Pressan - 14.10.1988, Síða 32
Helgarverð frá kr. 23.420-
Vikuverð frá kr. 30.046;-
Innifalið í verði: Flug, gisting og morgunverður.
Hótelmöguleikar: Y-HOTEL, BAILEYS, GRAFTON,
KENILWORTH, METROPOL, CLIFTON FORD,
GLOUCESTER.
Allar nánari upplýsingar færðu á söluskrifstofum
Flugleiða, hjá umboðsmönnum og ferðaskrifstofum.
* Gildistími frá 1/11 '88-15/12 '88.
** Gildistími frá 1/11 '88-31/3 '89.
Verð miðastvið einstakling í tveggja manna herbergi.
Staðgreiðsluverð.
P.S. LONDON er allt sem þér dettur í hug!
FLUGLEIÐIR
-fyrir þíg-
Söluskrifstofur Flugleiða: Lækjargötu 2,
Hótel Esju og í Kringlunni. Upplýsingasími 25 100.
H^Éikið átakamál hefur
komið upp innan háskólans vegna
forstöðumanns Reiknistofnunar,
Helga Þórssonar, sem hefur starfað
sem settur forstöðumaður stofnun-
arinnar um nokkurt skeið. Þetta
embætti þykir mjög eftirsóknarvert
þar sem um eina veigamestu stofn-
un háskólans er að ræða. Sótti
Helgi um að verða skipaður til
starfans. Þriggja manna stjórn
Reiknistofnunar setti sig algerlega á
móti ráðningu Helga sem hún segir
að hafi ekki valdið þessu starfi. Á
fundi háskólaráðs í gær voru ráðn-
ingarmál forstöðumanns Reikni-
stofnunar tekin fyrir og ákveðið að
Helgi yrði skipaður til starfsins
þvert ofan í vilja stjórnarinnar.
Þetta mun hafa þá þýðingu að
stjórn Reiknistofnunar Háskólans
segir öll af sér. Þess má geta að
Helgi er sonur hjónanna Þórs Vil-
hjálmssonar hæstaréttardómara og
Ragnhildar Helgadóttur alþingis-
manns...
N
— mg Neytendasamtakanna
verður haldið um helgina. Jóliann-
es Gunnarsson gefur áfram kost á
sér til formennsku, en nýr varafor-
maður verður kjörinn á þinginu því
Ásdís Rafnar mun ekki gefa kost á
sér til endurkjörs. Flokkssystir
hennar, María Ingvadóttir, vara-
þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er
talin erfa sætið...
BHíýskeð var lögð fram hjá
borgarfógetaembættinu beiðni um
að Islensk-portúgalska verslunarfé-
lagið yrði tekið til gjaldþrotaskipta
og er skiptaráðandi nú að vinna í
því máli. Stjórnarformaður og einn
aðaleigandi íslensk-portúgalska er
Magnús Hreggviðsson, eigandi
Frjáls framtaks og stjórnarmaður í
Verslunarráði íslands...
stóð að fara af stað með
Meffí, kvikmynd Hilmars Odds-
sonar, um miðjan nóvember, en því
hefur verið frestað fram á næsta
vor. Ýmsar praktískar ástæður
liggja að baki frestuninni eins og
veðurfar og mannaráðningar. Það
þótti því áhættuminna að bíða um
sinn.
H^íiklar sviptingar eru hjá
bílaumboðunum um þessar mund-
ir. Þegar hafa nokkur þeirra skipt
um eigendur og ekki virðist ætla að
rofa til hjá mörgum öðrum í bráð,
því enn safnast bílar upp á hafnar-
bökkum. Meðal annars munu eig-
endur Sveins Egilssonar hf. hafa
ákveðið að selja og ekki er talið líða
á löngu áður en fleiri losa sig út úr
bílaviðskiptunum...