Pressan - 04.07.1991, Page 21
FIMMTUDAGUR PRESSAN 4. JÚLI -.991
21
Skaganum, og Einsi kaldi bjó í
Vestmannaeyjum.
Sumir eiga þess frekar kost en
aðrir að hljóta viðurnefni. Kallar
eru nefndir kúlur, Maggar mýs,
Bjössar bollur og Siggar sætir,
nema Siggar sóðar.
Þá hafa menn gert misheppnað-
ar tilraunir til að ná af sér hvim-
leiðum viðurnefnum. Til er saga
úr kaupstað einum þar sem slík
tilraun snerist upp í andhverfu
sína, en hún er á þessa leið.
Drengur nokkur var nefndur Halli
krúga, og þótti honum, svo og for-
eldrum hans, þetta heldur hvim-
leitt. Var þá gripið til þess ráðs er
drengurinn var fermdur að skíra
hann á nýjan leik og var hann þá
endurskráður í drottins bækur og
nefndur Guðjón. Ekki fór þó betur
en svo að eftir þetta var blessaður
drengurinn aldrei nefndur annað
en Guðjón bróðir hans Halla heit-
ins krúgu.
MENN KENNDIR VIÐ KONUR
SÍNAR, MÖMMUR, ÖMMUR,
FYRIRTÆKI EÐA STÖRF
Ekki veit ég hvort það er sérís-
lenskur siður að kenna menn við
konur sínar, mömmur og ömmur.
Frægur togaraskipstjóri og krafta-
karl var t.d. aldrei kallaður annað
en Stebbi auminginn hennar Jónu.
Krúsi
Hvernig nafnið á Stebba er til
komið munu vera skiptar skoðanir
um, en Jóna var kona þessa
ágæta manns. Annar var nefndur
eftir ömmu sinni og sjaldnast kall-
aður annað en Halli hennar Stínu
frænku. Þá eru þeir Gunnuþórir,
Rósusiggi og Stínuhalli þekktir ein-
staklingar.
Allir þekkja Sæma rokk þann
sem m.a. varð þjóðfrægur þegar
hann var lífvörður skákkappans
Bobbys Fischer. Sæmi, eða Sæ-
mundur Pálsson, þótti á árum áð-
ur besti rokkari landsins og sýndi
danskúnstir sínar víða um land og
nafnið hefur loðað við hann síðan.
Flestir hafa lika heyrt nefndan Pét-
ur rakara, gamlan umboðsmann
hljómsveita, sem sjaldnast er
nefndur án þess að rakaraheitið
fylgi með. Raggi pól var kunnasti
lögregluþjónn Vestmanneyinga á
árum áður. Sveitarstjóri í litlu
þorpi vestur á fjörðum er sjaldnast
kallaður annað en Danni sveitó,
og núverandi bæjarstjóri í Mos-
fellsbæ var aldrei kallaður annað
en Palli bæjó meðan hann vann á
bæjarskrifstofunni í Eyjum.
Jón Ólafsson í Skífunni hefur
líka þetta virðulega heiti, ekki þó
Nonni bali
Þórarinn fimmti
fyrir afskipti sín af bæjarmálum
nema þá á óformlegan hátt sem
bæjarvillingurinn í Keflavík fyrir
langa löngu.
Pá hafa þeir synir Ingvars Vil-
hjálmssonar, sem eitt sinn átti Is-
bjarnarfrystihúsið fræga, gjarnan
verið nefndir húnarnir (afkvæmi
ísbjarnarins) eða einfaldlega ís-
bjarnarbræður. Steini spil var líka
eitt sinn frægasti spilari Selfyss-
inga.
Eigandi innrömmunarstofu í
Reykjavík, sem ekki þótti ýkja
hárprúður maður, var lengi kunn-
ur sem Guðmundur rammaskalli.
Þá eru þeir áberandi borgarar þeir
Binni blóm og Gulli rakari. Fyrir
nokkrum árum var Pétur nokkur
Sveinbjarnarson helsti talsmaður
umferðarmála hér á landi. Pétur
gekk um tíma undir nafninu um-
ferðarhnúturinn og má vera að
vaxtarlag hans hafi haft áhrif á
nafngiftina.
VIÐURNEFNI ELTA MENN
FRÁ ÆSKUÁRUNUM
Drengur nokkur, sem var örlítið
smá- eða hraðmæltur í æsku,
sagði gjarnan þegar hann sá bíl á
ferðinni: naddna burri, og hefur
sjálfsagt ætlað að segja þarna er
burri (eða bíll). Þetta viðurnefni
hefur orðið svo lífseigt að a.m.k. í
vinahópi er þessi nafngift dregin
upp þegar vel stendur á. Öðrum
varð það á að drepa kött á æsku-
árunum og fékk viðurnefnið katt-
arbaninn, sem var sett aftan við
Jón bæjó
nafn hans, en í seinni tíð hefur
nafngiftin verið þannig stytt að nú
er maðurinn, sem er orðinn full-
orðinn góðborgari, sjaldnast
nefndur annað en kötturinn eða
kattó. Önnur í svipuðum dúr:
Drengur nokkur varð fyrir því á
æskuárunum að slasast, þannig að
senda varð hann á sjúkrahús til
Danmerkur. Síðan þá hefur hann
jafnan gengið undir nafninu Siggi
danski eða bara danskurinn, til
aðgreiningar frá öðrum Siggum í
heimabyggð sinni.
Þá hefur löngum loðað við æsku
landsins að skíra lærifeður sína og
uppnefna. Frægastur er líklega
Guðni kjaftur, rektor Menntaskól-
ans í Reykjavík. Þá var Baldur Ing-
ólfsson þýskukennari sjaldan
nefndur annað en Bingó af nem-
endum sínum. Guðmundur Stef-
ánsson, forstjóri ístess, var eitt
sinn kennari og var þá oftast kall-
aður Gvendur Wodki til aðgrein-
ingar frá samkennara sínum, sem
heitið hafði frá barnæsku Guð-
mundur Áki.
SUKKARAR HUGMYNDARÍKIR
Það hefur lengi loðað við sukk-
bransann að uppnefna menn og
aðgreina. Halli skítur var þekktur
hasspæjubakari en Gulli gramm
og Steini moli voru ekki eins stór-
tækir. Bjarni bakkus og Valdi víð-
átta þóttu óárennilegir eftir þriðju
bokku og heldur þótti kárna gam-
anið þegar Jón á röltinu og Fjalla-
eyvindur voru komnir í hópinn
svo ekki sé minnst á Bóbó á holt-
inu eða Gunna á götunni.
Eins og skuggi fylgir sól fylgja
glæpir fíkniefnum og drykkjuskap.
Jói glæpur þótti með skemmtilegri
mönnum á þriðja glasi. Ekkert
hefur heyrst frá Skrolla handfljóta
í mörg ár. Engir rimlar héldu þeim
Sigga kýli og Villa kúbeini, sem
hafa nú um langa hríð þjónað
samfélaginu og verið öðrum til
fyrirmyndar. Sæbbi rotta og Lalli
peysa hafa líka snúið frá villu síns
vegar.
TIL SJÓS HAFA MENN
VIÐURNEFNI
Ólafur Jónsson, aflaskipstjóri á
Viðey, er á meðal félaga sinna
aldrei nefndur annað en Óli ufsi,
það sama má segja um Einar sting
Bóbó
og Solla togmund, sem fengið hef-
ur viðurnefni sitt vegna áhuga á
togaramennsku. Þá hafa virðulegir
skipherrar Landhelgisgæslunnar
heldur ekki sloppið við viðurnefn-
in. Þannig var Guðmundur Kærne-
sted oft nefndur Mummi meinhorn
vegna djarfra uppátækja, og Hös-
kuldur Skarphéðinsson fékk viður-
nefnið Flatrekur skipstjóri þegar
hann lét dögum saman reka úti á
ballarhafi í stað þess að leyfa
mönnum að dóla uppi í landstein-
um og glápa á sjónvarp. Þröstur
Sigtryggsson var að sjálfsögðu
aldrei kallaður annað en spörfugl-
inn á sínum skipstjóraferli.
HAUKUR FÓTAFÚNI OG
BADDI BINGUR
Til er saga af Hauki fótafúna
Bóbó Guðjóns
Halldór Giljan
Rassness
Hallgrímur
strandagraður
Mangi rauði
Viddi pulsa
Gunna stöng
Malli móri
Siggi darling
Stjáni stones
Villi hestur
Haukur þreytti
Helga fagra
Vestmannaeyja
Anna
Hafnarfjarðar
Gullý
Kennedy
bræður
Óli blaðasali
Ragnar skjálfti
Bjarni
blautavör
Dóri Lax
sem er á þessa leið. Haukur kom
eitt sinn í verslun í heimabyggð
sinni. Afgreiðslumaðurinn, sem
þótti einstaklega hæglátur og
Bubbi kóngur
kurteis maður, spyr Hauk hvað
hann geti gert fyrir hann. Haukur
biður þá um tveggja lítra fötu af
fúavarnarefni. Þegar afgreiðslu-
maðurinn kemur til baka spyr
hann í sakleysi sínu hvort ætlunin
sé að fara í fótabað. Sagan segir
að Hauki hafi ekki þótt þetta neitt
fyndið.
Sagan um Badda bing er þannig
til komin að Baddi þessi var eitt
sinn vörubílstjóri. Baddi þótti jafn-
an nokkuð skrafhreifinn og kom
það yfirleitt ekki að sök. Svo ger-
ist það eitt sinn er Baddi var í
vegavinnu að hann var að sturta
malarhlassi sem dreifa átti úr.
Maður kemur skyndilega upp á
vegkantinn og kallar á Badda,
sem stöðvar bílinn samstundis en
heldur áfram að sturta. Það var
ekki að sökum að spyrja að hlass-
ið lenti allt í einum haug, vega-
gerðarmönnum til lítillar gleði, og
hafa þeir síðan kallað bílstjórann
skrafhreifa Badda bing.
STÍNA STUÐ, LINDA LOKKUR,
GUNNA SMOKKUR OG
ALLIR HINIR
Þær vinkonurnar sem nefndar
eru hér að ofan þóttu eitt sinn líf-
Umferðarhnúturinn
Bjargvætturinn
legustu skvísurnar í bænum. Það
fer í dag ekki svo mikið fyrir þeim
— ekki frekar en öðrum öndvegis-
mönnum og -konum sem ekki
komast á blað í þessari upptaln-
ingu. Látum þó fylgja í lokin
nokkur nöfn til viðbótar. Jón ráð-
herra Sigurðsson var á unglingsár-
um sínum á ísafirði gjarnan kall-
aður Bóbó. Haukur þreytti, Villi
hestur, Einar ríki. Maggi gullkjaft-
ur, Ómar samlok-'., íón teygja og
Gvendur kýlir voi u allir þekktir
Jakinn
menn á sinni tíð. Það sama má
segja um Stebba láttu mig sjá, sem
þótti afar röskur maður á sínum
tíma, og hvaða miðaldra kona hef-
ur ekki heyrt um Steina sleik og
Óli grís
Dóra dipló. Enn hefur ekki verið
minnst á Önund tréfót, Einar efni-
lega, Stebba á löppinni, Lalla bíó,
Ingu með nefið, Didda slólí, Gvend
kúlupenna, Jóa grínara og Sigga
truntusól, svo ekki sé minnst á
nýja borgarstjórann, sem aldrei
var nefndur annað en Krúsi í
æsku.
En ætli framangreind runa ætti
ekki að nægja til að sýna svo ekki
verður um villst að viðurnefnin,
sem sum bera vott um mikla hug-
kvæmni uppfinningamannanna,
lifa enn góðu lífi hér á landi, hvort
sem mönnum líkar betur eða verr.
Það má velta því fyrir sér í fullri
alvöru hvort viðurnefnin íslensku
séu ekki vísir að einskonar ættar-
nöfnum eins og þau tíðkast í öðr-
um löndum.
Greinarhöfundur þakkar samt
sínum sæla fyrir að þurfa ekki að
burðast með viðurnefni ættföður
síns, sem kallaður var þorskabítur.
Björn Hafberg