Pressan - 02.11.1989, Side 15

Pressan - 02.11.1989, Side 15
Fimmtudagur 2. nóv. 1989 15 til — nema gera það á óbeinan hátt. Tilfinningar þeirra eru oft í hróp- andi ósamræmi við framkomuna. Þeir eru kannski spenntir og kvíðn- ir, en sýnast afslappaðir á yfirborð- inu. Slíkt ósamræmi eykur enn meira á spennuna. Dæmi um þetta er t.d. þegar ein- hver treðst fram fyrir mann í biðröð og maður lætur það viðgangast eða maður fær kalda súpu á veitinga- stað en kvartar samt ekki. Öll slík at- vik valda samt óánægju og hún safnast fyrir, án þess að fá útrás. Hjá einhverjum getur þetta ýtt enn frek- ar undir sjálfsásakanir og vanmeta- kennd og þá er skammt í kvíðann." — Hvernig er árangurinn af námskeiðunum, sem þú hefur staðið fyrir? „Arangur af kvíðameðferð er yfir- leitt góður. Um leið og maður hefur skilgreint viðmót og viðhorf sem viðhalda kvíðanum er tiltölulega auðvelt að breyta þeim. Þó er þetta auðvitað ákveðið átak. Það breytir enginn rótgrónu hegðunarmunstri algjörlega fyrirhafnarlaust." — Við hvaða aðstæður finnur þú sjálfur helst til kvíða, Oddi — eða ertu kannski alveg búinn að uppræta slíkar tilfinningar hjá sjálfum þér? „Nei, því fer fjarri, enda er ákveð- inn kvíði mjög mikilvægur við viss- ar kringumstæður, þó hann geti skemmt fyrir manni ef hann verður of mikill. Kvíðinn sem ég fann fyrir áður en ég kom í þetta viðtal var t.d. ekki svo mikill að ég lamaðist. Ég gat a.m.k. talað við þig! En vissu- lega verð ég oft kvíðinn. Það skiptir hins vegar gífurlegu máli að átta sig á því að maður sé kvíðinn og að viðurkenna það fyrir sjálfum sér. Þá hættir ástandið að vera hættulegt. Kvíði er fyrst og. fremst skaðlegur, ef maður gengst ekki við honurn." — Er til fólk, sem aldrei finnur til kvíða? „Þeir, sem eiga við pefsónuleika- truflanir áð etja, finna oft ekki til kvíða, en það eru líka til „heilbrigð- ir“ einstaklingar, sem eru svo til ónæmir fyrir kvíða. Þetta eru yfir- leitt mjög sjálfselskar og yfirgangs- samar manneskjur." UNDIRGEFNI: Moður nœr ekki því, sem monn langar til. Ef það tekst er það á óbeinan hátt. Tilfinningar eru oft í ósamrœmi við framkomu. Aðrir ná markmiðum sínum á okkar kostnað. Maður vanvirðir eigin rétt — aðrir nota rótt- inn. Reiði safnast saman og er annaðhvort bœld niður eða hún beinist að fólki, sem er valdaminna en við. Maður stendur sig að því að skjóta hlutum á frest, þjást í þögn, gera hluti með hálfum huga, verða óvand- virkur eða gleyminn. Aðrir ráðskast með mann. Ein- manaleiki og einangrun verða hluti af daglegu lífi. Maður er haldinn bíða og vanmetakennd, óánœgður með sjálfan sig, auðsœrður og finnst aðrir stjórna lífi manns. Maður er oft reiður og fullur gremju eftir að hafa átt samskipti við annað fólk. i, Jónína Leósdóttir, lögfræðingur ASÍ, og Flokks. Stefán Friðfinnsson, stjórnarformaður Blaðs hf. og aðstoðarmaður utanríkisráðherra, og eigin- kona hans, Ragnheiður Ebenesardóttir. aði, Sigurþór Halldórsson, prófarkalesari Alþýðublaösins, eiginkona hans, Kristín Guömundsdóttir, Þorlákur Helgason, fyrrum blaöamað- ur á Alþýðublaðinu, og Kristjana Sigmundsdóttir, kona hans. Þegar við tökum höndum saman... ... náum við eyrum fleiri Viðskiptavinur! Okkar hlustendur eru þínir viðskiptavinir °g í gegnum okkur nærðu athygli fleiri, á betri tíma og á ákjós- anlegri hátt. í glænýrri útvarpskönnun Gallups* sannast svo ekki verður um villst að fleiri hlusta á Bylgjuna og Stjörnuna en aðrar útvarpsstöðvar írá kl. 9 á morgnana og þar til vinnutíma lýkur, að hádeginu einu undanskildu. Pegar þú auglýsir bæði á Bylgj- unni og Stjörnunni - fýrir verð einnar birtingar - nærðu til fleiri hlustenda á morgnana og um hábjartan daginn en ef þú auglýsir á öðrum útvarpsstöðvum. Og tíminn getur ekki verið betri. Yfirleitt gerir fólk innkaup- in í hádeginu, eftir að hafa hlustað á auglýsinguna þína fýrr um morguninn eða að loknum vinnudegi eftir að hafa hlustað á auglýsinguna þína fýrr um daginn. Auk þess birtist auglýsingin ekki samtímis á báðum stöðvum heldur á sitthvorum tímanum. Með þessu fýrirkomulagi eru meiri líkur á því að auglýsingin berist eyrum hvers hlustanda a.m.k. einu sinni eða oftar. Þegar þú auglýsir á Bylgjunni og Stjörnunni nærðu til fleiri hlustenda á áhrifaríkan hátt. á Pantaðu birtingar strax í dag í síma 62 52 52 eða sendu texta og birtingaáætlun í gegnum telefax 62 24 06. Unnin fyrir fslenska útvarpsfélagið 20. og 21. október. lirtak valið úr hópi 15-70 ára af suðvesturhorni landsins og á Akureyri.

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.