Pressan - 05.09.1991, Qupperneq 15
FIMMTUDAGUR PRESSAN 5. SEPTEMBER 1991
15
FIMM STÆRSTU EI6A 8,3
MILLJARBA í KVÓIA
1 ' hiiÉÍHS ——y .
~T"n
Grandi hf. á mestan kvóta
allra útgerdarfyrirtœkja, eda
15.500 tonna þorskígildi.
Verdmœti kvótans er 2,5
milljardar króna ef reiknad
er med ad hvert kíló kosti 160
krónur. Útgerdarfélag Akur-
eyringa kemur nœst meö tœp
14 þúsund tonn, sem kosta
2,2 milljaröa króna. Sam-
herji hf. á kvóta fyrir nœrri
1.400 milljónir, Haraldur
Böövarsson hf. á kvóta upp á
rúmar 1.200 milljónir ogSíld-
arvinnslan fyrir 950 milljónir
króna.
Guðbjörg ÍS hefur sem fyrr
mestan kvóta allra skipa.
Kvóti Guðbjargar kostar
nærri 600 milljönir króna.
Aðaleigandi Guðbjargar og
skipstjóri er Ásgeir Guö-
bjartsson. Örvar HU kemur
næst með 585 milljónir.
Snorri Sturluson er í þriðja
sæti með 580 milljónir króna.
Kvóti Snorra jókst um eitt
þúsund tonn frá síðasta ári,
eða sem jafngildir 160 millj-
ónum króna.
Botnfiskkvótinneralls um
290 þúsund tonna þorsk-
ígildi. Þar af eiga fimm
stærstu útgerðarfyrirtækin
16,3 prósent en áttu 15,8 pró-
sent í fyrra. Stóru fyrirtækin
auka þar með hlutdeild sína í
aflanum, sem í heild hefur
skerst um fimmtung.
Athygli vekur að eitt fimm
kvótahæstu fyrirtækjanna er
í einkaeign, en það er Sam-
herji á Akureyri. Eigendur
fyrirtækisins eru þrír menn á
fertugsaldri, bræðurnir Krist-
ján og Porsteinn Vilhelmssyn-
ir og frændi þeirra Þorsteinn
Már Baldvinsson. Sam-
kvæmt þessum útreikningum
á hver þeirra kvóta fyrir 460
milljónir króna.
Þær þrjár útgerðir sem
koma næst á eftir þeim fimm
stóru eru Samtog hf. með
tæpar 900 milljónir, Skag-
strendingur hf. með 885 og
Ögurvík hf. með 880 milljón-
ir króna.
Minnstan kvóta allra báta,
eitt hundrað kíló, hefur Þór-
unn frá Hafnarfirði, sem er 11
tonna eikarbátur smíðaður í
Hafnarfirði 1970. Verðmæti
kvótans er 16 þúsund krónur.
Eigendur eru feðgarnir Karl
K. Þóröarson og Guömundur
Karl Karlsson í Hlíðsnesi í
Bessastaðahreppi.
Á myndinni má sjá þrjá af
togurum Granda hf.,
kvótahæsta einstaka
útgerðarfélags landsins;
Viðey, Ottó N. Þorláksson
og Snorra Sturluson.
Verðmæti kvóta þeirra er
I. 300 milljónir króna. Mittá
milli þeirra er báturinn
Óskar Halldórsson, kvóti
hans er 95 milljóna króna
virði. Bátinn þann á Ólafur
Óskarsson í Reykjavík.
Lengst til hægri er
loðnuskipið Jón Finnsson,
eigandi Gísli Jóhannesson.
Botnfiskkvóti skipsins er
II, 2 milljónir króna.
VERÐMÆTI KVÓTA HINNA
STÆRSTU
Útgerðir í fyrra í ár
Grandi 2.750
ÚA 2.600
Samherji 1.370
H.Böðvars. 1.430
Síldarv. 1.100
Skip:
Guðbjörg 680
Örvar 633
Snorri St. 416
Páll Pálss. 503
Akureyrin 520
m.kr. 2.500 m.kr.
m.kr. 2.230 m.kr.
m.kr. 1.380 m.kr.
m.kr. 1.225 m.kr.
m.kr. 957 m.kr.
m.kr. 595 m.kr.
m.kr. 585 m.kr.
m.kr. 580 m.kr.
m.kr. 4(i(i m.kr.
m.kr. 425 m.kr.
Hæstaráttarlögmaður féflettir fdrnarlamb
Guöný Höskuldsdóttir
hœstaréttarlögmaöur hefur
veriö kœrö til Lögmannafé-
lags íslands fyrir aö hafa
haldiö eftir um tveimur millj-
ónum króna af bótum sem
skjólstœöingi hennar voru
dœmdar í Hœstarétti. Mann-
inum voru dœmdar 3,6 millj-
ónir króna í bcetur vegna lík-
amsárásar sem hann varö
fyrir í Aöalstrœti í Reykjavík.
Eftir að Guðný tók við
greiðslunni frá viðkomandi
tryggingafélagi hélt hún eftir
um tveimur milljónum og
reyndi þar með að hafa pen-
ingana af manninum. Eftir að
hann komst að þessu kærði
hann Guðnýju til Lögmanna-
félagsins.
Marteinn Másson, fram-
kvæmdastjóri félagsins, sagði
þetta alvarlegt mál og að
Guðnýju hefði verið gefinn
frestur til 20. september til að
gefa félaginu skýringar á at-
hæfi sínu. Málið hefur ekki
verið kært til Rannsóknarlög-
reglu ríkisins.
Reynist lögmenn ekki borg-
unarmenn fyrir því fé sem
þeir draga sér í starfi greiðir
ábyrgðarsjóður Lögmannafé-
lagsins það sem á vantar. Það
er ekki gert fyrr en fullreynt
er hvort viðkomandi lögmað-
ur getur staðið skil á pening-
unum.
PRESSAN sagði fyrir tæpu
ári frá máli gegn Eddu Sig-
rúnu Ölafsdóttur, sem hafði
stórfé af skjólstæðingum sín-
um. Hennar mál var rannsak-
að af Rannsóknarlögreglu
ríkisins. Eftir rannsóknina
var málið sent til ríkissak-
sóknara þar sem það liggur
óafgreitt.
Stjórn Lögmannafélagsins
kom til fundar seint í gær. Þar
var mál Guðnýjar Höskulds-
dóttur rætt án þess að neinar
ákvarðanir væru teknar.
Guðmundur Arni Stefánsson, bæjarstjóri iHafnarfirði og varaþingmaður Alþýðuflokksins á Reykjanesi, erkominn íopinbera andstöðu viðJón Baldvin Hanni-
balsson, formann flokksins. Guðmundurkom fram ífjölmiðlum sem talsmaðurhóps innan Alþýðuflokksins sem krafðist flokksstjórnarfundar vegna fjárlagatil-
lagna ríkisstjórnarinnar. Fundurinn verður í kvöld.
„(juomunaur Arm neiur aKanega riKa rettiætis-
kennd. Hann er raunsær, rökfastur og áræðinn.
Fljótur að átta sig á breyttum aðstæðum og sjá
nýja fleti á málum sem eru til umræðu. Þrátt fyr-
ir geðríki heldur hann jafnvægi þegar stór mál
koma upp. Það eru frekar smáu málin sem fara
í taugarnar á honum," segir séra Önundur
Björnsson rithöfundur. „Hann er mjög hrein-
skiptinn, fylginn sér og fljótur að taka ákvarðan-
ir, en á engu að síður mjög gott með að vinna
með öðrum. Hann lætur ekki nægja að tala um
hlutina og ann sér ekki hvíldar fyrr en þeim er
hrundið í framkvæmd," segir Tryggvi Harðar-
son, bæjarfulltrúi Alþýðuflokksins í Hafn-
arfirði. „Hann er tilbúinn að taka áhættu og
snöggur að taka ákvarðanir. Hann hefur trúnað
þeirra sem hann vinnur með og samstarfsmenn
hans treysta honum," segir Guðmundur Odds-
son, bæjarfulltrúi Alþýðuflokksins í Kópa-
vogi. „Guðmundur Árni er heiðarlegur og
traustur maður. Hann er sérlega glöggur stjórn-
andi og á gott með að umgangast fólk. Hann er
maður framkvæmda og verka og er laginn við
að taka réttar ákvarðanir," segir Finnur Torfi
Stefánsson, tónskáld og bróðir Guðmundar
Árna. „Hann er áræðinn og fylgir þeim hlutum
eftir, sem hann hefur áhuga fyrir," segir Jó-
hann Bergþórsson, bæjarfulltrúi Sjáifstæð-
isflokksins í Hafnarfirði.
Guðmundur Árni Stefánsson
bæjarstjóri
„Hann á það til að erfa lengi við menn, ef
hann telur þá hafa brotið á sér, segir Önund-
ur Björnsson. „Þar sem hann er snöggur að
taka ákvarðanir hættir honum stundum til
að vera ögn fljótfær og dæma hlutina of
fljótt. Hann mætti skoða sum mál betur. En
hann hittir líka oft naglann á höfuðið," segir
Guðmundur Oddsson. „Hann getur verið
óþolinmóður, fljótur á sér og jafnvel hrana-
legur eða ósvífinn ef svo ber undir. En þótt
hann rjúki upp erfir hann ekki hlutina og
hefnigirni hef ég aldrei orðið var við í fari
hans,“ segir Tryggvi Harðarson, bæjarfulltrúi í
Hafnarfirði. „Hann er keppnismaður og
skapmikill. Honum hefur þó tekist að
tengja það vel og nýta sér til styrktar," segir
Finnur Torfi Stefánsson, bróðir hans. „Það sem
hann hefur ekki áhuga á fær að sitja á hak-
anum. Hann er svolítið fljótfær og eiginlega
of pólitískur,“ segir Jóhann Bergþórsson.
„Hann á alltaf gamlar bíldruslur. Mér finnst
það vera að snobba niður á við,“ segir Ön-
undur Björnsson.
JJNDIR
OXINNI
Þorgeir
Ingólfsson
framkvæmdastjóri
hestamannafélagsins
Fáks
Er búið að búa til
óviðráðanlegt bákn i
kringum Fák?
„Að Fákursé bákn er
umdeilanlegt. Félagið
hefur umfangsmikla
þjónustu, ermeð hest-
hús fyrir 420 hross,
jörð í Gaulverjabæjar-
hreppi með 200 hest-
um og með 200 til 300
hross á hagagöngu á
sumrin. Þetta kallar á
mikla þjónustu og út-
heimtir nokkurt starfs-
mannahald."
Miðað við 18 millj-
ónir króna eru þetta
liðlega 16.000 krónur
á hvern af 1.100 fé-
lagsmönnum. Er ekki
nærtækara að leita til
þeirra en borgarinnar
um hjálp?
„Við erum ekki að
biðja borgina um
styrk, heldur um að-
stoð við að breyta og
flytja starfsemina í
Víðidalinn. Hesthúsin
við Bústaðaveg eru að
mínu mati tímaskekkja
og hjálpar ekki upp á
reksturinn að hafa
þetta aðgreint. Við er-
um með lóðarleigu-
samning við borgina
sem gildir í 11 eða 12
ár til viðbótar. I samn-
ingnum er ákvæði um
að þá leysi borgin til
sín eignirnar á mats-
verði efekki verður um
áframhaldandi leigu
að ræða. Við erum að
tala um að borgin geti
tekið þetta svæði fyrr
til annarrar notkunar.
Hvað félagsmenn
varðar hefur það verið
höfuðverkur okkar að
ná félagsgjöldunum
inn. Fólk er í þessu fé-
lagi eins og annars
staðar misjafnlega
stætt."
Varla eru hesteig-
endur öreigar. Af
hverju vilja þeir ekki
borga sín gjöld? Er
hugsanlegt að valda-
barátta spili hér eitt-
hvað inn í?
„Auðvitað spilar
slíkt alltaf inn í, það er
Ijóst. Og fjárhags-
þrengingar til margra
ára hafa sett svip sinn
á félagsstarfið, þannig
að fólki finnst það
kannski ekki fá neitt
fyrir peningana. En við
stofnuðum til skulda
og það er okkar að
ráða fram úrþeim með
einhverju móti."
Hestamannafélagið Fákur er meö
neikvæða skuldastöðu upp á 18
milljónir króna, hefur staðið i
miklum framkvæmdum en getur
ekki halað inn félagsgjöld. Félagið
hefur nú leitað til borgarinnar um
aðstoð.