Pressan - 14.10.1988, Blaðsíða 15

Pressan - 14.10.1988, Blaðsíða 15
Föstudagur14. október1988 15 spáin lófalestur (21. niars — 20. april) Núna er tilvalið að byrja á nýjum verk- efnum, en fyrst verður þú að Ijúka þeim gömlu. Það kæmi sér vel fyrir þig að vera opinskárri og reynaaðkynnast nýju fólki, en ekki vera of hreinskilinn gagnvart fólki sem þú þekkir litið og talaöu ekki um einkalif þitt við hvern sem er. (21. apríl — 20. mai) Þú mátt búast við breytingum á lífi þinu. Það er mögulegt að það skapi óró- leika í hversdagslifinu. Þú færð góða ástæðu til að nýta hæfileika sem þú hef- ur haldiö leyndum hingað til en þér mun örugglega veitast erfitt að takast á við nýja hluti. Taktu tillit til einkalifs þíns og passaðu að taka ekki aö þér of mörg verk- efni. 4» » (21. mai — 21. jiini) Þú átt I erfiöleikum meö aó koma þér i gang þegar byrja á á einhverju nýju. Horfðu fordómalaust á hlutina og hræðstu ekki hið ókunna. Ánægja með hið daglega lif er mikilvæg forsenda þess aö þér gangi vel á öðrum svióum. Gott ráð: Vertu opinn! (22. jiini — 22. júlí) Vikan byrjar vel, meö tilkynningu sem sennilegaleysirvandamál sem legiö hef- ur þungt á þér. Seinna færist samt sem áður sú tilfinning yfir þig að engin brey.t- ing hafi átt sér staö. Hugsaðu ekki um það en einbeittu þér þess í stað að þeim verkefnum sem framundan eru og haltu vinnuogeinkalifi aðskildu. Þú hefurfulla ástæðu til að vera bjartsýnn. (23. jiilí — 22. ágiist) Þú ert ailtof feiminn og óframfærinn á sviði sem miklu máli skiptir. Þó svo að hæverska sé dyggð verður þú að læra aö standa vörð um réttindi þín. Annars munu aörir gera kröf ur til þesssem i raun er þitt. Einhver mun gefa i skyn að hann sé yfir þig hafinn en hunsaðu svoleiðis yfirlýsingar. Það er tilvalið fyrir þig að leita hjálpar hjá öðrum, það mun ganga vel. (23. ágúst — 23. sept.) Það hefurmikiðmætt áþérundanfarið en þú hefur komist heill frá því. Nú hefur þú möguleikaáaö náákveðnu marki sem er mjög þýðingaaiikið fyrir þig. Þú munt mæta vissri mórefoðu en taktu þvi sem áskorun. Láttu ekki leiöindi I byrjun vik- unnar hafa áhrif á þig, því þú átt von á góðu tlmabili mjög bráðlega. . (V - (24. sept. — 23. okt.) Frestaöu ekki samtali um viðkvæmt efni heldur komdu þvi I lag á næstu dög- um. Þá mun allt fara á þann veginn sem þú vilt og þú verður ánægður þegar þaö eryfirstaðið. Þaðermikilvægt að þú um- gangist mikið af fólki á þessu timabili. Reyndu aö skapa gott andrúmsloft í kringum þig. Föstudagurog laugardagur verða afskaplega stressaðir dagar. (S RUjr i (24. okt. — 22. nóv.) Stundum áttu of auðvelt með aö koma með yfirlýsingar um hluti sem þú hefur ekki mikiö vit á. Þessi óheppilegi eigin- leiki er i þann veginn að eyðileggjagóðan vinskap. í ákveðnu máli mun verða tekiö vel eftirviðbrögðum þlnum, svo þú skalt passa þig. Ef þú hefur ekkert jákvætt að segja jiessa dagana væri gáfulegt af þér að þegja. (23. nóv. — 21. des.) Þú er með margar hugmyndir i kollin- um og hefur nóg að gera með að koma þeim I framkvæmd. Hugmyndirnar eru góðar en útkoman yrði enn betri ef þú hugsaðir um einn hlut I einu og tækir þér tima til að vinna þetur að hverri hug- mynd. Horfurnar eru nokkuö góðar og þú munt gleöjast yfir góðri útkomu. Gott ráð: Komdu meira skipulagi á hlutina. (22. des. — 20. janúar) Þú verður að passa aurana þina betur en þú hefur gert undanfarið þvl þú getur búist við útgjöldum, sem þú hafðir ekki reiknað með. Þú ættir þó aö geta reddað þér fyrir horn með aukavinnu. Seinna biður þín spennandi timi hvað tómstund- irnar varðar, þú færð betri tima til að sinna áhugamálum þínum. (21. janúar — 19. febrúar) Það sem þú upplifir um helgina getur haft áhrif á þig það sem eftir er vikunnar. Skref það, sem þú hefur lengi hikaö með aö taka, ættirðu að taka núna. Ekki láta þér bregða þó það gangi ekki allt að ósk- um i byrjun. Þegar allt kemur til alls mun allt verða eftir þínu höfði þegar á liður. (20. febrúar — 20. mars) Þú ert vonsvikinn yfir því að kröfur þln- ar eru enn óuppfylltar. En allt tekur sinn tímaog þú verðuraðveraþolinmóöur. Þú mátt þó búast við að þurfa að gera meira áður en markinu er náð. Þú'gætir oröið fyrir bakslagi, en haltu ró þinni, þetta fer allt vel. Gott ráð: Stattu fast á þinu. AMY ENGILBERTS í þessari viku Amma Orlagalinan (satúrnusarlína): Fólk meö svona sterka línu lifiroftmjögörlagaríku lífiogá erfitt með aö breyta þvi eöa taka nýja stefnu. Þaö virðist verða að ganga i gegnum mikla reynslu á lífsleiöinni. Annað: Á hæðunum i lófanum sér maður að þetta er mikil skap- manneskja, sem á erfitt með að vera undir aga. Hún hefur ef til vill tilhneigingu til að stjórna öðrum. Fæöingardagur: Þessi kona er töluvert á flakki, því hún hefur mikla þörf fyrir hreyfingu. Hún fer sínar eigin leiðir og ætti helst að vinna sjálfstætt. Það er líklegt að mikið vinnu- tímabil sé að hefjast í llfi henn- ar á næstunni og hún mun geta ráöið allvel við þær fram- kvæmdir. Merkúrlínan: Konan er hraust. Sambandalina (unions-lína): Það gætu hafa orðið veru legar breytingar á lífi þessarar konu um 29—32 ára aldur og síðan aftur, þegar hún yar u.þ.b. 48 ára til 51 árs gömul. Greindarlinan (höfuðlínan): Þessi lína gefur til kynna mikið næmi fyrir tónlist og hvers kyns hljómum — sér- staklega á sviði tungumála og þvi, sem tengt er talandanum. Þetta er frekar skörp lína. líklega frekar Þumallinn: Þetta er viljasterk persóna — kannski svolítið ráórík — og gæti stundum átt í erfiðleikum með að stiórna^katftiaflu. Tilfinningalinan (hjartalínan): Konan stjórnast mikiö af til- finningum sínum, t.d. varðandi hjúskap. Hún myndi t.d. aldrei giftast nema af ást. En hún þarf ef til vill að ganga í gegn- um mikla reynslu, sem tengist tilfinningamálum, þegar hún er svona 65 til 70 ára gömui. Þessi kona hafði tækifæri til að giftast mjög ung að árum, eða um tvítugt. | Ef þú vilt láta spá fyrir þér skaltu senda TVÖ LJÓSRIT al' hægri lóf- anum (örvhent fólk Ijósritar þann vinstri) og skrifa LYKILORÐ á bakhlið blaðsins, ásamt upplýsing- um um KYN þitt og FÆÐINGAR- DAG. Heimilisfang: PRESSAN — lófalestur, Árrnúla 36, I08 Reykja- vík. pressupennar Mig langar rosalega... Ég hélt nú að Iágkúra íslenskra stjórnmála hefði náð hámarki sínu þegar þingmenn Bandalags jafnað- armanna lögðu BJ niður og skiptu sisona um flokk, en ég sé í dag að ekkert er ómögulegt í heimi stjórn- málanna. Því núverandi ríkisstjórn, sem sögð er stjórn félagshyggju og jafnréttis, var mynduð með þrennt að leiðarljósi. 1. Mig langar... 2. Mig langar líka... 3. Mig langar rosalega... Ennþá einu sinni víkur heill þjóðarinnar fyrir hagsmunapoti flokka og einstaklinga. Steingrímur er kominn í sinn stól, tók ekki nema ár að bola Steina burt, klár karl Steingrímur. Hann hlýtur því að geta ákveðið hvort hann ætlar að vera í stjórn eða stjórnarandstöðu. Jón Baldvin flúinn úr fjármálunum til útlanda (matarreikningurinn lækkar í það minnsta á meðan). Annars eru það fjármál út af fyrir sig að kanna og reikna út hvað utan- landsferðir embættismanna, maka og annarra fylgifiska kosta þjóð- ina. Nýjustu upplýsingar um kostn- að eru á bilinu 400—500 milljónir, en það þykir nú ekki mikið á stjórn- arheimilinu. Smámunir miðað við margt annað og hreinn dónaskapur af einhverjum úti í bæ að vera að fetta fingur út í það. Ólafur Ragnar fékk líka óska- drauminn uppfylltan. Loksins orð- inn ráðherra og það fjármálaráð- herra svo að við hin getum nú horft fram á betri tíð, minna sukk og svínarí, því Ólafur Ragnar hlýtur að standa við yfirlýsingar sínar. Hann hlýtur að setja heill þjóðar- innar ofar pólitísku poti, eða er það ekki? Ekki alveg... þvi hann verður að taka tillit til þeirra ákvarðana sem stofnanir innan Alþýðubanda- lagsins taka, því sá flokkur vinnur á lýðræðislegum grunni hvað svo sem það nú þýðir. Þess vegna verða ráð- herrar AlþbL, sem allir eru karlar, að velja sér aðstoðarmenn sem eru konur. (Ég sem hélt að allaballarnir tækju ekki þátt í svona sukki, þeir tala í það minnsta þannig um hina, en það er nú annað orð eða gjörðir.) En hvað gerir Ólafur Ragnar? Hann velur konu norðan úr landi, kennara við grunnskóla, kannski hún hafi kennt stærðfræði? En ekki nóg með það, hann bætir öðrum við; einkaefnahagsráðgjafa fjár- málaráðherra (sá er karl). Ætli þau skipti með sér launum? Það væri nú í anda félagshyggju og jafnréttis, eða fjölgar enn um einn á launaskrá ráðuneytisins? í viðskiptaráðuneytinu var staða ráðuneytisstjóra veitt aðstoðar- manni ráðherra, margir voru um hituna og m.a. einstaklingar sem unnið hafa í ráðuneytinu í mörg ár. En hvað réð vali ráðherra? Var þetta ef til vill smart Ieikur hjá Jóni Sig., var hann að slá tvær flugur í einu höggi og gera aðstoðarmann sinn jafnframt að ráðuneytisstjóra og spara þannig ríkinu dágóða launa- upphæð eða hvað? Verður annar aðstoðarmaður ráðinn og þá spyr maður hvað réð vali ráðherrans; starfsreynsla, hæfni, flokks- skírteini eða kannski allt þetta i ein- um pakka eða hvað? Seint fást svör, enda skipta þau engu máli. Allir þessir menn, hvar í flokki sem þeir standa, haga sér eins, hugsa um eigin hag og passa upp á „sitt fólk“. Mér finnst nú málin hins vegar standa þannig í dag að þeir sem eru valdir sem ráð- herraefni flokkanna séu einfaldlega ekki starfi sínu vaxnir og þurfi þvi að hafa um sig hirð misviturra „ráð- gjafa“ úr eigin flokki til að reyna að komast skammlaust frá þessu. En það dæmi gengur því miður ekki upp. Hvernig þætti ykkur að hafa íslenskukennara í grunnskólunum sem kynnu eingöngu rússnesku? Hver er svo skipstjórinn á skút- unni „MIG LANGAR ROSA- LEGA...“? Ekki Steingrímur, svo mikið er víst, heldur maður sem sit- ur á þingi fyrir samtök félagshyggju og jafnréttis. Maður, sem er orðinn persónugervingur fyrir sukkið og svínaríið í allri pólitíkinni. Það er öfugsnúið að tengjast félagshyggju og jafnrétti, en safna á eina hönd skiptingu fjármagns eða hvað finnst ykkur? Það er lika dálítið öfugsnúið að tala um félagshyggju og jafnrétti og þiggja svo bitlinga- laun á bilinu 100—140 þús. á mán- uði. Sér er nú hvert jafnréttið. Ég er þess fullviss að verkakonur og menn víðsvegar um landið myndu gjarnan þiggja slík laun fyrir 8—10 stunda vinnudag... en það er nú dá- lítið annað mál eða hvað finnst ykkur? Það er hálfklökkt að þessir svo- kölluðu ráðamenn skuli ætlast til þess að við hin, fólkið í þessu landi, treystum þeim og trúum því sem þeir segjast ætla að gera, þegar við vitum á hvern hátt til er stofnad. Það er hrein og bein móðgun við sæmilega vitibornar manneskjur að bjóða þeim upp á svona hrossa- kaup um heill og hag þjóðarinnar. Mér finnst það hins vegar óvirðing við hrossin að líkja þessum skripft- leik stjórnmálamanna við kaup og sölu þeirra. Svona í lokin langar mig til að segja ykkur frá því að ég er farin að velta því alvarlega fyrir mér að skella mér bara í pólitíkina. Þar þarf maður engin próf, enga starfs- reynslu, en kaupið er gott og ef maður rekst illa í flokki bjóðast ýmis hlunnindi. En spurningin er bara: í hvaða flokk ætti ég að fara?

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.