Pressan - 05.09.1991, Síða 24

Pressan - 05.09.1991, Síða 24
24 FIMMTUDAGUR PRESSAN 5. SEPTEMBER 1991 Þess vegna halda karlarnir völdunum Að uonum er þad konum hugleikid hvernig á því stend- ur ad karlar halda völdum i nútímaþjódfélögum þrátt fyr- ir ad formlegt jafnrétti ríki. Ná hefur Anna Guðrán Jón- asdóttir lokið doktorsprófi í stjórnmálafrœði frá Gauta- horgarháskóla og í ritgerð sinni, „Ástarkraflur og pólit- ískir hagsmunir", leitar hán skýringa á ofangreindu fyrir- hœri. Anna Guðrún er ósátt við þær kenningar sem settar hafa verið fram til skýringar hingað til. „Höfundur setur fram nýja kenningu í þremur liðum: Drög eru lögð að nýrri efnislegri söguskoðun þar sem mið er tekið af tengslum fólks sem kynvera. Þróuð er sögulega staðsett skýring á nútímakarlveldi, þar sem vald og tileinkun karla á krafti ástar og umhyggju kvenna (frekar en vinnukrafti þeirra) er aðalatriðið. Að síð- ustu eru vissar hugmyndir mótaðar um greiningu á pól- itískum hagsmunum kvenna og á undirstöðum lýðræðis," segir í fréttatilkynningu um ritgerðina. Ekki vitum við alveg hvernig þýða skal ofan- greindan texta á mannamál. En við sjáum ekki betur en verið sé að segja að karlar plati konur (og undiroki) í krafti ástar og kynlífs. Sem sé að konur tapi valdabarátt- unni með því að verða ást- fangnar af körlum .. . VANRÆKTU OG GLEYMDU MARKA- MASKÍNURNAR Hafnfirðingar hafa að von- um velt vöngum yfir því hvers vegna Hörður Magnásson, markaskorari FH og marka- kóngur 1989 og 1990, er ekki fyrir löngu búinn að spila sinn fyrsta landsleik í knatt- spyrnu. En það eru fleiri en Hörður sem hafa verið vanræktir. Sigurjón Kristjánsson Val var markahæstur með 13 mörk 1988, en komst ekki í lands- liðið (lék hins vegar 3 lands- leiki upp úr 1982 þegar hann lék með Breiðabliki). Og svo eru það þeir sem fengu tæki- færi, sönnuðu sig en gleymd- ust svo alfarið. T.d. Sœbjörn Guðmundsson KR, sem lék tvo landsleiki 1983 og skor- aði þrjú mörk. Óli Þór Magn- ússon ÍBK lék tvo landsleiki á sama tíma og skoraði tvö mörk. Og um svipað leyti lék Erlingur Kristjánsson norð- anmaður fjóra landsleiki og skoraði þrjú mörk. Nú er rifist um réttmœti þess að leggja gjöld á sjúk- linga til að redda ríkissjóði og sýnist sitt hverjum. Okk- ur hefur verið bent á miklu sniðugri lausn en að skatt- leggja sjúklinga á þennan hátt. Nœrtœkara sé að skattleggja þá sem heim- sœkja sjúklingana á sjúkra- húsin. Með öðrum orðum ætti að taka upp heimsóknar- gjald. Gjald þetta ætti ann- ars vegar að fara eftir fjölda gesta til hvers sjúklings, en einnig að vera misjafnlega hátt eftir því um hvaða sjúkdóm er að ræða. i seinna tilfellinu er sjálfsagt að rukka hærra gjald þegar um „styttri" sjúkdóm er að ræða, en veita afslátt fyrir langlegusjúklinga. Með þessi^ móti er skatturinn lægri á hina sjúkustu og á þá sem fæsta eiga vini og ættingja .. . Verktakar, útgerð og veit- ingahús eru í tísku Oft hefur verið talað um barlóminn í útgeröinni og fiskvinnslunni og ekki hefur hann minnkað með minnk- andi kvótum. Þuð mœtti því cetla að nú til dags voeru menn ekkert að hafa fyrir því að stofna ný útgeröar- og fisk- vinnslufyrirtœki. Frekar að menn sneru sér aö vaxtar- broddum í iðnaöi, til að mynda. En svo er að sjá að annað sé upp á teningnum. I Lögbirtingablaðinu 29. og 30. ágúst er greint frá stofnun 75 hlutafélaga um land allt á síðustu mánuðum. Þegar til- gangur þessara hlutafélaga var skoðaður kom í Ijós að í 11 tilfellum (15 prósent) var ætlunin að stunda útgerð og/eða fiskvinnslu. Tísku- greinin reyndist hins vegar vera verktakastarfsemi, þar sem litu dagsins ljós 15 ný hlutafélög (20 prósent). í þriðja sæti kom önnur tísku- grein sem mikið hefur verið fjallað um, veitingarekstur, með 7 ný hlutafélög. Það er líka athyglisvert hversu mörg hinna nýju hlutafélaga byrja með lág- markshlutafé, þ.e. eins lítið hlutafé og lög leyfa eða 400 þúsund krónur. Svo háttaði til í 32 tilvikum eða 43 prósent. í 15 öðrum tilvikum var hlutafé undir einni milljón króna. Hvers vegna ekki heimsókn- argjöld á sjúkrahúsum? KYNLÍF Er ófrjósemisaðgerð hentugur valkostur? Ofrjósemisaðgerðir á konum (eggjaleiðurum lok- að) og körlum (sáðrás tekin i sundur) eru með örugg- ustu getnaðarvörnum sem þekktar eru nú á tímum og vinsælar aðgerðir til dæm- is á Bretlandi og í Banda- ríkjunum. Hjá Bandaríkja- mönnum er þetta algeng- asta getnaðarvörnin, fast á hæla hennar kemur getn- aðarvarnarpillan. Eins og með aðrar getnaðarvarnir er ýmislegt sem mælir með og á móti. Aður en tekin er endanleg ákvörðun þarf að huga að sterkum rökum sem mæla með því að láta til skarar skríða. Margar góðar og gildar ástæður finnast fyrir ófrjó- semisaðgerð. Par eða hjón, sem telja sig vera búin að koma upp fjölskyldu og hafa ekki hugsað sér að eignast fleiri börn, líta þessa aðferð oft hýru auga. Eftir að konan hefur náð þrjátíu og fimm ára aldri fara sum pör að hafa meiri áhyggjur vegna getnaðar, því með hækkandi aldri aukast líkurnar á að barnið fæðist með erfðasjúkdóm eins og til dæmis Down- syndrómið. Það hefur líka nokkuð að segja að aðferð- in er örugg, aukaverkanir litlar eða engar og hún kostar litið miðað við aðrar getnaðarvarnir. Eftir að- gerðina þarftu ekki að hugsa um neitt getnaðar- varnakyns það sem eftir ef ævinnar (karlmenn sem fara í ófrjósemisaðgerð þurfa reyndar að nota smokkinn í sex til átta vik- ur á meðan þeir losa sig við það sæði sem komið var í sáðrásina áður en aðgerðin var framkvæmd). Sjálf að- gerðin hefur engin áhrif á tíðir, sáðlát (hann fær sáð- lát en í „sæðinu" er bara sæðisvökvi) og kynferðis- legan áhuga. Parið er kannski óánægt með notk- un annarra hefðbundinna getnaðarvarna — til dæmis getur hún ekki notað lykkj- una eða pilluna, eða heilsu konunnar getur verið hætta búin verði hún aftur ófrísk. Margfalt fleiri konur en karlar láta framkvæma á sér ófrjósemisaðgerð á ís- landi. Árið 1988 fóru 465 konur í aðgerð en 30 karlar. Meðal Finna og íslendinga er að finna mestan kynja- mun í fjölda ófrjósemisað- gerða. Á hinum Norður- löndunum, sérstaklega í Danmörku, er hlutfall karla og kvenna nokkuð svipað. Þessi kynjamunur er at- hyglisverður, því ófrjósem- isaðgerð karla er talin ör- uggari og auðveldari í framkvæmd en sú sem framkvæmd er á konum. í þeim tilvikum sem það reynist mögulegt er líka auðveldara að tengja sáð- rásina saman hjá karlinum en að reyna að tengja eggjaleiðarana aftur saman hjá konunni. Menn hafa reynt að finna skýringar á þessum kynja- mun en ekki tekist. Karl- maður tengir frjósemina meira við kynímynd sína en konan — hann er við- kvæmur fyrir skrámu á karlmennskuimyndinni. Konur eru kannski vanari því að áherslan sé á að þær verði ekki þungaðar frekar en karlmaðurinn hafi áhyggjur af því að sá fræi í frjóan svörð. Kannski er skýringanna að leita hjá heilbrigðisstarfsfólki sem veitir ráðgjöf áður en að- gerðin er framkvæmd. Hvað mælir á móti þvi að láta gera sig ófrjóa(n)? Aldur skiptir máli. Sértu að íhuga ófrjósemisaðgerð eru meiri líkur á að þú skiptir seinna um skoðun sértu mjög ung. Stendur hjónabandið eða sambúðin á brauðfótum? Bíddu þá með slíka aðgerð. Þeir sem sjá oftast eftir aðgerðinni eru fráskildir eða þeir sem . . . eftir aðgerð þarf ekki að hugsa um neitt getnaðarvarna- kyns það sem eftir er ævinnar eru komnir í aðra sambúð eða hjónaband. Er um að ræða tímabundna erfið- leika, svo sem fjárhags- áhyggjur eöa veikindi? Taktu þér þá góðan tíma og flanaðu ekki að neinu. Ertu barnshafandi? Bíddu þá með að taka ákvörðun þar til nokkrum mánuðum eftir fæðinguna. Hvað ef barnið þitt deyr? Það er ekki auð- velt að hugsa þá hugsun til enda, en barnslát eru önn- ur algengasta ástæðan fyrir því að fólk vill reyna að endurheimta frjósemina. Þrýstingur frá vinum, maka eða fjölskyldu? Ákvörðun um að fara í ófrjósemisað- gerð verður að koma frá þér sjálfum. Er bara annað hvort ykkar sammála um réttmæti aðgerðarinnar? Þið verðið að vera einhuga í þessu máli, annars geta komið upp erfiðleikar í sambúðinni. Aðeins um eitt prósent sér eftir aðgerðinni og æsk- ir þess að reyna að endur- heimta frjósemina með annarri aðgerð. Oftast er um að ræða ófyrirsjáanlega atburði eins og til dæmis dauða eins eða fleiri barna, nýja sambúð eða hjóna- band, betri fjárhag eða sál- rænar aukaverkanir vegna ófrjósemisaðgerðarinnar, eins og áður sagði. Spyrjiö Jónu um kynlífiö. Utanáskrift: Kynlíf c/o PRESSAN, Hverfisgötu 8-10, 101 Reykjavík

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.