Pressan - 14.10.1988, Síða 14

Pressan - 14.10.1988, Síða 14
I INNBLÁSTUR, ÁHUGI, FERSKLEIKI OGGLEÐI Guðný Björk Richard framkvæmdastjóri listadeildar er í essinu sínu á Stöð 2. Fæstir gera sér Ijóst hve mikil vinna liggur að baki útlits á góðri sjónvarpsstöð. Á listasviði Stöðvar 2 vinnur fólk í kyrrþey út á við, en engu að síður er sá innblástur sem þar á sér stað gífurlega mikilvægur. Þar ræðst „stíllinn“, útiitið á skjánum, sviðsmyndir frétta og umræðuþátta, leikmyndir, förðun, búningar, grafík, umgjörð dagskrárkynninga o.fl. o.fl. Á listasviði starfa 12 manns. Framkvæmdastjóri þess erGuðný Richards. Guðný útskrifaðist frá Myndlista- og handíðaskóla íslands 1985 og nam síðar við Slade School of Art í London. Á skólaárum sínum fékkst hún m.a. við gerð leikmynda fyrir leikhús og vann útlitsvinnu á auglýsingastofu. Eftir ársdvöl í London barst kallið frá Stöð 2. Fyrsta verkefni Guðnýjar var að búa kosningasjónvarpinu í apríl 86 búning. Einnig tók hún þátt í að skapa hina líflegu umgjörð 19:19. „Áalvörusjónvarpsstöðþurfalínuroglitir, leturgerð, tónlistogótal margt fíeira að mynda heildaráferð. Á Stöð 2 eráherslan lögð á glaðlegt, frísklegtog umfram allt lifandi yfirbragð. Við viljum minna áhorfandann stöðugtá að hann horfiá Stöð 2, en ekki hina stöðina. Á Stöð2hafa orðið stórkostlegarbreytingará síðustu misserum varðandi aukið tækjaval og fjárráð. Með þeim frábæra mannskap og mikla áhuga sem hérræðurríkjum munþað skila sér í enn betri heildarsvip". Svipmót Stöðvar 2 verður sífellt betra og betra. Hér eru nokkur sýnishorn af vinnu listasviðs stöðvarinnar.

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.