Pressan - 21.02.1991, Blaðsíða 24

Pressan - 21.02.1991, Blaðsíða 24
24 FIMMTUDAGUR PRESSAN 21. FEBRÚAR 1991 Prjú orö sem hver launþegi óttast mest; eru þau kannski upphafiö aö einhverju Sjálfsagl hafa allir launamenn fundid fyrir óþœgilegum kuíöafidr- ingi þegar þeir eru kalladir óvœnt inn á skrifstofu yfirbodarans. Sem betur fer er þad oftast át af ein- hverju smávœgilegu sem tengist vinnunni. Stundum getur þetta þó reynst örlagaríkt. Um leid og þá ert búinn aö fá þér sœti varpar yfir- madurinn sprengjunni sem þú ótt- aöist mest: ,,Þú ert rekinn." Hjartaö stoppar og himinninn hrynur. Þann- ig fer líklega fyrir flestum. En hvaö felst eiginlega í þessum ordum; upp- haf eda endir — þad veltur líklega mest á þér sjálfum. ERFIÐ REYNSLA Það að vera rekinn er erfið reynsla sem flestir vilja losna við. Ef þetta er óvænt þá fyllist viðkomandi sjálfsagt kvíða, vonbrigðum, sektar- kennd og síðan reiði. Viðbrögðin eru hins vegar mjög einstaklingsbundin og að sjálfsögðu skiptir miklu máli hvernig brott- reksturinn ber að höndum. Einnig skiptir máli hvernig hann er orðað- ur og framkvæmdur. Sumir atvinnu- rekendur eru sérlega harðneskju- legir í brottrekstrinum eins og mað- urinn sem rekur alltaf starfsfólk sitt yfir jólin svo að hann þurfi ekki að borga því hátíðakaup á jóladag og nýársdag. Það er kannski bót í máli að starfsfólkið er ráðið aftur eftir há- tíðirnar. Að sögn Sölvínu Konráds sálfræð- ings skiptir miklu máli hvernig ein- staklingurinn upplifir brottrekstur- inn. Ef hann veit að hann á sjálfur persónulega sök á honum getur reynst mjög erfitt að komast yfir Siguröur Helgason: Rak flesta á einu bretti. hann. Þó nokkuð mun vera um það að fólk leiti til sálfræðings í kjölfar þess að vera rekið. Það er helst að eldra fólk eigi erfitt í kringum brottrekstur enda oft mis- kunnarlaus aðgerð gagnvart fólki sem unnið hefur lengi á sama vinnu- stað. Eldra fólk veit einnig að það er ekki hlaupið að því að finna nýja vinnu þannig að brottreksturinn getur reynst örlagaríkur fyrir fram- tíð þess. Þá auðveldar það ekki fólki að brottrekstur er yfirleitt það mikið feimnismál að sá sem verður fyrir því treystir sér sjaldnast til að ræða við neinn um reynslu sína. Þetta get- ur einnig stuðlað að þeim feluleik sem yfirleitt tíðkast í kringum brott- rekstur. SANNLEIKURINN FALINN Það er ótrúlega sjaldgæft að hin raunverulega ástæða fyrir brott- rekstrinum komi fram; semsagt að vinnuveitandinn telur sig ekki hafa þörf fyrir starfsmanninn lengur. Þess í stað er sagt að um „endur- skipulagningu" sé að ræða og ,,því miður verðir þú að fara“. Jafnvel er gefið í skyn að viðkomandi verði ráðinn aftur „þegar betur árar". Og hinn brottrekni gripur tæki- færið og lýgur að sjálfum sér. Al- gengt er að fólk sannfæri sjálft sig um að yfirboðaranum hafi í raun alltaf verið persónulega í nöp við sig og hafi aldrei viljað gefa sér tæki- færi. í brottrekstrinum felst ákveðin höfnun sem er mjög erfitt að sætta sig við. í stað þess að vinna úr því innra með sér er leitað ytri skýringa. Oft verður almenningur var við slíka því þeir enda sem eitthvert „mál" í fjölmiðlum. Algengt er í okkar íslenska samfélagi að draga pólitík inn í málið sem er séríslenskt fyrirbæri. Áður en við er litið er hinn brottrekni orðinn „pólitískt fórnarlamb" eða eitthvað þaðan af verra. Skiptir þá litlu máli hvort um er að ræða fóstrur eða fræðslustjóra. Auðvitað skiptir miklu máli í þessu sambandi hvaða væntingar menn gera til starfsins og starfsöryggis. Greinilegt er að opinberir starfsmenn telja sig óhreyfanlega — það sama á hins vegar ekki við um þjálfara íþróttafélaga. Þeirra starfsöryggi er svipað og hjá sveitarstjórum sem eru líklega eina dæmið hér á landi um pólitískt skipaða embættismenn sem sjálfsagt þykir að reka. FÉKK AÐ TAKA POKANN SINN „Það var nú ég sem gaf kost á þessum möguleika. Ég fann fyrir ákveðnum stirðleika í kringum liðið og fannst þetta réttast," sagði Gústaf Björnsson handknattleiksþjálfari en hann er eini þjálfarinn í 1. deildinni í handknattleiknum sem hefur verið látinn „taka pokann sinn“ það sem af er einmitt viljað loða við þessa starfs- stétt að atvinnu- öryggið væri ekki mikið. Nánast á hverjum degi berast fréttir af þjálfurum eða framkvæmda- stjórum úti í hinum stóra heimi sem eru reknir. Þetta er einnig orðið staðreynd hér á íslandi og liðin eru óspart farin að beita þessu ráði fyrir sig ef illa gengur. Þetta skapast meðal annars af því að það er ein- faldara að reka einn mann en heilt lið — þess vegna er þjálfarinn oft látinn fjúka. Ragnar Halldprsson: Var rekinn upp á við. Sjálfsagt býr þó engin stétt manna við jafn Gústaf Björnsson: Fékk að taka pok- ann sinn. Slíku var sem betur fer ekki til að dreifa í tilfelli Gústafs. — En hvernig skyldi hann hafa upplifað brott- reksturinn? „Ég tel þetta í sjálfu sér engan blett á mínum ferli og menn í stétt- inni hafa verið að gera grín að þessu og segja að nú fyrst sé ég orðinn al- vöru þjálfari," sagði Gústaf. Hann játaði þó að hjá sumum hefði þetta skapað ákveðinn vandræðagang í umgengni við hann. var annað hvort að reyna að lifa þetta af eða ekki og vernda meiri hagsmuni fyrir minni hagsmuni. Staða fyrirtækisins var þannig að það var með um fimm hundruð manns of mikið í vinnu. Það var ekkert annað að gera en að ganga hreint til verks og reyna að bjarga fyrirtækinu," sagði Sigurdur Helga- son stjórnarformaður Flugleiða. Þegar hann gegndi forstjórastöðu hjá fyrirtækinu þurfti það að ganga í gegnum mikla uppstokkun sem kostaði Jíklega einn mesta brott- rekstur íslandssögunnar. Það var að mörgu leyti sársaukafull aðgerð fyr- ir fyrirtækið og margir telja að ekki hafi enn gróið um heilt hjá þeim starfsmönnum sem þá voru reknir. Sigurður segir að flestir hafi skilið að þetta hafi verið nauðsyn því staða fyrirtækisins hafi hreinlega ekki boðið upp á annað. Hann sagð- ist þó gera sér grein fyrir því að þetta hafi kostað marga einstakl- inga nokkurn sársauka en hann sagðist telja að það hafi jafnað sig. „Það er miklu minna um þetta hér en erlendis. Þar er mun meiri hreyf- ing og sveigjanleiki. Þar er algengt að fyrirtæki hagræði hjá sér og losi sig við starfsfólk og menn þurfa að vera viðbúnir því að verða að leita sér að nýju starfi með skömmum fyrirvara. Það getur oft verið þannig að fólk finni sér nýtt starf sem er ekki síður við þess hæfi. Það getur Sturla Kristjánsson: Braust til mennta í kjölfar brottreksturs. óstöðuga vinnu og erlendir körfu. knattleiksleikmenn hér á landi. Hvorki fleiri né færri en sjö þeirra hafa verið reknir það sem af er vetri. Oftast er það vegna þess að þeir hitta ekki nógu vel, stökkva ekki nógu hátt eða hlaupa ekki nógu hratt. Einn var meira að segja rekinn vegna þess hve leiðinlegur hann var! Annar var rekinn vegna þess að hann var ekki nógu stór! „Auðvitað kemur ákveðið tóma- rúm hjá manni en það líður fljótt hjá.“ Gústaf fékk reyndar fljótlega landsliðsþjálfarastöðu hjá kvenna- landsliðinu þannig að varla verður sagt að þetta hafi haft neikvæð áhrif á feril hans. MEIRI HAGSMUNIR FYRIR MINNI „Ástandið hjá félaginu var þannig að það vár nánast gjaldþrota og það oft verið gott að skipta um,“ sagði Sigurður. FRÆGASTI BROTTREKSTURINN Einn frægasti brottrekstur ís- landssögunnar er án efa þegar Ey- steinn Helgason viðskiptafræðingur. var rekinn úr forstjórastöðu hjá Ice- landic Seafood í Bandaríkjunum.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.