Pressan - 05.09.1991, Blaðsíða 11
F
£. yrir miðstjórnarfund sjálfstæð-
ismanna í gær lögðu formenn
þriggja SUS-félaga fram bréf, þar
sem farið er almenn-
um orðum um ólög-
lega starfshætti á
þingi SUS á ísafirði.
Formennirnir þrír
eru Birgir Ar-
mannsson, Einar
Páll Tamini og
Viktor B. Kjartansson. Áður hafði
komið fram yfirlýsing frá formönn-
um „vafafélaganna" svokölluðu þar
sem þeir vísa ásökunum um ólög-
mæta fulltrúa á bug. H^lstu rök
þeirra sem nú eru í vörn vegna SUS
eru þau að löngum hafi slík vinnu-
brögð tíðkast, eða eins og einn
þeirra orðaði það við blaðamann
PRESSUNNAR: „Það er ekkert nýtt
að Reykvíkingar fari á SUS-þing
sem fulltrúar Dalamanna"...
F
JL_4inn af aðaleigendum og fram-
kvæmdastjóri Einars J. Skúlasonar
hf., Kristján Auðunsson, hefur
tekið sér hvíld frá
fyrirtækinu og sest á
skólabekk. Kristján,
sem starfað hefur
hjá Einari J. Skúla-
syni í um 30 ár, eða
frá því hann var 12
ára gamall, ákvað
að láta gamlan draum rætast nú í
haust og hefja nám við lagadeild
Háskólans. Jafnframt seldi hann
hluta af hlut sínum í fyrirtækinu, en
hann átti fjórðung, jafnmikið og
samstarfsmenn hans, þeir Helgi
Þór Guðmundsson, Olgeir Krist-
jónsson og Bjarni B. Ásgeirs-
son . . .
T
J. alsmenn bænda hafa rekið upp
ramakvein vegna þess að Halldór
Blöndal landbúnaðarráðherra ætl-
ar að skerða ríkis-
framlagið til Fram-
leiðnisjóðs landbún-
aðarins um helming
eða um rúmar 300
milljónir. Ekki er að
undra að talsmenn
bænda séu óánægð-
ir, því sjóðurinn er engin venjuleg
lánastofnun. Á síðasta ári veitti
hann óafturkræfa styrki upp á 371
milljón króna, en iánaði aðeins 19
milljónir. Og lán sjóðsins eru ein-
hver þau bestu sem bjóðast á land-
inu; allt að einnar milljónar króna
verðtryggð lán með engum eða að-
eins 2% vöxtum eða óverðtryggð
með aðeins 5% vöxtum . . .
A
J. M.Ö undanförnu hafa banka-
stjórar íslandsbanka notið leiðbein-
ingar dansks sérfræðifyrirtækis,
Prize Waterhouse
lko. P.W.I. hefur
hjálpað þeim Val
Valssyni. Birni
Björnssyni og
Tryggva Pálssyni
að móta stefnuna til
næstu fimm ára,
móta starf alþjóðadeildar bankans
og koma af stað úttekt á hagræð-
ingu meðal útibúa bankans. Þessa
dagana er mikið hvíslað innan
bankans um róttækar breytingar,
þar sem hausar muni fjúka, en eitt-
hvað mun það orðum aukið. Hitt er
annað mál að vinna er hafin við að
móta nýtt skipulag fyrir bankann,
þar sem ein helsta spurningin er
FIMMTUDAGUR PRESSAN 5. SEPTEMBER 1991
hvar rétt sé að hafa stærstu við-
skiptavini bankans í viðskiptum; í
útibúunum sem hingað til, í útibú-
unum en með „sérstökum stuðn-
ingi“ aðalbankans eða að þeir stóru
vistist alfarið í aðalbankanum. Við
heyrum að síðasti kosturinn sé mik-
ið ræddur innan bankans þessa dag-
ana og gætu þá ýmsir útibússtjórar
misst stóran spón úr aski sínum í ná-
inni framtíð ...
■l_)ómstólarnir eru að taka til
starfa eftir réttarhlé. Eitt stærsta mál
vetrarins verður eflaust Ávöxtunar-
málið. Þar eru tveir
menn ákærðir og
þeim gefið að sök að
hafa framið alvarleg
afbrot, en það eru
Ármann Reynis-
son og Pétur
Björnsson. Ávöxt-
unarmálið er til meðferðar í Saka-
dómi Reykjavíkur . . .
hynist lítill
srúllingurá þím hámili?
L
IFS H. MAGNUSSONAR
Tónlistarhæfileika barna er unnt að laða fram
snemma, sé hlúð að þeim á réttan hátt. Hvatning
foreldra er góður bakhjarl en hljóðfærið þarf líka
að vera ósvikið. Vandað hljóðfæri reynist barni
ómetanlegt því að lengi býr að fyrstu gerð.
Vandað hljóðfæri-hjarta hvers menningarheimilis.