Pressan - 01.12.1988, Blaðsíða 4

Pressan - 01.12.1988, Blaðsíða 4
Fimmtudagur 1. desember 1988 dorif- h > I. * r>- F' ♦ •! f ffd (T» * H litilræði Af þumalputta Ég hafói þá þumalputtareglu að kaupa áfengi fyrir þaö sem ég fékk í laun sem handhafi forsetavalds hverju sinni. (Fyrrverandi forseti hæstaréttar) í Lúkasarguðspjalli er það kallað að ávaxta sitt pund að fjárfesta skynsamlega og slík umsvif talin til mannkosta. Þessvegna má ganga út frá því sem vísu að alliropinberirstarfsmenn sem birgjasig uppaf brennivíni kaupaþað fyrirslikk eðafá það gratís í krafti síns embættis, fari fyrir vikið ekki til helvítis, heldur beint til himna- ríkis. Guði sé lof. Og þar verður ekki grátur og gnístran tanna einsog í neðra, heldur mun gleðin ríkja ofar hverri kröfu, gleði hinna útvöldu, gleði hinna réttlátu, gleði þeirra sem breytt hafa einsog samviskan bauð þeim hverju sinni og með þumalputtaregluna að leiðar- Ijósi. Ég hef alltaf haft tröllatrú á þumalputta- reglunni, enda er ég orðinn auðugur maður og guði þóknanlegur. Og það skyldu menn hafa hugfast, að þó dómskerfið sé uppeftir öllu að bögglast með stjórnarskrá, landslög og reglugerðir þámá, ef að líkum lætur, gera ráð fyrir því að þegar menn koma fyrir „hinn æðsta dóm“ verði það þumalputti dómar- ans sem skiptir sköpum. Og þó tuttugu séu á hverri mannskepnu tær og fingur, einsog segir í kviölingnum, þáeru nú hæstaréttardómararbarafimm — jafnmargir fingrum annarrar handar —. Og þarsem þumalfingurinn erallrafingra verðmætastur er vel við hæfi að forseti hæstaréttar sé handhafi hans og forseta- valdsins í leiðinni. Og má ég nú koma þeirri frómu ósk á framfæri við æðstu fulltrúa réttlætisins í landinu að næst þegar ég svík, stel eða af- lífa einhvern, og verð látinn svara til saka fyrir hinum æðsta dómstóli, að þá verði ég dæmdur eftir þumalputtareglunni, þegar vel liggur á mildum dómurum af því Vigdís er að heiman. Ég held að velmeinandi fólk botni hvorki upp né niður í öllu því moldviðri sem þyrlað hefurverið upp útaf brennivínskaupum for- seta hæstaréttar. Ég meina það. Ég held meira að segja að þeir séu til, sem álíta að fræðilegur möguleiki sé á því aó vera handhafi forsetavalds brennivíns- laus. Er það ekki ótrúlegt hvað fólk getur verið skyni skroppið? Sem betur fer hefur íslenska þjóðin að undanförnu — fyrir atbeina fjölmiðla — verið leidd í allan sannleikann um það hvert er verksvið .handhafa forsetavaldsins. Eða, einsog sagði í einu dagblaðanna á dögunum: Ekkert annað en að fara með Vigdísi útá völl, bíða svo eftir að hún komi aftur og sækja hana þá útá völl. Það gefuraugaleið að þessum umsvifum sinnir enginn brennivínslaus og svo notuð sé „þumalputtaregla11 hæstaréttardómar- ans má Ijóst vera að ekki er hægt að komast af meðminnaen 180 flöskuraf sterku íhvert skipti sem forseti landsins hleypir heim- draganum. Einhvern tímann í sumar gerðist það að handhafar forsetavalds gleymdu að sækja forseta vorn útá völl þegar hún var að koma fráútlöndum. Ég veit um engan mann sem lætur sér detta í hug að þessi gleymska hafi stafað af öðru en því að þeir hafi gleymt að birgja sig upp af brennivíni daginn sem forsetinn hvarf af landi brott. Brennivínslaus handhafi er nefnilega einsog þumalfingurlaus píanisti. Ef einhver hefur unnið til saka í þessu máli, þá er það tvímælalaust innanbúðar- maðurinn í Ríkinu. Það var hann sem lét þessi örlagaríku orð falla: — Var það nokkuð fleira? Hvernig átti háyfirdómari íslensku rétt- vísinnar og handhafi forsetavalds að skilja orð innanbúðarmannsins: — Var það nokkuð fleira? Réttur aðili hafði látið sérfræðilegt álit í Ijós. Á annaðhundrað kassaraf brennivíni fyrir slikk, versgú. Hér þurfti hvorki stjórnarskrá, lög, reglu- gerðir né dómgreind. Ekki einusinni þumal- puttaregluna. Búðarmaðurinn hafói lagt blessun sína á kaupin og boðið meira. Svo kaupandinn svaraði, soberas a judge og grandalaus: — Nei, það var ekki fleira — og skilaði afgangnum. Þess vegna er það búðarlokan sem ber . sökina ef einhver er. Og svona í forbífarten má geta þess að lengi hefur þjóðin saknað þess sárlega að hafa ekki framsóknarmann í Hæstarétti. \ Nýr möguleiki á Stór-Reykjavíkursvceðinu 1. desember HLJOÐBYLGJAN FM 95,7 i loftiÓ i dag Auglit

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.