Pressan


Pressan - 05.09.1991, Qupperneq 12

Pressan - 05.09.1991, Qupperneq 12
12 FIMMTUDAGUR PRESSAN 5. SEPTEMBER 1991 STJ0RMARANDS1ADAN SKIPULEGGUR 8IG Deilurnar um þjónustugjöldin hafa kristallað ágreining innan Alþýðuflokksins og hleypt nýju lífi í valdabaráttuna innan hans undra að það skuli vera Guðmundur sem leiðir andstöðuna við þá nafna um þjónustugjöldin, sem er full- frjálshyggjuleg hugmynd fyrir vinstri-jafnaðarmenn. ÖSSUR BANDAMAÐUR GUÐMUNDAR Á ÞINGl Það var Arnór Benónýsson sem átti mestan þátt í að skipuleggja fund þeirra sem kröfðust flokks- stjórnarfundarins, en Arnór er ná- inn samstarfsmaður Össurar Skarp- héðinssonar, formanns þingflokks- ins og fyrrverandi Alþýðubanda- lagsmanns. Þeir Össur og Guð- mundur Árni fóru yfirreið um land- ið fyrir síðustu kosningar undir slag- orðinu; ,,Við erum A-listinn“ og fór það fyrir brjóstið á mörgum kratan- um. Þeir þóttu gefa of sterklega til kynna að þeir væru arftakarnir í flokknuni. Þótt Össur hafi gætt sín í yfirlýs- ingum, þar sem hann er formaður þingflokksins, þarf enginn að efast um afstöðu hans til þjónustugjald- anna. Hann er algjörlega á móti þeim eins og Guðmundur Árni, fé- lagi hans. Og eins og Guðmundur hefur orð- ið talsmaður þeirra sem kröfðust flokksstjórnarfundarins leiðir Össur andófið innan þingflokksins. Þar eru hans helstu samherjar hinir nýju þingmennirnir, Sigbjörn Gunnars- son og Gunnlaugur Stefánsson, bróðir Guðmundar Árna. Andstæðingar [jjónustugjaldanna I deiluniim um þjónustugjöldin kristallast ágreiningur í Alþýöu- flokknum. Þær hafa leitt til þess ad myndast hefur hópur sem er í opin- berri andstödu uiö flokksformann- inn og þá flokksmenn sem hafa lagt línurnar á undanförnum árum. Og þessi liópur hefur fylkt sér ad buki Guðmundi Árna Stefánssyni, bœjar- stjóra í Hafnarfirdi, sem er í óopin- berri keppni vid Jón Sigurðsson um hvertaki vid o/Jóni Baldvini Hanni- balssyni sem formadur. Jón Baldvin hefur hingað til feng- ið frið fyrir flokksmönnum sínum. Þrátt fyrir að hann hafi staðið fyrir mörgum ákviirðunum sem hafa not- ið lítils fylgis innan flokksins hafa ekki veriö gerðar tilraunir til að hnekkja þeim. Krafa tólf krata um fund í flokksstjórn um þjónustu- gjöldin og vinna þeirra fyrir þann fund marka því tímamót. ÓOPINBER KEPPNI GUÐMUNDAR OG JÓNS SIG. Jón Baldvin hefur síöur en svo gefiö i skyn aö hann ætli að draga sig í hlé. Flokksþing krata verður á næsta ári og mun Jón sjálfsagt gefa kost á sér áfram. Sá sem ætlar sér að fella hann í formannskjöri þarf aö hafa sterka stöðu og liana hefur enginn hingað til haft innan flokks- ins. Það hefur hins vegar ekki hindrað að kratar velti fyrir sér arftaka Jóns Baldvins. Þ;ir eru þeir líklegastir Guðmundur Árni og Jón Sigurös- son. Jón Itefur verið einn helsti sam- starfsmaður Jóns Baldvins og hafa þeir tveir í raun mótað stefnu flokks- ins á undanförnum árum. Ef slægi í brýnu milli þeirra yrði það því út af persónulegum ágreiningi en ekki pólitískum. Guömundur Árni hefur hins veg- ar allt annað bakland en þeir nafn- ar. Guðmundur er Hafnarfjarðar- krati og kandídat þeirra til for- manns. Þeir hafa alltaf verið vinstra megin í flokknum og því er ekki að Þrátt fyrir mikið fylgi hefur Jóhanna Sigurðardóttir verið einangruð innan flokksins. lega, en hann verður ekki látinn komast upp með það núna,“ sagði einn tólfmenninganna sem skrifuðu undir kröfuna um flokksstjórnar- fund um þjónustugjöldin. Þeir tólf sem skrifuðu undir voru: Ólína Þorvarðardóttir borgarfull- trúi, Guðmundur Árni Stefánsson bæjarstjóri, Arnór Benónýsson leik- ari, Ragnheiður Davíðsdóttir, vara- þingmaður í Reykjavik, Gísli Bragi Hjartarson, bæjarfulltrúi á Akur- eyri, Ægir Hafberg á Vestfjörðum, Guðfinnur Sigurvinsson á Norður- landi eystra, Hermann Níelsson, varaþingmaður á Austurlandi, Guð- mundur Þ.B. Ólafsson á Suðurlandi, Jóna Ósk Guðjónsdóttir, forseti bæj- arstjórnar Hafnarfjarðar, og Ingvar Viktorsson, bæjarfulltrúi í Hafnar- firöi. PERSONULEG VALDABARÁTTA OG HREINRÆKTAÐUR ÁGREININGUR Meö kröfunni um flokksstjórnar- fundinn hefur Guðmundi Árna tek- ist að þjappa í kringum sig ýmsum hópum sem hafa verið óánægðir meö stefnu flokksins á undanförn- um árum en ekki náð styrk til að vera með virka andstöðu. Margt af þessu fólki hefur litiö til Jóhönnu Sigurðardóttur, sem hefur aldrei tekið að sér leiðtogahlutverk fyrir það. Jóhanna hefur eignast aðdá- endur frekar en fylgismenn. ,,Það er dæmi um einangrun Jó- hönnu í flokknum aö hún fór ekki af stað fyrr en eftir að flokksstjórnar- fundar var krafist og í ljós kom aö það er bullandi ágreiningur innan flokksins. Þangað til fyrir örfáum dögum virtist hún líkleg til að kyngja öllu," sagði áhrifamaður í Al- þýðuflokknum. Það er því ekki ofmat að segja að með framgöngu sinni í þessu máli hafi Guðmundur Árni ógnað Jóni Baldvini meira en hann hefur mátt þola frá því hann kom flokknum í ••jkisstjórn árið 1987. Á sama hátt og Guðmundur Árni er talinn kandídat vinstri-krata er Jón Sigurðsson kandídat hægri-krata sem arftaki Jóns Baldvins. „Þetta er bæði persónuleg valda- barátta og hreinræktaður ágrein- ingur um grundvallaratriði í pólitík. Auðvitað er Guðmundur Árni að láta vita af sér og hann velur rétta tímann og réttu málin,“ sagði annar alþýðuflokksmaður í samtali við PRESSUNA. JÓN SIGURÐSSON PLÆGIR LÍKA Guðmundur Árni var eindreginn andstæðingur þess að gengið yrði til stjórnarmyndunar með Sjálfstæð- isflokknum í vor og með málflutn- ingi sínum nú er hann búinn að tryggja sig í sessi sem leiðtogi „vinstri" arms Alþýðuflokksins. Á sama hátt er Jón Sigurðsson for- ingjaefni „hægra" armsins. Þeir Guðmundur og Jón eru þess vegna ekki bara í óopinberri samkeppni um formennsku í flokknum heldur snýst slagurinn um framtíðarpólitík flokksins — og hvaða samstarfs- flokka á að velja. Það vakti mikla athygli þegar greint var frá því í fjölmiðlum að Guðmundur Árni og Jón Sigurðsson hefðu gert samkomulag um að Jón viki af þingi einhverntíma á kjör- tímabilinu og gerðist seðlabanka- stjóri. Með þeim hætti hefði Guð- mundur Árni tekið sæti Jóns á þingi. Nú heldur Jón því hins vegar fram að ekkert slíkt samkomulag hafi verið gert. Deila þeirra mun hafa gengið svo langt að Jón Baldvin kallaði þá á sinn fund til að fá botn i málið. Þar kom fram að Jón Sig- urðsson er ekki á leiðinni í Seðla- bankann. „Jón Sigurðsson hefur undirbúiö sig smátt og smátt, skapað sambönd við inenn og plægt jarðveginn. Hann er sá foringi flokksins sem langmesta áherslu leggur á flokks- starfið og samskipti við félagana. Markmið hans eru skýr og hann ætl- ar ekki að hleypa Guðmundi Árna á þing næstu árin. Það er á hreinu." sagði maður sem vel þekkir til inn- an Alþýðuflokksins. fullyrtu við PRESSUNA að þau fengjust aldrei samþykkt í nokkurri stofnun flokksins, ekki einu sinni þingflokknum. Auk nýju þingmann- anna er Jóhanna Sigurðardóttir á móti þeim svo og Karl Steinar Guðnason og Rannveig Guðmunds- dóttir. ÞJÓNUSTUGJÖLDIN SETTU ALLT Á ANNAN ENDANN Ef þjónustugjöldin fást ekki sam- þykkt í þingflokknum eru enn minni líkur til þess að þau fari í gegnum aðrar stofnanir flokksins. Þótt sú stefna sem Jónarnir hafa rekið á undanförnum árum hafi tryggt Al- þýðuflokknum þokkalegt kjörgengi nýtur hún líklega meira fylgis utan flokksins en innan. „Það fór allt á annan endann í þingflokknum eftir að krafan kom fram og Jón Baldvin fann áþreifan- lega að honum er ógnað. Kannski heldur hann samt að hann geti bar- ið niður andstöðuna eins og venju- Gunnar Smári Egilsson Stefna Jóns Baldvins Hannibalssonar hefur náö þokkalegum árangri í kosningum, en nýtur sjálf- sagt meira fylgis útan Alþýðuflokksins en rneðal flokksbundinna. Sama má má segja um Jón sjálfan. VÍB ERUM Awti; imglp nteini í barállusiEtinn <nd I A-flokk! Meö þessari yfirlýs- ingu, „Við erum A-listinn", þóttu þeir Guömundur Árni Stefánsson og Öss- ur Skarphéðinsson vera að gefa tóninn fyrir tilkall sitt til metorða innan flokksins.

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.