Pressan - 14.10.1988, Blaðsíða 1
Það þarf töluverðan kjark til að segja þessi fjögur orð hvað þá láta hafa
þau eftir sér á prenti! Krabbamein er nefnilega ennþá hálfgert feimnismál.
Fólk veit ekki almennilega hvernig það á að koma fram við krabbameins-
sjúklinga og reynirþess vegna jafnvel að forðastþá. En sjúklingunum er eng-
inn greiði gerður meðþví að sjúkdómurinn séeitthvertfeimnismál. Hermann
Ragnar Stefánsson, danskennari og útvarpsmaður, þekkir þetta af eigin raun
og vill leggja sitt af mörkum til að breyta viðhorfi okkar til krabbameins.
Hann segir opinskátt frá reynslu sinni af þessum alvarlega sjúkdómi og mun-
inum á andlegri líðan krabbameinssjúklings og hjartasjúklings, en Hermann
hefur einnig gengist undir
hjartauppskurð og hefur
því samanburð. Sjá viðtal
við Hermann Ragnar og
grein um krabbameins-
hrceðslu: bls. 5—6.
HATRAMMAR DEILUR
í Skaftártunguhreppi. Ásakanir um skjalafals og
kærur vegna eignarhalds á jörd.
Hrífunesmálid í ítarlegri úttekt. Bls. 25—26.
FORMANNSKJÖR
í BSRB
Kristján
Thorlacíus
lýsir yfir ein-
dregnum
stuðningi við
Guðrúnu
Árnadóttur
EG ÞARF
AÐFÁ
HUGLJÓMUN
Hrafn
Gunnlaugsson
í viðtali á bls. 16
G
ulltékki með mynd eykur öryggi þitt,
öryggi viðtakanda og öryggi bankans þíns.
Það fer ekki milli mála hver þú ert.
Sérprentun án aukakostnaðar!
BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS