Pressan - 10.08.1989, Síða 27

Pressan - 10.08.1989, Síða 27
Fimmtudagur 10. ágúst 1989 27 Björn Ólafs hefur starfað í París, og raunar víðar, í hartnær tuttugu ár, en á sínum tíma stundaði hann nám í arkitektúr við ÉCOLE SPEC- IALE D'ARCHITECTURE í París. Að námi loknu tók Björn þátt í samkeppni um byggingu nýs hér- aðsskóla á Reykjum í Hrútafirði og vann hana. Hann fór þá heim til ís- lands og starfaði þar í nokkur ár, m.a. við skipulagningu Breiðholts, „enda kom aldrei annað til greina en að fara heim að námi loknu", seg- ir hann. En í lok sjöunda áratugarins voru merkilegir hlutir að gerast í húsagerðarlist í Frakklandi og Birni bauðst að taka þátt í því ævintýri. Hann á nú að baki glæsilegan feril í þessari listgrein. M.a. skipulagði hann miðhluta nýrrar borgar vestan við París, St. Quentin-en-Yvelines. Fimm nýjar borgir — Hver voru tildrög þess að nýja borgin var byggð, Björn? „Það var ákveðið á árunum frá 1965 til 70 að byggja fimm nýjar borgir til þess að létta þrýstingi af miðborg Parísar og þá voru þessi svæði skipulögð. Pau eru gífurlega stór, jafnstór og París sjálf. Reynt var að fá fólk til að setjast þar að og fyr- irtæki til að flytja starfsemi sína til þessara borga svo íbúðarhúsnæði í París breyttist ekki allt í skrifstofu- húsnæði. Til að þessi áform næðu fram að ganga voru notaðar aðferðir, sem kunna að virðast allhörkulegar. Ef menn vildu byggja skrifstofuhús- næði eða verksmiðjur og vera áfram á Parísarsvæðinu urðu þeir að vera á þessum ákveðnu svæðum. Annað kom ekki til greina. Þetta var stefnan í um tuttugu ár, frá 1965 til 1985, en nú eru þessar reglur úr gildi fallnar að hluta.“ — Hvað gerðist? „Það voru sett ný lög um tak- mörkun miðstjórnarvalds Parísar og borgarstjórnir úti á landi fengu meiri völd. Þá minnkuðu áhrif skipuleggjenda. Borgarstjórnirnar fá nú að ráða því að mestu hvað er byggt hjá þeim og það vilja auðvitað allir fá fyrirtæki til sín sem greiða háa skatta. Því hefur þetta skipulag nú að mestu leyti riðlast, en þó ekki alveg: enn eimir eftir af þvi. Það var á þessum tíma sem um- ræddar borgir voru byggðar, tvær fyrir sunnan París, ein fyrir austan. Sú kallast Marne-la-Vallee — og er mjög vel heppnuð. Þar verður Disneyland í framtíðinni. Ein borgin er líka fyrir norðan París. Hún heitir Cergy Pontoise, og skipulag hennar tókst líka mjög vel. St. Quentin-en-Yvelines hefur dá- litla sérstöðu, þar sem hún er fyrir vestan París og þar með mjög vel sett, vegna þess að eigendur fyrir- tækjanna vilja heist setjast þar að. Það er af þeirri einföldu ástæðu að þeir búa sjálfir í vesturhluta Parísar og vilja byggja skrifstofu- eða verk- smiðjuhúsnæði sitt nálægt eigin heimili. í vesturhluta Parísar eru hverfi hinna ríku. Þannig er styttra fyrir þá að fara í vinnuna." Bærinn var bitbein pólitíkusa — Skipulagið hefur þá ef til viil miðast við þarfir hinna ríku? „Já, að miklu leyti. Þarna eru mörg mjög stór fyrirtæki: t.d. Credit Agricole, sem er stærsti banki í Frakklandi og Boyougues, stærstu verktakar í Evrópu. Gallinn við þessa borg, samanborið við hinar borgirnar tvær, er að hún var byggð í fljótheitum og með fámennu liði skipuleggjenda. Lóðum var úthlut- að tii fyrirtækja og þau tóku strax til við að byggja. íbúðahverfin eru heldur skárri, en í heild er borgin þó of sundurleit. Þegar búið var að byggja talsvert á svæðinu gerðu stjórnvöld sér grein fyrir göllunum og ákváðu að reyna að skipuleggja miðborgina vand- lega. I næsta nágrenni voru stórar verslunarmiðstöðvar og menn höfðu því ekki haft trú á því að þarna gæti risið miöbær. Þarna voru hverfakjarnar, en enginn mið- bær. Það urðu deilur um byggingu mið- bæjarins vegna pólitískra átaka. Sósíalistar eru við völd í nýja bæn- um, en hins vegar stjórna hægri menn sýslunni þar sem miðbærinn átti að rísa. Það komu fram tillögur um skipulag frá arkitektum, sem voru annaðhvort til hægri eða vinstri, a.m.k. fimm eða sex tillögur, og ekkert fékkst samþykkt. Þegar svo allir voru orðnir þreyttir á þessu ákvað skipulagsnefnd borgarinnar að skipuleggja sjálf miðbæinn með hjálp arkitektafyrirtækis og við urð- um fyrir valinu. Við lukum skipulagsvinnu 1984. Síðan teiknuðum við torg og aðal- götuna í bænum og húsin við hana. Auk þess svæði í kringum stóra tjörn, þar sem eru mörg veitinga- hús, og einnig við læk, sem rennur í gegnum hverfið.“ Hefðbundinn miðbær en ekki „Kríngla" — Út frá hvaða sjónarmiðum genguð þið við gerð skipulags- ins? „Þessi miðbær er skipulagður öðruvísi en venja hefur verið í nýjum borgum hér. Reglan hefur verið sú að byggja yfir allar verslunargötur. I þremur af þessum fimm nýju borgum í nágrenni Parísar er miðhlutinn algjörlega innanhúss. Eiginlega nokkuð svipaður Kringlunni, en helmingi sfærri. 1 St. Quentin var aftur á móti ákveðið að reyna að byggja miðbæ, sem líktist meira hinum hefðbundna miðbæ, ekki loka honum. Við vildum byggja miðbæ með venjulegum götum, sem væri opinn allan sólarhringinn. Þetta eru göngugötur og fyrirmynd þeirra voru slíkar götur í gömlum bæjum. Við göngugötuna, aðalgötu bæjar- ins, eru næstum því allar verslanir, en út frá þeim eru glerhjálmar til skjóls fyrir vegfarendur. Vandað var til götunnar sjálfrar og útveggja sem eru úr múrsteini og hvítri stein- steypu. Fljótt á litið virðist þetta bara lítil gata, en á bak við eru stórar verslan- ir. Ég vildi skapa umhverfi sem gam- an væri að vera i og ganga um í. Ekki eingöngu vettvangur verslun- ar. Einnig fannst mér mikilvægt að tengja mjög náið verslun og íbúðar- húsnæði. A efri hæðunum eru því alls staðar íbúðir, auk þess sem þétt- byggt íbúðasvæði er allt í kring. Á þökum verslananna eru garðar og þar er gengið inn í íbúðirnar." — Hvað er hér fleira en þessar verslanir? „Það eru hér kvikmyndahús, kaffihús og veitingastaðir. Um 600 íbúðir eru við aðalgötuna og í næsta nágrenni verða byggðar um 5.000 íbúðir í nánustu framtíð. Það munu verða 15.000 manns, sem búa í göngufjarlægð við miðbæinn. Það var meginreglan að hafa nógu þétt íbúðasvæði í kring, í svona fimm mínútna göngufjarlægð, sem veitti stöðugt fólki inn á svæðið — ef svo má að orði komast. Þetta fólk kem- ur inn í bæinn enda þótt verslanir séu lokaðar, svo hér er líf á kvöldin líka. En auðvitað er hér, eins og í flestum verslunarhverfum, mest af fólki á laugardögum og á miðviku- dögum, þegar krakkarnir eru ekki í skóla. En það er alltaf slangur af fó|ki og eykst stöðugt eftir því sem íbúðum fjölgar. Svæðið er alls ekki fullbyggt enn.“ — Hvernig er með skóla ög barnaheimili? „Það er allt hér. Skólarnir voru byggð um leið og jafnvel á undan. Hér eru skólar fyrir öll skólastig. Hér eru líka barnaheimili, heilsu- gæslustöð, pósthús og bókasafn í byggingu. Og hér eru tvö hótel. Þetta er raunverulegur miðbær." — Hvar eru svo skrifstofurn- ar? „Á svæðinu er blandað saman íbúðar- og skrifstofuhúsnæði. Við aðalgötuna er búið i flestum húsun- um, að minnsta kosti á efri hæðinni. Hér eru þó tvær byggingar þar sem eingöngu eru skrifstofur." Austurstræti mætti vera líflegra — Hver er munurinn á þessu formi og miðbæjarkjörnunum sem eru aðallega innanhúss? „Ókosturinn' við þennan héfð- bundna miðbæ er sá að hingað kemur færra fólk, ef eitthvað er að veðri. Fólk heldur sig þá inni og vill síður vera úti. Vinsældir gatnanna sem eru „innanhúss" byggjast á þvi að fólk kemur alltaf, hvernig sem viðrar. En í mjög góðu veðri fer það auðvitað síður i innigöturnar og kýs fremur að vera utanhúss. Þessi kerfi hafa sina kosti og galla." — Hvað segirðu um þá hug- mynd að byggja yfir Austur- stræti? „Það hefur verið mikið gert af þvi í Japan, að setja glerhimin yfir gamlar byggingar. Það er mjög erfitt að tengja svona gamlar byggingar, sem eru misháar. Yfirleitt heppnast þetta ekki vel, enda þótt viðskipta- vinirnir séu ánægðir. En núna er ekki heldur svo mjög mikil verslun í Austurstræti. Það er líf þar vegna þess að þetta er enn miðbærinn og hann er samkomustaður. Gallinn er sá að göngugatan og þessu fólki. Það notar bæinn meira, ef svo mætti að orði komast, og er undirstaða lífsins í bænum." Allt svæðið opnað í einu — Hvernig líkar fólki að búa hér? „Það fólk, sem ég hef haft til af, lætur vel af því. Hugmyndin var að blanda saman íbúðar-, verslunar- og atvinnuhúsnæði og fólk er auðvitað ánægt með að þurfa ekki að fara langt til vinnu sinnar og hafa góðar verslanir í næsta nágrenni við sig. Margir bæði vinna hér og búa. En hér er umferð í báðar áttir — til Parísar og frá. Það er líka mikill fjöldi manna sem býr i eða utan við París og sækir vinnu hingað. Þannig nýtist vega- kerfið betur, í báðar áttir allan dag- inn. Hér eru einnig mjög stór útivist- arsvæði, en það er að sjálfsögðu vin- sælt hjá barnafólki." stjóra voru sett varð þetta erfiðara. Hægri borgarstjórnir vilja ríkt fólk. Þær ráða því hverjir fá byggingar- leyfi svo þau eru hæg heimatökin. Vinstra megin er það öfugt. Þetta er slæmt fyrirbæri og drep- ur niður bæjarlífið á hvorn veginn sem er. Það verður einhæft og ein- angrað. Það var hægt að koma i veg fyrir þetta á meðan völdin voru í höndum tæknimanna í þessum nýju bæjum. Ódýrar íbúðir máttu ekki fara fram úr vissum hundraðshluta. Það er i rauninni það eina, sem hægt er að stjórna. Ríkt fólk hefur meira frelsi og get- ur sest að þar sem það vill. En það er hægt að koma í veg fyrir að fá- tækrahverfi séu skipulögð fyrir- fram. Slíkt kemur niður á öllu, ekki síst skólakerfinu. Þegar láglaunafólk hópast á stór svæði eru fleiri sem hafa minni menntun, börnin fá ekki eins mikla hvatningu til skólagöngu, árangurinn í Björn Ólafs arkitekt í miöbæ St. Quentin. það, sem er á henni miðri, var ekki nógu vel skipulagt í upphafi. Hún er of kaldranaleg. Það hefði mátt gera hana bæði líflegri og vistlegri. Stein- hellurnar gera hana gráa og lítt að- laðandi. Það hefur að öllum líkind- um ekki verið veitt nægum pening- um í verkið. Sennilega hefur borgar- stjórnin ekki haft nægilega trú á því að slík gata yrði vinsæl. Það hefur hinsvegar tekist betur með Laugaveginn. Að mínu mati er fyrirkomulagið þar gott fyrir land eins og Island, þar sem eru svo margir dagar á ári sem ekki er hægt að vera mikið utan húss. Það er hægt að aka niður götuna og skoða í búð- arglugga, en nóg pláss fyrir fótgang- andi lika.“ — Snúum okkur aftur ad St. Quentin. Hverju spáir þú um framtíð þessa sköpunarverks þíns? „Ég held að þessi miðborg verði fyllilega hlutverki sínu vaxin. Hér er þegar mikil verslun, því þessi kjarni mun þjóna svæði sem á mun búa um hálf miljón manna. Fólkið kem- ur þangað sem úrvalið er. Við reikn- um auðvitað ekki eingöngu með fólki, sem kemur gangandi hingað. Af þeim sem hingað koma á bílum eru um 150 þúsund manns í beinum tengslum við miðborgina. Þá á ég við fólk, sem kemur a.m.k. einu sinni í viku til að versla. Um fimm- tán þúsund manns eru í göngufjar- iægð og það er mjög mikilvægt, vegna þess að það er fólk sem hefur sjálft kosið að búa hér. Það vill búa í miðbæ og það er mikill kraftur í — Þegar gengið er um miðbæ- inn virðist allt svo slétt og fellt og öllum framkvæmdum lokið fyrir löngu. Hvenær hófust þær eiginlega? „Deiliskipulag af svæðinu var gert fyrir fimm árum. Það tók síðan tvö ár að teikna svæðið og bygging- arnar og svo tók tö ár að byggja. Miðbærinn var svo formlega opnað- ur við hátíðlega athöfn í október 1987. Verslanirnar voru þá allar opnaðar í einu! 150 búðir og einn stórmarkaður, Euromarche, sem hefur yfir 10 þúsund fermetrum að ráða. Þá var að sjálfsögðu allt tilbúið. Það þýðir ekki að bjóða fólki upp á að enn sé verið að vinna við húsin, sem það verslar í. Þarna eru margar dýrar og glæsilegar verslanir, því það verður að ná til sem flestra. Bæði þeirra sem vilja versla ódýrt í stórverslunum og fólks, sem hefur meiri peningaráð og sækist eftir dýrum fötum og hlutum og eyðir meiru. Annars gengju svona verslunarhverfi ekki.“ — Er það frekar efnað fólk, sem hefur sest hér að? „Nei, alls ekki. Hér er allskonar fólk og bæði dýrar og ódýrar íbúðir. Það eru blokkir með ódýru húsnæði i nágrenni. Þær voru byggðar undir lok tímabils stóru blokkanna. Strax í upphafi var reynt að beina fólki af öllum stéttum hingað og það var hægt þá, vegna þess að ákvarðanir voru teknar af skipulagsyfirvöldum en ekki stjórnmálamörinum.'En eft- ir að lögin um' aukin völd borgar- skólanum verður lélegri og skólarnir verða lélegri. Börnin eru því verr sett þegar út í lífið kemur og verða oft atvinnuleysingjar." — Hefur tekist vel að „blanda" hér? „Já, það hefur tekist ágætlega. Húsin hér líta út fyrir að vera álíka dýr, en það er ekki allt sem sýnist. Sum af þessum húsum voru keypt af millistéttarfólki, sem er um 60% íbúanna hér. Svo er hér líka fólk, sem ekki hefur ráð á að kaupa sér húsnæði. Það leigir, en í svipuðum húsum óg inni í sama hverfinu. Hér býr ekki vellríkt fólk, en allmargir læknar og lögfræðingár hafa þó sest hér að og sett hér upp stofur." Líkaði illa í Disneylandi — Svo við snúum okkur að öðrum að lokum, þá hefur þú unnið við Disneyland, er það ekki.? „Jú, bæði í Bandaríkjunum og hér í Frakklandi. í Marne-la-Vallee, skammt austan Parísar, er nú að rísa Euro-Disneyland, eins og það mun verða nefnt. Ég komst fljótlega að því að þetta var lítt áhugavert starf fyrir mig og hætti. Ég vann líka við skipulagsstörf í Egyptalandi, en nú starfa ég hjá arkitektafyrirtækinu DLM, sem fæst mikið við skipulags- störf. Ég teiknaði miðborgina í St. Quentin fyrir þá og vinn nú við breytingar á tveimur gömlum út- hverfum, en hvernig útkoman verð- ur læt ég óSágt."

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.