Pressan - 04.07.1991, Page 20
20
FIMMTUDAGUR PRESSAN 4. JÚLÍ 1991
smáa
letrið
Pað var sko fjör á Borginni á
föstudagskvöldið. Ástæðan?
Júpiters. Ballinu var útvarpað á
Bás 2 (Stefán Jón Hafstein
dansaði allt kvöldið) en færri
komust að en vildu. Nóg samt.
Það var orðið svívirðilega troð-
fullt upp úr miðnætti. Hverjir
mættu? Allir íbúar Grjótaþorps-
ins, sætar stelpur og væn sneið
af menningarelítunni. Júpíters
eru „inni" hjá kúltúrgenginu
(hvað gera þeir vitlaust?)
Böll eru ekki eina dægra-
styttingin. Upp á síðkastið hef-
ur sá hópur farið stækkandi
sem sækir nauðungaruppboö.
Nokkrir fastagestir eru oft i
fylgd með fógeta og harðsnúnu
liði lögfræðinga. Það er mis-
jafnt hvort menn bjóða i eignir
eða eru „bara að skoða". Hverjir
sækja nauðungaruppboðin?
Nú, þessir til dæmis: Gunnar
Berg Björnsson flugmaður hjá
Flugleiðum. Hann ereinna dug-
legastur og hefur nælt sér i
nokkrar eignir. Þá eru það félag-
arnir Helgi Baldursson og Vig-
lundur Sigurjónsson Þeir
koma alltaf saman og eiga
stundum hæstu boð. Um dag-
inn tryggðu þeir sér eignir á
Frakkastíg 19 og Vitastíg 9.
Steingrímur Leifsson er titlað-
ur kennari en sýnir auk þess
með Módelsamtökunum.
Hann keypti smáholu við Bauð-
arárstíg og hefur mætt nokkr-
um s'.nnum eftir það. Sá eini úr
hópi fastagestanna sem ekki
hefur dottið i lukkupottinn enn-
þá er Siguröur Haraldsson
(fyrrum markvörður?) en hann
er hæstbjóðandi i eina eða tvær
eignirsem fógeti á eftir að taka
afstöðu til. Er þetta ekki tilval-
inn fjölskylduleikur?
Tvifarakeppni PBESSUNN-
AB i síðasta tölublaði vakti
mikla athygli (Höröur Sigur-
gestsson og Bart Simpson) og
vegur þeirra tvifaranna vex
stöðugt. Nýlega kunngerði
bandarískt blað að Bart væri
orðinn vinsælli en sjálfur Bill
Cosby (49% gegn 43%). Viljiði
vera með á nótunum um hverjir
eru inni og hverjir úti i stjörnu-
bransanum? Hér hafiði það:
Julia Boberts er uppáhald allra
um þessar mundir, en Mad-
onna er siðasta sort (versta
leikkonan, næstversta söng-
konan). Sinéad O'Connor er
versta söngkonan og að auki
með verstu hárgreiðsluna
(hvaða hárgreiðslu?) að mati
lesenda blaðsins. Besta parið i
sjónvarpsþáttum eru þau Dan
og Roseanne en þau urðu lika
efst ikosningu um versta parið
og versta þáttinn. Og svo var
það spurningin um best
heppnuðu lýtalækninguna. Þar
gekk ekki hnífurinn á milli Cher
og Michaels Jacksons.
Tvifarakeppni PRESSUNNAR
— 2. hluti
Tvífarar vikunnar koma úr
sitthvorri heimsálfunni eins og i
siðustu viku og eiga sem betur
fer ekki mjög margt sameigin-
legt: Manuel Noriega fyrrum
einvatdur i Panama og Markús
Örn Antonsson nýr borgar-
stjóri i Reykjavik, Islandi, Valda-
sól Manuels er hnigin til viðar
og hann situr nú i bandarisku
fangelsi. Sól Markúsar er hins
vegar i hádegisstað. Manuel
hefði aftur á móti áreiðanlega
haft betri tök á borgarstjórnar-
flokki sjálfstæðismanna...
Uppnefni, sem gleymast seint eða aldrei
Frá Katli flatnef
Bjarnasonar bunu
til Óla gríss
og Nonna bala
Ragnar álskalli
Gunnólfur kroppa hét maður,
sonur Þóris hauknefs hersis. Þór-
ólfur brækir, Haraldur hárfagri, Ól-
afur trételgja, Ormur hinn mjói,
Hallfreður vandræðaskáld, Koll-
grímur hinn grái, Ketill þistill og
Helgi magri. Allt eru þetta þekkt
nöfn úr íslandssögunni. Og hver
kannast ekki við Þránd nefja, er
var faðir Þorsteins sem átti Loft-
hænu dóttur Arinbjarnar hersis,
eða Auði djúpúðgu dóttur Ketils
flatnefs, Bjarnasonar bunu. Flestir
þessara kappa flúðu til íslands
undan ofríki Haralds hins hár-
fagra, áður lúfu, sonar Hálfdáns
svarta. Þeir reistu bú sín á íslandi
og afkomendur þeirra hafa unað
hag sínum sæmilega síðan hér á
landi, nú síðast undir stjórn Denna
dæmalausa, Nonna bala, Óla gríss
og Bubba kóngs.
Allir kannast við viðurnefnið ál-
skallann, þar er að sjálfsögðu átt
við Ragnar Halldórsson, fyrrver-
andi forstjóra álverksmiðjunnar í
Straumsvík. Það vita líka allir við
hvern er átt þegar vitnað er í
Denna. Denni er að sjálfsögðu
Steingrímur Hermannsson forsæt-
isráðherra til skamms tíma, og
nafngiftin er frá frægri teikni-
Denni
Steingrímur
íslandsböllur
Diddi fiðla
Lalli toppur
Tóti tönn
Palli pönkari
Goddi fýla
Friðrik daunn
Elli smellur
Óli kommi
Valdi kúkur
Magnús Lenín
myndafígúru Tímans um Denna
dæmalausa. Þá hefur viðurnefnið
Bubbi kóngur lengi loðað við Dav-
íð Oddsson, borgarstjóra og for-
sætisráðherra, sem mun hafa sleg-
ið rækilega í gegn í hlutverki
Bubba kóngs á sviði fyrir mörgum
árum. Guðmundur J. Guð-
mundsson verkalýðsleiðtogi hefur
í áratugi sjaldnast verið nefndur
annað en Guðmundur Jaki, oft er
aðeins talað um Jakann og fyrir
fáum árum var viðurnefnið gert
svo gott sem ódauðlegt þegar helj-
armikill bryggjukrani Eimskips var
skírður í höfuðið á verkalýðsfor-
ingjanum.
Og allir þekkja orðið Einar Odd
Kristjánsson, formann Vinnuveit-
endasambandsins, undir nafninu
bjargvætturinn. Það er kannski
ekki eins þekkt að Magnús L.
Sveinsson, formaður Verslunar-
mannafélags Reykjavíkur og for-
seti borgarstjórnar, er af sumum
umbjóðenda sinna nefndur Magn-
Guðni kjaftur
ús Lenín Sveinsson. Ekki fylgir
sögunni hvort þessi nafngift Magn-
úsar er tilkomin vegna hörku hans
í samningaviðræðum við atvinnu-
rekendur, töldu viðmælendur
PRESSUNNAR reyndar fæstir að
sú væri ástæðan. Þá er Þórarinn
V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri
Vinnuveitendasambandsins, oft
nefndur Þórarinn fimmti, sem
kemur til af vaffinu í nafni hans.
LEIBBI TÍMAVÖRÐUR OG
ÆTTARNAFNAÆÐIÐ
Maður er nefndur Leifur. Óvíst
er hvort hann á ættir að rekja til
þess fólks sem nefnt er hér að
framan, en hann býr í Þingholtun-
um og í daglegu tali nefndur
Leibbi. Ekki er vitað til þess að
hann hafi beinlínis orðið ber að
dónaskap eða annars konar óvið-
urkvæmilegu athæfi, nema hvað
honum verður býsna tíðlitið á
klukkuna, og hlýtur það í sjálfu
sér að vera fullkomlega saklaust.
Engu að síður hefur lengi loðað
við hann viðurnefni sem margir
gætu hugsað sér að vera án.
Það er kunnara en frá þurfi að
segja — enda skal ekki fjallað um
það hér — að velflestir Islendingar
Binni blóm
halda enn í þann forna sið að
kenna sig við feður sína, eða þeg-
ar verst lætur við mæður sínar
eins og Loki Laufeyjarson. í öðr-
um löndum bera menn ættarnöfn,
sem ekki fór framhjá íslenskum
höfðingjasonum sem lögðust í
ferðalög til útlanda á síðustu öld-
um. Þeir tóku margir að kenna sig
við stórbýli feðra sinna — Vídalín,
Espólín, Kúld, Briem — eða upp á
dönsku við feðurna sjálfa — Steph-
ensen, Thorarensen, Thoroddsen,
Johnsen, en síðast við írska kónga
og dýrlinga — Kvaran, Kjaran,
Kjarval og Kiljan.
Sumir hafa kennt sig við ár og
fljót, t.d. Blandon, eða Blöndal.
Aðrir hafa gripið til þess ráðs að
kenna sig við fæðingarstað, s.s.
Jón Isfjörð og Baldur Arnfjörð.
Ættarnöfn þóttu í eina tíð
mönnum heldur til framdráttar og
kepptust allir sem vettlingi gátu
valdið við að skreyta sig og ætt-
menn sína þessum furðulegu nöfn-
Flatrekur skipstjóri
um. Þá urðu til nöfn eins og Blá-
feld, ísfeld, ísberg og Sæberg svo
eitthvað sé nefnt. Lagt var bann
við þessari óvenju þegar menn
gátu ekki lengur skroppið í kaup-
stað án þess að fara að kalla sig
Guðjohnsen eða þvíumlíkt.
TILEFNIN ÓÞRJÓTANDI
Eins og gefur að skilja hljóta
menn oft viðurnefni af framkomu
sinni, sérkennum í fari, burðum,
ásköpuðum líkamslýtum eða
-prýði og þar fram eftir götunum.
Jóhann risi hefði tæplega verið
nefndur svo ef hann hefði ekki
verið meiri vexti en aðrir menn.
Diddi dvergur, sem fyrir fáum ár-
um setti svip sinn á bæjarlífið.
þurfti ekki að óttast þá hvimleiðu
kvöð að horfast i augu við döm-
urnar sem hann dansaði við á
Borginni. Ólafur digri var Noregs-
konungur. Grettir Asmundarson
hlaut viðurnefnið hinn sterki og
sama máli gegndi un> Odd af