Pressan - 04.07.1991, Blaðsíða 13

Pressan - 04.07.1991, Blaðsíða 13
FIMMTUDAGUR PRESSAN 4. JÚLÍ1991 13 s kunnugt er hefur stjórn handknattleiksliðs Aftureldingar í að sannaðist sem sagði í PRESSUNNI um daginn, að Árni Þór Sigurdsson, deildarstjóri í samgönguráðuneyt- inu, tæki við starfi ritstjóra á Þjóðvilj- anum. Titill Árna fyrst í stað verður reyndar „ritstjórnar- fulltrúi"; Með til- komu Árna á Þjóð- viljann þykir sýnt að Steingrímur J. Sigfússon, varaformaður flokks- ins, vilji treysta stöðu sína enn frekar því á kjörtímabilinu mun Ólíifur Ragnar Grímsson þurfa að gefa eftir formennskuna í samræmi við lög flokksins sem kveða á um hve lengi formenn sitja. Auk Árna á Þjóðviljanum hefur Steingrímur einnig tryggan mann í forystu AI- þýðubandalagsfélags Reykjavíkur, sem er Gunnlaugur Júlíusson, fyrrverandi aðstoðarmaður hans í landbúnaðarráðuneytinu. Með trausta menn á Þjóðviljanum og í ABR hafa menn yfirleitt komist eins langt og þeir vilja í Alþýðubanda- laginu . . . Mosfellsbæ fengið Þorberg Aðal- steinsson landsliðsþjálfara til að þjálfa liðið næsta vetur. Afturelding er í 2. deild en mikill hugur er þar í mönnum. Munu forráðamenn liðs- ins hafa reynt að fá Einar Þorvarð- arson markvörð til liðs við sig en Selfyssingar urðu á undan og fengu Einar sem þjálfara. Þá hafa Aftureld- ingarmenn borið víurnar í Sigurð Sveinsson, hornamann úr KR, en talið var að hann væri á leið í FH. Sigurður mun þó ekki hafa undirrit- að neitt ennþá hjá FH og þá hóf hann ferilinn í Mosfellsbæ, svo það er aldrei að vita ... C á^elfyssingar hafa fengið liðs- auka í handknattleiknum því horna- maðurinn snjalli Jón Þórir Jóns- son hefur ákveðið að ganga til liðs við þá. Jón Þórir hefur leikið með Breiðabliki en hlaut slæm kross- bandameiðsli í upphafi síðasta vetr- ar og var skorinn upp. Hann hefur verið að ná sér á strik undanfarið og er kominn í 16 manna hóp spútnikk- liðs UBK í knattspyrnu. Þá er ljóst að Gísli Felix Bjarnason mun leika í marki Selfyssinga áfram en Gróttu- menn hafa boðið honum að koma til sín án árangurs ... KORTAVERSLUN LANDMÆUNGA ÍSLANDS LAUGAVEGI 178 * SÍMI: 680 999 LUMAR ÞU A GÖMLUM KORTUM ? Gömul kort geta verið skemmtilegir safngripir, en að sama skapi slæmir ferðafélagar. Ný korl tryggja öruggt og órangursríkt ferðalag. Landmælingar íslands bjóða öllnýjustu kortin aflandinu, auk heimskorta og innrammaðra korta fyrir skrifstofur og heimili. I BLAUM SKUGGA RÁS 2 ER VINSÆLASTA / / U7VARPSST0ÐIN A ISLANDI Ný hlustendakönnun Gallups sýnir: Síðustu 12 mánuði hlustuðu 89% landsmanna á Rás 2 Sambærilegar tölur: Rás 1,77%, Bylgjan 74% Eina viku í júní hlustuðu 74% landsmanna á Rás 2 Sambærilegar tölur: Rás 1,52%, Bylgjan 50% í Bláum skugga er íslenskt tónlistarsumar á Rás 2. Lifandi tónlistarflutningur, meiri og fjölbreyttari íslensk tónlist í bland við atburði líðandi stundar, dægurmálaútvarp og vandaða talmálsþætti. ;t£> - Útvarp sem þjóðin á - og hlustar á

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.