Pressan - 17.05.1990, Blaðsíða 20
20
Fimmtudagur 17. maí 1990
bridge
Ákveðin þemu skapa oft skyld-
leika með annars ólíkum spilum.
Glöggir lesendur minnast ef til vill
„stefsins" í dag úr nokkurra vikna
gömlum dálki. En því miður hafði
spilafélagi minn ekki lesið þann
dálk og bar þar af leiðandi ekki
kennsl á ættingjann þegar mest á
reyndi:
♦ 10764
V D
♦ ÁG83
4» KG107
* D32
V 108642
♦ 5
4» 6522
♦ KG
V ÁG9
♦ D642
4» ÁD84
Helagi minn í suður opnaði á
1- grandi og eftir Stayman-könnun
lét ég honum eftir stjórnina í
2- gröndum.
Útspil hjarta-4, drottning, kóng-
ur og ás. Meö sjö toppslagi var rök-
rétt að ráöast á tígulinn í von um
að fá þar þrjá slagi. Makker minn
hófst handa með tígli á gosa og
kóng. Austur hélt áfram sókninni í
hjarta, nía suðurs tekin með tíu og
hjarta um hæl. Þegar í ljós kom
svo að tígullinn lá 4—1 urðu átta
slagir afraksturinn.
Það er rétt að sérhver 2—2-lega
í tíglinum tryggir spilið, en það er
meira áríðandi að hamla þvi að
austur komist inn í spiliö.
Þess vegna er tígli spilað á ásinn
og meiri tígull úr borði. Austur
verður að spara kónginn, annars
fáum við þrjá slagi á litinn. Drottn-
ingin vinnur. Nú er eölilegt aö
reyna við níunda slaginn á spaða.
Inn í blindan á lauf og spaða spilaö
og við höfum efni á aö geta rangt
i litnum. Vestur getur ekki gert
okkur neinn óskunda ef hann fer
inn í spiliö. Hvernig sem spaðinn
liggur í vörninni fáum við óhjá-
kvæmilega níunda slaginn á
spaða-10.
Þessar krókaleiðir eru nauösyn-
legar því mottóið er að halda
austri út úr spilinu án þess aö við
gefum frá okkur bestur líkur á níu
slögum.
* Á985
V K752
♦ K1097
4» 9
skák
Anderssen kemur
til Parísar
Frægöarsögurnar af Morphy
bárust um alla Evrópu, meðal ann-
ars til Breslau þar sem Anderssen
kenndi sína stærðfræði og þýsku,
ókrýndur skákkóngur heims eftir
sigurinn í London 1851. Þeir
Morphy komust í samband hvor
við annan og það varð úr aö And-
erssen tók sér ferðá hendur til Par-
ísar í jólaleyfinu til þess að tefla við
Morphy. Sú viöureign var á ýmsan
hátt óvenjuleg. Ekkert fé var lagt
undir, en Morpliy styrkti Anders-
sen til fararinnar með veöfénu frá
hólmgöngunni viö Harrwitz.
Morphy hafði erft mikið fé eftir
föður sinn sem andaðist skömmu
fyrir skákþingið í New York 1857
og var því auðugur maöur. Hann
leit á skákina sem leik og vildi sið-
ur leggja fé undir þegar teflt var,
virðist hafa haft á taflinu svipaða
skoðun og Benjamin Franklín.
Hann hafði áður gefið til líknar-
mála veðfé er komið haföi í hans
hlut, og Löwentluil hafði hann gef-
ið húsgögn í nýja íbúð þegar hann
hafði unnið hann í einvígi. Nú not-
aði hann veðféðfrá Harrwitz til aö
auðvelda Andenssen förina til Par-
ísar.
Anderssen kom til Parísar 14.
desember 1858 og hafði ferðin frá
Breslau tekið hann þrjá daga. Þá
hittist svo á að Morphy var sjúkur
og þurfti því aö fresta einvíginu
um viku. Anderssen notaði tím-
ann til að skoða Fbrís og tefla við
Harrwitz.
Einvígið hófst svo 20. desember.
Morphy mátti enn ekki fara út og
var því teflt á herbergi hans í Hótel
Breteuil. Viðstaddir voru nokkrir
af fremstu skákmönnum Frakka
með þá gömlu kempu Saint Am-
ant í broddi fylkingar. Þessir menn
skipuðu dómnefnd er skyldi skera
úr ágreiningi, en ekki kom til þess
að á henni þyrfti að halda.
Eitt kemur nútimamönnum ein-
kennilega fyrir sjónir: Morphy lék
jafnan hvítu mönnunum, en hvít-
ur og svartur skiptust á að hefja
leikinn. Þetta mun hafa verið al-
gengt þá, og sami háttur var hafð-
ur á í skákþinginu í London 1851.
Til sigurs í einvíginu þurfti að
vinna sjö skákir, jafntefli voru ekki
talin með.
í fyrstu skákinni hafði Morphy
hvítt á nútímavísu og beitti Evans-
bragði. Anderssen tók hraustlega
á móti og tókst að sigra í endatafli
eftir langa og harðvítuga baráttu.
Anderssen valdi spænska leikinn í
næstu skák og varð hún jafntefli. í
þriðju skákinni beitti Morphy svo
spænska leiknum. Sú skák varð
aðeins 20 leikir, því að Anderssen
lék illa af sér í 19. leik og tapaði
þegar í staö. Þetta tap varö til þess
aö Anderssen gaf Morphy ekki aft-
ur færi á að beita spænskum leik.
Þetta var sennilega misráðið hjá
Anderssen því að tapið var engan
veginn byrjuninni að kenna. Fróð-
legt er að líta á þá skák þótt gölluð
sé.
Morphy — Anderssen
Þriðja einvígisskákin
1 e4 e5 2 Rf3 Rc6 3 Bb5 Rf6 4 d4
Rxd4 5 Rxd4 ed4 6 e5 c6 7 0-0
cb5
Betra var 7 — Rd5 8 Bc4 Rc7 9
Dxd4 d5, eða 7 — Re4.
8 Bg5! Be7 9 ef6 Bxf6 10 Hel +
Kf8 11 Bxf6 Dxf6 12 c3 d5 13
cd4 Be6 14 Rc3 a6 15 He5 Hd8
16 Db3 De7 17 Hael g5 18 Ddl
Df6 19 Hle3 Hg8? 20 Hxe6 og
svartur gafst upp.
GUÐMUNDUR
ARNLAUGSSON
krossgátan
BjACr uí V
Æ V/
HOLMI 'V
K/ÆT/LL
'Aei/l/6
BOG/
y/ru fi
S'/£/ri,A
LoíA-ÐUJ
II
Rola
STfXTuR
lk
!*6-
HUbð
RómhR/w
XÆA)//
SAROföl
r’/tooi
flLp/H
MAHHS-
NAFH
73
k&fí
MEG/H-
HLIU.TI
tbozO-
HALOSWS
]1
ME&AL
<xlA S
FLJbT
FV'/lOI
HRuz/\
TRyllt
10
y Fft/N
JAÚAR
STYM-uR
SKT-KKJvtfi.
VAFI
5/tM r
T'/nA-
6il
‘OSTOSUG
DOGá
11
FELAC-A
FLíotum
HR0KI
BF/Ð/Vi
SV/tLfl
FR.TA
L£iK-
tÆk I
'OL/OlR
VEI-OAR-
F/Til L
F-Ffl&AR
líi
ÍAMÍTÁm
UCÍA
/JoiOuR
AH0VAHP
HoGL
STtTT
HfíF/oA
FJAS
E/rV S
STAAF
MK0MA
DuSLFG
1}
H'AVAei
LCSTÆTI
DFyKKuR
R/SA
A
VOT
LYKT
Hf\f/0-
SAMA
yFIALi&
Raðtala
FR'/DA
T06AOI
‘fiVETT-
I íVu/vi
SLo
FIUKuKF
BLoi
FDJA
MfiDK
UTLIMI
R/NS
KLAKI
SKRAF
MAGu.fi
VltíKV/ÍM
~ brVrJ
R M.G GA
Komast
8
/ÍF-F
&
y//V/VuR
bKLf/iOuS
GLAÓuR
Roh
1 2 3
17 18 19
6 7 8 9 10 11 12 13 14 15
Verölaunakrossgáta nr. 86
_ Skilafrestur er til 26. maí og er œvisaga Ingu Laxness í verdlaun,
í AÐALHLUTVERKI — INGA LAXNESS, sem Silja Aðalsteins-
dóttir skráöi. Þetta er hreinskilin, skemmtileg og lifandi frásögn
fyrri eiginkonu Halldórs Laxness. Utanáskriftin er: PRESSAN,
krossgáta nr. 86, Ármála 36, 108 Reykjavík.
Verölaunahafi 84. krossgátu er Barði Jóhannsson, Úthlíð 12,
Reykjavík. Hann fœrsenda bókina Töff týpa á föstu eftir Andrés
Indriðason. Báöar verölaunabœkurnar eru útgefnar af Máli og
menningu.