Pressan - 17.05.1990, Side 5
'PPf 'ph r * rn"lviirn.n^
Fimmtudagur 17. maí 1990 5
SPURNINGAKEPPNI PRESSUNNAR MEÐAL ODDVITA BORGARSTJÓRNARLISTANNA
OPIO
$LL
ysBm
Flestallir Reykvíkingar hafa rölt Laugaveginn upp að Hlemmi, séð Hall-
grímskirkjuturninn gnæfa yfir borgina, ferðast með strætó víðast hvar um
borgina, munaeftir uppsetningu útitaflsins við Lækjargötu og svo framveg-
is. En vita þeir hæð Hallgrímskirkjunnar eða lengd Laugavegarins? PRESS-
AN ákvað að efna til laufléttrar spurningakeppni á milli forystumanna
þeirra flokka sem um þessar mundir gera hosur sínar grænar fyrir hæst-
virtum kjósendum.
EFTIR: FRIÐRIK ÞÓR GUÐMUNDSSON MYND: EINAR ÓLASON
Siguijón Pétursson
reyndist Mutskarpastur í
laufíéttri og ópólitískri
spurningakeppni Press-
unnar. Hæstvirtir fram-
bjóðendur með ákafíega
ólíkar hugmyndir um
hæð Hallgrimskirkju,
lengd Laugavegarins —
og fjölda kjósenda!
Samdar voru tuttugu spurningar í anda
„Trivial Pursuit" og var hver þeirra í tveimur
liðum. Þátttakendur voru Áshildur Jónsdóttir
Flokki mannsins, Elín G. Ólafsdóttir Kvenna-
listanum, Kjartan Jónsson Græna framboðinu,
Magnús L. Sveinsson Sjálfstæðisflokki, Ólína
Þorvarðardóttir Nýjum vettvangi, Sigrún
Magnúsdóttir Framsóknarflokki og Sigurjón
Pétursson Alþýðubandalagi.
Öll skipa þau efeta sætið á listum sínum, ut-
an að Magnús er í 2. sæti Sjálfstæðisflokksins.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir og skilaboð tókst
ekki að ná sambandi við Davíð Oddsson borg-
arstjóra.
Nokkrar spurningar vöfðust verulega fyrir
frambjóðendunum. Þannig gat enginn þeirra
svarað því hvaða vagn á að taka frá Hlemmi að
Hörpugötu, sem liggur vestan við flugvöllinn.
Sum svörin voru hins vegarfljót að koma, t.d.
vissu allir að Vitastígur liggur á milli Baróns-
stígs og Frakkastígs og aliir vissu hvernig efri
hluti Þjóðarbókhlöðunnar er á litinn.
Sumir hlutir virðast svo augljósir aö það tek-
ur vart tali. Ef t.d. er litið á Hallgrímskirkjuna
og Laugaveginn upp að Hlemmi mætti ætla að
menn hlypu ekki út um víðan völl við að giska
á hæð turnsins og lengd götunnar. En turninn
mældist í hugum frambjóðendanna allt frá 35
metrum hjá Sigrúnu upp í 90—92 metra hjá
Magnúsi og Kjartani og er munurinn nær þre-
faldur! Og þessi ákveðni spotti Laugavegarins
var í hugskotunum allt frá 250 metrum hjá Ás-
hildi upp í tvo kílómetra hjá Elínu — munurinn
er áttfaldur!
Frambjóðendumir voru ekkert ýkja vel að
sér um strætisvagnaleiðirnar, voru enda ekki
allir klárir á því hvar Vatnsholt eða Hörpugata
eru. Aðeins Sigrún og Áshildur vissu að leið 3
fer með þær inn í VatnsholL Allir nema Kjart-
an vissu að Fæðingarheimilið er við Þorfinns-
götu, en það vafðist fyrir meirihlutanum aö
Þjóðleikhúsið bæri svo hátt götunúmer viö
Hverfisgötuna.
Reykvíkingar voru fyrir hundrað árum tald-
ir vera á bilinu 2.000 hjá Elínu upp í 18.000 hjá
Áshildi og 50 árum síðar voru þeir taldir vera
allt frá 18.000 hjá Áshildi og Kjartani upp í
47.000 hjá Magnúsi. Þá voru ekki síður á reiki
atburðir úr nútímanum, hvenær útitaflið var
sett upp og Fjalakötturinn rifinn. Útitaflið reis
allt frá 1974 í hugaKjartans til 1980 í huga Ás-
hildar, sem er 12 ára tímabil, og Fjalakötturinn
mætti örlögum sínum allt frá 1979 hjá Kjartani
til 1987 hjá Elínu, Áshildi og Magnúsi.
Þar sem ætla mátti að frambjóðendur hefðu
kynnt sér fjölda kjósenda á kjörskrá nokkuö
vel voru ekki gefin mikil skekkjumörk í þeirri
spurningu. En hæstvirtir kjósendur á kjörskrá
voru samt taldir vera allt frá 63.000 hjá Sigur-
jóni upp í 84.000 hjá Kjartani og um leið var
taliö aö þeim hefði fjölgaö um allt frá 6%, sem
er rétt talasamkvæmt Hagstofunni, upp i 20%
hjá Sigurjóni.
Sigurjón, Sigrún og Elín náðu því að Vigdís
hefði fæðst á Tjarnargötunni og átt æskuheim-
ili á Ásvallagötu, en allir nema Áshildur og
Kjartan hittu á Guðmund J; Guðmundsson í
síðari lið spurningarinnar. Ólína og Sigurjón
giskuðu síðan rétt á hvar Camp Knox hefði
verið og allir nema Ólína og Kjartan mundu
hvar Sænska frystihúsið var.
Endanleg niðurstaöa varð síöan að Sigurjón
Pétursson, sem frambjóðenda lengst hefur sér-
hæft sig í borgarmálum, sigraði í spurninga-
keppninni og fékk 6,0 í einkunn. Síðan komu
í réttri röð Sigrún með 5,5, Ólína með 5,0, Ás-
hildur og Magnús með 4,5, Elín með 4,0 og
Kjartan með 2,5.
. . . OG GETTU NU!
1 • Hvað er Hallgrímskirkja há
(með krossi)? Hér má skeika 5
metrum til eða frá.
Suar: 75 metrar. Rétt gefiö fyrir
70—80 metra.
Áshildur: 75 metrar 0,5
Elín: Svona 60 metrar 0,0
Kjartan: Skjótum á 92 metra 0,0
Magnús: Ég segi 90 metrar 0,0
Ólína: Ætli hún sé ekki 60—70 metrar, ég skýt á 70 metra .. 0,5
Sigrún: Ekki hugmynd. 35 metrar ... 0,0
Sigurjón: Ég segi 62 metrar 0,0
£• Hvað er Laugavegurinn
langur frá Bankastræti að Rauð-
arárstíg við Hlemm? Hér má
skeika 50 metrum til eða frá.
Svar: 900 metrar (samkvœmt upplýs-
Magnús: 900—1.000 metrar, segjum
950 metrar................... 0,5
Ólína: Einn og hálfur kílómetri.... 0,0
Sigrún: 800 metrar.................... 0,0
Sigurjón: Eg hugsa að þetta sé 1 kíló-
metri........................ 0,0
fyrir 850—950 metra.
Áshildur: Svona 250 metrar 0,0
iElín: Segjum 2 kílómetrar 0,0
Kjartan: Þessi leið er alltaf lengri þegar maður labbar hana
en þegar maður keyrir hana! Segjum 1.700 metrar . o o'
tJ • Hvaða strætisvagn liggur
beinast við að taka efþú ert stadd-
ur á Lækjargötu og ert á leiðinni í
götuna Vatnsholt?
Svar: Leiö 3.
Áshildur: Ég hugsa að þetta sé leið 3.. 0,5
Elín: Ég veit ekki einu sinni hvar
Vatnsholt er! Giska á leið
átta........................... 0,0
Kjartan: Vatnsholt!? Ég segi bara leið
8/9........................... 0,0
Magnús: Þar tókstu mig í landhelgi.
Leið 4......................... 0,0
Ólina: Ég nota strætisvagnakerfið
lítið og ég reikna með að
það væri best að labba
þessa vegalengd! Ég skýt á
að beinast lægi við að taka
leið 2......................... 0,0
Sigrún: Það eru ýmsir sem koma
nálægt... Leið 3............... 0,5
Sigurjón: Hef ekki hugmynd um það .. 0,0