Pressan - 17.05.1990, Side 25

Pressan - 17.05.1990, Side 25
Fimmtudagur 17. maí 1990 25 sjúkdómar og fólk Schizophrenicm og píslarsaga sr. Jóns Magnússonar Ég Ias um daginn í gamalli bók, Píslarsögu sr. Jóns Magnússon- ar á Eyri við Skutulsfjörð. Þessi bók var skrifuð á miðöldum, þegar galdrar og fjölkynngi voru talin or- sök margs konar riðusjúkdóma og vesaldar sem herjuðu á stöku ein- staklinga. Rit sr. Jóns er merkileg heimild um hugsunarhátt og trúarlíf manna á þessum tímum. í Píslar- sögunni lýsir hann eigin sjúkdóm- um á myndrænan hátt, enda hefur hann verið snjall rithöfundur. Dæmi um slikar lýsingar eru: „Ákafi og ólmleiki þeirra djöfullegu písla sem mig kvöldu fór svo í vöxt að ég lá heilum dögum undir djöflanna fargi. Stundum fannst mér ég vera lagður uppí þá síðuna sem ég lá á, svo sem með flein sem mér fannst ganga í gegnum lífið á milli rifjanna. Stundum lá ég í nístingskulda; stundum var kuldinn á hálfum parti líkamans, sem frárúminu horfði, en eldhitinn á hinum partinum. Stund- um var holdið utan um beinin, svo að finna sem krúandi maðkaveita svo sem vellandi og spriklandi væri með hræðilegum ofbjóði. Þrálega varð mér svefntíminn vökunni tíu hlutum kvalráðari og ofbjóðslegri." Sr. Jón álítur, að öll þessi vanlíðan sé runnin undan rifjum þeirra Kirkju- bólsfeðga, sem báðir hétu Jón, og túlkar allt mögulegt í fari þeirra og hátterni sem galdra og ofsóknir. Þegar feðgarnir fara framhjá á ferðalagi er það til þess eins að herða á „slögum" sem hann finnur fyrir. Píslarsagan er full af tálsýnum og höfundurinn lýsir draumkenndu ástandi sínu á myndríkan hátt. Veik- indi sr. Jóns valda miklu fári um sveitina alla og verða margir til að finna fyrir svipuðum einkennum og hann. Sagan er full af endurtekning- um og margar málsgreinar í píslar- sögunni eru óhemjulangar og ná yfir heilar blaðsíður og margar millisetningar margflæktar hver inn í aðra, svo erfitt erað komast að efn- inu. Gedrœnir kvillar sr. Jóns Ég lá andvaka fram á nótt og hugsaði til sr. Jóns og þeirra Kirkju- bólsfeðga og velti því fyrir mér hvaða geðrænum kvillum hann hefði verið haldinn. Margt í mynd- inni líkist einkennum sjúkdóms, sem kallast á erlendum málum schizophrenia (komið úr grísku en í því máli þýðir schizein = klof- inn, phren = sál), eða geðklofi á íslensku. Þetta heiti er óheppilegt þar sem sjúkdómurinn einkennist ekki af klofningi á sálinni, heldur stöðnun á félagslegum þroska og breytingum á hugsanaferli og upp- lifunum. Þegar orðið geðklofi er nefnt dettur mörgum í hug sagan um dr. Jekyll og mr. Hyde og halda að allir sjúklingar með þennan sjúk- dóm taki slíkum stakkaskiptum með reglulegu millibili og séu í raun tveir menn eða tvíklofin sál. Annars vegar sómalæknirinn dr. Hyde en hins vegar dusilmennið Jekyll. Svo er þó alls ekki. Schizophrenia er geðsjúkdómur semoft leggst á ungt fólk og veldur miklum breytingum á geðhöfn og þroska einstaklingsins. Einkenni sjúkdómsins eru margvís- leg, en sjúklingurinn missir oft eðli- leg tengsl við raunveruleikann og fær svokallaðar ofskynjanir. Þær felast oft í margvíslegum röddum, sem sjúklingurinn heyrir. Sumir heyra eina rödd, sem ræðir við þá og skipar þeim fyrir, aðrir heyra fleiri raddir sem tala saman um þá sjálfa eða eitthvaðannað. Raddirnar geta stundum verið ógnandi og skipað sjúklingnum fyrir og vakið með honum ugg og hræðslu. Annað algengt einkenni þessa sjúkdóms er hugsanabrengl eða truflun á hugs- uninni. Sjúklingnum finnst eins og aðrir geti hugsað í gegnum hann eða lesið hugsanir hans. Sumum finnst sem hugsuninni sé bergmálað út i umhverfið og allir geti þannig fylgst með því sem gerist í hugskoti þeirra. Stundum er eins og hugsun- in stöðvist eða klippist í sundur og tengslin milli hugsunar og talfæra rofni. Þá segir sjúklingurinn eitt- hvað annað en hann er að hugsa og stundum koma frá honum orð sem enginn skilur og líkjast nýju tungu- máli. Margir þessara sjúklinga fá svokallaðar ranghugmyndir en þær felast í því, aðsjúklingurinn fær tilfinningu fyrir umhverfi sínu sem er í engu samræmi við raunveru- leikann. Algengastar eru alls konar ofsóknarhugmyndir. Sjúklingnum finnst eins og einhver sitji á launráð- um við hann og vilji honum allt illt. Þessar hugmyndir geta oft fengið á sig einkennilegan biæ, sumum finnst eins og öll íbúðin sé hlaðin hlustunartækjum eða hljóðnemum og einhver utanaðkomandi aðili sé að njósna um þá. Aðrir segja, að út- varpið og sjónvarpið fylgist með þeim og ræði um þá í hverjum fréttatíma. Þessar ofsóknarhug- myndir eru oft barn síns tíma og mótast af þeim tækniviðhorfum, sem ríkjandi eru. Þegar ég var að hefja störf á geðdeildum árið 1968 töldu margir schizophren sjúklingar sig ofsótta eins og nú og töldu, að fylgst væri með þeim úr gervihnött- um og reynt að granda þeim með geislum. Á þessumárum voru tungl- ferðir að hefjast ogfregnir um gervi- hnetti og eldflaugar á allra vörum. Nú er algengast, að þessir sjúklingar tali um tölvur og áhrif þeirra og segi að fylgst sé með sér gegnum tölvu- kerfi. Félagsleg hrörnun Annað megineinkenni schizo- preniunnar er mikil breyting sem verður á félagslegri hegðun. Sjúkl- ingarnir verða oft einangraðir, missa tengslin við umhverfi sitt, hætta í þeirri vinnu sem þeir áður höfðu, missa vini og kunningja og týna áhuganum á gömlu áhugamál- unum sínum. Unglingurinn sem áður hafði áhugaá félagsmálum og íþróttum hættir að sinna þessum hugðarefnum. Oft sést mikil félags- leg hrörnun eða Imignun hjá þess- um einstaklingum, sem umhverfi þeirra veitir eftirtekt. Margir verða hirðulitlir um eigið útlit, hætta að þvo sér og snyrta ekki lengur hár eða skegg. Helstu einkenni þessara veikinda eru því ofskynjanir, ranghugmyndir og félagsleg hnignun. Enginn veit með neinni vissu, hverjar eruorsakir þessa sjúk- dóms. Schizophrenian virðist aö einhverju leyti vera ættgeng en menn vita ekki ennþá með neinni vissu, hvað erfist eða hvernig. Al- gengast er að sjúkdómurinn geri vart við sig hjá ungu fólki. Veikindi sr. Jóns Mjög margt í Píslarsögu sr. Jóns bendir til schizophreniu-einkenna; hann hefur greinilega haft miklar ofskynjanir, sem hrjá hann öllum stundum og hann lýsir á myndræn- an hátt. Þessar skynvillur eru margs konar, hann heyrir raddir og sér djöfla ganga Ijósum logum. Auk þess virðist hann eiga bágt með að hugsa skýrt eins og uppsetning písl- arsögunnar á mörgum stöðum ber glöggt vitni. Ranghugmyndir lians beinast að þeim Kirkjubólsfeðgum sem hann telur rammgöldrótta og eigi sök á öllum veikindunum og heiftrækni hans gagnvart þeim ber vott um gífurlega þráhyggju sem er algeng í schizophreniunni. Hann hafði áður fengið taugabilunarköst og orðið nærri geggjaður á ferða- lagi stutta stund, svo honum lá við sjálfsmorði, svo sjúkdómurinn hef- ur þróast á ákveðnum tíma. Sr. Jóni tókst eftir mikla baráttu að fá þá feðga brennda á báli, en þrátt fyrir það héldu hremmingarnar áfram, og þá kenndi hanndóttur Jóns eldri, Þuríði, um galdra og reyndi allt hvað hann gat að fá hana brennda líka. Þuríður slappog kæröi þá prest fyrir rangar sakargiftir. Eftir það fer engum sögum af veikindum sr. Jóns en hann lest fjömtíu árum síðar í hárri elli. Hvaö var aö Jóni? Var sr. Jón schizophren? Hann hefur ákveðin einkenni sem benda til þess, en ýmislegt skortir svo hægt sé að setja þá greiningu með vissu. Ekki verður vart þeirrar félagslegu hnignunar, sem alltaf er fyrir hendi í sjúkdómnum, hjá sr. Jóni. Sjúk- dómseinkennin virðast auk þess hverfa eða liggja niðri um áratuga- skeið og það er næsta óvenjulegt. Flestum nútímalæknum hefði þó dottið schizophrenian í hug hefðu þeir fylgst með hamagangi Jóns, skrifum hans, galdratrú, ofskynjun- um og ranghugrnyndum. Á okkar tímum hefði sr. Jón fengið lyfja- meðferð til að slá á þessar hug- myndir og skynvillur. Ymiss konar lyf eru notuð með ágætum árangri en algengast er Trilafón (perf- enasín), sem hefur reynst sérlega vel við þessum einkennum, en trilafón er virkt geðlyf sem mikið er notað. Síðan hefði verið reynt að endurhæfa hann eftir bestu getu og koma honum á nýjan leik út í lífið. Þeir Kirkjubólsfeðgar hefðu fengið að halda lífi og engum dottið í hug að taka ásakanir Jóns svo alvarlega sem gert var þá. En þá var galdraöld og lítið mál að btenna menn á báli vegna ofskynjana ritfærs klerks en nú er tölvutöld og illmögulegt að út- rýma öllum tölvum landsins þó ein- hverjum finnist þær stefna andlegu öryggi sínu í hættu. „ÓTTAR GUÐMUNDSSON iT lófalestur draumar í þessari viku: Kátur karl (karlmaöur, fæddur 7.2. '76) Þessi piltur á eftir að verða mikill framkvæmdamaður, þegar hann eldist. Best ætti viö hann að vera í verklegum framkvæmdum eða vinna á tæknilegum sviðum, þar sem skipulagshæfileikar hans koma að notum. Hann er metnað- argjarn og gerist snemma sjálf- stæður og óháður. Upp úr 20 til 22 ára aldri verða breytingar í lífi hans, en hann mun snemma vita hvað hann ætlar sér. Þegar líða tekur á ævi hans fær hann svo áhuga á pólitík eða verkalýðsmálum. Næstu fimmtán ár verða viðburðarík og ef hann heldur rétt á spöðunum gengur honum afar vel í skóla á árunum 1990 til 1995 og nær þá að byggja trausta undirstöðu fyrir lífið fram- undan. Þetta verður tilfinningaríkur og ástríðufullur maður, en samt raun- sær. Það væri hagstæðast fyrir hann að bindast ekki á unga aldri. Helst ekki fyrr en um eða upp úr þrítugu, þó það þyki seint í dag. Hann þyrfti að fara vel með húðina og er ef til vill óvenjunæmur fyrir umferðarpestum, en hann þarf ekki að vera hræddur um að leggj- ast í nein alvarleg veikindi. Sérkennilegir draumar Oft er það svo að hefðbundnar ráðningar drauma eru taldar örugg- ar. Svo sem að skartgripir séu tákn barns eða giftingar, dýr séu manna- fylgjur o.s.frv. Oftast er þefta líka rétt, en þó eru undantekningar sem ráðast af ýmsum öðrum aðstæðum. Kunningjakonu mína dreymdi einn slíkan sérkennilegan draum. Henni þótti amma sín, sem þá var látin, koma til sín og vilja gefa sér skartgripina sem hún hafði átt. Gripirnir voru mjög vandaðir, úr gulli. Kunningjakona mín minntist sérstaklega eyrnalokka sem attu að fylgja. Hún þóttistsamt færast und- an að taka við þessu og segja á þá leið að einhver önnur barnabörn gömlu konunnar ættu frekar að taka við þessari dýru gjöf. Nei, þú átt að fá þetta, svaraði amma henn- ar mjög ákveðin og rétti henni fullar hendur sínar af skartgripum. I hrúg- unni var stór gullkross og hékk keðj- an niður úr höndum gefandans. Nú þóttist kunningjakona mín þess fullviss að henni bæri eitthvert happ að höndum. En það var nú eitthvað annað. Óhöppin og erfið- leikarnir sóttu að henni. Kvaðst hún ekki í annan tíma hafa verið verr stödd. Mörgum árum seinna sagði hún miðli frá þessum draumi. Miðill- inn taldi að amma hennar hefði vit- að um erfiðleikana sem hún átti í vændum og viljað gefa henni styrk. Gullið, hinn ósvikni málmur, var tákn hjálpar og krossinn merki trú- ar og guölegrar handleiðslu. Krossar geta haft nokkuð fjöl- breytta merkingu. Oftast tengir maður þá við dauðsföll og feigð, en reynslan sýnir þó að þetta er ekkert ófrávíkjanlegt. Kross getur þýtt styrk og trúarvissu. Svo er einnig með fleiri tákn úr trúarbrögðum, svo sem regnbogann. Oft táknar hann styrk í eríiðleikum. Við getum ekki sloppið við erfiðleikana, en okkur er jafnframt lofað hjálp við að leysa úr þeim. Að dreyma eða sjá regnboga inni í húsi hefur þvílíka merkingu. Margir telja regnboga gæfutákn en ég held að sú gæfa sé að mestu sú lífsreynsla sem miklir örðugleikar gefa. Einnig getur regn- boginn þýtt að bjartara sé framund- an. Hann er afar fallegt draumtákn. Sá sem dreymir regnboga á eftir að komast drjúgan spöl á þroskabraut- inni á þessu æviskeiði. Hamar er fornt trúartákn (Þórs- hamarinn). Og enn táknar hamar í draumi ráðandi afl, þó fæstir geri sér grein fyrir hvaðan merkingin er komin. Að dreyma að einhver gefi manni hamar bendir til að maður verði þeirri manneskju undirgefinn eða vinni fyrir hana. Gefi maður sjálfur hamarinn snýst þetta við, dreymandinn verður þá í valdaað- stöðunni. Margir hamrar geta þýtt vikur, mánuði eða ár sem þetta ástand varir.

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.