Pressan - 02.11.1989, Síða 14

Pressan - 02.11.1989, Síða 14
14 Fimmtudagur 2. nóv. 1989 — Hvað orsakar lítið sjálfsálit? „Ástæðan liggur oftast einhvers staðar í uppvextinum. Það verður því seint ítrekað nægilega hve gífur- lega mikilvægt það er fyrir börn að fá hrós og örvun. Ef börn sannfær- ast um að þau séu léleg getur sú sjálfsímynd greypst djúpt í persónu- leikann og haldist þar, þrátt fyrir mikla velgengni." Skipuleggja hegðunina, rækta líkamann og breyta hugsuninni — Er mikið um að fólk leiti til sálfræðinga vegna kvíða? „Já, það er mjög algengt. Ég held, að kvíði sé undirrót allt að helmings þeirra vandamála, sem fólk leitar með til sálfræðinga. Þetta á t.d. oft við um þunglyndi. Það byrjaði kannski sem kvíði, sem hefur magn- ast upp og vafið utan á sig vegna þess að ekkert hefur verið að gert.“ — Nú stendur þú fyrir nám- skeiðahaldi til að hjálpa fólki að losna við kvíða. Hver er galdur- inn við að uppræta þessi ósköp? „Sálfræðingar nota mjög hefð- bundnar aðferðir við meðferð á kvíða. Ef kvíðinn er á háu stigi getur lyfjagjöf verið nauðsynleg í upphafi meðferðarinnar á meðan mann- eskjan er að læra ný viðbrögð, þó lyfin sjálf séu auðvitað engin lækn- ing heldur slái einvörðungu á ein- kennin. Mikilvægast er hins vegar að kenna fólki með kvíðaeinkenni að skipuleggja hegðun sína, rækta líkamann og breyta viðhorfum." — Er ekki hægar sagt en gert að breyta viðhorfum? „Ekki endilega. Neikvæð viðhorf fólks til sjálfs sín eru á ómeðvituðu plani, en um leið og maður gerir sér grein fyrir þeim gerist mjög margt. I upphafi meðferðar er ekki ætlast til að fólk umbylti sjálfu sér og fari að hugsa jákvætt, heldur er það hvatt til að fylgjast með þessum nei- kvæðu hugsunum í eigin garð. Um leið og við verðum meðvituð um lé- legt sjálfsálit og afleiðingar þess fyr- ir okkur verður nefnilega erfitt að halda áfram á sömu braut. Aðferðin er í sjálfu sér ekki flókin. En auðvit- að gerist ekkert, nema fólk vilji sjálft breytast og losna við þau per- sónueinkenni sem standa því fyrir þrifum. Á námskeiðunum, sem ég held, er grafist fyrir um þau neikvæðu við- horf sem viðhalda kvíðanum hjá hverjum og einum. Ég kenni líka slökunaræfingar, sem gegna afar mikilvægu hlutverki í þessu sam- bandi. Þar að auki er ákveðniþjáif- un stór hluti af námskeiðinu, en hún stuðlar að því að breyta undirgefni í ákveðni, án þess þó að fara út í öfgar yfirgangsseminnar." (Sjá lýsingu á þessum þremur flokkum fram- komu!) Undirgefni leiðir tilkvíða — Er sem sagt samband á milli kvíða og þess hvernig maður kemur fram í samskiptum við aðra? „Já, flestir sem eru kvíðnir eru í meira eða minna mæli undirgefnir. Þeir ná því ekki fram, sem þá langar ÁKVEÐNl: Ef maiur er sanngjarn nœst yfirleitt það sem mann longar til. Maður nœr þó markmiðum sínum. Sjálfsvirðing og vel- líðan aukast. Sú ímynd breytist að í sam- skiptum tvegg|a aðila sigri annar og hinn tapi — báðir aðilar geta nefnilega sigraðl Maður virðir og metur bœði sinn eigin rétt og annarra. Maður býr yfir s|álfsvirðingu og er ör- uggur, lánsamur og sáttur við s|álfan sig í rnannlegum samskiptum — bœði á með- an þau standa yfir og á eftir. Maður hef- ur fulla stjórn á kringumstœðum og er viss um hvert stefnir. YFIRGANGSSEMI: Maður nœr markmiðum sínum á kostnað annarra. Maður sœrir aðra með því að velja fyrir þá og gera lítið úr þeim. Það verður stöðugt erfiðara að slaka á og ná sér eftir mannleg samskipti. Maður réttlœtir hluti sér í hag, stjórnar öðrum og er aeðri. Eftir á finnur maður stundum fyrir þoirri tilfinningu að hafa klúðrað hlutum eða að maður hafi sýnt eigingirni. cP Oddi Erlingsson sálfræöingur: „Líkamlegu einkennin eru alltaf eins, hver svo sem sök kvíðans er. Blóöþrýstingur hækkar, hjartsláttur eykst, öndun veröur hröð stutt, það sprettur út kaldur sviti og maður fer að skjálfa." Alþýðublaðlð átti sjötiu ára af- mæíi um síðustu helgi. Af þvi tilefni var stjórnarmönnum og starfsmönn- um blaðsins ásamt gestum boðið til kvöldverðarhófs þar sem meðfylgj- andi myndir voru teknar. Hákon Hákonarson framkvæmdastjóri, Anna Gígja Guðbrandsdóttir bókari, eiginmaður hennar, Haraldur Eiríksson húsasmiður, og Ingólfur Margeirsson. Þeim hefur greinilega ekki leiðst í hófinul Sverrir Jóns- son, stjórnarmaður í Blaöi hf., Karl Steinar Guðnason, al- þingismaður og Birgir Árnason, aðstoðarmaður Jóns Sigurðssonar ráðherra. Formaður Alþýðuflokksins, Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra, færði Ing- ólfi Margeirssyni ritstjóra blómakörfu frá Alþýðuflokknum í tilefni afmælisins. í körfunni voru nokkrar rósir; tákn þeirra ára sem Alþýðublaðiö hefur verið gefið út með hagnaði, að sögn formannsinsl Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherrs ritstjóri PRESSUNNAR, Lára V. Júlíusdóttir, Rannveig Guðmundsdóttir, þingkona Alþýðui Ingibjörg Árnadóttir, blaðamaður á Alþýðubl og Ómar Friðriksson, ritstjóri Pressunnar.

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.