Pressan - 01.12.1988, Blaðsíða 14

Pressan - 01.12.1988, Blaðsíða 14
14 Fimmtudagur 1. deserriber 1988 <Ui *r Ori h .*hU BwWJ Imto. »»muW* /»' •« Unk* pft U* »'«‘4» , <*h Br,»n f.rty - •huryckvhvrtn, r»*t -----------íELm, L.saa.aM-Ær55 Förtráfílig islandsdebut UUBBl MOKTIIP.NS Srrhian ri«wcr» BSBBTTWlfim* h*» xwbt in rtlw wtn l»» h*T>«m* pft JíU.hI, M.rv dr< lt Arnr* lp.*om h*ri »rUi«i •*- «J»n l*as, »n> Han rillwuB 5*l«n if Tifi'it' s»Tfft.: PLATA ÚR SKÍRA GULLI Bubbi Morthens fœr hrós í sænskum blöðum Við fyrstu sýn mætti kannski ætla að Bubbi okkar Morthens væri alltof ramm- þjóðlegur, alltof sannur ís- lendingur, til að hann ætti nokkra leið inn i hlustir út- lendinga. Sykurmolar hafa reynst tækir til útflutnings, enda i raun engum sérstök- um þjóðlegheitum fyrir að fara á þeim bæ, en Bubbi — maður hefði ætlað að hlut- skipti hans væri að syngja um ókomna framtíð fyrir þær 250 þúsund sálir sem byggja þennan norðurhjara. Annað virðist þó vera að koma á daginn. „Serbian Flower", hljómplata sem Bubbi hefur gert i félagi við Christian Falk, meðlim sænsku hljómsveitarinnar Imperiet, hefur fengið feikn góðar viðtökur í Svíþjóð og er mikið spiluð í þarlendum útvörpum. Lítum á hvað sænsk blöð hafa að segja um Bubba Morthens: Hljómplötuskrifari blaðs- ins NorraSkáne vitnarí Keith Richards, gítarleikara Roll- ing Stones, sem mun hafa sagt eitthvað á þá leið að 97 prósent af rokkmúsik væru drasl. Blaðið vill meina að „Serbian Flower“ sé „gæða- plata“ sem flokkist með hin- um 3 prósentunum. „Þaö er hvergi feilspor á plötunni," segir gagnrýnandinn Mikael Ankarvik og gefur henni fjór- ar stjörnur. Hljómplötudómar eftir Claes Olson birtast í fjölda sænskra blaða, þar á meðai f Arbetarbladet. „íslendingur- inn Bubbi Morthens er efa- laust einn athyglisverðasti nýgræðingurinn á hljóm- plötumarkaðnum," skrifar Olson. „Á persónulegan og spennandi hátt blandar hann saman nútíma rokktónlist og andblæ úr hefðbundinni þjóðlagatónlist. Útkoman er hljómplata sem ristir óvenju djúpt. Satt að segja misstíg- ur Bubbi sig hvergi. Sé til nokkurt réttlæti I heiminum verður þetta fyrsta fslenska guflplatan ( Svíþjóð. Því hún er úr sklra gulli.“ Á öðrum stað fær Bubbi heilar fimm stjörnur og svo- hljóðandi ummæli: „Bubbi er ósvikinn íslenskur þjóð- ernissinni. Tónlistin er hrjúf, en um leið fersk eins og jök- ulfljót. Útkoman ef meistara- verk, djúpt og þroskað. Getur maður farið fram á meira?“ í Östersunds-posten skrif- ar Christer Bengtson: „Árið 1984 skrifaði ég grein um rokklífið á íslandi. Allir sem ég talaði við höfðu skoðun á Bubba Morthens. Annað- hvort elskuöu menn hann eða hötuðu. En hvað sem því leiðvoru allirsammálaum að ehdurfæðing rokksins í Reykjavík 1980 hefði verið óhugasndi án Bubba og Utangarðsmannanna. Án Bubba hefðum við aldrei heyrt í Sykurmolunum. Ég læt hrífast af þessum 31 árs gamla Islendingi og lögun- um hans.“ Folkbladet, sem kemur út í Norrköping, skrifar: „Þettaer stórforvitnileg plata sem ber vott um mikinn þroska. Bubbi spilarámargastrengi, en i lokin renna lögin saman í Ijúfsára heild. Þar fyrir utan gerir hann góðar tilraunir til aðskrifatextaaf viti. Ef til vill erfullmikið fengið að láni frá tónlistarmönnum á borð við Leonard Cohen og Van Morri- son, en Bubbi fer vel með þau áhrif og auk þess kemur nógu mikið frá honum sjálf- um til að gefa plötunni per- sónulegan blæ. Frábær byrj- un og við biöum spennt eftir framhaldinu." „Þetta er hljómplata sem kemur þægilega á óvart,“ segir í Borlange Tidning. „Þegar litiö er á plötuna í heild sést aö Bubbi er í farar- broddi í íslensku poppi. Meira að segja hinir frægu Sykurmolar falla í skugg- ann.“ Björn Stenberg skrifar í Uppsala Nya Tidning og seg- ir að Bubba hafi lánast að gera persónulega plötu, sem ekki sé ýkja algengt um þessar mundir. „Bubbi hefur gert plötu sem grípurog vex siöan viö hverja hlustun. Hann tekur áhættu og skýtur reyndarstundum yfirmarkið. Sérstaklega eru nokkrirtext- anna flausturslegir. En það er verðið sem Bubbi Morth- ens geldur fyrir að þora að vera hann sjálfur. Það er allt- af gott þegar menn syngja um hluti sem skipta máli, sem Bubbi gerir oftast- nær.“ ■ — EH Er jólaglöggin siður eða ósiður? Hugsaðu málið * Átak gcgn áfengi ALLT I JOLAMATINN Londonlamb kr. 890.- pr. kg Reyktur svínahnakki kr. 925.- pr. kg Svínahamborgarhryggur kr. 1.153.- pr. kg Bacon-skinka kr. 954,- pr. kg SVÍNAKJÖTAF NÝSLÁ TRUÐU NORÐLENSKA JÓLAHANGIKJÖTIÐ MAGÁLL OG , HÁKARL / / NAUTAKJÖT AF NÝSLÁTRUÐU frönsku,n-__ _ bifjasteik ,M kartöflum Opið: Mánud. — fimmtud.... 9—18 Föstud............... 9—20 Laugard.............. 9—18 Sunnud...............11 —18 SVR °g aðeins m/hr 335.- W ■/ 1 di'm k'i g t j i GARÐABÆ, SÍMI 656400

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.