Pressan - 02.11.1989, Qupperneq 2
2
Fimmtudagur 2. nóv. 1989
Alislenskt trío en meölimir þess
bera allir erlend eftirnofn. Bach-
mann-Mölier-Bernburg sjá til
þess að hugurinn leitar til þeirra
ára þegar rómantikin var allsraö
sjálfur að þau eigi sjálfsagt best við
fólk á aldrinum frá sautján ára til sjö-
tugs, þetta sé kokkteiltónlist og
kominn timi á rómantík. Karl Möller
á tvö lög á plötunni, lögin ,,Bjór á
næstu krá" og „Okkar jörð“, og segir
André að það sé engin tilviljun að
þau lög séu númer eitt og tvö á A-
hlið plötunnar, hann hafi ákveðið að
setja þau á besta stað til heiðurs
Kalla. Sjálfur á André eitt lag á plöt-
unni, titillagið Til þín.
Þrátt fyrir langan söngferil hefur
André aldrei fyrr sungið inn á plötu.
Hann hefur trú á því að fólki muni
líka þessi hugljúfu lög því eins og
hann bendir réttilega á eru allir
orðnir þreyttir á skuldasúpunni og
vandamálunum sem hrjá alla. Hann
segist jafnframt telja að platan Til
þín sé eina íslenska hljómplatan á
markaðinum núna með „ástar-
hjali“: „Það er kominn tími á það að
fólk slappi af yfir rómantískri tón-
list. Það er að minnsta kosti öruggt
að þessi plata er öðruvísi en þær
sem fólk hefur átt að venjast á síð-
ustu árum."
AR.ÓLASON
LJÓSMYNDARI
PRESSU
ANNA KRISTINE
MAGNÚSDÓTTIR
bachmlnn
SYWGUJt TIL ÞiN
ANDRÉ BACHMANN söngvari
er sagður vera sláandi líkur
STACY KEACH. Eini munurinn
er sá að Stacy er dökkhærður,
ófyrirleitinn og tekur „kók“ í
aðra nösina en André er ijós yf-
irlitum, lumar á viðkvæmni og
rómantík og þambar kók öllum
stundum.
Þessa lýsingu gefur að líta í bráð-
skemmtilegri kynningu á nýrri
plötu André bachmann, Tii þín,
sem kom út í síðustu viku. Það er
þríeykið Bachmann-Möller-Bern-
burg sem leikur inn á þessa plötu
og þrátt fyrir erlendu eftirnöfnin er
tríóið alíslenskt.
André Bachmann á að baki tæp-
lega tuttugu ára söngferil. Hann
kom fyrst fram opinberlega með
hljómsveit Þorsteins Guðmundsson-
ar á Selfossi, Steina spil, sem
André segir að eigi þakkir skildar
fyrir að veita sér tækifæri. Eiginlega
var það konunni hans André að
þakka að hann lenti á Selfossi; —
þaðan er hún og André segist reynd-
ar aldrei kalla hana „konuna" sína
heldur drottninguna, og að hans
mati eru störf kvenna inni á heimil-
unum alltof lítils metin. Frá þeim
tíma að André söng með Steina spil
hefur hann komið víða fram en síð-
ustu sex árin hefur hann leikið á
Mímisbar á Hótel Sögu. Það voru
aðdáendur hans þar sem einkum
hvöttu hann til að gefa út plötu. í
fyrstu leist André ekki á þá hug-
mynd en hefur nú látið til leiðast.
Á plötunni „Til þín“ er að finna
rómantísk lög, bæði frá því fyrir
stríð og eftir það. Söngvarinn segir
André Bach-
mann er höf-
uðpaur þríeyk-
isins Bach-
mann-Möll-
er-Bernburg.
Hann á að baki
tæplega tutt-
ugu ára söng-
feril en hljóm-
platan Til þín
er sú fyrsta
sem hann
syngur inn á.
velkomin i heiminn
„Úff hvað þetta er pirrandi. Ég var
að sofna þegar þu komst. En allt í
lagi: Ég er strákur og fæddist 25.
október. Mamma mín og pabbi
heita Guðrún Sigríður Gunnars-
dóttir og Sigurður lllugason. Ég
var rúmar fimmtán merkur að
þyngd þegar ég fæddist og 53 sm
langur."
„Finnst ykkur ég ekki svolítið sér-
stakur? Hér bara sit ég og horfi í
myndavélina eins og ekkert sé! Ég
er strákur, fæddist 26. október og
var 16 Vi mörk að þyngd og 56 sm
langur við fæðingu. Foreldrar mín-
ir heita Súsanna Jónsdóttir og
Haraldur Einarsson."
„Ég stilli mér nú bara upp fyrir
myndatöku! Ég er líka strákur,
fæddist 24. október og var rúm-
lega 14 marka þungur og 51 sm á
lengd. Foreldrar mínir eru Elín
Bjarnadóttir og Brynjólfur Sig-
•urðsson."
„Þá er best að ég horfi líka í lins-
una! Ég er nú svo ósköp dömuleg,
að það þarf ekkert að taka fram að
ég er stelpa!" Þessi stúlka er fædd
27. október, vó 13 merkur og var
52 sm löng. Foreldrar hennar heita
Ingibjörg Ingólfsdóttir og Arnald-
ur Magnússon.
„Ég læt sem ég sofi, en samtmun
ég vaka...! Halló þið öll! Ég er
stelpa og fæddist líka 24. október.
Þegar ég kom í heiminn var ég 14
merkur að þyngd og 50 sm löng.
Mamma mín heitir Valgerður Jó-
hannesdóttir og pabbi minn Hró-
bjartur Jónatansson."
„En sjáiði hvað ég er í flottri stell-
ingu! Ég er stfákur og fæddist líka
27. október. Ég var 18 merkur að
þyngd og 52 sm á lengd. Mamma
mín heitir Ragnhildur Gunnars-
dóttir og pabbi minn Einar Krist-
ján Hilmarsson."
VALDIÁ ÍSLANDI
Rússneski aðalsmaðurinn VLADIMIR KOSLOV — eða bara VALDI
eins og íslendingarnir kalla hann — hefur dvalið hér á Iandi síðustu
vikurnar í sinni fyrstu heimsókn. Honum til heiðurs héldu vinir hans
honum hóf í KJALLARA KEISARANS þar sem meðal annars voru
sýnd nýju fötin keisarans. Ragnhildur Gísladóttir og hirðsveitin
STRAX fluttu nýtt lag tileinkað heiðursgesti kvöldsins og sjálfur
ávarpaði Vladimir gesti og flutti prússneskt Ijóð. Einar Óla fékk eitt
eldrautt boðskort og mætti.
Rússneski aðalsmaðurinn Vladimir Koslov á tali við íslenska aðals-
manninn Ágúst Guðmundsson kvikmyndagerðarmann, sem heldur
hér á drykk kvöldsins, tyrkneskum, bleikum hirðkokkteil.
Strákar í stelpuklæðum, ógleymanleg sýning.