Pressan - 14.10.1988, Blaðsíða 10
10
Föstudagur 14. október 1988
fréttaskýring
Formannskosn ingin
hjá BSRB
KOSIÐ
UM STÍL
Þing Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, BSRB,
sem hefst nk. mánudag, snýst væntanlega fyrst og
fremst um kosningu nýrrar forystu. Flest bendir til að
Kristján Thorlacius, sem verið hefur formaður sl. 25 ár,
verði ekki í kjöri, en í viðtali við Pressuna segist hann
ekki tilkynna ákvörðun fyrr en á þinginu. Hann lýsir
hins vegar yfir eindregnum stuðningi við Guðrúnu
Árnadóttur, framkvæmdastjóra bandalagsins, sem er
einn þriggja frambjóðenda.
Það að Kristján skuli enn ekki
hafa gefið út skýlausa yfirlýsingu
um að hann gefi ekki kost á sér
þykir ýmsum merki þess að hann
geti hugsað sér að verða áfram eitt
kjörtímabil. Hann kunni því að lýsa
yfir á fundinum, ef átök verða um
frambjóðendurna þrjá, að hann
haldi áfram til að koma í veg fyrir
einhverskonar klofning í BSRB.
Þótt svo óliklega vildi til að
Kristján gæfi kost á sér aftur er
engu að síður talið að hann fái mót-
framboð, a.m.k. eru stuðnings-
menn Ögmundar Jónassonar sagð-
ir einhuga um það.
SPENNANDI KOSNING
Flest bendir til þess að enginn
frambjóðendanna þriggja hafi
hreinan meirihluta í fyrstu umferð
og kjósa þurfi á milli þeirra tveggja
sem flest atkvæði fá. Þingfulltrúar
eru um tvöhundruð og koma vænt-
anlega flestir úr fremstu Iínu BSRB-
félaganna. Það er m.a. talið veikja
stöðu Ögmundar Jónassonar, sem
fyrst og fremst er talinn hafa fylgi
meðal vinstrimanna og grasrótar-
innar, sem ekki nær kösningu inn á
þingið. Engu að síður vilja við-
mælendur blaðsins ekki útiloka
góðan árangur Ögmundar, sent
hafi sýnt að hann njörvi sig ekki
niður við flokkslínur þrátt fyrir að
fara ekki í grafgötur með vinstrileit-
ar stjórnmálaskoðanir sínar. Meðal
dyggustu stuðningsmanna hans eru
Jóhannes Gunnarsson, starfsmað-
ur Verðlagsstofnunar og formaður
Neytendasamtakanna, og Lea Þór-
arinsdótlir hjá Póstmannafélaginu.
Fylgi við framboð Ögmundar er
talið geta ráðist mjög af þeirri
stemmningu sem verður á þinginu.
Framboð Örlygs Geirssonar er
einnig stimplað pólitískt. Örlygur
er sagður krati, en er talinn njóta
stuðnings frá hægri. Formaður
Starfsmannafélags Reykjavíkur-
borgar, Haraldur Hannesson, er
talinn einn hans helstu stuðnings-
manna, auk Ágústs Guóinundsson-
ar, forstjóra Landmælinga íslands.
Örlygur er sagður njóta mikils
trausts og vera Iíklegur til að kom-
ast í úrslitakosningu.
I viðtali við PRESSUNA segist
Kristján Thorlacius vera eindreginn
stuðningsmaður Guðrúnar Árna-
dóttur. Yfirlýsing Kristjáns er jafn-
vel talin geta veikt stöðu Guðrúnar.
Hún er eini frambjóðandinn sem
ekki hefur verið dreginn í pólitískan
dilk, auk þess að vera eina konan.
Það eru af mörgum talin ótvíræð
meðmæli með framboði hennar til
viðbótar því, að hún þykir hafa
staðið sig vel i starfi framkvæmda-
stjóra samtakanna. Af orðum
hennar má einnig ráða að hún geri
ráð fyrir stuðningi kvenna, sem eru
um 67% af ríkisstarfsmönnum og
69% af bæjarstarfsmönnum.
Enn hafa engin nöfn verið nefnd
í varaformennsku. Örlygur Geirs-
son, annar varaformaður, er í for-
mannsslagnum og talið er að Albert
kristinsson, fyrsti varaformaður,
gefi ekki kost á sér. í samtölum við
blaðið töldu formannskandídat-
arnir þrír ólíklegt að þeir tækju
varaformennsku ef þeir féllu í kosn-
ingunni um formennskuna.
Ögmundur Jónasson útilokaði m.a.
þann möguleika.
ÁHERSLUMUNUR
Eins og fram kemur í viðtölum
við frambjóðendurna leggja allir
áherslu á að þeir séu ekki fulltrúar
ákveðinna pólitískra afla. Enginn
þeirra gagnrýnir harkalega, heldur
leggja þremenningarnir áherslu á
að breytingar á skipulagi BSRB
hafi þegar orðið og nú sé að marka
framtið samtakanna.
Þingfulltrúar, sem kjósa sér for-
mann á föstudag eftir viku, eru því
að kjósa um stíl fremur en gerbreyt-
ingu á starfsháttum BSRB. Sú
grundvallarbreyting hefur átt sér
stað að samningsrétturinn hefur
verið færður frá bandalaginu til
einstakra félaga. Starfsemin verður
því meira í því formi að styðja við
bakið á félögunum, sjá um upplýs-
ingastreymi og fræðslustarfsemi.
Hvernig tekst til veltur eflaust mik-
ið á persónuleika þess sem tekur við
af Kristjáni Thorlacius.
Ögmundur Jónasson, 40 ára,
sagnfrœðingur, fréttamaður.
Guðrún Arnadóttir, 43 ára,
meinatæknir, framkvæmdastjóri
BSRB.
FRAMTÍÐ SAMTAKANNA
RÆDST Á
NÆSTU ÁRUM
„Ég held að það ráðist á næstu
árum hvort þessi samtök eiga fram-
tíð fyrir sér. Ég hef áhuga á því að
púrra samtökin svolitið upp. Auð-
vitað hefur mikið starf verið unnið
innan þeirra á liðnum árum og það
oft ekki farið hátt sem vel hefur ver-
ið gert. Hins vegar held ég að þær
breytingar sem gerðar hafa verið í
samtökunum, þegar samningsrétt-
urinn færðist til félaganna, þær
leggi auknar skyldur á herðar heild-
arsamtökunum. Þau þurfi að afla
upplýsinga og miðla; vera sá nafli
sem tengir félögin saman,“ sagði
Ögmundur Jónasson.
„Það voru ýmsir sem töldu að
þessar breytingar myndu draga úr
vægi heildarsamtakanna. Ég tel
þvert á móti, að þetta vægi komi til
með að aukast og sú ábyrgð sem
hvílir á samtökunum sé síst minni. “
Eru uppi ólík sjónarmið um þessi
atriði?
„Ég þekki ekki sjónarmið hinna
svo gerla að þessu leyti. En ætli
megi ekki segja að hver hafi sinn
stíl. Það sé einhver áherslumunur."
Það er jafnvel talað um að þetta
séu pólitísk framboð?
„Mín pólitík hefur alltaf verið á
hreinu: Ég held með launamönn-
um, þessum samtökum, og hef
aldrei hugsað í flokkspólitískum
ferlum. Þetta er sú pólitík sem ég
hef fylgt og kæmi til með að gera,“
sagði Ögmundur Jónasson.
STJÓRNMÁLAFLOKKAR
EIGA EKKI
LAUNÞEGASAMTÓKIN
„Ég held að kosningin sé orðin
alltof pólitísk. Eitt af því sem ég vil
leggja áherslu á er að stjórnmála-
flokkar eigi ekki forystumenn í
launþegasamtökunum. Það er
afdráttarlaus skoðun mín, því það
er alveg sama hver situr við samn-
ingaborðið, átökin snúast ævinlega
um laun og kjör. Ég tel þó að öll
launþegamálin séu í eðli sínu póji-
tísk, en alls ekki flokkspólitísk. Ég
hygg t.d. að unga fólkið vilji ekki
sjá pólitíska gæðinga hér í hæstu
sætum,“ sagði Guðrún Árnadóttir,
frambjóðandi til formanns.
„Breytingar eru óhjákvæmilegar
og eru alltaf að gerast. Aðstæður
eru orðnar slíkar. Áhersluatriðin
eru orðin önnur en var — t.d. fyrir
2—3 árum. Bandalagið á eigi að
síður fullan rétt á sér sem slíkt, þótt
samningsrétturinn hafi farið út til
félaganna. Stóru málin standa eftir
hér innan bandalagsins, svo sem lif-
eyrismál, orlofsmál, jafnréttismál,
útgáfumál og ýmislegt annað,“
sagði Guðrún Árnadóttir.
Kona hefur aldrei gegnt for-
mennsku hjá BSRB. PRESSAN
spurði Guðrúnu hvort hún liti á sig
sem fulltrúa kvenna: „Ég er náttúr-
lega kona. í hópi ríkisstarfsmanna
eru 67% konur og af bæjarstarfs-
mönnum 69% konur. Einhver verð-
ur að axla.þá ábyrgð og það hlut-
verk að gefa sig fram. Það vill svo til
að ég er komin í það hlutverk og
ekki hægt að væna mig um að hafa
ekki þorað. En auðvitað hef ég unn-
ið hér jafnt fyrir karla og konur og
mun gera það áfram.“
Ertu ánægð með starfsemi BSRB
síðustu ár?
„Já, ég tel að bandalagið hafi
eflst. Hér hefur verið unnið feiki-
lega gott starf. Við eigum orðið
mikil og stór sumarbústaðahverfi
sem vonandi sem flestir njóta. Við
höfum verið t.d. mjög virk í ferða-
málum og ýmsu öðru. En eins og ég
sagði þá eru breytingar i nánd og
eru alltaf að gerast. Helsta breyting-
in er auðvitað nýju samningsréttar-
lögin,“ sagði Guðrún Árnadóttir.
Örlygur Geirsson, 48 ára,
verslunarskólagenginn, skrifstofu-
stjóri í menntamálaráðuneytinu,
varaformaður BSRB.
SNÝST EKKI UM
PÓLITÍSKAR
LÍNUR
„Ég er ekki að bjóða mig fram
fyrir ákveðna hópa og framboð
mitt snýst ekki um einhverjar póli-
tískar línur, isma eða þess háttar,"
sagði Örlygur Geirsson þegar
PRESSAN spurði hann um hvað
framboð lians snerist. En kæmi
kosning hans til með að breyta ein-
hverju í starfsemi bandalagsins:
„Samtökin eru alltaf að breyt-
ast,“ sagði Örlygur." Sú grundvall-
arbreyting er að í stað þess að áður
voru samningar miðstýrðir í hönd-
um heildarsamtaka er samnings-
rétturinn nú kominn í hendur hvers
einstaks félags. Þetta þýðir að starf
BSRB verður miklu meira í formi
þjónustu, upplýsingagjafar og
fræðslu. Það verður því að byggja
samtökin upp með öðrum hætti en
áður var. Þetta er auðvitað engin ný
uppfynding, heldur eðlilegt fram-
hald af þeim breytingum sem orðið
hafa á samtökunum. Áfram þurfa
þau auðvitað að vera sterk og öflug
til að verja hagsmuni fyrir félagög-
in.“
Ertu ánægður með áherslur og
þá áfanga sem náðst hafa fram að
þessu?
„í langri sögu samtakanna eru
margir stórir áfangar. Því er ekki að
leyna að mér finnst laun opinberra
starfsmanna langt frá því að hrópa
húrra fyrir. Það er langur vegur frá
því að láglaunafólkið í okkar hópi
hafi mannsæmandi laun,“ sagði
Örlygur Geirsson.
Kristján Thorlacius formaður BSRB
ÉG ER EINDREGINN
STUÐNINGSMAÐUR GUÐRÚNAR
„Ég svara engu til um það fyrr en
á þinginu," sagði Kristján
Thorlacius, formaður BSRB, en
hann hefur ekki enn gefið út yfir-
lýsingu um hvort hann gefur áfram
kost á sér til formanns. Aðspurður
fer hans hins vegar ekki dult með
það hvern kandídatanna þriggja
hann styður: „Ég er eindreginn
stuðningsmaður Guðrúnar Árna-
dóttur," sagði hann við PRESS-
UNA.
„Þingið snýst fyrst og fremst um
kjaramálin, um efnahagsmál al-
mennt, og lög bandalagsins. En eitt
af stærstu málum bandalagsins eru
jafnréttismálin. BSRB hefur m.a.
mótað stefnu í jafnréttis- og fjöl-
skyldumálum. Jafnframt hafa sam-
tökin tekið þátt í að móta stefnu
Verkalýðssambands Norðurlanda í
þeim málum. Þar hefur Guðrún
Árnadóttir verið fulltrúi okkar,“
sagði Kristján.
Þá sagðist hann gera ráð fyrir að
umræða um Efnahagsbandalagið
setti svip sinn á þingið. „Það snertir
alla launamenn i landinu hvort og
með hvaða hætti við reynum að
semja við Evrópubandalagið, sem
stefnir að því að girða sig af með
tollamúrum. Þetta mál varðar auð-
vitað efnahagslegt sjálfstæði þjóð-
arinnar. Stjórnskipuð nefnd hefur
leitað álits fjölda hagsmunasam-
taka um afstöðu og að mínum dómi
hljótum við að reyna að hafa þarna
áhrif,“ sagði Kristján Thorlacius.