Pressan - 21.02.1991, Síða 8
Ingvar Sveinsson, sem var framkvæmdastjóri Töggs
hf., er sakaður um að hafa náð til sín umtalsverðum fjár-
hæðum frá fyrirtækinu á þeim tíma sem fyrirtækið hafði
fengið greiðslustöðvun og ekkert blasti við annað en
gjaldþrot. Samkvæmt ákæru fékk þáverandi eiginkona
Ingvars, Hanna Elíasdóttir, einnig umtalsverða peninga
frá félaginu. Hjónin fyrrverandi fengu á þriðja tug millj-
óna frá Töggi. Félagið er til gjaldþrotaskipta og hætta er
á að allt að 70 milljónir króna tapist við gjaldþrotið.
Sakadómur Reykjavíkur hefur nú
til meðferðar mál sem höfðað var
gegn fyrri eigendum, stjórnendum,
starfsmönnum og lögmanni Töggs
hf. Eins eru tveir starfsmenn Spari-
sjóðs Reykjavíkur ákærðir í sama
máli. Töggsfólkinu er gefið að sök
að hafa beitt fjársvikum, skilasvik-
um auk annarra brota. Stjórnar-
menn í félaginu eru sakaðir um að
hafa ekki fylgst nægilega vel með
rekstri stjórnarformannsins og
framkvæmdastjórans, Ingvars
Sveinssonar.
GREIÐSLUSTÖÐVUN
Snemma árs 1987 fékk Töggur hf.
greiðslustöðvun. Töggur hf. hafði
umboð fyrir tvær bifreiðategundir,
SAAB og SEAT. Fyrirtækið missti
umboðið fyrir SEAT áður en það
varð gjaldþrota. Greiðslustöðvunin
var framlengd í tvígang. Atli Gísla-
son saksóknari segir að það hafi
verið gert þrátt fyrir að forráða-
menn fyrirtækisins og tilsjónarmað-
ur þess á greiðslustöðvunartíman-
um, Ingvar Björnsson lögmaður,
hafi átt að gera sér grein fyrir að fé-
laginu yrði ekki forðað frá gjald-
þroti.
Þá deilir saksóknarinn hart á að-
gerðarleysi á greiðslustöðvunartím-
anum. Hann segir að nánast ekkert
hafi verið gert til að reyna að rétta
af fjárhag félagsins. Þess í stað hafi
skuldasöfnun haldið áfram og
kröfuhöfum hafi verið mismunað.
Baldvin Tryggvason, sparisjóðs-
stjóri í Sparisjóði Reykjavíkur, og
Katrín Púlsdóttir, starfsmaður Spari-
sjóðsins, eru ákærð fyrir skilasvik.
Samkvæmt ákæru ívilnuðu þau
Sparisjóðnum með kaupum á nýjum
skuldabréfum gegn því að senda
Töggi aftur gjaldfallin skuldabréf.
ORLOFSREIKNINGUR
GREIDDUR MEÐ NÝJUM SAAB
Meðal þess sem Ingvar Sveinsson
fékk frá Töggi var nýr SAAB 9000
turbo 16. Nýr bíll af þeirri tegund
kostar 2,5 milljónir í dag. Bílinn fékk
Ingvar aðeins þremur dögum áður
en fyrirtækið var lýst gjaldþrota.
Ingvar framvísaði reikningi fyrir
ógreitt sumarleyfi á árunum 1982 til
1986. Til skuldajöfnunar tók hann
bílinn. Orlofsreikningurinn, sem
Ingvar framvísaði, var upp á 912
þúsund krónur. Bílinn seldi hann
aftur 17 dögum síðar fyrir 1200 þús-
und krónur.
Atli Gíslason hæstaréttarlögmað-
ur, sem er sérstakur saksóknari í
þessu máli, fullyrðir að orlofsreikn-
ingurinn hafi verið tilbúinn og því
hafi Ingvar náð til sín 1200 þúsund
krónum frá gjaldþrota fyrirtæki sem
hann sjálfur veitti forstöðu.
Verjandi Ingvars, Jónatan Sveins-
son hæstaréttarlögmaður, segir að
Ingvar hafi átt inni ógreitt sumarfrí
þegar hann framvísaði reikningn-
um.
14 MILLJÓNIR FÆRÐAR
Á SÍÐUSTU STUNDU
Stjórnendur Töggs framseldu við-
skiptakröfu á hendur Ingvari
Sveinssyni framkvæmdastjóra. Það
var gert skömmu fyrir gjaldþrotið.
Krafan, sem var upp á rúmar 14
milljónir, var framseld til Bíldshöfða
16 hf. Sömu eigendur voru að Töggi
og Bíldshöfða 16 hf. í skiptum fyrir
kröfuna tók Bíldshöfðinn að sér
greiðslur á langtímalánum sem
Töggur skuldaði.
Sama var gert fyrir aðra hluthafa
en í miklu minni mæli, eða samtals
fyrir rúma milljón. Með þessum
gerðum losnuðu hluthafarnir frá því
að skulda Töggi þegar fyrirtækið
var tekið til gjaldþrotaskipta.
í stjórn Töggs áttu þrír sæti. Ingv-
ar Sveinsson var stjórnarformaður
og meðstjórnendur voru þáverandi
eiginkona hans Hanna Elíasdóttir
og bróðir Ingvars Björn Sveinsson.
Björn hætti öllum afskiptum af fé-
laginu á árinu 1985. Þeir bræður
höfðu lengi deilt um peningaúttekt-
ir hvors annars. Sérstaklega hafði
Ingvar gerst frekur til fjárins eftir því
sem komið hefur fram í máli sak-
sóknarans. Þegar Björn hætti öllum
afskiptum var fjandinn fyrst laust
eins og Atli Gíslason saksóknari
orðar það.
Baldvin Tryggvason, sparisjóðsstjóri
í Sparisjóði Reykjavíkur og nágrenn-
is, er einn ákærðu. Honum er gefið að
sök að hafa ívilnað sparisjóðnum
umfram aðra kröfuhafa.
TÓK SÉR TVÆR OG
HÁLFA MILLJÓN
Ingvar Sveinsson, fyrrum fram-
kvæmdastjóri Töggs, tók sér hluta
af söluverði fjögurra bíla sem seldir
voru í febrúar, mars og apríl 1987,
samtals 1.170 þúsund krónur.
Á tímabilinu frá 9. janúar til 4. maí
1987 dró Ingvar sér tæpar 1.400
þúsund krónur af ávísanareikningi
fyrirtækisins. Þetta gerði Ingvar á
nánast sama tíma og hann tók bílinn
vegna ógreidda orlofsins sem getið
var um hér að framan. __
Ingvar Sveinsson og Ágúst Ragn-
arsson, en hann var starfsmaður hjá
Töggi, eru ákærðir fyrir að hafa selt
tvo lyftara en veð hvíldu á þeim báð-
um. Jökull hf. á Raufarhöfn keypti
annan lyftarann en Frjáls fjölmiðl-
un, útgáfufélag DV, keypti hinn.
Ekki tókst að aflétta veðunum og
því töpuðu kaupendurnir peningum
á þessum viðskiptum.
LÖGMAÐUR MISNOTAÐI
AÐSTÖÐU SÍNA
Ingvar Björnsson, lögmaður í
Hafnarfirði, er einnig ákærður í
þessu máli. Á hann eru bornar
þungar sakir. Hann er ákærður fyrir
skilasvik og brot í opinberu starfi.
Ingvar Björnsson var skipaður til-
sjónarmaður með Töggi á greiðslu-
stöðvunartímanum. Hann lét lánar-
drottna fyrirtækisins ekki vita um
greiðslustöðvui.ma fyrr enn þremur
vikum eftir að heimild til hennar lá
fyrir.
Ingvar Björnsson hefur kennt
vandræðum sínum með ritara um
hversu lengi dróst að tilkynna um
að greiðslustöðvun fékkst. Þá sakar
saksóknari hann um að hafa ekki
fylgst nægilega vel með rekstri
Töggs. Ingvar Björnsson hefur sagt
að hann hafi treyst stjórnendum fyr-
irtækisins til að vinna verk sín af
trúnaði.
Ingvar Björnsson keypti sér SAAB
af Töggi skömmu áður en fyrirtæk-
ið fór í gjaldþrot. Ingvar fékk góðan
afslátt af bílnum eða 80 þúsund
Ingvar Björnsson héraösdómslög-
maöur er ákærður. Hann keypti þrjá
bíla meö umtalsverðum afslætti
skömmu fyrir gjaldþrotiö. Gerð er
krafa um aö hann missi málflutnings-
réttindi.
Rrónur. Hann lét sér ekki duga að
kaupa bíl handa sér. Hann keypti
einnig bíl fyrir samstarfsfélaga sinn
Pétur Kjerulf lögmann. Eins útveg-
aði hann bróður sínum bíl með
sama afslætti. Þannig náði lögmað-
urinn, sem skipaður var til að gæta
hagsmuna kröfuhafa fyrirtækisins,
til sín þremur nýjum bílum með
góðum afslætti.
Ingvar Björnsson gaf þá skýringu
að hann hafi haft heimild til að selja
bíla sem voru í eigu fyrirtækisins því
að skaðlausu. Saksóknari telur það
ekki hafa verið gert. Bílarnir hafi
verið seldir til lögmannsins álagn-
ingarlaust og það geti ekki verið fyr-
irtækinu að skaðlausu.
ÁBYRGÐ STJÓRNARMANNA
Saksóknarinn í málinu, Atli Gísla-
son, telur ábyrgð þeirra sem sátu í
stjórn félagsins ásamt Ingvari
Sveinssyni vera mikla. Þrátt fyrir að
bróðir Ingvars, Björn, hafi hætt af-
skiptum af félaginu nokkru áður en