Pressan - 14.10.1988, Blaðsíða 3
Föstudagur 14. október 1988
3.
Þau höfdu heppnina með sér
Dregið hefur verið úr réttum
lausnum á andlita-gátunni, sem
birtist í PRESSUNNI þann 30.
september. Myndirnar voru af þeim
Eddu Björgvinsdóttur, Davíð
Oddssyni, Ásmundi Stefánssyni,
Herdísi Þorvaldsdóttur, Indriða G.
Þorsteinssyni, Ólafi Skúlasyni,
Davíð Sch. Thorsteinssyni, Ár-
manni Reynissyni, Þorsteini Páls-
syni, Þorgils Óttari Mathiesen,
Ólafi Ragnari Grímssyni, Þórarni
Eldjárn, Halldóri Laxness, Láru V.
Júlíusdóttur, Guðrúnu Helgadótt-
ur, Sverri Stormskeri Ólafssyni,
Flosa Ólafssyni, Friðriki Sophus-
syni, Guðjóni B. Ólafssyni og Ing-
ólfi Hannessyni.
Töluvert var um að fólk vissi
nítján nöfn, en hefði eitt vitlaust.
Margir áttu þó í engum erfiðleikum
og gátu gefið hverju einasta andliti
nafn. Þau heppnu fá sendan miða
fyrir plötuúttekt frá Skífunni, en
þau eru:
Ástríður S. Valbjörnsdóttir, Grett-
isgötu 39b, Reykjavík, Berit
Samúelsson, Vesturbergi 61,
Reykjavík, Erla Ásmundsdóttir,
Kringlumýri 10 Akureyri, Hulda B.
Nóadóttir, Hlíðarhvammi 3, Kópa-
vogi, Matthías Árni Ingimarsson,
Stekkjarhvammi 22, Hafnarfirði,
Björn Stefánsson, Grænuhlíð 13,
Reykjavík, Bryndís Baldursdóttir,
Espigerði 10, Reykjavík, Guðrún
Sigurðardóttir, Kleppsvegi 134,
Reykjavík, Sigurbjörg Ingimundar-
dóttir, Laugarnesvegi 118, Reykja-
vík, Kristjana Guðmundsdóttir,
Safamýri 87, Reykjavík.
i
r
Getum nú boðið þennan fullkomna og
hentuga Bondstec örbylgjuofn á ótrúlega
hagstæðu og milliliöalausu heildsöluveröi
beint til þín. 18 lítra, 500 vatta, affrysting,
snúningsdiskur. Nákvæmur íslenskur
leiðbeiningarbæklingur fylgir.
Sþarið tíma, fé og fyrirhöfn, með Bondstec
og lækkið um leið rekstur heimilisins.
VERÐ AÐEINS 14.950 STGR.
Opið mánudag—fimmtudag frá kl. 9—22
föstudag frá kl. 9—19
laugardag frá kl. 10—16
OPUS-VERSLUN SEM ER TIL FYRIR ÞIG.
SNORRA0RAUT 29
SÍNÉ 62-25-55
POWER
T(M6«
BONOSHEC
I félagsvísindadeild eru menn
mjög óhressir með yfirlýsingar
Hannesar Hólmsteins undanfarið
um að námskeið hans hafi ekki
verið auglýst. Þetta segja þeir al-
rangt þar sem valnámskeið hans
hafi birst á tveimur stöðum í
kennsluskrá, en þar sem enginn
nemandi skráði sig í námskeiðin
voru þau felld niður ásamt 13 öðr-
um. Þrír stjórnarmenn úr Samtök-
um ungra sjálfstæðismanna fóru þá
um og söfnuðu undirskriftum þar
sem skorað var á félagsvísindadeild
að taka upp frelsisnámskeið
Hannesar. Það hefur hins vegar
ekki komið fram að SUSarar þessir
gengu bæði í viðskiptadeild og
lagadeild auk félagsvísindadeildar
til að safna nemendum á námskeið-
ið. í þessum deildum sitja rúmlega
500 nemendur á fyrsta ári en upp-
skeran varð aðeins 13 undirskriftir,
að SUSurunum meðtöldum. Þess
má líka geta að umrætt námskeið er
ekki kennt í stjórnmálafræði held-
ur telst til sameiginlegra valnám-
skeiða allra nemenda í félagsvís-
indadeild — og annarra deilda há-
skólans ef marka má undirskrifta-
söfnunina...
P
| aul Oddgeirsson, gullsmið-
ur í Reykjavík, hefur undanfarna
mánuði unnið að mjög sérstöku
verkefni. Hann mun vera að smíða
togara — en úr silfri. Sagan segir að
togarasmíðin sé unnin fyrir Thors-
ara, en mikil leynd hvílir yfir þess-
um málum. Það skyldi þó aldrei
eiga að endurskapa hið forna veldi
Kveldúlfstogaranna, þó með öðru
sniði sé...
c
4^tarfsmenn utanríkisráðuneyt-
isins eru sagðir hafa orðið varir við
töluvert breyttar áherslur eftir að
Jón Baldvin Hannibalsson settist í
ráðuneytið. Fyrstu dagana er hann
sagður hafa lagt sig fram við að
setja sig inn í mál, sérstaklega þau
sem varða ýmsa kostnaðarliði.
Þegar mun hann hafa viðrað við-
kvæmar hugmyndir sem fela í sér
færri ferðalög starfsmanna í ráðu-
neytinu, svo og niðurskurð hjá
sendiráðum á Norðurlöndunum...
BHýverið réð Landssamband
hestamanna nýjan framkvæmda-
stjóra. Sá sem fékk starfið er
Hjalti Pálsson.fyrrum starfsmaður
Sambandsins...
agnar Tómasson, lögfræðing-
ur og hestamaður, er sagður hafa
gert sér lítið fyrir í fyrradag og fest
kaup á veitingastaðnum Sprengi-
sandi. Ekki er vitað hvort hann
hyggur sjálfur á veitingarekstur.