Pressan - 02.11.1989, Side 11
Fimmtudagur 2. nóv. 1989
11
Smátt og smátt hefur þessum mönn-
um bæði verið ýtt í burtu eða þeir
ekki fengið tækifæri og misst áhug-
ann.“
— Nefndu dæmi um þad.
„Ég vil ekki fara inn á persónuleg
svið en dæmin eru mörg. Ég vil hins
vegar tala um þetta heildstætt. Ef
menn vilja skoða þetta sjá þeir strax
að andstæðingar Friðriks á
SUS-fundinum fræga á Egilsstöðum
1973, sem studdu Björn Bjarnason í
formannskjörinu, eru núna forystu-
menn í Sjálfstæðisflokknum, en hin-
ir ekki. Þeir eru bara úti.“
— Notuðu þeir Morgunblaðið á
síðustu dögunum fyrir lands-
fundinn til að undirbúa jarðveg-
inn fyrir varaformannsskiptin?
,,Já."
— Hver stjórnaði því? Aðstoð-
arritstjórinn, Björn Bjarnason,
sem þú segir að tilheyri klík-
unni?
,,Eg skal ekkert segja um hver
stjórnaði því, en það er ekki nokkur
vafi á að svona hlutir kvikna ekki
allt í einu rétt fyrir landsfund. Það
myndast ekki áhugi á því örfáum
dögum fyrir landsfund að Davíð
Oddsson verði varaformaður Sjálf-
stæðisflokksins. Að sjálfsögðu hafði
undirbúningsvinna átt sér stað. Ég
vissi af því strax seinnihluta sumars
að slík undirbúningsvinna væri í
gangi, en þeirri spurningu var að-
eins ósvarað hvort Davíð myndi
gefa kost á sér eða ekki. Það er ör-
uggt að það var búið að vinna
grunnvinnuna.
Hlutverk Morgunblaðsins i þessu
var ekkert annað en að slengja
þessu fram rétt fyrir landsfundinn á
hernaðarlega mikilvægum tíma og
stimpla það inn að þarna væri fram-
boð á ferðinni sem þorri landsfund-
arfulltrúa vildi. Grein Morgunblaðs-
ins bar þetta með sér. Hún var að
mörgu leyti vel skrifuð og í lagi að
því leyti til, en hún bar það alveg
með sér að þarna væri „hinn út-
valdi" á leiðinni.
Friðrik vanrækti
vini og stuðnings-
menn
Út af fyrir sig þurfti engan að
undra að Davíð Oddsson krefðist
einhverra mannvirðinga. Maðurinn
hefur staðið sig vel og er að mörgu
leyti hæfur. Ég er ekki að skafa utan
af því og hefði eiginlega búist við
því að hann færi lengra en í varafor-
mennsku Sjálfstæðisflokksins, því
sú staða hefur verið litlu meira en
virðingarstaða."
— Af hverju heldurðu að hann
hafi ekki viljað ganga lengra?
„Ég held að það stafi af því að
hann hafi ekki talið tímabært að
verða formaður Sjálfstæðisflokksins
að sinni."
— Kannski viljað hlífa Þor-
steini?
„Það er meira mál að verða for-
maður í Sjálfstæðisflokknum en
varaformaður og það hefði sjálfsagt
ekki orðið eins auðsótt mál. Ef Dav-
íð hefði farið í formannsslaginn
hefði hann lent í mjög tvísýnni
kosningu og ég reikna ekki með að
hann eða Þorsteinn hefðu óskað eft-
ir þvi að flokknum yrði rótað upp
með þeim hætti. Davíð valdi því
þann kostinn að fara í varafor-
mannsslaginn og átti tiltölulega
greiða leið þar inn — kannski sér-
staklega vegna þess að Friðrik tók
þann pól í hæðina að styðja mjög
vel við bakið á þeim formönnum
sém hann hefur starfað með. í raun
og veru vanrækti hann vini og
stuðningsmenn og var ekkert að
reyna að efla þá til dáða og áhrifa
innan flokksins. Hugsanlega má
segja að það hafi verið Ijóður á ráði
hans og hann uppskeri nú í sam-
ræmi við það.“
Geir valdi Þorstein
og Davíð
— Má finna þarna málefnaleg-
an ágreining?
„Ég hef talið að þarna væri ákveð-
inn áherslumunur. Á milli þeirra
sem ég hef kallað Eimreiðarhópinn
og hins vegar þeirra sem núna
standa fyrir utan. Þeir sem sitja í
valdastöðunum eru komnir upp i
gegnum ákveðin valdaapparöt í
flokknum — í gegnum hina gömlu
forystu. Þorsteinn Pálsson hefur lýst
þyí yfir að í raun hafi Geir Hall-
grímsson valið hann og Davíð til að
taka við af sér. I öðru lagi eru þeir
komnir í gegnum annan valdapóst í
Sjálfstæðisflokknum sem er mjög
sterkur, en lýtur þó ekki neinu lýð-
ræðislegu aðhaldi, þ.e.a.s. Morgun-
blaðið. Þeir eru síðan komnir í gegn-
um ýmis samtök atvinnurekenda
sem eru þriðji valdapósturinn í Sjálf-
stæðisflokknum, og er mjög sterkur,
þótt hann lúti ekki heldur neinu lýð-
ræðislegu aðhaldi. Hins vegar er
svo frjálslyndari hópur í flokknum,
sem ég kýs að nefna því nafni, sem
verður hreinlega undir. Hvaða val-
kosti vill hann taka? Vill hann taka
þann kostinn að halda baráttunni
áfram innan flokksins? Eða telur
hann heppilegra að gera eitthvað
annað? Tengjast öðrum stjórnmála-
öflum? Eða þá að myndaður verði
nýr stjórnmálaflokkur? Við höfum
reynsluna af því á Vesturlöndum að
nýir stjórnmálaflokkar eiga erfitt
uppdráttar, en þeir eru líka til sem
hafa náð að braggast og dafna.
Hef óbundnar
hendur
Sá klofningur sem hingað til hefur
orðið á borgaralega vængnum í ís-
lenskum stjórnmálum hefur aldrei
verið á grundvelli stefnumála. Hann
hefur snúist um persónur. Nú finnst
mér að sá tími sé kominn í íslensk-
um stjórnmálum að tekist sé á um
grundvallaratriði í stjórnmálum.
Það er t.d. grundvallaratriði í mín-
um huga að ríkissjóður sé ekki rek-
inn með halla nema um sé að ræða
neyðarástand, náttúruhamfarir eða
styrjaldir. Það verður líka að skapa
hér skilyrði fyrir atvinnulífið og að
menn verði gerðir ábyrgir fyrir at-
virinurekstri sínum. Ef við á annað
borð viljum búa við frjálst markaðs-
hagkerfi, þá er það fylgifiskur þess
að annaðhvort græða menn eða
tapa og verða að taka afleiðingum
af rekstri sínum. Þessar meginregl-
ur verða að gilda um alla, hvar sem
þeir búa á landinu. Beinar styrkveit-
ingar til atvinnulífsins eiga að heyra
sögunni til. Það þarf að vinda ofan
af offjárfestingunni í sjávarútvegi og
landbúnaði. Það er verkefni sem
verður að takast á við strax. Þá
verður að jafna atkvæðisrétt borg-
a’ranna — það eru grundvallar-
mannréttindi að íbúar á höfuðborg-
arsvæðinu og Norðurlandi eystra
þurfi ekki að búa við margfaldlega
skertan atkvæðisrétt. Þetta eru allt
svo stór grundvallaratriði að ég satt
að segja nenni ekki að sitja i stjórn-
málaflokki við að vinna mér inn ein-
hvern stól sem ég get sjálfsagt unniö
mér inn með einhverjum tröppu-
gangi. Ég vil sjá einhverja framþró-
un í þessum efnum og ef ég sé hana
ekki í Sjálfstæðisflokknum, þá dett-
ur mér ekki til hugar að styðja hann
meira."
— Hvað ætlarðu að bíða lengi
eftir því?
„Ég bíð ekkert lengur."
— Ertu að segja að þú sért á
leiðinni út úr flokknum?
„Ég tel mig hafa gjörsamlega
óbundnar hendur í póltik í dag. Ég
er búinn að vera í Sjálfstæðisflokkn-
um í tæpan aldarfjórðung og hef
eignast þar marga vini og samstarfs-
menn í gegnum tíðina. Maður
hleypur því ekkert til og segir bless!
bless! nema það sé þá einhver far-
vegur eða ástæða til. En mér finnst
ábyrgðarhluti, eins og málin hafa
þróast í þjóðfélaginu upp á síðkast-
ið, að láta ekki i sér heyra um þessa
hluti. Og það er ábyrgðarhluti að
vera í stjórnmálaflokki sem ekki er
reiðubúinn að taka á þessum mál-
um. Ég sé ekki þann stjórnmála-
flokk á íslandi í dag, sem er tilbúinn
til þess. Því miður."
Brvnt að stofna
félag skatt-
greiðenda
— Hvað með Borgaraflokk og
Frjálslynda hægrimenn?
„Ég held að það hafi verið afskap-
lega misráðið hjá Borgaraflokknum
að splundra honum með þessum
gælum við ríkisstjórnina. Þeir sem
mynduðu Frjálslynda hægriflokk-
inn eiga aftur á móti eftir að sýna
fram á fyrir hvað þeir vilja standa og
hvað þeir vilja gera. Út af fyrir sig
eiga þeir alla möguleika á að móta
ferska pólitíska stefnu. En það er
grundvallaratriði í dag að ef menn
vilja vera heiðarlegir gagnvart póli-
tískri sannfæringu sinni þá fari þeir
að gera upp við sig hvað þeir vilja og
hvert á að stefna í íslensku þjóðfé-
lagi. Þetta eru stjórnmálamenn ekk-
ert að gera í dag, hvar í flokki sem
þeir sitja. Og ef menn hafa pólitíska
sannfæringu ber þeim skylda til að
gefa fólki vaikosti. Og það á hug-
sjónalegum grundvelli en ekki per-
sónulegum."
— Ertu að hugleiða slíkan val-
kost sjálfur. Kannski að fara út í
flokksstofnun?
„Ég hef ekkert verið að velta því
fyrir mér í sjálfu sér að stofna nýjan
stjórnmálaflokk. Ég hef stundum
velt fyrir mér þeim hugmyndum að
koma af stað áhugamannahópum
um ákveðin málefni s.s. varðandi
skattamál, því ég tel brýnt aö koma
upp félagi skattgreiðenda. Ég hef
mikið starfað í Neytendasamtökun-
um, sem eru ópólitískur vettvangur,
og vil ekki blanda pólitík inn i þau
vegna þess að ég er hræddur um að
þeim málum yrði ekki greiði gerður
með því."
Carl I. Hagen
sjarmerandi
— Nú fórst þú til Noregs á dög-
unum. Sástu freistandi fyrir-
mynd í Framfaraflokknum sem
hefur verið að sveiflast upp við
hlið gamla Hægriflokksins?
„Margt af því sem Framfaraflokk-
urinn er að segja samræmist sjónar-
miðum mínum í pólitík. Hins vegar
flyturðu aldrei pólitik eins lánds yfir
í annað, en þú getur séð ákveðnar
fyrirmyndir. Mér finnst Carl I. Hag-
en, formaður Framfaraflokksins,
mjög sjarmerandi stjórnmálamað-
ur. Hann er góður ræðumaður og
góður kappræðumaður en um leið
mjög kurteis í framkomu. Það var
t.d. mjög eftirtektarvert að ef gripið
var fram í fyrir honum í kappræðum
í sjónvarpi þá þagnaði hann. Þetta
mættu íslenskir st jórnmálamenn til-
einka sér. En í aðalatriðum get ég
ekki séð Framfaraflokkinn norska
sem beina fyrirmynd hér, það er
það mikill munur á þjóðfélögunum.
En margt af því sem þeir benda á,
s.s. ýmsar áherslur í skattamálum
og varðandi það hvernig velferðar-
kerfið hefur verið að þróast upp í
andhverfu sína, á fyllilega við hér á
landi."
— Nú varstu þarna á ferð með
Inga Birni Albertssyni. Má taka
það sem svo að þið hafið verið að
skoða sameiginlega fyrirmynd í
stjórnmálum?
Við Ingi Björn vorum mikið sam-
an í Noregi en við vorum þarna hvor
í sínum erindagjörðunum. Við höf-
um lengi þekkst en erum ekki nein-
ar samlokur í pólitík ennþá. Hins
vegar get ég ekki séð annað en að
það ætti að geta orðið góður sam-
starfsgrundvöllur á milli okkar ef út
í það færi."
— Ertu að segja að þú sért á
leið til liðs við Frjálslynda
hægrimenn?
„Eg útiloka ekki neitt."
Þá mun lcvarnast
úr flokknum
— Áttu von á frekari klofningi
úr Sjálfstæðisflokknum á næst-
unni?
„Það fer mjög eftir því hvernig
forystan hagar sér á næstunni. Sjálf-
stæðisflokkurinn vinnur sennilega
góðan sigur í næstu þingkosning-
um. Fyrst og fremst vegna þess hve
vanhæf ríkisstjórn situr nú við völd.
Ef flokkurinn hagar sér eins í næstu
ríkisstjórn og hann gerði í síðustu
tveimur ríkisstjórnum sem hann sat
í, þá er Ijóst að reynt hefur svo á þol-
inmæði margra að það mun kvarn-
ast úr flokknum. Þá verður aftur
spurt: Er Sjálfstæðisflokkurinn
reiðubúinn til að skera niður útgjöld
ríkissjóðs, koma á jöfnuði í ríkisfjár-
málunum og lækka skatta? Er hann
tilbúinn til að gera grundvallar-
breytingar varðandi íslenskt at-
vinnulíf? Hann hefur enn ekki gefið
neinar vísbendingar um að hann sé
tilbúinn að skera upp slíka herör."
— Þetta eru itú allt gömul mál
gegn forystunni. Er hægt að
spyrja svona endalaust?
„Hvort hann ætli að standa við
stefnu sína? Mjög margir bjuggust
við verulegum breytingum með
breyttri forystu Sjálfstæðisflokksins
og að Þorsteinn og Friðrik stæðu
fyrir breytingum, en þær létu á sér
standa. Og svo þegar upp var staðið
urðu menn fyrir gífurlegum von-
brigðum. Nú var nýja kynslóðin
komin til forystu en hún sinnti því
ekki að gera þær breytingar sem
þurfti að gera. Á sama tíma sjá
menn svo Davíð Oddsson í Reykja-
vík og ímynda sér að þar sé spámað-
ur fæddur."
Efast um framboð
— Þú segist óbundinn í pólitík.
Ætlarðu aftur að gefa kost á þér
á framboðslista flokksins í
Reykjavík?
„Ég efast mjög um það. Ég get
sagt það afdráttarlaust að ef ég sé
engin merki þess að Sjálfstæðis-
flokkurinn ætli sér eða vilji taka á
þeim máium sem ég hef nefnt hér
sem grundvallaratriði þá mun ég
ekki gera það. Það eru hreinar línur.
Þegar maður er kominn á fimm-
tugsaldur er orðið miklu styttra eftir
en þegar maður var tvítugur, og
þess vegna vill maður sjá hlutina
framkvæmda. Maður hefur minni
tíma til að bíða og ég hef ekki lengur
tíma til að bíða eft ir því að Sjálfstæð-
isflokkurinn fari að standa við
stefnu sína. Þess vegna leyfi ég mér
að hafa óbundnar hendur í pólitík
gagnvart flokknum en er jafnákveð-
inn í að standa eða falla með þeim
sjónarmiðum sem mér finnst ráða
úrslitum um framtíð þjóðarinnar."
Bíð ekkert lengur eftir því að Sjólfstæðisflokkurinn fari að standa
við stefnu stna og tel mig hafa óbundnar hendur í pólitík.
Ég vissi af því að undirbúningsvinna fyrir framboð Davíðs var þeg-
ar komin í gang í sumar.
/ARAÞINGMANNS SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS