Pressan - 10.10.1991, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR PRESSAN 10. OKTÓBER 1991
9
Rekstur Bjórhallarinnar stöövaöist 2. mai í vor þegar Fjárfestingarfólagiö eignaðist og seldi Borgarfossi eldhúsaöstóöu sem Bjórhöllin
hafði aðgang aö. Lögbann gegn innréttingu Bjórhallarinnar á nýrri eldhúsaðstöðu náði ekki fram að ganga.
Bjórhöllin er aöeins í þriðj-
ungi hússins sem Fjárfest-
ingarfélagið eignaðist og
Borgarfoss síðar. Engin til-
raun hefur veriö gerð til að
nýta þann hluta Bjórhallar-
innar þar sem veitinga-
rekstur var ekki.
að hafa tekið rafmagnið aftur af og
skipt um lása.
LÖGBANNIGEGN INNRÉTTINGU
ELDHÚSS HAFNAÐ
17. maí féll úrskurður í lögbanns-
málinu. Banninu var hafnað og vís-
að í leigusamninginn og bent á að
nýir eigendur hefðu yfirtekið rétt-
indi og skyldur.
Daginn eftir var lögregian enn
kvödd til og að þessu sinni voru
Borgarfossmenn sakaðir um að hafa
stolið tveimur varnarútidyrahurð-
um. 21. maí fór Guðjón í innsetning-
armál vegna hefts aðgangs að
sturtuklefa og fékkst því breytt án
úrskurðar. 26. maí kom nýtt inn-
setningarmál og krafist var afhend-
ingar varnarútidyrahurðanna.
Tveimur dögum síðar er lögreglan
enn kvödd á vettvang og Borgar-
fossmenn sakaðir um innbrot, fyrir
að hafa skorið ýmsar leiðslur og
fjarlægt kælihurð. Enn tveimurdög-
um síðar skipta Borgarfossmenn um
lás á ræstiklefa.
31. maí voru teikningar vegna eld-
húss Bjórhallarinnar samþykktar af
byggingarnefnd Reykjavíkur. Viku
síðar ritar lögmáður Bjórhaliarinn-
ar Tryggua Púlssyni, stjórnarfor-
manni Fjárfestingarfélagsins, bréf
þar sem hann bendir sérstaklega á,
að þegar félagið seidi Borgarfossi
eignina hafi það ekki virt forkaups-
rétt Bjórhallarinnar og var áskilinn
réttur til skaðabóta vegna þessa.
12. júní var kveðinn upp fógetaúr-
skurður um að Borgarfossmenn
skyldu afhenda Bjórhöllinni varnar-
útidyrahurðirnar.
FÓGETI BAÐ LÖGREGLUNA
AÐ SÆKJA HREIÐAR
3. júlí gaf Helga Jóna Benedikts-
dóttir hjá borgarfógeta út þá fyrir-
skipun að lögreglan skyldi færa
Hreiðar fyrir fógetarétt vegna úr-
skurðar í hurðamálinu. Hurðirnar
voru afhentar daginn eftir, en þann
sama dag kom Guðjón að starfs-
mönnum Borgarfoss þar sem þeir
voru að rífa í sundur salerni í sam-
eign hússins.
8. júlí var útburðarkröfu Borgar-
foss hafnað. Borgarfoss hóf þá nýja
hrinu leigurukkana og 6. ágúst var
leigusamningnum rift. Daginn eftir
fór Borgarfoss enn í útburðarmál.
Guðjón Pálsson brá þá á það ráð að
fá löggilta úttektarmenn félags-
málaráðuneytisins til að skoða hús-
næðið og svara m.a. því, hvort eðli-
legt gæti talist að leiga væri greidd
„á sama tíma og forsvarsmenn
Borgarfoss hf. framkvæma stórfelld
skemmdarverk og stöðvi rekstur
fyrirtækisins". Matsmennirnir kom-
ust að þeirri niðurstöðu að Bjórhöll-
in ætti ekki að greiða húsaleigu „frá
því að reksturinn stöðvaðist og þar
til að leigusali hefur bætt úr þeim
annmörkum sem fyrir eru".
Verði þetta mat lagt til grundvall-
ar á Bjórhöllin að vera leigulaus frá
2. maí. Heildarleigan frá maí til og
með október er rif lega tvær milljón-
ir króna.
HREIÐAR GJALDÞROTA OG
SMIÐJUKAFFI í
UPPBOÐSMEÐF ERÐ
10. september var útburðarkröfu
Borgarfoss hafnað á ný af fógeta-
rétti. Forsendan var hin sama og í
fyrra málinu: Riftunarfresturinn var
liðinn.
Síðan hefur Guðjón farið i þrjú
innsetningarmál sem ekki hefur
enn verið úrskurðað í. Borgarfoss-
menn eru sagðir hafa skipt um lás í
ræstigeymslu, fjarlægt 7 fataskápa
og innsetningarmál var höfðað til
að fá aftur kælihurð sem tekin var í
vor.
9. september sl. var bú Hreiðars
Svavarssonar tekið til gjaldþrota-
skipta. í gær átti síðan að fara fram
uppboð á Smiðjuvegi 14 í Kópavogi,
austur- og vesturhluta. í húsinu eru
Smiðjukaffi/Pizzusmiðjan og er
fasteignin í eigu Sverris, Smára og
Arndisar Hreiöarsbarna. Fyrir
Hæstarétti er ennfremur áfrýjað
uppboð á einbýlishúsinu Háholti 3 í
Garðabæ í eigu Hreiðars. Höfuðstóll
veðskulda sem hvíla á því húsi er
57,5 milljónir króna að núvirði, en
brunabótamat þess er 31,8 milljónir.
Nokkur hluti veðskuldanna er
vegna fjárnáma og lögtaka, en 42
milljónir vegna skuldar við Grétar
Haraldsson, lögmann Borgarfoss.
Fjárfestingarfélagið neitaði að
upplýsa PRESSUNA um einstök efn-
isatriði málsins í Ijósi trúnaðar-
skyldu. Hins vegar upplýsti Einar
Sigurjónsson, lögfræðingur félags-
ins, að tilboð hefði komið í fasteign-
ina „miðað við að ákveðið fyrirtæki
yrði stofnað til að reka fasteignina.
Kaupandi lagði fram tryggingar og
hefur að öllu leyti staðið við gerðan
samning. Leigusamningi fyrrver-
andi eigenda við Bjórhöllina hf. var
mótmælt sem löglausum á upp-
boðsþingi og málið er nú rekið fyrir
hæstarétti".
Gudjón Pálsson
GRÓFT SAMSÆRI UNDIR STJÓRN GRÉTARS
Guðjón Pálsson segir að um
gróft samsæri hafi verið að ræða
af hendi Fjárfestingarfélagsins,
Hreiðars og Grétars. „Það var skil-
yrði Borgarfoss við kaupin að
rekstur Bjórhallarinnar fylgdi
með. Ég bauð þessum aðilum að
yfirtaka reksturinn á kostnaðar-
verði, sem í dag er um 25 milljónir
króna, en því var hafnað. Þeir
keyptu þá eldhúshlutann til að
stöðva okkur, kærðu okkur og
húsinu var lokað. Ég lít svo á, að
sölusamningurinn við Borgarfoss
hafi verið málamyndagerningur.
Honum hafi átt að rifta, þannig að
Borgarfoss fengi rekstur Bjórhall-
arinnar en Fjárfestingarfélagið
húsið aftur. Hinir eignalausu
menn í Borgarfossi geta aldrei
borgað þessar 100 milljónir. Þeir
hafa mótmælt leigusamningnum
til Bjórhallarinnar, en hafa þó ekki
farið í riftunarmál. Staðreyndin er
sú að sambýliskona mín á aðeins
20 prósent í Bjórhöllinni og hinir
eru allir óskyldir aðilar."
Guðjón bætti við að hann væri
hluthafi í Fjárfestingarfélaginu og
fyndist alvarlegt að félagið hefði
ekki greitt af þeim lánum sem
hann fékk en félagið yfirtók við
uppboðið. „Félagið er komið með
22 milljóna króna vanskil vegna
þessa og nær allt komið í lögfræði-
lega innheimtu."
Guðjón Pélsson, framkvæmda-
stjórí Bjórhallarínnar. Átti húseign-
ina og gerói leigusamning vió Bjór-
höllina rétt fyrir uppboð. „Sambýl-
iskona mín á aðeins 20 prósent i
Bjórhöllinni."
Friðrik Þór Guömundsson
Barátta þeirra Margrétar Frí-
mannsdóttur og Svavars Gests-
sonar um þingflokksformanns-
embættið hefur vak-
ið nokkra athygli. Er
til þess tekið hve fast
Svavar, sem er fyrr-
verandi ráðherra og
formaður flokksins,
sækir útnefninguna.
Hefur verið bent á
að hann eigi í svipaðri tilvistar-
kreppu og Alþýðubandalagið sjálft.
Eftir að hafa verið áberandi í fjöl-
miðlum er hann allt í einu orðinn
áhrifalaus óbreyttur þingmaður. Til
að breyta því sækist hann eftir út-
nefningunni...
1T JLeirihluti bæjarraðs Kopavogs
hefur ákveðið að ráða Ólaf Briem
hagfræðing í stöðu bæjarritara og
framkvæmdastjóra
stjórnsýslu- og fjár-
málasviðs. Ólafur er
tæplega þrítugur og
hefur starfað í pen-
ingamáladeild
Seðlabankans í tæp
þrjú ár. Ekki gekk
ráðningin þó mótmælalaust fyrir
sig. Fulltrúar minnihlutans, Guó-
mundur Oddsson og Valþór
Hlöðverason, lögðu til að starfið
yrði auglýst, en það felldu meiri-
hlutamennirnir GuAni Stefánason,
Birna FriAriksdóttir og SigurAur
Geirdal bæjarstjóri. Ólafur tekur
því brátt við embætti nafna síns Ól-
afs Hilmara Sverrissonar, sem
verður bæjarstjóri Stykkishólms ...
H
Lraðfrystihús Stokkseyrar hef-
ur náð að greiða skuldunautum sín-
um samkvæmt nauðarsamningum
sem samþykktir
voru í júní í sumar.
Kröfur á hendur
frystihúsinu voru
146 milljónir króna,
en með nauðar-
samningunum
þurfti fyrirtækið að-
eins að greiða einn fjórða skuld-
anna, eða 37 milljónir. Meðal kröfu-
hafa var ríkissjóður, með 44 millj-
óna króna kröfu. Krafan var vegna
skatta sem teknir höfðu verið af
starfsfólki Hraðfrystihússins. FriA-
rik Sophusson fjármálaráðherra
féllst á að gefa eftir 33 milljónir
króna. Það er fordæmislaust með
öllu að ríkissjóður gefi eftir skuld
sem þessa . . .
*
I ágústlok voru 20 mánuðir liðnir
frá bankasameiningunni miklu í ís-
landsbanka og á tímabilinu rann
Samvinnubankinn inn í Lands-
banka. Þótt sameiningu þessari hafi
átt að fylgja hagræðing blasir við að
það er Búnaðarbankinn sem hefur
aukið markaðshlutdeild sína á
kostnaö annarra. í innlánum hefur
hlutur Búnaðarbankans aukist úr
20% í 21,3% og eru sparisjóðir þá
inni í dæminu. Hlutdeild Lands-
bankans hefur á sama tíma lækkað
um svipað hlutfall. í útlánum eru
það hins vegar sparisjóðirnir sem
hafa aukið hlut sinn úr 12,3% í
14,9% á sama tíma og hlutur Lands-
bankans hefur lækkað úr 48,5% í
45,3%. Þegar á heildina er litið má
hins vegar segja að furðanlega lítið
hafi breyst hvað innbyrðis markaðs-
hlutdeild varðar...