Pressan - 10.10.1991, Síða 2

Pressan - 10.10.1991, Síða 2
I 2 FIMMTUDAGUR PRESSAN 10, OKTÓBER 1991 FYRST FREMST ingimar eydal. Hann og aðrir templarar á Akureyri misstu hús. magdalena schram. Finnst sjónvarpið dónalegt við þulurnar. LEKTOR RÁÐINN ÁN AUGLÝSINGA Kristján Jóhannsson, fyrrum framkvæmdastjóri Almenna bókafélagsins, sem nú berst fyrir lífi sínu, hefur verið settur lektor við við- skipta- og hagfræðideild Há- skóla íslands. Staðan var ekki auglýst laus til umsóknar. Kitt fyrsta verkefni Kristjáns Jó- hannssonar var námskeiö um mat á fjárfestingarhug- myndum, með sérstakri áherslu á fjárfestingar opin- berra aðila. Brynjólfur Sigurðsson. deildarforseti viðskipta- og hagfræðideildar, sagði í sam- tali við PRESSUNA að það hefði komið mjög skyndilega upp á að staðan losnaði. Hann sagði allan gang á þvi með hvaða hætti ráðið væri í stöðu sem þessa, sem Brynj- ólfur segir vera timabundna. Oftast er ráðningin til þriggja ára, en starfssamningar geta hins vegar verið til skemmri tima. DÓNALEGAR UPPSAGNIR Á ÞULUM I kjölfar 25 ára afmælis sjónvarpsins var ákveðið að lífga upp á svip þess og inn- leiða meiri hressleika. Kins og vanalega var byrjaö á að segja upp þulum sjónvarps- ins. Tvær útvarpsráðskonur, þær Magdalena Schram og Ásta Ragnheiður Jóhann- esdóttir, sáu ástæðu til að biðja sérstaklega um upp- sagnarbréfið sem þeim þótti sérlega dónalegt. Um leið og sagt var að breyta ætti um stíl og gera allt „ferskt, hratt og glaðlegt" var þulunum sagt upp. Það var í sjálfu sér ein- falt, því þulurnar voru ekki fastráðnar og nutu til dæmis engra lífeyrisréttinda. Þrjár þulur sóttust ekki eft- ir endurráðningu, þær María Björk Ingvadóttir, Sigur- laug Jónasdóttir og Bryn- dís Hólm. Þær Sigríður Arnardóttir og Rósa Guðný Þórsdóttir fengu endurráðningu en tveimur þulum var hafnað vegna þess að þær höfðu ekki rétta útlitiö. Það voru þær Sigríður Pétursdóttir og Þórunn Hjartardóttir. Uppsagnirnar voru meðal annars ákveðnar að tillögu starfshóps sem hefur með hressleikann að gera. í hon- um sitja: Hákon Már Odds- son dagskrárgerðarmaður, Kaiman le Sage de Fon- tenay auglýsingateiknari og Alfreð Halldórsson tækni- fræðingur. SELDI HÚS TEMPLARA ÁN ÞESS AÐ SPYRJA PÁ Hús, sem templarar telja sig hafa átt um áratugaskeiö á Hjalteyri við Kyjafjörð, hefur verið selt og afsalað einstak- lingi í Kópavogi, án þess að eigendurnir hafi komið þar nokkuð nálægt. Templara- húsið hafði staðið ónotað um áratugaskeið og eru skiptar LISTAMENNIRNIR VILJA FÁ BORGAÐ. Upp er risin deila milli listamannanna Brynhildar Þorgeirs dóttur og Magnúsar Kjartanssonar annars vegar og bæjar- sjóðs Hafnarfjarðar hins vegar. Forsaga málsins er sú að í sumar er leið var haldin listahátíð í Hafnarfirði. Hápunktur hennar var opnun höggmyndagarðs á Víðistaðatúni. Sérstök vinnustofa var starfrækt fyrir listamenn- ina sem unnu myndir í garðinn; Meðal listamannanna voru nokkrir erlendir og lá Ijóst fyrir frá upphafi að þeir mundu gefa verk sín og vinnu til garðsins, enda fehgu þeir frítt uppihald og ýmislegt annað þann tíma er þeir voru hér á landi. Islensku listamennirnir vilja aftur á móti meina að aldrei hafi verið um það rætt að þeir gæfu sína vinnu, verkin sjálf eru þau tilbúin að gefa, en vilja fá borgaðan tímann sem fór í að gera þau. Þau eru með öðrum orðum tilbúin að gefa listina en ekki vinnuna. , Guðmundur Árni Stefánsson bæjarstjóri og bæjarstjórn virðast frá upphafi hafa talið að bærinn mundi eignast verkin gegn því að leggja út fyrir efniskostnaði og tæknivinnu (vinnu járnsmiðjum og slíku), en þyrfti ekki að borga listamönnunum neitt fyrir sitt framlag. Heimildir PRESSUNNAR herma að orsök þessarar misklíðar sé sambandsleysið er var á milli bæjarstjórnar og Sverris Ólafs- sonar, framkvæmdastjóra hátíðarinnar. Talað er um að málið sé tómt klúður og Sverri hefði átt að vera Ijóst í upphafi að engir samningar voru um að Brynhildur og Magnús gæfu vinnu sína. Nú neitar Hafnarfjarðarbær að borga, en máliö er komið inn á borð hjá SÍM (Sambandi íslenskra myndlistarmanna) og munu þeir ætla að ganga hart í það, því myndlistarmenn vilja koma í veg fyrir að svona lagað endurtaki sig. Kinnig munu þeir vera hræddir við fordæmisgildi málsins. skoðanir um eignarhaldið. Eftir því sem næst verður komist hefur hús þetta staðið ónotað í hálfa öld og var talið ónýtt. Hreppurinn keypti Hjalt- eyrina 1970 og mun hafa taliö sig kaupa húsið um leið, en um það eru skiptar skoðanir. Sýslumaðurinn í Eyjafirði, El- ías I. Elíasson, þinglýsti pappírum á hinn nýja eig- anda, þótt eignarhaldið væri umdeilanlegt. Það eru margir templarar í Eyjafirði. Þeir eru ekki allir sáttir við hvað orðjð er af eigninni á Hjalteyri. Helstu talsmenn templara fyrir norðan eru; Ingimar Eydal hljóðfæraleikari, Arnfinnur Arnfinnsson bíóstjóri. Hannes Arason í amboða- verksmiðjunni Iðju og Sveinn Kristjánsson. Nýi eigandinn úr Kópavog- inum hefur endurbyggt húsið og vöknuðu þá upp spurning- ar hjá templurunum, eins og fyrr sagði. Þeir hafa hins veg- ar ekki sinnt húsinu í áraraðir og ekki greitt gjöld af því, enda ekki rukkaðir. Áður en kom til kasta Kópavogsbúans stóð til að rífa húsið. BJÖRN GETUR HVORKI SAGT NÉ SKRIFAÐ EYJÓLFUR Þrátt fyrir að þingflokkur sjálfstæðismanna hafi yngst mikið á hann enn við sömu smákónga-vandamálin að glíma. Björn Bjarnason er einn þessara smákónga og hann á enn bágara en margir hinna, þar sem hann hefur ekki einu sinni smáríki. Eins og kunnugt er mis- tókst Davíð Oddssyni að koma honum að sem for- manni utanríkismálanefndar og varð að láta í minni pok- ann fyrir Eyjólfi Konráð Jónssyni. Björn er auðsjáan- lega ekki búinn að fyrirgefa Eyjólfi. Þegar Eykon óskaði eftir tillögum á fyrsta fundi nefnd- arinnar í vetur um hver ætti að verða formaður þagöi hinn fulltrúi sjálfstæðis- manna, Björn, þunnu hljóði. Þögnin varði allt þar til Steingrímur Hermanns- son greip orðið og stakk upp á Eykon. Þegar atkvæði voru greidd um tillögu Steingríms var einn seðill auður. Það virðist því sem Björn geti hvorki sagt né skrifað Eyjólf- ur Konráð Jónsson eftir deil- urnar við hann. ÁSTA RAGNHEIÐUR JÓHANNESDÓTTIR. Heimtaði að dónalega uppsagnarbréfiö yrði birt. þórunn hjartardóttir. Ekki nógu hress fyrir sjón- varpiö. sigríður pétursdóttir. Fékk ekki endurráðningu. bjórn bjarnason. Getur hvorki sagt né skrifaö nafn Eyjólfs. stbngrímur hermanns- son. Bjargaði andliti Eykons. eyjólfur konrád jónsson. Hafði bæöi Björn og Davíð undir. Jóhannes, datt ykkur í hug að þig fengjuð leyfið eftir að hafa reynt að stela honum Leifi? ,,SAS var ekkert ad reyna aö stela Leifi, þad var bara veriö aö koma hon- um á framfœri. Annars telur SAS á íslandi aö hann hafi veriö íslend- ingur og kemst upp meö þaö þó aö SAS erlendis telji annaö." SÁÖ í Bandarikjunum hóf mikla auglýsingaherferð i kjöl- farið á komu víkingaskipanna vestur um haf í síðasta mán- uði, þar sem því var haldið fram að Leifur Eiríksson hefði verið norskur. Á sama tíma sótti SAS á islandi um leyfi til að fljúga meö íslendinga út á sérkjörum. Jóhannes Georgs- son er framkvæmdastjóri SAS á Islandi. LÍTILRÆDI af klámhópnum „Ástin er sterkasta aflið <>g þarnæst kemur hnefinn sem brýtur manni braut," segir einhversstaðar í klassísku ís- lensku snilldarverki og hef- ur síðan verið haft fyrir satt. Einsog að líkum lætur hafa þessir aðskiljanlegu kraftar í mannlegum sam- skiptum; ástin og hnefinn, orðið skáldum og listamönn- um drýgra yrkisefni en flest annað og er það ekki síst sjúnvarpið sem helgar dag- skrá sína þessum þáttum í mannlegu eðli. Segja má að varla líði svo sjónvarpskvöld að ekki sé þar einhverskonar kennslu- mynd í hnefarétti þar sem söguhetjurnar eru slags- málabullur, ökuníðingar og manndráparar sem eru jafn- vígir á hnúajárn og barefli. sem vel eru til þess fallin að limlesta og beinbrjóta fólk sem á ekki fyrir skuldum, og skotvopn, hnífa og sérhönn- uð eggvopn til að ræna og drepa saklausa vegfarendur þegar verið er að sýna hvernig á að standa vörð um réttlætið í skólpræsunum í Harlem, Bronx eða öðrum skuggahverfum stórborg- anna. ()g árangurinn leynir sér ekki því varla líður svo dag- ur — eða nótt — að eitthvert ólánsfólk, oft börn eða ungl- ingar. sé ekki að sannreyna ágæti manndrápstækjanna úr sjónvarpinu hvað á öðru eða til að ræna vegfarendur sem enn hætta sér útá götu í Reykjavík eftir að skyggja tekur. „Það læra börnin sem fyr- ir þeim er haft," var ein- hverntímann sagt og skálm- öldin í Reykjavík á sér svo sannarlega skýringu. Forskriftin er fengin beint úr sjónvarpinu. Svo einfait er það nú. Ég fór að hugsa um þetta þegar ég las í Tímanum um daginn, að vetrarstarf Kvennalistans hæfist á því að endurvakin yrði starf- semi „klámhópsins góða", einsog hann er kallaður. í greininni segir frá því að á sínum tíma hafi „klámhóp- urinn" svokallaði pantað klámmyndbönd gegnum DV og hafi kvennalistakonur boðið þingmönnum og fleir- um uppá kaffisopa og nota- lega kvöldstund meðan horft var á myndböndin. Og ekki stóð á viðbrögð- unum. Fólk lét heyra frá sér í stórum stíl og bar sig illa undan því að þegar líða tæki á vikuna þyrðu (oreldrar ekki að fara út og skilja börn- in ein eftir heima af ótta viö það að í kapalkerfum íbúð- arblokkanna yrði fariö að sjónvarpa myndum af fólki að gera do-do. Þetta gat að sjálfsögðu verið stórvarasamt, því eins- og áður segir læra börnin það sem fyrir þeim er haft. Ég er persónulega hlynnt- ur því að „klámhópur" Kvennalistans verði áfram með morgunfundi á laugar- dögum á Laugavegi 17, taki með sér prjónana og kíki á bláar spólur svona einsog til að rifja upp gamlar endur- minningar. Djarfar ástalífsmyndir eru auðvitað öðrum þræði kennslugögn um það hvern- ig viðhalda á lífinu á jörðinni í skrítnum stellingum. Ofbeldismyndir eru hins- vegar leiðbeiningar um það hvernig haganlegast sé að drepa fólk eftir kúnstarinnar regium. Þess vegna á að skera upp herör gegn ofbeldinu. Það verður auðvitað helst gert með því að sýna klám- myndir í sjónvarpinu á kvöldin svo börn og ofbeld- ismenn haldist inni en venjulegt fólk geti farið að heiman, eftir að skyggja tek- ur, án þess að eiga það vist að verða rænt, limlest eðal jafnvel drepið. Þeir sem heima sitja og horfa á klámspólur gera ekkert af sér á meðan og lík- legt er að áhrifamáttur sjón- varpsins yrði til þess að menn færu að gera do-do í staðinn fyrir að drepa fólk. Flosi Ólafsson

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.