áfram og þannig feng- ið sjálfstraustið smám saman. Og það er hægt að hefja nántið hjá okkur hvenær ársins sem er. Hvenær, sent námsþorstjnn hell- ist yl'ir — ekki bara á haustin eða í janúar." í Bréfaskólanum er luegt að velja úr nokkrunt tugum náms- greina og sagði Guðrún að þau væru einstaklega heppin með kennara. Þetta væri úrvalsfólk með góða menntun og mikla reynslu, enda væri það nauðsyn- legt við fjarkennslu. Kennarinn þarf að geta séð fyrir þau vanda- mál, sent upp konta hjá nemend- unum við úrlausn verkefnanna, ogsetja l'yrir alla leka — ef svo ntá að orði komast. Tungumál njótra mestra vin- sælda og er enskan í efsta sæti. Einmitt nú í haust býður skólinn upp á hagnýtt og nútimalegt námsefni i ensku, sem mikil ásókn er í. Guðrún sagði, að sigl- ingafræði væri einnig mjög ofar- lega á blaði. Þó nokkur eftirspurn er lika eftir námi í sauðfjárrækt og heyverkun og töluvert er um nemendur í þýsku, frönsku og spænsku, en á döfinni er endur- nýjun á því kennsluefni. Önnur nýjung er námsráðgjöf, sem verið er að koma i gagnið. Nemendur geta þá hringt á ákveðnum tímum og fengið upplýsingar og leiðbein- ingar, sem mikil þörf virðist fyrir. ERFIÐASTA ÁKVÖRÐUN SEM ÉG HEF TEKIÐ Sjálf hefur Guðrún Friðgeirs- dóttir afskaplega óvanalegan menntunarferil og hefur því forsendur til að setja sig í spor þess fólks, sem byrjar að læra aft- Föstudagur 16. september 1988 Guðrún Friðgeirsdóttir, skólastjóri Bréfaskólans: „Starfið tengist mjög lifsviðhorfum mínum og hugsjónum. Ég er komin af alþýðufólki og ber til þess sterkar taugar og hef þess vegna gaman af að geta stutt eitthvað viö bakiö á þvi.“ Pressumynd: Magnús Reynir. ur á miðjum aldri. Hún l'ór eftir stúdentspróf til Danmerkur og lauk fóstrunámi þar í landi. Seinna var Guðrún í þrjú ár við norrænunám í Osló og í Kaup- man nahafnarháskóla. „Árið 1968 — þegar ég var á fertugsaldri — fluttist ég heim með fjölskyldu minni, en þá hafði ég búið erlendis upp undir helm- ing ævinnar. Prófin mín að utan voru metin hér við háskólann og þar lauk ég BA-gráðu í Norður- landamálum eftir stutt nám hér heima. Ég lór síðan að kenna dönsku við MH og tók uppeldis- og kennslufræðina með kennsl- unni á tveimur árum. Það var þá, sem áhugi minn á uppeldisfræði kviknaði aftur, og árið 1978 fluttumst við hjónin í eitt ár til Kanada með yngri börn- in okkar tvö. Maðurinn minn, Stefán Briem, var þá mennta- skólakennari og við gátum bæði farið í framhaldsnám þarna vestra þar sem hann var í ársleyfi frá kennslu. Þetta var afar skemmtilegur tími. Ég lagði stund á ráðgjöf í skólum á master-stigi, en það er tveggja ára nám þannig að ég átti helntinginn eftir, þegar við flutt- um heim aftur. Mér þótti auð- vitað leiðinlegt að geta ekki lokið þessu og átti alltaf þann draum að komast aftur út. Hann rættist fimm árum síðar, en það var ekki auðvelt. Ég þurfti nefnilega að taka þá erfiðu ákvörðun að fara ein til Kanada og skilja fjölskyld- una eftir. Yngri krakkarnir voru þá þrettán og fimmtán ára og ég var svo hrædd um að þeir kæmust ekki af án mín. Eða ég án þeirra og mannsins míns. En þetta bless- aðist allt sarnan, sem betur fer. Stefán gat líka verið hjá mér í þrjá mánuði um veturinn og svo kom ég heim í rúmar þrjár vikur um jólin. Það bjargaði miklu. Núna — þegar ég lít til baka — finnst ntér samt óskiljanlegt að ég skyidi geta þetta. Að ég skyldi geta far- ið... Enda voru margir, sem höfðu lítinn skilning á þessu uppátæki mínu. Það voru ekki allir yfir sig hrifnir. Sumir minntust aldrei á þetta og óskuðu mér ekki einu sinni til hamingju, þegar ég hafði lokið masters-prófinu. En vin- konur mínar samglöddust mér og svo Stefán, sent alltaf hvatti mig og studdi. Það var óskaplega mikil lífs- reynsla fyrir konu um fimmtugt að vera ein í annarri heimsálfu eft- ir að liafa lifað fjölskyldulífi svona lengi. Þetta voru blendnar tilfinningar. Ég var hins vegar mjög heppin að því leyti að ég kynntist mörgu indælu fólki, sem gerði gæfumuninn. Fljótlega var ég búin að eignast góðar vinkonur og tíminn Ieið hratt, því námið krafðist mikils af ntér og það var bara að duga eða drepast." GÖNGUFERÐIR í ÚTLENDUM FJÖLLUM Guðrún kenndi i MH þar til fyrir tveimur árum og starfaði þar einnig við námsráðgjöf fyrir „öldungana“. Síðan réð hún sig til Iðntæknistofnunar, þar sem hún var í hálft annað ár við náms- gagnagerð í Fræðslumiðstöð iðn- aðarins. í því starfi kynntist Guðrún ýmsu, sem kemur henni nú að góðu gagni í skólastjóra- starfinu, og segist hún m.a. hafa lært mikið af Þuríði Magnúsdótt- ur, sem veitir fræðslumiðstöðinni forstöðu. Nám og vinna hafa skipað stór- an sess í lífi Guðrúnar Friðgeirs- dóttur, en hún hefur einnig haft tíma til að sinna áhugamálum eins og skiðaíþróttinni. Áhugi þeirra hjóna á gönguferðum — sérstaklega á erlendri grund — er líka mikill. Þau hafa gengið í Pýreneafjöllunum, i Austurríki og frönsku Ölpunum, svo dæmi séu tekin. Þettaeru þó ekki klifur- ferðir. Yfirleitt Ieigja þau sér bíl, aka upp í fjöll, skilja farartækið þar eftir og ganga siðan í u.þ.b. vikutíma. Ekki gista þau þó á sama staðnum allan timann, held- ur í nýjum bæ á hverju kvöldi. „Við skipuleggjum gönguna áður en við leggjum af stað og reynum að búa okkur skynsam- lega. Höfum einungis lítinn bak- poka meðferðis á göngunni með náttfötum og nauðsynlegustu snyrtivörum. Þetta eru einstaklega afslapp- andi frí og þau sameina svo margt. Maður fær holla hreyf- ingu, er i erlendu landi, kynnist framandi matargerðarlist og ný- stárlegri menningu og fær tæki- færi til að nota málakunnáttuna, sent við höfum bæði gaman af. Svo er fólk í fjallabyggðum alveg sérlega yndislegt og tekur manni alltaf vel. Við göngum raunar einnig tals- vert hér heima á íslandi. Mér líður best úti og ég hef alltaf haft gam- an af íþróttum. Það þýðir ekkert að ætla að ganga tugi kílómetra einu sinni á ári, en hreyfa sig lítið þess á milli. Við hjónin fórum t.d. með vini okkar í dásamlega gönguferð um Hornstrandir í júní. Það var sérkennileg tilfinn- ing að hafa ekkert samband við umheiminn í marga daga. Ég náði ekki einu sinni rás eitt á ferða- útvarpið, þannig að við vorum algjörlega einangruð. Þetta var svo ánægjuleg ferð að við erum ákveðin í því að fara þangað aftur næsta sumar.“

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.