Pressan - 14.10.1988, Page 31

Pressan - 14.10.1988, Page 31
r 31 Föstudagur 14. siónvarp um helgina SJÓNVARPIÐ föstudag kl. 21.00 DERRICK Aðalhlutverk: Horst Tappert. Vikulega fáum við að fylgjast með þýska lögregluforingjanum Derr- ick. Sem fyrr er nóg að gera hjá vini okkar og oftar en ekki þarf hann að leggja höfuðið í bleyti þegar hann vinnur að erfiðum sakamálum. Félagi hans, Harry Klein, gerir einnig sitt besta til að komast að sannleikanum og handsama þá seku. STOÐ 2 föstudag í SPORIIM FLINTS * */! Bandarísk 1967. Leikstjóri: Gordon Douglas. Aðalhlutverk: James Coburn, Lee J. Cobb og Jean Ha/I. Hópur kvenna sem reka heilsuhæli á Virginíueyjum hefur í hyggju að ná heimsyfirráðum. Konurnar eru sérfræðingar í fegrunaraðgerðum og fara því létt með að búa til eftir- líkingu af Bandaríkjaforseta og hafa skipti á þeim raunverulega og platforsetanum. Bandaríska leyni- þjónustan er að vonum áhyggjufull vegna þessa og aðalhetjan þeirra, hann Flint, reynir hvað hann getur til að koma í veg fyrir að kvensun- um takist ætlunarverk sitt. SJÓNVARPIÐ föstudag kl. 22.00 ÞRJÁTÍU OG ÁTTA Austurrísk-þýsk 1986. Leikstjóri: Wolfgang Gliick. Aðalhlutverk: Tobias Engel, Sunnyi Melles, Heinz Frixner og Lotte Ledl. Mynd þessi gerist í Vín á árunum fyrir seinni heimsstyrjöld, á hinu forna yfirráðasvæði Flabsborgara, þar sem nasistar leggja í rúst heims- mynd hugsandi manna. Þessi mynd var tilnefnd til Óskarsverðlauna sem besta erlenda myndin árið 1986. SJÓNVARPIÐ laugardag kl. 21.15 SMÁFÓLK Bandarísk 1969. Þetta er bráðsmellin teiknimynd sem höfðar til allra aldurshópa. Hún fjallar um ævintýri Kalla Bjarna og félaga hans. Greyið hann Kalli er mjög seinheppinn en þó ekki á öllum sviðum, því honum hefur tekist að afla sér mikilla vin- sælda meðal almennings í teikni- myndasögunni um Smáfólk. ÞEIR BESTU Bandarísk 1986. Leikstjóri: Tony Scott. Aðalhlutverk: Tom Cruise, Kelly McGillis, Anthony Edwards og Tom Skerritt. Aðalhetja myndar- innar, Maverick (Tom Cruise), er ungur og djarfur flugmaður. Hann er sendur ásamt félaga sínum á námskeið í flugskóla bandaríska flotans, en þangað fara aðeins þeir bestu. Myndin lýsir harðri keppninni milli flugmanna í skólanum og eldheitu einkalífi Mavericks utan skólans. í myndinni eru þrumugóð atriði tekin í háloftunum og tónlistin er saga út af fyrir sig. Þetta er spennandi og skemmtileg mynd sem sló öll aðsóknarmet í kvikmyndahúsum árið 1986. STÖÐ 2 laugardag kl. 21.35 Bandarísk 1976. Leikstjóri: Mel Brooks. Aðalhlutverk: Mel Brooks, Marty Feldman, Dom De Luise, Anne : Bancroft, auk þesssem PaulNewman, Lizu Minnelli og Burt Reynolds bregðurfyrir. Leikstjóri nokkur (Mel Brooks) fær þá hugmynd að gera þögla mynd og koma þannig á óvart í hinni hörðu samkeppni kvikmynda- iðnaðarins. Hann fær forstjóra fyrirtækisins sem hann starfar hjá til að samþykkja gerð myndarinnar og þá er hafist handa. Mel Brooks fer með stórt hlutverk í þessari mynd auk þess sem hann skrifaði stóran hluta handritsins og leikstýrði myndinni. Þetta er mynd i anda hinna gömlu þöglu ntynda. STÖÐ 2 föstudag kl. 21.55 ÞÖGUL KVIKMYND STÖÐ 2 laugardag kl. 23.55 DÁÐADRENGIR Bandarísk 1986. Leikstjóri: John Byrum. Aðalhlulverk: Michael O’Keefe og Paul Rodrigues. Gamanmynd um Jake sent er ungur og ástfanginn af fallegri stúlku, og það sem meira er, stúlkan er einnig skotin í honunt. En lífið er ekki ei- lífur dans á rósum. Stúlkukindin á von á arfi, en aðeins ef hún upp- fyllir ákveðnar kröfur sem fylgja með í pakkanum. Þær eru að hún finni sér auðugan og veluppalinn herramann og giftist honum. Nú eru góð ráð dýr því Jake er hvorki prúðmenni né heldur á hann sand af seðlunt. Vinur hans reynir að hjálpa honum og Jake gerir allt hvað hann getur til að ganga i augun á foreldrum stúlkunnar sem hann elskar, en það gengur ekkert alltof vel. STÖÐ 2 sunnudag kl. 14.25 ÓPERA MÁNAÐARINS Ópera októbermánaðar er Heim- koma Ódysseifs. Höfundur hennar er tónskáldið Claudio Monteverdi, en hann er elsta tónskáldið sem samið hefur óperur sem heyrast jafnan i dag. Heimkoma Ódysseifs er þekktasta ópera Monteverdis og er hún í 5 þáttum. Formáli verksins inniheldur athugasemdir guðanna og ýmissa persónugervinga en óperan sjálf rekur niðurlag Ódysseifskviðu Hómers. Flytjendur eru Thomas Allen, Kathleen Kuhlmann, Alejandro Ramirez, James King, Manfred Schenk, Delores Ziegler, Robert Tear og Kurt Rydl. Stjórnandi er Jeffrey Tate. STÖÐ 2 laugardag kl. 01.20 BRANNIGAN * *vi Bresk 1975. Leikstjóri: Douglas Hickox. Aðalhlutverk: Jolm Wayne, Richard Attenborough, Judy Geeson og Mel Ferrer. Glæpamaður flýr til London til að forðast að Scotland Yard framselji hann til Bandaríkjanna. Lögreglu- maður frá Chicago er kallaður til aðstoðar við leit að glæponinum. Ágætis spennu- og afþreyingar- mynd. SJÓNVARPIÐ laugardag kl. 22.40 TAGGART - MEÐ KÖLDU BLÓÐI Skosk 1987. Leynilögreglumaðurinn Taggart rannsakar nú mál ungrar konu sem myrti eiginmann sinn vegna ótryggðar Itans við sig, að hennar sögn. Eftir skamman tíma kemst hann að því að málið er ekki eins einfalt og það lítur út fyrir að vera og ýmislegt kemur ekki heim og saman við frásögn ungu konunnar. SJÓNVARPIÐ sunnudag kl. 18.00 TÖFRAGLUGGINN Hér er svo sannarlega á ferðinni augnakonfekt barnanna, þar sem Bella Ieikur á als oddi. Á milli þess sem hún bregður á leik eru sýndar teiknimyndir. STÖÐ 2 sunnudag kl. 23.55 PÓSEIDONSLYSYÐ * * * Bandarísk 1972. Leikstjóri: Ronald Neame. Aðalhlutverk: Gene Hack- man, Ernest Borgnine, Red Buttons, Shelley Winters, Pamela Sue Martin og Roddy McDowall. Þessi vinsæla mynd þykir vera bæði spaugileg og spennandi. Lúxus- skipið Póseidon ferst á leið sinni frá New York til Grikklands. Við fylgj- umst með atburðarásinni og far- þegunum þar sem þeir reyna að bjarga lífi og limum og komast frá sökkvandi skipinu. SJÓNVARPIÐ sunnudag kl. 19.00 SJÖSVEIFLAN Rokkarar takið ykkur stöðu! Á sunnudagskvöld verður sýndur þáttur með snillingunum Bob Dylan og Tom Petty. Þátturinn var tekin upp á tónleikum sem kapp- arnir héldu í Ástralíu í mars 1986. Við fáum að heyra öll bestu lög þeirra og gætum við því notaö tímann í margt verra en að sjá þenn- an sjaldgæfa og spennandi atburð.

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.