Pressan - 17.05.1990, Blaðsíða 15

Pressan - 17.05.1990, Blaðsíða 15
15 i > > > „Þetta er mynd af afa mínum nítján ára.“ „Það getur ekki verið. Enginn verður afi svo ungur.“ EFTIR: ÖNNU KRISTINE MAGNÚSDÖTTUR - MYNDIR: EINAR ÓLASON O.FL. Pabbi hálfu ári áður en hann varð afi Frosti Sæmundsson er 37 ára setjari sem býr í Bryne í Noregi með fjölskyldu sinni. Á þessa leiö hljóðar brandari sem ég las ný- lega en sá sem sýndi myndina af afa sínum hefði líklega eins getað sagt „þrjátíu og tveggja ára" og fengið sama svar. margar ungar ömmur og afar sem Idœðast gallabuxum og kunna varla að syngja. -X með dóttur- og Erlu Brynjólfs- Amma er í skóla og afi í gallabuxum Myndinsem kemur í hugflestra þegar talað er um „ömmu og afa" er af fullorðnu fólki. Amma er með hnút í hnakkanum, bakar pönnukökur og ptjónar á barnabörnin sín. Afi segir þeim sögur og syngur vísur. En auðvitað er þessi mynd ýktog á sér ekki stoð alls staðar í raunveruleikanum. I Noregi er til dæmis amma sem gengur í skóla og hún og „mamman" kaupasér gjarn- an saman föt og nota þau til skiptis. Afinn á þessu sama heimili segist yfirleitt vera í galla- buxum og bol og það standi ekki til að klæð- ast hinum hefðbundnu afa-jakkafötum! Árið 1988 fæddust tæplega fimm þúsund börn hér á landi. Mæður 325 þeirra voru á aldrinum 15—19 ára og samkvæmt upplýsing- um virðast fæðingar hjá yngri konum liggja í ættum. Þannig má oft gefasér að ung móðir sé á svipuðum aldri og móðir hennar var þeg- ar hún fæddi hana í samtölum PRESSUNNAR við ungar ömmur— og einn ungan afa — kom einnig fram að svo var í öllum tilvikunum. En við fáum að heyra hvernig tilfinning það var fyrir þetta unga fólk að verða amma og afi. Taliö frá vinstri: Alda Traustadóttir (móöir Dag- bjargar, varö langamma 51 árs), Dagbjörg Baldurs- dóttir meö dóttur sína Katrinu Kine í fanginu, því næst kemur Hrafnhildur Elísabet Frostadóttir meö Baldur son sinn og við hlið þeirra situr langa- langafi litla Baldurs, Trausti Jónsson. Faðir Dag- bjargar, Baldur Gunnarsson, tók myndina sumariö 1988. ígilda myndin ömmu að baka pönnukökur og afa i ruggustólnum er smám saman að hverfa. Til eru Hann var 33 ára þegar hann varð afi og nú, 37 ára að aldri, á hann von á öðru barnabarninu. Eiginkona hans, DagbjörgBaldursdóttir, er aðeins yngri en Frosti og hún var |)ví aðeins 32 ára þegar hún varð annna í fyrsta sinn: „Mér var ekkert sérstaklega vel við þegar ég frétti aö ég væri aö verða afi,“ sagði Frosti í samtali við PRES8UNA. „Það kom mest til af |)ví að við Dagbjörg áttum sjálf von á þriðja barni okkar. Mér fannst þetta eiginlega bara vera bölvuð frekja hjá dóttur okkar! Við eig- um þrjú börn, Hrafnhildi sem nú er 21 árs og gerði okkur aö ömmu og afa, Sigurveigu Söru 13 ára og Katrinu Kine 4ra ára. Það eru ekki nemasex mánuðirá milli KatrínarogBaldurs, dóttursonar okkar." Frosti segist ekki mikið hafa stressað sig yfir þeirri tilfinningu að verða nú kallaður „afi": „En auðvitað var það voðalega viðkvæmt í byrjun að vera kallaður AFI, rétt orðinn pabbi sjálfur!" segir hann. „Það kemur oft upp alls kyns misskilningur vegna þessa máls. Þegar Dagbjörg og Hrafnhildur em saman einhvers staðar tekur fólk það sem gefið að þær séu systur en ekki mæögur. Fólk byrjar að telja ár- in og mæla mann frá toppi til táar!" Þegar ég spyr Frosta hvort einhverjir vina þeirra séu orðnir ;unma og afi svarar hann að íjragði: „Nei, þaö er sko langt í frá!" Hann segist hins vegar hafa sætt sig vel við nýtt hlutverk um leið og Baldur var kominn lieim til þeirra „ogþaö er mjög gaman að vera kallaður afi núna. Eg hef svona lúmskt gaman af j)ví. Eg held að þessi pirringur í fyrstu hafi mest stafaö af því aö maður liefur alltaf verið að monta sig af J)ví að líta unglega út, en afatit- illinn var stáöfesting á því að maður væri far- inn að eldast"! Hvort liann sé kannski afi i gallabuxum og bol svarar hann hlæjandi: „Já, já, og ég verö í þannig klæðnaði alveg fram undir áttrætt! Eg held ég eigi aldrei eftir aö ganga í „klass- ískum" afafötum." Eins og sýningargripir á dansleikjum Frosti segir aö þau Dagbjörg passi barna- barnið mikið: „Og hann fer allt með okkur. Nema í sumarfrí .. . Hann er mjög hændur að okkur, enda hafa þau mæðgin búið Iengi hjá okkur. Nú er Hrafnhildur aö fara að gifta sig og á von á öðru barni og þá flytja þau frá okk- ur. Baldur er iítið hrifinn af þeirri hugmynd, vill alls ekki flytja frá Katrínu frænku sinni og helst vill hann taka hana með sér." Frosti segir að á tímabili liafi þau hjónin ver- iö eins og sýningargripir: ,8érstaklega ef viö fórum út að skemmta okkur. Þeir sem vissu aö við vorum afi og amma vildu endilega segja vinum og vandamönnum fra þvi og viö stóð- um eins ogsýningargripir meðan fólk skoðaöi • okkur! En nú er þetta bara ánægja og ham- ingja yfir þvi að allir skuli vera frískir." Hvort hann sé svolítið afalegur og segi Baldri sögur svarar Frosti: „Já, já, ef ég er að passa hann segi ég honum og Katrínu Kine sögur. Stundum syng ég fyrir hann, en honum finnst ég ekki syngja neitt æðislega vel svo ég geri það ekki mjög oft!" Þegar Hrafnhildur átti von á Baldri og Dag- björg mamma hennar á Katrinu Kine var Sig- urveig Sara, miðdóttirin, 9 ára. Frosti segir að hún hafi tekið þessum tíðindum vel, nema hvað því fylgdi auðvitað að hún var kölluð „tante" í Noregi: „Og „tanté' er nú oftast göm- ul frænka." Amma 32 ára Dagbjörg Baldursdóttir, eiginkona Frosta, var aðeins 32 ára þegar hún varð amma. Hún segist hafa tekið þvi betur en flestir aðrir að dóttir hennar ætti von á barni:

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.