Pressan


Pressan - 04.07.1991, Qupperneq 26

Pressan - 04.07.1991, Qupperneq 26
26 FIMMTUDAGUR PRESSAN 4. JÚLÍ 1991 LP LISTAPÓSTURINN Hvað eiga þjóðskáldin okkar sameiginlegt með torfæru- ökumönnum? Nöfnin. Þann- ig þeysir Einar Benediktsson um á sérútbúnum kagga og Steingrímur Thorsteinsson tryllir um gryfjurnar á kraft- miklum jeppa. Þjóðskáldin ortu náttúru landsins lof en ökuþórarnir spæna hana upp með miklum tilþrifum — á af- mörkuðum svæðum, vel að merkja. Og líklega eiga öku- mennirnir ívíð meiri vinsæld- um að fagna en. skáldin, í seinni tíð að minnsta kosti. Fyrir ættfræðingana: Öku- þórinn Steingrímur Thor- steinsson er barnabarnabarn Steingríms Thorsteinssonar skálds en engum sögum fer af því hvort Einar Benediktsson er skyldur Einari Benedikts- syni. . . Nokkrir bókamolar: Hannes Sigfússon gefur út Ijóðabók hjá Máli og menningu í haust, ■Steinar Sigurjónsson verður með skáldsögu hjá Forlaginu og Kristín Omarsdóttir hjá MM. Forlagið ætlar að leggja mikinn metnað í útgáfuna á bók Steinars sem hefur löng- um átt í brösum með útgef- endur, en hann er einn merk- asti nýjungamaður í íslensk- um bókmenntum . . . Um daginn var sagt frá því í fréttum að Bragi Kristjónsson fornbókasali hefði fundið ein- ,tak af Fjölni, áritað af Jónasi Hallgrímssyni. Áður var að- eins vitað um eina bók sem varðveist hefur með áritun listaskáldsins góða. Bragi mun hafa rekist á ritið af til- viljun og fengið það fyrir slikk. Nú er hann hins vegar búinn að selja gripinn. Kaup- verðið mun hafa verið 200.000 krónur. Það getur borgað sig að róta í gömlu drasli . . . Kristín á Pílu í íslandsreisu. Eitt málverk er þúsund myndir Kristín María Ingimarsdóttir í stuttu spjalli um hreyfimyndagerd „Þaö var œvintýraþráin öðru fremur sem rak mig út. Að vísu œtlaði ég aldrei til Ameríku og ég œtlaði aldrei að vera svona lengi," sagði Kristín María Ingimarsdóttir myndlistarmaður sem hefur búið í San Francisco undan- farin átta ár. Fyrst við mynd- listarnám en upp á síðkastið hefur hún verið í kvikmynda- skóla og einkum lagt stund á það sem kallast „animation" á ensku. Það er hcegt að þýða sem teiknimyndir en Kristín vill fremur skilgreina við- fangsefni sín sem „hreyfi- myndir". „Það sem heillar mig við hreyfimyndagerðina er eink- um hversu margir vinna sam- an. Myndlistarmaðurinn er fremur einangraður í starfi sínu og hættir til að loka sig af. Hreyfimyndagerð er ótrú- lega mikið þolinmæðisverk en býður upp á óendanlega möguleika. Hver rammi er unninn sérstaklega og það þarf 24 ramma á sekúndu." Þolinmæðisverk, já. Kristín hefur verið í fjóra mánuði að vinna að þriggja mínútna langri mynd. Og hún er ekki alveg búin ennþá. En af hverju úr myndlist í hreyfimyndir? „Ég lít á þetta sem framhald af myndlist- inni. Mig langaði að reyna að þróa málverkið áfram. Eitt og sama málverkið er í rauninni óteljandi myndir, frá því að listamaðurinn byrjar og þangað til hann telur það full- klárað. Einn myndlistarmað- ur sagði að þegar hann hefði lokið einni mynd fyndist sér í raun að hann væri búinn að mála þúsund myndir. í hreyfi- myndagerðinni gefast mögu- leikar á því að sýna þessa þró- un. Og ég nota verkin mín í myndina, færi formin til á myndfletinum út frá ákveð- inni grunnhugmynd sem ég móta í upphafi." Hvaða möguleikar eru svo í hreyfimyndagerðinni hér- iendis? „Ég renndi alveg blint í sjó- inn þegar ég byrjaði en ég sé marga möguleika. Þetta er nær óplægður akur hérlend- is. íslendingar hafa tilhneig- ingu til að líta svo á að ekki séu til öðruvísi kvikmyndir en tveggja tíma langar bíó- myndir með ákveðnum sögu- þræði. En ég held að í fram- tíðinni eigi þetta eftir að breytast. Til þess þarf þó auð- vitað vettvang fyrir sýningar á styttri kvikmyndum." Kristín María fer aftur vest- ur til Ameríku í haust og held- ur áfram þar sem frá var horf- ið með myndina. í sumar kennir hún hins vegar í reið- skóla. Opnað með stæl Það var dúndrandi fjör í Ný- listasafninu þegar þeir félag- ar Daníel Magnússon og Sveinn Þorgeirsson opnuðu sýningu um síðustu helgi. Þeir fara aldrei troðnar slóðir, hvorki í listinni né lífinu. En þeim tókst hins vegar að gera opnunina ógleymanlega fyrir gestina. Ogleymanlega? Kannski er seinni hlutinn svo- lítið óskýr í hugum sumra enda flaut vínið ómælt. Og þeir voru útsjónarsamir: Fengu Argentinu til að styrkja sýninguna (húrra fyr- ir þeim), útveguðu sér vín frá öðrum myndlistarunnend- um, pylsur á grillið frá enn öðrum. Svo komu tónlistar- menn og héldu uppi fjöri í garðinum í aftanskininu. BÆKUR Charles Bukowsky: Ham on Rye Bukowsky er engum lík- ur. Fyrstu 50 ár ævi sinnar var hann meira og minna á fyileríi og kvennafari, skipti lengst af um vinnu- staði eins og sokka en vann lengst hjá póstinum. Nú er hann kominn á áttræðis- aldur og hefur gefið út eitt- hvað um 30 bækur; Ijóð, smásögur, greinar og skáld- sögur. Bukowsky er yfirleitt sjálfur í aðalhlutverici (und- ir nafninu Henry Chinasky) og skrifar um fólk sem lifir frá degi til dags, óháð öðr- um lögmálum tilverunnar en þeim, sem lúta að því að útvega áfengi, söng og end- ingarlitlar ástir. Bukowsky hefur síðustu árin komist í tísku í Evrópu, einkum Frakklandi, og hann skrif- aði líka handritið að Barfly. Lýsingar hans á lífi utan- garðsfólks eru bæði ljúfar og hrjúfar og alltaf bráð- skemmtilegar. Ham on Rye er skáldsaga af endurminn- ingagerð; lýsir uppvexti drengs í nöturlegu um- hverfi þýskra innflytjenda (Bukowsky fæddist í Þýska- landi árið 1920, fjölskyldan flutti til Bandaríkjanna 1924). Bækur Bukowskys hafa verið ófáanlegar hér- lendis nema með höppum og glöppum en nú hefur Eymundsson staðið fyrir talsverðum innflutningi á gamla manninum. Ljóð ungra skálda Ung islandsk lyrik Guðrún Jakobsdóttir valdi og „endursamdi". Þetta er dálítið dularfull bók. Hún er bæði á ís- lensku Qg dönsku, inni- heldur ljóð eftir tólf ung, ís- lensk skáld (Anton Helga Jónsson, Braga Ólafsson, Elísabetu Jökulsdóttur, Gyrði Elíasson, ísak Harð- arson, Kristínu Ómarsdótt- ur, Lindu Vilhjálmsdóttur, Magnús Gestsson, Margréti Lóu Jónsdóttur, Sigfús Bjartmarsson, Sjón, Svein- björn I. Baldvinsson). Hvert skáld á tvö ljóð í bókinni og danska forlagið mun hafa sett það skilyrði að ljóðin væru áður óbirt. Bókinni er líklega einkum ætlað að kynna Dönum íslenska nú- tímaljóðlist; en þar sem engri ritstjórn er fyrir að fara mistekst það meira og minna. Engin mynd fæst af skáldskap einstakra skálda og liklega var það misráðið að láta þau velja ljóðin sjálf. Inngangur að bókinni hefði ekki sakað og sagt dönsk- um lesendum meira en for- málsorð Vigdísar Finn- bogadóttur. Það sem hins vegar ónýtir þessa útgáfu algerlega eru óteljandi prentvillur (þær eru sex á kápunni einni). Ljóð eru viðkvæm vara og mega alls ekki við svona útreið. Aðrir verða að meta hvernig Guðrúnu Jakobsdóttur hef- ur tekist til við þýðingar, þær virðast vera afar ná- kvæmar frá orði til orðs. Hrafn Jökulsson.

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.