Pressan - 04.07.1991, Blaðsíða 27

Pressan - 04.07.1991, Blaðsíða 27
 9S ■.. fær Ásgeir Elíasson fyrir að hafa beygt skynsemina undir hjátrúna og sett upp hattinn með góðum ár- angri AÐUR UTI NUNA INNI POPPIÐ FIMMTUDAGUR PRESSAN Rokkabillíband Reykjavíkur skemmtir gestum á Tveimur vin- um föstudags- og laugardags- kvöld. Drengirnir í Rokkabillí- bandinu leika slagara úr öllum áttum og ýmsum tímum og eiga þannig meira sameiginlegt með djúkboxi en skapandi hljórn- sveit. En þeir eru líka ágætt djúk- box. Móeiður Júníusdóttir er stjarna sumarsins, á því leikur enginn vafi. Hún syngur fyrir gesti i Skuggasal Hótels Borgar á laugardagskvöldið. Það verður írsk kráarstemmning á Púlsinum á fimmtudagskvöld þegar Papar frá Vestmannaeyj- um leika þar við hvurn sinn fing- ur. Þeir hafa að sögn kunnugra lagt sig sérstaklega eftir írskri músík en spila líka^ lög af nýlegri plötu. íslandsvinir skemmta gestum 1929 á Akureyri um helgina. Það er ekki ofmælt að segja að 1929 sé glæsilegasti skemmti- staður norðan Bröttubrekku. UPPÁKOMUR Infernó 5 hefur í frammi tónlist og gjörninga á Tveimur vinum í kvöld. Infernó 5 er líklega helsta athvarf raunverulegrar alþýðu- listar enda eiga þeir ekki upp á pallborðið hjá öllum fremur en Sölvi Helgason um árið. Þetta eru þekkilegir og hugvitssamir piltar. Tilvalin kvöldskemmtun. SJOIN Það er aðeins eitt Skaparakvöld á ári! Síðast var dúndurfjör á Sögu en núna hefur Jóka í Skaparanum flutt sig niður á Hótel Borg (á föstudagskvöldið). Þetta er miklu meira en tískusýn- ing, þetta er viðburður: sjó, söng- ur, sætir strákar og stelpur, vín og gleði. Allt sem lífið hefur upp á að bjóða. NÆTURLIFIÐ Hvað skyldi Hótel Borg eigin- lega eiga mörg líf? Að minnsta kosti níu sinnum níu. Þar lendir hver einasta kynslóð fyrr eða síðar, stundum aftur og aftur. Borgin hefur oft lent í öldudal og verið afskrifuð en alltaf náð sér á strik aftur. Og núna þegar hver staðurinn á fætur öðrum lendir í I klandri dafnar Borgin. Háskóla- Nú er heimilt að vera ljóð- skáld með bíladellu og fara á námskeið hjá Stjórnunarfé- laginu til að átta sig á hvern- ig hægt er koma Ijóðunum á framfæri. Það er ekki nauð- synlegt lengur að flytja til Akraness eða á Heliu. Það er jafnframt heimilt fyrir Ijóð- skáldið að halda með KR eða Fram (það er ef það er karl. Ef það er kona má það að sama skapi klæða sig í ör- stutta kjóla og gefa eiganda bílaverkstæðis undir fótinn á Ommu Lú). Listin er sem sagt loksins skilin við lopa- peysuna, Keflavíkurgönguna, þjóðlögin frá Eretreu, Fjala- köttinn og tekin saman við Sævar Karl, Swharzenegger, Michael Jackson og allt hitt lífinu. ÁÐUR INNI NÚNA ÚTI Að líta á sjálfan sig sem fé- lagslegt vandamál; konu, launþega, leigjanda, karl og Guð má vita hvað. Þar með losna kennarar á BSRB-laun- um við að finnast þeir einsk- is virði. Það er ekki lengur vandamál hvað kennarar- stéttin er lágt metin heldur hvernig fjölskyldan á að lifa af laununum. Ofugt við virð- ingu kennarastéttarinnar er það vandamál sem hægt er að leysa. Og þegar það hefur tekist er hægt að fara að lifa lífinu og leika sér. Nýlegar kannanir sýna að það er hægt að njóta iífsins á ótrú- lega lágum launum á sama hátt og það er hægt að vera í endalausri fýlu á háum laun- um og með gífurlegar fjár- magnstekjur að auki. 1988 Chablis Hvítvín frá framleið- andanum Thorin í jaðri Búrgúndí-héraösins í Frakklandi. Chablis er búið til úr Chardonna- is-berjum. Fyllingin er sæmileg, en léttleikann og ferskleikann vantar. Niðurstaðan verður því ekkert sérstök. En verð- ið er þolanlegt, eða 1440 krómir flaskkn. stúdentar og TTStaspírur meirihluta gesta og sem betur fer sleppa ekki margir barnungir balláhugamenn inn. Annars eru gestirnir úr öllum áttum, tónlist- in kröftug, andrúmsloftið hæfi- lega spennuþrungið þegar kvöldi hallar. Borgin er sem sagt inni núna: Allir þangað . . . MYNDLISTIN Við hljótum að mæla með sýn- ingu Daníels Magnússonar og Sveins Þorgeirssonar i Nýlista- Pá en. ÖOxfatn áá 01 tidlúut dicUtetc (íaufuttcuuuiAciþuw- íiftýUtut, i ttR.SSSKWTt') i vetcw, ácuHifut, a^tun, áeútt 6lji**tdveit i pvti‘edÁútct; "Peten, tZuentúu^ “Stcced &uuteetúnt. Pein cctla dci dfUta, á, Púta,- útctcH, á pidtuetcufdr ey tacc^anetciCfdÁwitct. Petn, yetct, fiein de*tc tUÍjct, áecftt ttúdúuc ^einna, cty éiét á áccentU^ úcucfuHcuutciAciþccvtAcfificvi tita, cct í eteup. 'TMi&ad, vcá HUfcutútct, encc ptein eútd, ey pfUn £úh*h áncun, tccc áncun <yy ^úHtutáK áncc*H tíéa . B 14 21 25 36 4Ö“ 45 125“ r r- r- Í5— L P L p * ■ ■ «Í*M ! 32 ■ , ■ 43 L | 47 ■ KROSSGATAN LÁRÉTT: 1 eiginkonur 6 vond 11 flakka 12 nirfill 13 kökks 14 rotna 17 kaka 18 biturt 20 stórfljót 21 stækkuðum 23 óvirða 24 hljóð 25 greinar 27 verri 28 bikars 29 loðin 32 ættarnafn 36 mánuður 37 haf 39 hrúga 40 nöldur 41 smjördamla 43 hnoðað 44 sundfærin 46 bát- urinn 48 mjög 49 fjöldi 50 hreinni 51 trjónan. LÓÐRÉTT: 1 undirstöðu 2 nautgripum 3 átvagl 4 framagosa 5 brauð- mylsnu 6 augabragð 7 digurmæli 8 herma 9 líferni 10 sora 14 dreitill 16 spil 19 faðma 22 þægilegur 24 fanga 26 nudd 27 fótabúnað 29 kuskugt 30 rangarhald 31 kjagar 33 hræði 34 skortur 35 umhyggjan 37 hópur 38 kynstur 41 skjótur 42 fé 45 forföður 47 uppistöðuvatn. STÖÐ2 Ljótur leikur The Running Man verður sýnd eftir miðnætti á föstudagskvöld (ef Guð Iofar). Það er vöðvabúntið með hænu- heilann, Arnold Schwarzeneg- ger, sem er í aðalhlutverki enda flýtur filman í blóði. Vinsælustu myndböndin 1. (D 2. (7) 3. (-) 4. (2) 5. H 6. (3) 7. (-) 8. (6) 9.(9) My Blue Heaven Henry and June Presumed Innocent Quick Change Ghost Enemies — A Love Story No better Blues Paradísarbíóið Nikita 10. (6) Goodfellas SJÓNVARFIÐ Við hljótum að mæla með við- talsþætti Hannesar Hólm- steins Gissurarsonar við Jón- as Haraiz sem er á dagskránni i kvöld. Á föstudagskvöldið fær aðdáendahópur Malcolms McDowells tækifæri til að gleðj- ast yfir sýningu myndarinnar Get Crazy. Þetta er fullkomin dellumynd. McDowell tekur helst ekki að sér hlutverk nema hann sé afhausaður í myndinni. Hvað gerist núna? VEITINGAHUSIN_________ Enn auglýsum við eftir veitingastöðum. Nú er það morgunverðarstaður. Það getur verið þrautin þyngri að fá sér morgunmat í henni Reykjavík. Það er ef fólk treystir sér ekki út á Granda eða inn á eitthvert hótelið. Á Kaffivagninum er heldur ekki hægt að fá sér beikon og egg. Morg- unverðarstaður þarf að hafa slíkt og krósant og al- mennilegt kaffi og soðin egg og ristað brauð og heit vínarbrauð og kalda mjólk. Þá er fátt eitt talið. RENRIG — THE BIG WHEEL Vinsælasta hljómsveit Skota í dag. Þeir byrj- uðu í rafmagnaðri folk-músik og hafa gefið út fjölda platna i Skotlandi en fjórar nýjustu hafa komið út viðar. The Big Wheel fór rakleitt í 4. sæti breska LP-listans. í sama klassa og Fair- port Convention... Við gefum henni hik- laust 9 af 10. safninu sem var opnuð um síð- ustu helgi. Þá var að vísu aðal- fjörið: Grill, ómælt áfengi og Júp- iters. Það var ekki nokkur maður sem skoðaði sýninguna. Nú er hins vegar tækifæri til þess. Svo eiga allir að fara í Perluna og skoða listaverk sex myndlistar- manna: Ása Ólafsdóttir, Hulda Hákon, Ingunn Benedikts- dóttir, Jón Oskar, Ragnheiður Jónsdóttir og Sigurður Ör- lygsson. KLASSÍKIN_____________________ Um helgina verða Sumartón- leikar í Skálholtskirkju þar sem félagar úr Musica Antiqua Köln flytja verk frá 17. og 18. öld, kl. 15og 17 báðadagana (tilvalið innlegg í helgarbíltúrinn). Á þriðjudaginn verða tónleikar í listasafiii Sigurjóns: Signý Sæ- mundsdóttir sópran og Björk Jónsdóttir alt ásamt David Tutt á píanó. Vegna starfs konu minnar þarf ég oft að sitja í veislum. Mér leiðist það frekar og verst þykir mér að þurfa að sitja á mér við að drekka eins og ég vil undir borðum. Konan min er sífellt að passa upp á mig og mænir á mig í hvert sinn sem ég fæ mér sopa af borðvíninu. Ég sit því yfir matnum, dauðleiðist og er í ofanálag að deyja úr áfengisþörf. Kanntu einhver ráð? 1 fyrsta lagi ættir þú að slaka á í drykkjunni. En ef þú kærir þig ekki um það ættirðu að draga einn þjón- inn afsíðis í upphafi máltíð- arinnar. Þú skalt semja við hann um að koma með fullt vatnsglas af vodka þegar þú biður um vatnsglas þegar að- eins er liðið á máltíðina. Þá getur þú setið og drukkið undir borðum án þess að konu þína gruni neitt. Hún verður þvert á móti ákaflega ánægð með þig þar sem þú situr og drekkur vatn en snertir vart á borðvíninu. VIÐ MÆLUM MEÐ Að allir segi túristum rangt til vegar í elna viku bara, af því bara lltll-T Að fólk dekri við sig í kvöld, farl í heitt bað, skipti á rúm- unum og fari snemma að sofa Að Stefán Baldursson verði útvarpsstjóri og fái að reka og ráða að JH) 'iw Að það verði haldin grill- veisla í Húsdýragarðinum Madonnu-æðið tekur á sig ýmsar myndir. Hér er ein sú óhugnanlegasta: Queer- donna, öðru nafni Christop- her Morton, 21 árs og 154 kilóa Ijósmyndanemi. Hann er einn af óteljandi Mad- onnu-eftirlikingum sem leigja má til skemmtana- halds. BÍOIN LÖMBIN ÞAGNA The Silence of the Lambs HÁSKÓLABÍÓI Rosalega spennandi mynd um dálítió mikið skrítna gæja. Er ekki fulimikið að blanda saman fjöldamorðingja, saumafríki, húðflettara og kynskiptingi í sama manntetrinu? GLÆPAKONUNGURINN King of New York REGNBOGANUM Þokkaleg spenna um ævintýralegt líf súper-glæpamanna i henni Ameríku. Góð mynd fyrir þá sem vilja blóð, blý og bera rassa.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.