Pressan - 26.01.1989, Qupperneq 5
(Fim míudag u-ro26 j ij.amúaf; t1089
í London með Guðna Bergssyni og Tottenham
Guöni Bergsson á æfingavelli Tottenham viö Mill Hill. Yfir grúföi þykk tundúnaþoka sem sjá má og geröi hún
alla Ijósmyndun mjög erfiða. Til vinstri er Chris Houghton, sem Guðni segír vera gull af manni þótt þe:.- séu i
samkeppni um fast sæti i liðinu; til hægri er Paul Gascoígne, sem nýlega var keyptur frá Newcastle, fjörkálfur
mikill sem lætur ýmislegt flakka og bankar nú á dyrnar sem arftaki Chris Waddles og lengst til hægri glittir i
Chris Fairclough, en vegna flensu hans fékk Guóni sitt fyrsta tækifæri meó aðaltiðinu — flensa þessi hefur
reyndar tröllriðið mestöllu liðinu og háöi Guðna verulega i bikarleiknum á móti Bradford.
.'J-Í.T. / f V W0.. w- f . i Æ liliilMMtt ...
nHH * '' »::
iliLyJ '/1
*
: - wJj Æmm w, , fl
Segja má að ferill Guðna Bergssonar hafi hafist með
óformlegu samtali tveggja manna í fegurðarsamkeppni.
í dómnefndinni sem valdi Ungfrú alheim átti sæti Chris
Naidoo, hluthafi hjá Tottenham, en hann og kunningi
hans, Baldvin Jónsson, umboðsmaður keppninnar á ís-
landi, tóku tal saman. Englendingurinn kvartaði undan
því að vörn liðsins hefði gengið illa að undanförnu og
Baldvin taldi sig vita um leikmann á íslandi sem gæti
hjálpað til og staðið sig vel. Naidoo greindi síðan Terry
Venables, framkvæmdastjóra liðsins (manager), frá
þessu og hann sýndi strax áhuga. Daginn eftir borðuðu
þessir þrír menn saman ásamt Jimmy gamla Greaves og
þeir ákváðu að bjóða Guðna að koma til reynslu.
EFTIR FRIORIK ÞÓR GUOMUNDSSON MYNDIR TERRY NORMAN
Guftni Bergsson og blaðnmaður Pressunnar skála i bjór á
Swallow-hótelinu þar sem hann býr auk þeirra Eriks Thorst-
vedt, Pauls Gascoigne og Pauls Stewart. Guðni liffir rólegu líffi
á hótelinu, en á hinn bóginn leyfir enginn leikmannanna sér
að sulla i bjórnum ef ætlunin er að komast i eða halda sér i að-
alliðinu. Þeir eru þó ekki háðir ströngum reglum og aga —
það er þeirra að meta hvað þeir vilja ganga langt i þeim efn-
um.
„Mér leist í sjálfu sér ekkert æð-
islega vel á þetta. Ég var ekki búinn
að hreyfa mig í sjö vikur og var þvi
langt frá því að vera í nógu góðu lik-
amlegu formi. Ég vissi sem var, að
ég þyrfti að vera í toppformi til að
geta sýnt það sem til var ætlast af
mér. Én ég vildi fá tækifæri til að
spila hér og liðið var i vandræðum
með leikmenn. Ég var einna mest
hikandi vegna hinnar slæmu reynslu
minnar þegar ég fór til Aston
Villa árið 1985. Það var ferð sem
var út í móinn og bláinn og ég hefði
alveg eins getað farið í gott frí til
Húsavíkur. Það var greinilegt að ég
var þangað kominn án þess að haft
hafi verið samráð við Graham
Turner framkvæmdastjóra. Eg spil-
aði.ekki með varaliðinu, fékk ekki
leyfi og annað var eftir því. Öll
framkvæmdin á þeim reynsluæf-
ingum var mjög slæm og ég var afar
óánægður. Skiljanlega var ég því
nokkuð „skeptískur“ þegar ég var
beðinn að koma til Tottenham,"
sagði Guðni þegar blaðamaður
Pressunnar ræddi við hann i Lond-
on í síðustu viku.
Tottenham er eitthvert ríkasta og
frægasta lið heimsins og með geysi-
lega öflugt lið — á pappirnum að
minnsta kosti. Þegar blaðamaður
Pressunnar ræddi við Guðna í
London hafði liðið tapað nokkrum
leikjum í röð, en það var greinilegt
á öllu viðmóti leikmanna og stjórn-
enda á æfingavellinum í Mill Hill
að það var engan bilbug að finna á
mönnum og um síðustu helgi átti
liðið þokkalegan leik norður í
Middlesboro, jafntefli náðist gegn
liði sem er erfitt heim að sækja.
GÓÐUR SAMNINGUR EN
KJÖRIN TRÚNADARMÁL
Guðni Bergsson er aðeins 23ja
ára gamall laganemi en er þegar
kominn með talsverða reynslu með
Val, þýska liðinu 1860 Múnchen,
landsliðum íslands yngri og eldri
leikmanna og nú Tottenham. Hann
býr við gott yfirlæti á Swallow-hóteli,
en hefur nú fest kaup á einbýlis-
húsi, sem hann flyst í eftir 3 vikur.
Þegar við hittum Guðna var unn-
usta hans, Elin Konráðsdóttir, ný-
farin til íslands um sinn, en Guðni
er í góðum félagsskap á hótelinu,
þar sem búa nojtkrir af nýjustu leik-
mönnum liðsins, meðal annars
norski markmaðurinn Erik Thorst-
vedt, og eyða þeir drjúgum stund-
um saman. „Faðir minn minntist á
það við mig í haust að Tottenham
væri lið sem gengi l'rekar illa og að
ekki væri amalegt fyrir mig að
komast þangað að hjálpa til — ég
held að hann hafi mest verið að
grínast, en svo gerðist akkúrat þelta.
Hann hefur aðstoðað mig mikið
í þessum samningaviðræðum og
við höfum leitað ráða hér og þar.
Það er síðan umboðsmaður hér
sem hefur verið nokkuð i sambandi
við ísland, Sava Popovich, sem veitti
okkur upplýsingar, þannig að við
vorum ekki að renna blint í sjóinn.
Það er um að gera að reyna að hafa
sinn fyrsta samning í góðu lagi,
hann er sá mikilvægasti. Kjaramál-
in eru trúnaðarmál, en mér sýnist af
því sem ég hef frétt af öðrum samn-
ingum að ég geti verið mjög ánægð-
ur með hlutskipti mitt. Staða mín
var í rauninni ekkert alltof góð, ég
var útlenskur áhugamaður sem
aldrei hafði spilað í ensku fyrstu
deildinni og þeir höfðu lítið séð til
minna hæfileika. Þetta var því
ákveðin áhætta fyrir liðið og ég
þurfti að berjast nokkuð hart fyrir
þvi sem ég fékk í gegn og það tók
allt sinn tíma. Sjálfur er ég á fjórða
ári í lögfræðinni heima og þótt ég
hal'i gælt við hugmyndina um
atvinnumennsku var ég öruggur
um að fara ekkert nema það yrði
eitthvað verulega gott lið og góð
kjör í boði. Ég var staðráðinn í því