Pressan - 05.09.1991, Síða 7

Pressan - 05.09.1991, Síða 7
A- FIMMTUDAGUR PRESSAN 5. SEPTEMBER 1991 7 UimOGFERMI FORNMNNSINS Kostnaður við rekstur skrifstofu knatt- spyrnusambandsins hefur stóraukist frá því Eggert Magnús- son tók við formennsku. KSÍ hefur þurft að greiða háar fjárhæðir vegna ferðalaga Eggerts formanns. Atvinnuleysi formannsins fœldi framkvœmdastjórann úrstarfi. lEKNINGIMIM Innan Knattspyrnusambands íslands er deilt um störf formannsins, Eggerts Magnússonar. Hann er fyrsti for- maður KSÍ sem þiggur laun fyrir störf sín. Það er fleira sem deilt er um. Mikill kostnaður hefur fallið á KSÍ vegna ferðalaga Eggerts. Hann þykir fara í mun fleiri ferðir á vegum sambandsins en forveri hans, Ellert B. Schram, gerði. Nokkrir stjórnarmenn í KSÍ hafa gert ítrekaðar tilraun- ir til að finna vinnu handa formanninum, en án árangurs. Eggert er á skrifstofu sambandsins nánast alla daga. Margar ferða hans þykja koma íslenskri knattspyrnu lítt eða ekkert við. Þar má nefna að KSÍ varð að greiða um 400 þúsund krónur vegna ferðar Eggerts og sonar hans á úrslitaleik í heimsmeistaramótinu, sem fram fór á Ítalíu í fyrrasumar. Eggert Magnússon og Ellert B. Schram. Þeir þykja mjög ólíkir sem formenn KSI. Það er fleira sem fundið er að störfum Eggerts Magnússonar. Hann er sagður vinna nokkuð blint og ekki sjást fyrir í öllum sínum störfum. Einn forystumanna í knatt- spyrnuhreyfingunni sagði að ef Egg- ert hefði ekki þennan sterka bak- hjarl, sem KSÍ er, væri eins komið fyrir KSÍ OG HSÍ. Þegar störf Eggerts eru gagnrýnd verður að líta til þess að á síðasta ári var tekjuafgangur KSÍ um 25 millj- ónir króna. Þeir sem gagnrýna for- manninn fullyrða að hagnaðurinn hefði orðið enn meiri ef Eggert væri ekki þar sem hann er. FALDAR LAUNAGREIÐSLUR OG ÞÓKNUN FYRIR STÓRA SAMNINGINN ,,Ég hef oftsinnis sagt að það eigi ekki að gera þetta með þessum hætti. Úr því hann fær greitt þá á að gera það fyrir opnum tjöldum. Ég skil ekki af hverju er verið aö fela þetta. Hversu mikið hann fær greitt veit ég ekki,” sagði forystumaður eins stóru félaganna i Reykjavík. Samkvæmt heimildum PRESS- UNNAR lætur nærri að tekjur Egg- erts Magnússonar séu um tvö hundruð þúsund krónur á mánuði frá KSÍ fyrir störf sín. Þetta er í fyrsta sinn í sögu sambandsins sem for- maður þiggur laun fyrir störf sín. Nokkrir viðmælenda PRESSUNN- AR sögðu þetta dæmi um áherslu- breytingar innan KSÍ. Greinilegt er að þessi nýbreytni mælist mjög mis- jafnlega fyrir. Launagreiðslur til handa Eggerti eru mikið feimnis- mál. Þá er annað mál enn viðkvæm- ara. Fullyrt er að Eggert hafi fengið umtalsverð umboðslaun þegar KSÍ gerði risasamning við hollenskt auglýsingafyrirtæki um beinar út- sendingar frá undankeppni Evrópu- mótsins. Þessi samningur var upp á aærri eina milljón dollara, eða um sextíu milljónir króna. Hversu mikið Eggert fékk er ekki vitað. Viðmæl- endur PRESSUNNAR sögðust halda að hann hefði fengið ýmist fimm eða tíu prósent, það er frá þremur til sex milljóna króna. Hvað er rétt virðast fáir vita og ljóst að þeir sem hafa vitneskju um hversu há greiðslan var fara með staðreyndir málsins sem manns- morð. SVIKIN LOFORÐ OG UPPSÖGN FRAMKVÆMDASTJÓRANS Stefán S. Konrádsson, fram- kvæmdastjóri KSÍ, hefur sagt starfi sínu lausu. Hann hættir 1. desem- ber. Þegar PRESSAN leitaði til Stef- áns um ástæðu uppsagnarinnar vildi hann ekki tjá sig. Eins sagðist hann ekki vilja ræða neitt varðandi KSÍ. Aðrir sem leitað var til sögðu að Stefán hefði verið svikinn og þess vegna sagt upp. - Þegar hann var ráðinn til starfa, 1. júlí 1990, var honum lofað að Egg- ert Magnússon mundi hætta dagleg- um störfum á skrifstofunni. Það hef- ur ekki staðist. Andrúmsloftið hefur verið einkennilegt, þar sem segja má að tveir stjórnendur hafi verið þar samtímis, það er Eggert og Stef- án. Engin starfslýsing er til um starf Eggerts, enda ekki nema von, sam- kvæmt því sem gjaldkeri KSÍ segir: „Hann er ekki starfsmaður KSÍ. Hann fær greitt fyrir verkefni, svo sem auglýsingasöfnun og annað þess háttar. Það verður að taka það fram að við þurfum að greiða þetta hvort eð er, sama hvort Eggert vinn- ur þessa vinnu eða einhver annar,“ sagði Elías Hergeirsson, gjaldkeri KSÍ. Varðandi aukinn tilkostnað við rekstur KSÍ sagði Elías það eðlilegt að meira væri gert þegar peningar væru til en þegar reksturinn stæði ekki undir sér. Elías sagðist vera óhress með að Stefán Konráðsson væri að hætta en sagði það mál ein- göngu vera milli framkvæmdastjór- ans og formannsins. Pór Símon Ragnarsson, sem á sæti í framkvæmdastjórn KSÍ, sagði leitt til þess að vita að Eggert og Stefán gætu ekki starfað samam Hann sagði þá báða góða fyrir KSÍ og því væri það slæmt. „Það kemur ekkert á óvart að Stefán skuli hafa sagt upp. Þegar hann var ráðinn í fyrra var honum lofað að Eggert mundi hætta að vera daglega á skrifstofunni. Eggert hefur ekki breytt neinu. Það er óþarfi að vera með tvo stjórnendur. Það er mikill missir að Stefáni. Hann er sá maður sem við þurfum hvað mest á að halda,“ sagði stjórnarmað- ur í KSÍ. FERÐAGLAÐUR FORMAÐUR Kostnaður við rekstur skrifstofu KSÍ hefur stóraukist á þeim tíma sem Eggert hefur verið formaður. Stór hluti af auknum kostnaði er skýrður með tíðum ferðalögum hans til útlanda. Áður hefur verið minnst á ferð hans og sonar hans á úrslitaleik heimsmeistarakeppninn- ar á Ítalíu í fyrrasumar. Eins hefur PRESSAN vitneskju um að þegar landsliðið lék gegn b-liði Englands hafi Eggert Magnússon og eigin- kona hans, Gudlaug Ólafsdóttir, verið með í för. Það var í tilefni af silfurbrúðkaupi þeirra hjóna. „Það hefur færst mjög í vöxt að eiginkonur fylgi stjórnarmönnum í ferðalög til útlanda. Þetta þekktist ekki áður. Eins þykir undarlegt hversu víða Eggert telur sig þurfa að fara. Ég gæti trúað að hann færi tíu til tóif sinnum á ári. Þetta er eitthvað annað en þegar Ellert var formaður, þrátt fyrir að hann hafi haft allt ann- að og meira hlutverk en Eggert í al- þjóðasamstarfi," sagði áhrifamaður hjá KSÍ. HUGSANLEGT MÓTFRAMBOÐ í VETUR Formannskjör verður á þingi sam- bandsins í nóvember eða desember. Eftir því sem næst verður komið hefur enginn tilkynnt mótframboð. Þeir sem rætt var við segja að ekki kæmi á óvart þótt mótframboð kæmi fram á þinginu. Þess verður að geta að Eggert var kjörinn formaður eftir að tveir menn neituðu að vera í framboði til formanns. Fyrst var reynt að fá Hall- dór Jónsson í Fram til að gefa kost á sér. Þegar hann aftók það var leitað til Sveins Jónssonar, formanns KR. Hann hafði ekki áhuga. Þegar Hall- dór og Sveinn voru búnir að af- þakka að fara í framboð, og það þrátt fyrir að þeim væri báðum heit- ið stuðningi flestra fulltrúa, var leit- að til Eggerts. Þá var ljóst að þáver- andi varaformaður, Gylfi Þórðarson frá Akranesi, sóttist eftir formanns- stólnum. STAÐA FYRIR ÁHRIFAMENN Formaður KSÍ hefur til þessa verið stjórnandi fyrirtækis. Það hefur þótt nauðsynlegt að formaður þessa stóra sambands sé vel kynntur í við- skiptalífinu. Til þessa hafa „áhrifa- rnenn" setið í formannsstóli hjá KSÍ. Þegar kosið var milli Gylfa Þórðar- sonar og Eggerts Magnússonar var verið að kjósa milli tveggja fram- kvæmdastjóra. Gylfi er fram- kvæmdastjóri Sementsverksmiðj- unnar og Éggert var framkvæmda- stjóri Glerverksmiðjunnar Esju. Fá- einum mánuðum eftir að Eggert var kjörinn formaður varð fyrirtæki hans gjaldþrota. Áður en Eggert varð formaður Knattspyrnusambandsins var hann formaður knattspyrnudeildar Vals. Þegar hann hætti hjá Val var knattpsyrnudeildin illa stödd fjár- hagslega. Skuldirnar voru á annan tug milljóna króna. Ekki náðist í Eggert Magnússon áður en blaðið fór í prentun. Sigurjón Magnús Egilsson. ms

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.