Pressan - 26.01.1989, Qupperneq 23
Fimmtudagur 26. janúar 1989
23
SÚMÓGLÍMA
Tveir íturvaxnir menn stilla sér upp andspæn-
is hvor öðrum. Augu þeirra mætast og þaö er
aðeins tímaspursmál hvenær þeir rjúka sam-
an. Áhorfendur standa á öndinni...
Þótt furðulegt megi virðast er hér
ekki um að ræða átök á íslenskum
skemmtistað, heldur meira en tvö
þúsund ára gamla íþrótt sem
stunduð er í Japan. Fyrsta Súmó-
glíman sem vitað er um átti sér
stað árið 23 fyrir Krist, og enn
þann dag í dag er Súmóglíman
iðkuð í Japan og svo virðist sem
hún eigi sífellt meiri vinsældum
að fagna í hinum vestræna heimi.
SÍÐUSTU SAMÚRÆJARNIR
Súmóíþróttin er talin vera síð-
ustu leifarnar af hinni japönsku
KRISTJAN
ELDJÁRN
Samúræjamenningu og er fyrir
löngu orðin þjóðaríþrótt Japana.
Glímukapparnir sjálfir koma
manni eilítið spánskt fyrir sjónir.
Meðalþyngd þeirra er tæp hundr-
að og fimmtíu kíló og meðalhæð
u.þ.b. 180 cm. Það eru engir
þyngdarflokkar í Súmó en Iág-
marksþyngd keppenda er einhvers
staðar á bilinu sjötíu til áttatíu
kíló.
Æskilegt er að lögun kapp-
anna sé einna líkust peru. Það
þykir mjög mikilvægt að hafa
góðan fituforða í kringum Iærin
og mjaðmirnar, því það skapar
lágan þyngdarpunkt. Súmókapp-
arnir búa í nokkurs konar komm-
únum, sem eru uppbyggðar þann-
ig að byrjendur þjóna þeim sem
lengra eru komnir. í kommúnun-
um er sérstakt prógramm sem far-
ið er eftir á hverjum degi og skipt-
ir mataræði þá ekki sist máli. Það
eru aðeins ríkustu glímukapparn-
ir sem hafa efni á að búa í eigin
húsnæði.
^ressupennar/munchen
Af stúdentauppreisnum
Marxistinn: Út á hvað gengur
þessi fundur eiginlega? (Kurr úr
salnum.)
Stúlka í grænni peysu: Greiða
atkvæði!
Drengur í frakka: Hvers vegna
þarf alltaf að vera svona mikið
kjaftæði í kringum allt? (Fögnuður
i sal.) Vitum við ekki öll um hvað
málið snýst? Þarf að tyggja sama
hlutinn hvað eftir annað? Greiða
atkvæði. Fólk Sr þegar farið að tín-
ast burt.
Marxistinn: Út á hvað gengur
þessi fundur eiginlega? Getið þið
ómögulega séð af nokkrum
klukkutímum í lífi ykkar til þess að
ræða almennilega um þessi mál og
reyna að komast að orsökinni fyrir
ástandinu? Afleiðingarnar liggja
ljósar fyrir. Sko, það sem ykkur
vantar . . .
Stúlka í grænni peysu: ÞIÐ ÞIÐ
ÞIÐ! Hvað ert þú að læra, góða?
Hvað ertu þá að skipta þér af því
hvað við erum að gera? (Marxistinn
dregur sig nöldrandi til baka.)
Stjórnandi fundarins: Ef ég gæti
fengið orðið í smástund. Ókei, við
vitum öll um hvað málið snýst. í
þessum háskóla eru 65.000 manns
við nám, skólinn er byggður fyrir
22.000. Okkur vantar peninga til
þess að kaupa bækur . . .
Drengur í leðurjakka: OKKUR?
Skólana, meinarðu?
Stúlka í grænni peysu: Hvað er
þetta, maður . . .
Stjórnandi fundarins: Allt í lagi,
afsakið þessi mismæli. Skólann
vantar peninga. Hann vantar fleiri
kennara. Sjálf þurfum við að glíma
við hræðilegan leigumarkað hér í
Múnchen og í borg þar sem 110.000
manns eru við nám eru 81.000 pláss
á stúdentagörðum . . .
Drengur í rúskinnsjakka með
kögri: Blessaður hættu þessu
þvaðri! (Flaut og klapp úr salnum.)
Stjórnandi fundarins: Ætlarðu
að taka þessi orð tilbaka, vinur?
Drengur í rúskinnsjakka með
kögri: Eg tek ekkert tilbaka! (Flaut
og klapp úr sal.) Ég er búinn að fá
dauðleið á að hanga hér og hlusta á
hina og þessa velta sér upp úr fund-
arsköpum og einhverju hallæris-
legu lýðræðisskipulagi. Það verður
að gera eitthvað.
Stúlka í grænni peysu: Greiða
atkvæði!
Marxistinn: Greiða atkvæði um
hvað? Þarf allt að ganga fyrir sig
eins og þið séuð að vinna við færi-
band, eða hvað? Helvítis aumingja-
skapur! Þið eruð að mótmæla því
hvernig komið sé í háskólunum, að
þeir séu bara verksmiðjur sem
framleiði háskólafólk, að þar sé öll
sköpun í lágmarki, að þar megi
helst enginn tala jtema kennarinn,
að þar þurfi allt að ganga eins og vel
ÚT Á HVAÐ GENGUR
LEIKURINN?
í Súmó glíma tveir og tveir í
einu. Glíman fer frant á sérstök-
unt palli sent búinn er til úr mold.
Það er þriggja daga vinna að búa
til einn pall og í hann fara u.þ.b.
sjö bílhlöss af mold. Á pallinum
er síðan hringur, sent er búinn til
úr hrísi, innan við firnm metrar í
þvermál. Sjálfur leikut inn gengur
síðan út á að reyna annaðhvort að
koma andstæðingnum út fyrir
hringinn eða láta hann snetta
Dallinn með einhverjunt öðrunt
líkamshluta en iljununt. Reglurn-
ar í Súnró eru sáraeinfaldar. Það
er bannað að slá nteð krepptum
hnefa, það er bannað að pota í
augu andstæðingsins, sparka í
ntagann á honum, taka hann háls-
taki eða grípa í þann stað skýlu
hans sem hylur kynfærin. Allt
annað er leyfilegt. Dóniari sker úr
um hvor hefur unnið. Glímukapp-
arnir vefengja aldrei dóminn. Aft-
ur á móti eru Fimrn aukadómarar
sem geta vefengt og eru þá málin
rædd og myndbandsupptaka
skoðuð þar til niðurstaða hefur
fengist.
ÍÞRÓTT HEFÐANNA
Glímurnar sjálfar eru frekar
stuttar og margar vara ekki nenra
örfáar sekúndur. Aftur á móti eru
það ýmsir siðir í kringum íþrótt-
ina sem eru tímafrekir. Áður en
glímurnar sjálfar geta hafist þurl'a
keppendur að klappa saman lóf-
unum, stappa niður fótunum,
hneigjasig og'kasta salti á völlinn.
Klappið er til að ná athygli guð-
anna, stappið til að fæla burt illa
anda og saltið til að tryggja hrein-
leika þess sem konta skal. Þegar
búiö er að fullnægja öllum Itefð-
um er komið að kjarna Súntó-
glímunnar, sem kallast „shikiri
naoshi". Þetta er sá partur þegar
keppendur horfast í augu og heyja
andlegt stríð hvor við annan.
Þessi þáttur er svo ntikilvægur
fyrir úrslit glímunnar, að þeir sent
þekkja vel til Súntó geta oft sagt
til um úrslit glímunnar löngu áður
en keppendur hafa snert livor
annan.
Áður lyrr voru engin tímamörk
á þessunt þætti, en eftir að sjón-
varpið kom tii sögunnar urðu
mörkin þrjár til fjórar mínútur.
Þegar sá tími er liðinn gefur dóm-
ari nterki urn að glíntan sé hafin.
Þetta þýðir þó ekki endilega að
þeir byrji að glíma, því stundum
heldur sálarstriðið áfram og
magnast enn frekar nteð gabb-
byrjunum og ýmiskonar brögð-
um.
NÝ ÚTFLUTNINGSLEIÐ?
Breska sjónvarpsstöðin Chann-
el 4 er sú fyrsta í hinum vestrtena
heimi sem sýnir Súmóglímu reglu-
lega. Það virðist vera staðreynd að
áhorlendur sjónvarps hafi garnan
af þvi að sjá nýjar íþróttir og því
vaknar sú spurning hvort þjóðar-
stoltið, hin íslenska glíma, sé ekki
tilvalin útflutningsvara. Einnig
væri óvitlaust að helja sýningar í
íslensku sjónvarpi á Súmóglimu.
Það yrði óneitanlega góð tilbreyt-
ing að heyra Bjarna Felixson segja
Irá Hananoumi og Ryogoku ein-
stöku sinnum í stað þeirra Hans
Peters Briegel og Kristjáns Ata-
sonar, sem eins og svo margt ann-
að eru góðir í hófi. __
smurð vél, aldrei sé einfaldlega
hægt að ræða saman um námið eða
það sem er efst í huga fólks í hvert
eitt sinn. Þessu mótmælið þið
kröftuglega, en eruð sjálf orðin svo
miklir þrælar þessa lýðræðislega
fyrirkomulags, sem leyfir aðeins
þær undantekningar sem falla að
ráðandi hugmyndum í samfélaginu,
að þið hafið ekki lengur þann kraft
sem þarf til að taka nú einu sinni til
hendinni og ráðast að rótum vand-
ans. Andskotinn hafi það!
Stjórnandi fundarins: Við þökk-
um kærlega fyrir.
Stútka í grænni peysu: Greiða
atkvæði! Við verðum að ákveða
hvort á að fara í verkfall eða ekki.
Drengur í rúskinnsjakka með
kögri: Verkfall!
Stjórnandi fundarins: Já, það er
spurning með þetta verkfall . . .
hvort það hefur einhver áhrif . . .
en þá, ef við ákveðum að hætta að
mæta í allar kennslustundir, þá
verðum við einhvern veginn að
koma því svo fyrir að allir taki þátt
í að mæta ekki.
Drengur í rúskinnsjakka með
kögri: Verkfallsverði! Verkfall!
Drengur í frakka: Hvernig ætlar
þú að hindra að þeir sem vilja mæta
i fyrirlestra komist inn í fyrirlestra-
salina?
Drengur í rúskinnsjakka með
kögri: Við stöndum einfaldlega fyr-
ir framan dyrnar og vörnurn þeim
inngöngu.
Stúlka með græn gleraugu: Við
erum of fá.
Stjórnandi fundarins: Við verð-
um að forðast allt ofbeldi.
Drengur í rúskinnsjakka með
kögri: Hvers konar aumingjar eruð
þið?
Stjórnandi fundarins: Við verð-
um að horfa raunsæislega í þessi
mál . . .
Drengur í rúskinnsjakka með
kögri: Við viljum verkfall!
Húsvörður (gengur inn): Fer
þetta ekki að verða búið? (Salurinn
hristir höfuð, vonleysislegur á svip.)
Rauðhærður sláni (lágt): Það
bíða allir eftir nýjum Adolf Hitler.