Pressan - 17.05.1990, Blaðsíða 21

Pressan - 17.05.1990, Blaðsíða 21
Fimmtudagur 17. maí 1990 21 I nýútkomnum Seltirningi, blaði Sjálfstæðisflokksins á Seltjarn- arnesi, eru tvö „lesendabréf“. Undir annað þeirra skrifar kjós- andi og yfirskrift bréfsins er Hver er þeirra bæjarstjóraefni? Að _sjálfsögðu er þar verið að tala um bæjarstjóraefni Nýs afls, sem skrif- ari kallar nýtt hrafl, líkt og annar óþekktur aðili sem skrifaði grein í annað tölublað Seltirnings. Bréf- ritari varpar fram spurningu með breiðu letri: Hver er bæjarstjóra- efni vinstra hraflsins? Síðan seg- ir: Kjósendur Seltjarnarnessbæj- ar eiga skýlausan rétt á að fá svar við þeirri spurningu — áður en þeir ganga að kjörkössunum. Áður en að þessari spurningu í bréf- inu kemur hefur bréfritari tilkynnt að sjálfstæðismenn ætli að fela Sig- urgeiri Sigurðssyni bæjarstjóra það verkefni að reka bæjarfélagið áfram, nái þeir meirihluta. Það mun liins vegar vera Ijóst af hálfu Nýs afls að enginn frambjóðendanna muni gegna stöðu bæjarstjóra, nái Nýtt afl meirihlutaí bæjarstjórninni. Frambjóðendur Nýs afls munu nefnilega ætla að auglýsa eftir framkvæmdastjóra til að reka bæjarfélagiö . . . egar lögleiðing á bílbeltum í aftursætum var til umræðu á Al- þingi voru oft í gangi miklar vanga- veltur. Einn ráðherranna okkar mun meðal annars hafa litið svo á að þessi lögleiðing væri farin að ganga út í öfgar og hafði á orði að menn gætu greinilega búist við hverju sem væri, jafnvel því að lög- leitt væri að fólk yrði ólað niður á salerninu. Þóttu þessi ummæli ráð- herrans fremur undarleg þegar tek- ið er tillit til þess að stórlega hefur dregið úr slysum á fólki í umferðinni á síðustu árum, og þakka menn það fyrst og fremst lögleiðingu bíl- belta . . . l gleðimoli með hækkandi sól: Nú geta brátt allir horft aftur á fréttatíma Stöðvar 2. Ákvörðun hefur nefnilega verið tekin um að hætta að læsa fréttaþættinum, enda var sú aðferð fyrst og fremst hugsuð til að fjölga áskrifendum í samkeppninni við Sýn. Við samein- ingu Stöðvar 2 og Sýnar er sú sam- keppni auðvitað úr sögunni og geta því afruglaralausir horft á fréttir. Ekki er búið að ákveða hvort ákvörðunin verður framkvæmd von bráðar eða í haust. Þá heyrum viö að Stöð 2 hyggist einnig senda kosningasjónvarpið út órugl- að . . . 11 . m aramotin auglýsti lögregl- an í Reykjavík tvær stöður í nýrri forvarnardeild lögreglunnar. sem Ómar Smári Ármannsson lögreglumaöur veitir forstöðu. Þótt liðið sé hartnær hálft ár frá því aug- lýsingin birtist hefur enn ekki veriö tekin ákvöröun um hverjir hljóti þessar stöður. Umsækjendur voru fjölmargir . . . A ^OPins og kom fram í viðtali í PRESSUNNI í síðustu viku við um- boðsmann Sigríðar Beinteins- dóttur og Grétars Örvarssonar fyrir Eurovision-keppnina gekk ekki alltof vel að fá fyrirtæki til aö fjármagna ferð þeirra Stjórnar- manna til Zagreh Einn liðurinn í þeirri baráttu var að fá lánaðan kjól á Sigríði, en þann kjól hafði Ragnheiður Ólafsdóttir bún- ingahönnuður fundið í Parísar- tízkunni. Eigendur Parísartízkunn- ar neituðu hins vegar að lána Sigríði kjólinn. Sigríður bað um afslátt af verðinu sem var um 30.000 krón- ur, gegn einhvers konar auglýsingu, en því var jafnframt synjað. Eftir að Sigríður og Grétar komu heim, búin að slá í gegn í Júgóslavíu, hringdi annar eigenda Parísartízkunnar og spurði Sigríði hvort hún gæti Iánað versluninni mynd af sér í kjólnum. Ástæðan: Jú, nú vildi Parísartízkan fá að auglýsa það upp að kjóll Sigríð- ar hefði komið úr þeirri verslun og í staðinn gæti hún fengið helmings- afslátt af kaupverðinu. Sigríður óskaði eftir að fá kjólinn til eignar í staðinn fyrir auglýsingabirtinguna. Því hafnaði eigandi Parísartízkunn- ar, sem sneri sér hins vegar til starfs- manns ríkissjónvarpsins og fékk þar lánaða litmyndaf Sigríði, í kjóln- um úr Parísartízkunni. Auglýsinga- myndin var síðan birt í Morgun- blaðinu á sunnudaginn þar sem meðal annars stendur: Sigríður Beinteinsdóttir var í kjól frá Par- ísartízkunni . . . Sigríður mun ekki himinlifandi yfir þessari birt- ingu . . . Tilhammgju með árangurinn. Sigriður og Grétar skigu i gcgn í Ztigréb. Sigríður Beinteinsdöttir var í kjól frá PARISARTIZ.KUN.Ni Fyrot 09 fremst eínstök oæói Á MEÐAN BIRGÐIR ENDAST Allt að 12 mánaða greiðslukjör Leisurewise þrekhjólin fást á einstökum afborgunarkjörum. Visa og Euro korthafar geta nýtt sér raðgreiðslur og fengið Leisurewise þrekhjól á allt að 12 mánaða afborgunum. Leisurewise þrekhjólin eru búin ótol kostum: • Tölvu sem mælir m. a. hjartslátt, vegalengd og kaloríubrennslu. • Sætið er stillanlegt, stöðugt og mjúkt. • Átaksþyngdin er stillanleg. • Ólar yfir ristar. • Jöfn spyrna. • Plastpúðar verja gólfið. Breska verslunarfélagið Faxafeni 10 - Húsi Framtiðar 108 Reykjavik Pöntunarsími: 91-82265 LEISUREWISE PROFILE áður 23.600,- nú 17.900,- stgr. LEISUREWISE 1000S áður 14.900,- nú 9.900,- stgr. OPIÐ LAUGARDAG KL. 10—16

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.