Pressan - 26.01.1989, Qupperneq 9
Fimmtudagur 26. janúar 1989
9
Óprúttnir aðilar hafa safnað fé í nafni nýstofnaðra samtaka, sem nú hafa kœrt
uppátœkið til RLR.
sviku
TANNLJEKNUM
Giróseðlarnir, sem tannlæknarn-
ir fengu senda, voru sendir í
nafni „Samtaka um fraeðslu".
I desember síðastliðnum virðist einhverjum hafa
dottið í hug að fjármagna jólaútgjöldin með því að
senda tannlæknum gíróseðla í nafni nýstofnaðra
samtaka, sem ætla að aðstoða alnæmissjúklinga. En
það er hætt við að brosið renni brátt af þessum
bíræfnu aðilum, því rannsóknarlögreglan er komin í
málið.
PRESSAN frétti fyrir skemmstu
af nokkrum tannlæknum, sem i
desembermánuði voru beðnir að
styrkja nýstofnuð samtök til að-
stoðar alnæmissjúklingum með
fjárfragilagi upp á 4—5 þúsund
krónur. Beiðnin kom fyrst sím-
leiðis og í sumum tilvikum talaði
karlmannsrödd, en í önnur skipti
var það kvenmannsrödd. Erindið
sögðu þau það, að safna framlög-
um frá einstaklingum í heilbrigð-
isstéttunum til að fjármagna
starfsemi nýju samtakanna. Gíró-
seðill myndi síðan berast fljótlega
í kjölfar símtalsins.
Það kom líka á daginn.
Skömmu seinna barst gíróseðill i
pósti. Tannlæknarnir voru að
sjálfsögðu grandalausir og eflaust
hafa margir þeirra, sem fyrir
þessu urðu, farið og greitt seðilinn
— enda málefnið gott.
Þegar PRESSAN hafði sam-
band við forsvarsmenn hinna
nýju samtaka brá þeim hins vegar
heldur betur í brún. Þeir könnuð-
ust nefnilega ekki við neitt fjár-
öflunarátak. Og nú hafa þeir kært
málið til Rannsóknarlögreglu rík-
isins, sem vinnur þessa dagana að
því að upplýsa hverjir léku þenn-
an ljóta leik.
Póstgíróreikningurinn, sem
tannlæknarnir greiddu framlög
sín inn á, er númer 687847. Sá
reikningur er skráður á nafn
„Samstarfshóps um fræðslu”.
Hver svo sem þessi „hópur” er, þá
er hann a.m.k. ekki á vegum
fólksins í alnæmissamtökunum,
sem er að vonum afar áhyggju-
fullt yfir þessu máli.
Þetta virðist tiltölulega ný að-
ferð við að svíkja út peninga,
samkvæmt upplýsingunt Helga
Daníelssonar hjá RLR. Hann
sagði, að stundum væri eitthvert
smásvindl í gangi, eins og þegar
krakkar ganga í hús og selja merki
eða happdrættismiða og stinga
afrakstrinum í eigin vasa. Það
væri hins vegar nýtt af nálinni að
menn stofnuðu gíróreikning og
sópuðu þannig að sér fé.
Ekki er þó víst að þetta sé al-
gjört einsdæmi, þvi PRESSAN
hefur haft fregnir að öðru l'élagi
sem lenti í svipuðu máli á síðasta
ári. Það virðist því óhætt að
hvetja fólk til að ganga úr skugga
um að allt sé með felldu, áður en
það í góðmennsku sinni reiðir al'
hendi fé til líknarmála. En það er
kannski einmitt alvarlegasti hluti
þessa uppátækis. Ef þetta veldur
því að menn hika áður en þeir sjá
af peningum í þágu góðs málefn-
is, þá hala þessir óprúttnu náung-
ar ekki einungis skaðað einstakl-
ingana, sem urðu persónulega
fyrir barðinu á þeim. Þeir liafa
einnig komið höggi á hvern ein-
asta lítilmagna í þjóðlelaginu. ■
Sendingar ASTRA-hnattarins hefjast í nœsta mánuði
INNRÁS 16 NÝRRA
SJÓNVARPSSTÖÐVA
í dag geta íslenskir sjónvarpsáhugamenn náð sjón-
varpssendingum a.m.k. þriggja fjarskiptahnatta,
ECS 4, ECS 5 og INTELSAT V 5. Á þessum hnött-
um eru stöðvar eins og Sky Channel (blönduð
skemmtirás), MTV (24 tíma tónlist), Sat1, RTL
plus og 3 sat (þýskar stöðvar með blönduðu efni),
Children’s Channel (barnarás) og margar fleiri.
En í byrjun febrúar fer í gang sjónvarpshnötturinn
ASTRA, sem á að verða 16 sjónvarpsrásir. Meðal
stöðva sem þarna verða eru sjónvarpsstöðvar í eigu
fjölmiðlarisans Ruperts Murdoch. Þær sjón-
varpsstöðvar sem vitað er að þegar hafa tryggt sér að-
gang að sjónvarpshnettinum eru:
ASTRA-regnhlifarnar eru áhrifamikið auglýsingatrix eigenda gervitungls-
ins. Þær vekja athygli á því að til að ná sendingum frá ASTRA-hnettinum,
i Bretlandi og á meginlandi Evrópu, þarf aðeins disk á stærð við venjulega
regnhlíf. Það ducfar vist ekki hér á landi en æ fullkomnari móttakarar gera
búnaðinn einfaldari og sifellt ódýrari.
Móttökubúnaður á 200 pund!
The Disney Channel Stöð
sem sendir út, eins og nafnið
bendir til, efni frá Walt Disney,
þ.e. barnaefni og fjölskyldudag-
skrá, 18 tíma á dag. Aðeins er ætl-
ast til að horft verði á þessa stöð
á Bretlandseyjum, en möguleiki
verður fyrir íslendinga að horfa á
hana fyrstu mánuðina eða allt þar
til hún byrjar að senda út ruglað.
Lifestyle Stöð sérstaklega
ætluð heimavinnandi húsmæðr-
um. Hún sendir út blandað efni,
m.a. fræðsluefni, viðtalsþætti,
matreiðsluþætti o.fl. Stöðin send-
ir I dag út í 6 tíma yfir daginn en
hyggst lengja útsendingartímann
eitthvað.
Screensport Sjónvarpsstöð
sem sendir eingöngu út íjörótta-
efni. Þar er um að ræða sendingar
frá t.d. golfmótum eins og US
OPEN og BRITISH OPEN, tenn-
is, akstursíþróttir ýmiss konar,
knattspyrnu o.fl. Stöðin hefur yf-
irleitt sýnt þessa atburði í heild en
ekki eins og sumar stöðvar gera að
sýna aðeins stuttar glefsur frá
þeim. Stöðin hyggst senda út í 24
tíma á sólarhring, eftir að hún
flytur sig yfir á ASTRA.
Eurosport Önnur íþróttastöð
sem mun senda út frá ASTRA.
Hún mun senda út í samvinnu
SKY TELEVISION og stöðva í
EBU, m.a. BBC. Stöðin mun
senda út til að byrja með í 18 tíma
á dag en lengir svo dagskrána í 24
tíma. Efnið verður úrval af íþrótt-
um bæði frá Evrópu og annars-
staðar úr heiminum.
Sky Movies Stöð sem kemur
til með að senda út kvikmyndir 18
tíma á dag. Þar verða myndir m.a.
frá fyrirtækjum eins og
TOUCHSTONE og TWEN-
TIETH CENTURY FOX. Eins og
Disney Channel mun þessi stöð
senda út til að byrja með óruglað,
en kemur svo til með að selja af-
notin í pakka með Disney Chann-
el á 12 pund eða um l.OOO kr.
Stöðin er einnig ætluð eingöngu
til móttöku á Bretlandseyjum.
Sky Channel Stöð sem sent
hefur út nokkur síðastliðin ár til
kapalkerfa og nær í dag til um 30
milljón heimila um alla Evrópu.
Stöðin sendir út blandaða afþrey-
ingardagskrá, m.a. framhalds-
þætti, sjónvarpsmyndir, íþróttir,
fréttir, tónlist og barnaefni. Hún
sendir út í 18 tíma á dag.
Sky News 24 tíma fréttir.
Scansat TV3 Þessi stöð verð-
ur með tvær rásir á sínum snærum
á ASTRA. Þær verða líklega báð-
ar sendar út ruglaðar og aðeins
verður leyfilegt að horfa á þær I
Skandinavíu.
Filmnet Stöð sem sendir ein-
göngu út kvikmyndir, því miður
aðeins ætluð Skandinavíu og
Benelux-löndunum, og sendir út
ruglað I þokkabót.
Þarna verða að öllum líkindum
tvær rásir í viðbót frá Bretlandi og
fjórar frá Þýskalandi, en það hef-
ur ekki enn verið staðfest.
Einnig verða þarna stöðvar sem
ekki senda út nema dagpart. Það
verða:
Arts Channel Stöð með
menningarlegt efni, ballett, jazz,
óperur og fræðsluefni af ýmsum
toga. Sendir út 3 tima á dag.
Landscape Channel Þessi
stöð er einstök, því hún sendir út
mjög fallegar myndir úr náttúr-
unni og þeim fylgir tónlist eftir
ýmsa meistara klassískrar tónlist-
ar, en einnig eftir popptónlistar-
menn sem spila svokallaða
„instrumental” tónlist.
European Business
Channel Viðskiptastöð.
Kindernet Barnaefni á hoi-
lensku.
Það er nokkuð ljóst að islensk-
um sjónvarpsáhorfendum gefast
þarna auknir valmöguleikar.
Þarna finna eflaust flestir eitt-
hvað við sitt hæfi og í fæstum til-
fellum þarf að hafa áhyggjur af
afnotagjöldum, því rekstur flestra
þessara stöðva er greiddur nteð
auglýsingatekjum.
Sendingar frá ASTRA-hnetlin-
um munu valda enn einni gjörbylt-
ingunni í gervitunglasjónvarpi Evr-
ópubúa og sú breyting mun ugg-
laust stórauka notkunina hér á
landi.
Markaóssérfræóingar ASTRA
hyggjast ná til milljóna heimila í
Bretlandi, Skandinavíu og á megin-
landinu með mun ódýrari móttöku-
búnaði en áður hefur þekkst. Full-
yrða þeirað nota megi móttökudisk
sem er aðeins 60 sm að þvermáli og
allt í allt kostar ódýrasti móttöku-
búnaðurinn um 200 bresk pund eða
sem svarar til tæplega 18 þúsund ísl.
króna.
Verkfræðingur hjá Pósti og síma
segir að enn hafi engar prófanir ver-
ið gerðar á því hér á landi hvort svo
lítill móttökudiskur nægi til að ná
sendingunum hérlcndis, en til þessa
hafa 1,2 metra diskar verið algert
lágmark til að ná sendingum Eut-
elsat- og Intersat-hnattanna.
Söluaðilar móttökudiska hér á
landi eru fremur vantrúaðir á að
hægt verði að notast við 60 sm
„regnhlífardiska” hér þegar send-
ingar ASTRA-hnattarins hefjast.
Hins vegar væri ekki útilokað að 90
sm diskur nægði. í öllu falli má bú-
ast við að móttökubúnaðurinn
vegna þessara sendinga verði mun
ódýrari en til þessa hefur þekkst.
í dag kosta ódýrustu diskarnir
með nauðsynlegum búnaði frá 88
til 120 þúsund kr. Fullkomnari
stereóbúnaður er mun dýrari. Sí-
fellt er verið að þróa sterkari mót-
takara í diskunum og á skömmum
tíma hefur verðið orðið æ viðráðan-
legra fyrir áhugamenn um gervi-
hnattasjónvarp. Nú er talið að
nærri 'áti að um 300 til 400 mót-
töl udiskar séu á öllu landinu. Þáer
að verða töluvert um það að sami
diskurinn sé nýttur fyrir fjölbýlis-
hús eða kapalkerfi á þéttbýlisstöð-
um úti á landi.
í upphafi mun ASTRA-hnöttur-
inn senda út efni á 16 rásum og má
ætla að innan fárra mánaða verði á
þriðja tug sjónvarpsstöðva farnar
að senda út efni sitt á geislum
ASTRA. Það sem gerir ASTRA-
hnöttinn líklegan til vinsælda hér á
landi er hversu mikið enskt efni
verður í boði. ASTRA er alþjóðleg
eign sjónvarpsstöðva og sendir ein-
göngu út sjónvarpsefni. Til þessa
hafa sjónvarpstunglin einnig verið
með rásir fyrir fjarskipti og það
verður því erfitt úrlausnar fyrir
Póst og sima að ráða fram úr því
hvort ASTRA fellur undir fjar-
skiptalög. Til þessa hefur verið
skylt að skrá alla móttökudiska hjá
Pósti og síma en ASTRA er ein-
göngu sjónvarpshnöttur sem hefur
innrás sína inn í islenska sjónvarps-
menningu eftir mánaðamótin, hvað
sem hver segir, og söluaðilar mót-
tökudiska eru þegar farnir að búa
sig undir sölusprengingu.