Pressan - 17.05.1990, Blaðsíða 4

Pressan - 17.05.1990, Blaðsíða 4
4 Fimmtudagur 17. maí 1990 litilræði af alþýðublaðinu Þaö var að Alþýðublaðiðfór að valda tauga- titringi. Þetta líka litla. Hver hefði trúað þessu fyrir par árum þegar Alþýðublaðið var enn fjórblöðungur í svart- hvítu með leiðara fyrir sanntrúaða og utan þess lítið annað en opinberar auglýsingar. Já hver hefði trúað því að að því drægi að heimspressan á íslandi færi að taka hvert helj- arstökkið af öðru útaf því sem þá var kallað „safnaðarblað kratanna". Alþýðublaðinu. Alþýðublaðinu sem Steinn minntist eftir- minnilega á „að fengnum skáldalaunum": Hér áöur fyrr þaö er satt ég var troöinn í svaðið hvar sáuö þiö mannkynið komast á lægra stig. Ég var soltinn og klæðlaus og orkti í Alþýðublaöiö og allur heimurinn fyrirleit blaöiöog mig. Nú er öldin önnur. Bara engu líkara en Reykjavíkurpressan sé búin að fá Alþýðublaðið á heilann: útlit, efnis- tök, útbreiðslu, litavalið á hausnum, vaxtarlag ritstjórans, vinnutíma hans og þær undarlegu hvatir sem hljóta að liggja að baki því að um þessar mundir er verið að stækka og auka Al- þýðublaðið til muna. Varla hefur Alþýðublaðinu áður verið gert jafn hátt undir höfði. Eða einsog sagt er á vegavinnumáli: — Þetta hefur vegur Alþýðublaðsins orðið hvað upphleyptastur. Ég legg til að ritstjórinn geri bragarbót í næsta „stuttleiðara" og hafi þá vísupartinn svona: Nú talin er vegsemd aö yrkja í Alþýöublaöiö og allur heimurinn talar um blaðið og mig. Því er auðvitað ekki að leyna að til skamms tíma þótti nokkuð vænlegur kostur að yrkja í Alþýðublaðið vegna þess að það var sjaldgæft blað og fáséð og það er augijós staðreynd að minnstum leiðindum veldur það málgagnið sem enginn les. En nú er semsagt Ijóst að þessum höfuð- kosti Alþýðublaðsins stendur til að varpa fyrir róða með því að stækka og bæta blaðið og auka útbreiðsluna í leiðinni. Og viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa. Nú munda allir virtustu huldupennar þjóðar- innar sparistílvopnið og reiða hátt til höggs enda tilefnið hvorki meira né minna en það að Alþýðublaðið er á góðum vegi með að verða níu sinnum stærra helduren það var fyrir par árum og þaraðauki í gulu rauðu grænu og þeim forboðna lit bláu. „Garri" Timans, „Staksteinar" Morgunblaðs- ins og „Dagfari" DV fara hamförum og ólundin slík að lesendur komast í sólskinsskap á nóinu og hugsa sem svo: — Best að kaupa Alþýðublaðið. Engum af hinum virtu huldupennum þjóðar- innar virðist eins uppsigað við Alþýðublaðið einsog „Garra" Tímans. í „Staksteinum" í síðustu viku er gersamlega gengið framhjá þeirri hugmynd að luntinn í „Garra" stafi af því að hann sé á breytinga- skeiðinu. Hinsvegar er ólundin, að dómi „Staksteina", sprottin af ótta við það að þjóðin fari að kaupa Alþýðublaðið í staðinn fyrir Tímann. Einsog er virðist allt stefna í það, ekki síst vegna þess að ritstjóri Alþýðublaðsins stal þeirri hugmynd frá Tímamönnum að fara að gefa út blað í öllum regnbogans litum og erfyr- irmyndin auðvitað NT en það var Tíminn kall- aður í þau ársem hann kom út í eðlilegum lit- um og er að flestra dómi eitt litskrúðugasta út- gáfuævintýri sameiginlegrar íslenskrar blaða- útgáfu frá upphafi. Sagt er að á slíku ævintýri sé hægt að tapa hundraðmilljónum á einu ári, tvöhundruð á tveim og svo koll af kolli. Flestir munu þeirrar skoðunar að ritstjóri Al- þýðublaðsins ætli sér að koma krötum reglu- lega í álnir með því að stækka Alþýðublaðið og gera úr því alvörublað að ekki sé nú talað um þann háleita draum sumra krata að flokkurinn eignist verðugt málgagn sem mark er tekið á. I „Staksteinum" Morgunblaðsins er hins- vegar á það bent að „Garri" Tímans líti svo á að margföld stækkun á Alþýðublaðinu, sem hefur í för með sér stóraukið vinnuálag, sé aðferð rit- stjórans til að losna við að vinna nema hálfan daginn. Eða svo vitnað sé í Garra orðrétt: „Þannig hefur ritstjórinn ákveðið að vera að- eins í hálfri vinnu og er því orðinn einskonar stuttritstjóri." Það þarf skarpvitran mann, glöggskyggnan og hagvanan í ritstjórn til að komast að þeirri niðurstöðu að því meira sem ritstjórinn hafi að gera, þeim mun minna þurfi hann að vinna. Það skyldi þó aldrei vera að ritstjóri Alþýðu- blaðsins hafi líka stolið þessari hugmynd frá Tímanum. Og eitt er varla einleikið en það er að það skuli fara svona illyrmislega fyrir brjóstið á „Garra" að hausinn á Alþýðublaðinu er blár en ekki rauður og helst hefði hann sjálfsagt viljað að hausinn væri áfram svartur. Meira að segja Dagfara, huldupenna DV, sem löngum hefur verið öllum öðrum fundvís- ari á hið broslega í lífinu og tilverunni, já meira að segja Dagfara fataðist flugið þegar kom að því að fjalla um andlitslyftinguna á kratamál- gagninu. Hátt var reitt til höggs og írónían að vopni til að sýna framá að stórfrétt Alþýðublaðsins, um það að pabbi Kólumbusar hefði verið þjófóttur norsari, væri engin stórfrétt. Dagfari veit auðvitað að svona fréttir birtast gjarna í öllum blöðum í gúrkutíðinni og má til- dæmis benda á eina af aðalfréttum DV þennan sama dag um það að íslenskur knattspyrnu- maður hefði unnið heimsmeistarakeppnina í fótbolta ef markvörður ítalanna hefði ekki var- ið fast vinstrifótarskot frá honum í síðari hálf- leik. Ég held að kratar — ef einhverjir eru ennþá til — ættu einhuga að fagna nýju og betra Al- þýðublaði sem augljóslega er ekki lengur utan- við alla umræðu. Og eftilvill fer sá tími í hönd að heimurinn hætti að fyrirlíta þá sem yrkja í Alþýðublaðið. y«l< jrifcnr FERÐASKRIFSTOFA Sími 652266 FLUG OG BILL ÓDÝRT OG FRJÁLST ÆM Danmörk, verð frá kr....20.690,- Bretland, verðfrá kr....18.920,- Luxembourg, verð frá kr.23.230,- Þýskaland, verðfrá kr.............22.510,-* Austurríki, verð frá kr...........24.660,-* Sumarhús og hótel. Ódýr gisting víða um Evrópu. Verð á mann viðað við 4 i bil, VW Golf, 2 fullorðnir og 2 börn, 2-11 ára i vikuferð, án flugvallarskatts. FERÐASKRIFSTOFA Simi 652266 yfljS París á sértilboði í maí: Verð frá kr. 37.260,- Flug og gisting i 4 nætur á mann i 2ja m. herb. á 3 ★ hóteli, án flugvallarskatts. Flogið með Umboð: Akureyri: Bókabúðin Edda, Hafnarstræti 100.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.