Pressan - 14.10.1988, Blaðsíða 14
I
INNBLÁSTUR,
ÁHUGI,
FERSKLEIKI
OGGLEÐI
Guðný Björk Richard framkvæmdastjóri
listadeildar er í essinu sínu á Stöð 2.
Fæstir gera sér Ijóst hve mikil vinna liggur að baki útlits á góðri
sjónvarpsstöð. Á listasviði Stöðvar 2 vinnur fólk í kyrrþey út á við, en
engu að síður er sá innblástur sem þar á sér stað gífurlega mikilvægur.
Þar ræðst „stíllinn“, útiitið á skjánum, sviðsmyndir frétta og
umræðuþátta, leikmyndir, förðun, búningar, grafík, umgjörð
dagskrárkynninga o.fl. o.fl. Á listasviði starfa 12 manns.
Framkvæmdastjóri þess erGuðný Richards.
Guðný útskrifaðist frá Myndlista- og handíðaskóla íslands 1985
og nam síðar við Slade School of Art í London. Á skólaárum sínum
fékkst hún m.a. við gerð leikmynda fyrir leikhús og vann útlitsvinnu á
auglýsingastofu. Eftir ársdvöl í London barst kallið frá Stöð 2. Fyrsta
verkefni Guðnýjar var að búa kosningasjónvarpinu í apríl 86 búning.
Einnig tók hún þátt í að skapa hina líflegu umgjörð 19:19.
„Áalvörusjónvarpsstöðþurfalínuroglitir, leturgerð, tónlistogótal
margt fíeira að mynda heildaráferð. Á Stöð 2 eráherslan lögð á glaðlegt,
frísklegtog umfram allt lifandi yfirbragð. Við viljum minna áhorfandann
stöðugtá að hann horfiá Stöð 2, en ekki hina stöðina. Á Stöð2hafa
orðið stórkostlegarbreytingará síðustu misserum varðandi aukið
tækjaval og fjárráð. Með þeim frábæra mannskap og mikla áhuga
sem hérræðurríkjum munþað skila sér í enn betri heildarsvip".
Svipmót Stöðvar 2 verður sífellt betra og betra.
Hér eru nokkur sýnishorn af vinnu listasviðs stöðvarinnar.