Pressan - 04.07.1991, Blaðsíða 10

Pressan - 04.07.1991, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR PRESSAN 4.JÚL11991 EIGANDINN EIGNALAUS EN HELDUR EINBÝLISHUSINU Á NAFNIKONUNNAR Kröfur í þrotabú byggingarfyrirtækisins Steintaks nema um 580 milljónum króna, en eignir búsins eru nánast engar. Ekkert fæst upp í almennar kröfur og óvíst hvað fæst upp í laun skiptastjóra. Vignir Benediktsson, aöaleigandi Steintaks, kom einbýlishúsinu á nafn konunnar meö kaupmála og býr þar enn. Cherokee-jeppinn er hins vegar á kaupleigusamningi og eru eft- irstöðvarnar meiri en nemur söluverði hans. Þrátt fyrir 576 milljóna króna gjaldþrot byggingarfyrir- tækisins Steintaks duga eignir þrotabúsins vart fyrir skiptakostnaði. Vignir Benediktsson, sem var aðaleig- andi, býr hins vegar enn í einbýlishúsi sínu í Hléskógum 16 í Reykjavík, þar sem það var fært á nafn eiginkonunn- ar með kaupmála sem skráður var síðla árs árið 1988, tveimur árum fyrir gjaldþrotið, þannig að frestur til að rifta þeim samningi rann út mánuði fyrir gjaldþrotið. Þrotabúið stendur uppi með einn bílskúr, tvær bílskúrs- lóðir, nokkur bílastæði og skuldabréf að verðmæti 4,5 milljónir króna, sem óvíst er hvort munu skila sér. Tap skattgreiðenda gæti numið um 30 milljónum króna vegna forgangskrafna á ríkið, þ.e. launakrafna og lífeyris- réttinda. Eigendur ibúöa á Völundarlóðinni taka á sig 14 milljónir svo unnt verði að Ijúka sameigninni og klára þær byggingar sem eftir eru. I eigu fyrirtækisins Völundar- verks, sem er skráð á dóttur Vignis og fleiri, eru einnig nokkrir lausa- fjármunir sem voru áður í eigu Steintaks, svo sem steypumót, sem myndu koma að gagni við að ljúka framkvæmdum við íbúðarbygging- ar á Völundarlóðinni í Reykjavík, þar sem íbúar hafa beðið í óvissu frá því í haust í hálfkláruðum húsum. í PRESSUNNI í desember síðast- liðnum var skýrt frá því að fyrirtæk- ið Steintak hf. sem keypti Völundar- lóðina og hóf byggingu íbúðarhúsa þar hefði verið innsiglað, ávísana- reikningi fyrirtækisins lokað, en stofnuð tvö ný fyrirtæki á rústum þess. Jafnframt kom fram að þeir sem keypt hefðu íbúðir á Völundar- lóðinni óttuðust mjög um sinn hag ef fyrirtækið yrði gjaldþrota. ÍSLANDSBANKI HAFNAÐI VÖLUNDARVERKI Alls var búið að byggja, að öllu leyti eða hluta, 85 íbúðir, en bygging 115 íbúða var fyrirhuguð. Hluti íbúð- anna var fokheldur, aðrar ýmist full- kláraðar eða langt komnar. Til að halda framkvæmdum áfram varð að ljúka við byggingu sameignar sem tilheyrði íbúðum sem lokið var, meðal annars bílskýlis, sem er grunnur undir þeim húsum sem á eftir að reisa. Fyrirtækin tvö sem stofnuð voru upp úr Steintaki heita Völundarverk og Ráðverk. Völundarverki var ætl- að að halda áfram framkvæmdum á Völundarlóðinni og keypti fyrirtæk- ið þær íbúðir sem voru óseldar, sökklana að Klapparstíg 5 og 5 A og lóöina að Klapparstíg 7 og 7 A. Kaupverðið var 84 milljónir og var gengið frá samningnum í nóv- ember. Sá samningur er með fyrir- vara af hálfu Völundarverks um að nái fyrirtækið ekki samkomulagi við íbúðareigendur vegna sameign- arinnar gangi samningarnir til baka. Þetta átti að vera komið á hreint fyrir 1. mars árið 1991. Steintak varð síðan gjaldþrota þann 1. febrúar, að ósk Vignis og annarra eigenda fyrirtækisins. Skiptastjórar, þeir Magnús Magnús- son og Elvar Örn Unnsteinsson, byrjuðu þá að kanna möguleika á hvort samningur Steintaks og Völ- undarverks væri á undirverði. Það kom hins vegar í ljós, miðað við mat sem Verkfræðiskrifstofa Sigurðar Thoroddsen hafði gert fyrir íslands- banka, aðalviðskiptabanka Stein- taks, að svo var ekki. Völundarverk hafði borgað fyrir með því að yfirtaka veðskuldir á fasteignunum við Klapparstíg. Eftir þetta reyndi Völundarverk að ná samkomulagi við húseigendur og ís- landsbanka, sem gekk ekki vegna þess að íslandsbanki neitaði samn- ingum við fyrirtækið. ÍBÚARNIR LEGGJA FRAM 14 MILLJÓNIR KRÓNA í framhaldi af því var stofnað Hús- félagið Völundur sem yfirtók samn- ing Völundarverks, sem við svo bú- ið fór frá verkinu. Lengi framan af gekk húsfélaginu ekkert að semja við íslandsbanka, þar til núna að fyrir liggur vilji um samkomulag milli bankans, húseig- endanna og Reykjavíkurborgar um að Ijúka framkvæmdum. Bæði Reykjavíkurborg og íslandsbanki eru með veð í byggingum sem ekki eru hafnar framkvæmdir við og því mikið í mun að koma eigninni í verð. Áætlað er að kostnaður við að Ijúka byggingu sameignarinnar verði á bilinu 30 til 40 milljónir króna. Samkvæmt heimildum PRESSUNNAR er gert ráð fyrir að húsfélagið leggi fram 14 milljóna króna hlutafé, Islandsbanki 9 millj- ónir og Reykjavíkurborg 7 milljónir króna. Samkvæmt þessu verður tjón íbú- anna við Klapparstíg vegna ófrá- genginnar sameignar að minnsta kosti 14 milljónir. Að auki hafa ein- staka eigendur orðið fyrir tjóni vegna þess að ekki var staðið við samninga um frágang íbúða. Með þessu samkomulagi er talið að hús- eigendurnir, bankinn og Reykjavik- urborg komist hjá um 200 milljóna króna tapi sem annars hefði hlotist af gjaldþroti. VÖLUNDARVERK Á STEYPUMÓTIN Kostnaður íbúanna, 14 milljónir, deilist niður eftir stærð íbúðanna. Ef einhverjir íbúanna eiga enn eftir að borga þá innheimtir þrotabúið og þeir draga það frá hlutdeild sinni í 14 milljónunum. Þarna á þvi þrota- búið hugsanlega einhverja peninga. Ef hagnaður verður af framkvæmd- inni gæti skaði íbúanna hins vegar orðið minni, svo og tjón Reykjavík- urborgar og íslandsbanka. Eftir að ljóst varð að Islandsbanki hafnaði samningi við Völundarverk standa enn eftir nokkrir lausafjár- munir í eigu þess, sem fyrirtækið „keypti" samkvæmt sérsamningi af Steintaki. í þessu lausafé eru meðal annars steypumót, sem myndu gagnast vel í þeim framkvæmdum sem fyrir dyrum standa. Þessar eignir greiddi Völundarverk fyrir með skuldabréfum samtals að fjár- hæð um 11 milljónir. Stóran hluta af þeim skuldabréfum var Steintak bú- ið að selja áður en fyrirtækið varð gjaldþrota, en eftir standa 4,5 millj- ónir með fyrsta gjalddaga 15. júlí. Þeir peningar renna inn í þrotabúið, þ.e. ef þeir skila sér. Lýstar kröfur í búið nema um 576 milljónum króna, sem fyrr segir. Af þeim á eftir að saxast verulega, eða meginhlutinn af kröfu Islands- banka, um 106 milljónir vegna veða á Klapparstíg, og einnig verður aft- urkallaður stærsti hlutinn af Iýstri kröfu húsfélagsins, eða um 60 millj- ónir. Ennfremur er um að ræða nokkrar tvílýstar kröfur svo og vafa- samar kröfur sem verður vísað frá. Endanleg niðurstaða verður því lík- lega gjaldþrot upp á 350 milljónir. ALMENNINGUR TAPAR UM 30 MILLJÓNUM KRÓNA Upp í þær almennu kröfur sem eftir eru fæst ekkert og alls er óvíst hvort fæst inn fyrir skiptakostnaði. Sem fyrr segir eru eignir Steintaks sáralitlar, eða einn bílskúr í Frosta- fold, réttur til að byggja tvo bílskúra við Reykás og nokkur stæði í bíl- skýliá Hringbraut 119. Búið áeinnig aðrar eignir sem eru taldar yfirveð- settar og verða seldar á nauðungar- uppboði. I gjaldþroti þessu má búast við að almennir skattborgarar verði fyrir um 30 milljóna króna tjóni, vegna forgangskrafna sem lenda á ríkinu, svo sem launa og lífeyrisréttinda. Kristján Þorvatdsson

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.