Pressan - 10.10.1991, Page 28
28
FIMMTUDAGUR PRESSAN 10. OKTÓBER 1991
Steingrímur Jóhann Jón Þorsteinn Árni Hermanns-, Ársæls-,
Jóns-, Páls- og Árnason.
HVAÐA ÞINGBLÓK
ER NU ÞETTA?
FRAMURAKSTUR
BANNAÐUR VIÐ
EFSTALEITI, SÍRA
* er með
ólíkindum
— Við sögðum frá því
hér í síðustu viku aö á
nýlegum fundi félags-
málaráðs borgarinnar
hefði Guörún Át’ústsdállir
gerst herská og greitt at-
kvæöi gegn umsóknum
„Fimmunnar" i Hafnar-
stræti, Nl bars við Klapp-
arstíg og Hressó um vín-
veitingaleyfi. ()g Guðrún
hélt uppteknum hætti á
næsta fundi, greiddi at-
kvæði gegn umsóknum
Duus-húss, L.A. Café og
Glaumbars. Allt kom fyrir
ekki . . .
— Sjaldan fellur epliö
langt frá eikinni. A nýaf-
stöðnum aöalfundi Félags
ungra jafnaöarmanna í
Reykjavik var Steindór
Karvelsson endurkjörinn
formaður, en hann er
sonur Karuets Púlniason-
ar. Meðstjórnandi var
kjörin Siifrtöur llirnu
Amundadóltir, dóttir
Amunda Anumdusonar.
()g í eina af nefndum fé-
lagsins f(>r Kjarlan Kinil
Sifiurösson, sonur Sifíurö-
ar E. (iiiömuiidssonar,
fyrrum borgarfulltrúa
krata. I>á hefur nokkuö
komið við sögu ungkrata
Þorbjörn Jónsson, sonur
Jóns Siftiirössonar ráð-
herra . . .
— I.íklega hefur nýtt
met veriö slegið i Lög-
birtingablaöinu frá I!. okt-
óber. I’ar er sagt frá úr-
skuröum skiptaréttar
Reykjavíkur um að taka
alls 22 fyrirtæki og 77
einstaklinga til gjald-
|)rolameðferðar. Holskefl-
an mun til komin vegna
breytingar þeirrar að |>eir
sem krefjast gjaldþrots
einhvers þurfa að leggja
frani 1.7(1 þúsund króna
tryggingu .. .
HEIMUR
VERSNANDI FER
Rannsóknarlögretjla ríkis-
ins hefur gefid úl sína fyrslu
ársskýrslu. ,,A lidnum úrum
hefur ofl sladid lil ad gefa út
úrsskýrslu RLR en af ýmsum
ústædum, sem ekki uerda
raktar hér, er þad fyrst nú,
fyrir áriö 1990, ad hún lítur
dagsins Ijós," segir Bogi Nils-
sort rannsóknarlögreglustjóri
í formála skýrslunnar.
Hér koma örfáir punktar úr
skýrslunni: .áberandi
aukning á kærum vegna fals-
aðra skuldabréfa á árunum
1989 og 1990 ... veruleg
aukning frá árinu 1988 á kær-
um vegna innstæðulausra
tékka . . . mikil aukning hef-
ur orðið á kærum vegna ætl-
aðra svika í viðskiptum
fólks . . . kom fram mjög auk-
in tíðni innbrota og þjófnaðar
úr bifreiðum í upphafi árs-
ins . . . tekin voru fingraför
og Ijósmyndir af 136 afbrota-
mönnum sem ekki höfðu áð-
ur komið við sögu."
F3nn lítill sólargeisli fannst:
....verulega dró úr notkun
stolinna greiðslukorta."
()g líf RLR-manna er sem
betur fer ekki bara svartnætt-
isböl: „Yfir vetrarmánuðina
er stunduð innanhússknatt-
spyrna og keppt á tveimur
mótum á vegum lögreglu-
manna. I>á er einnig stundað
pílukast (dart) og skák. Yfir
sumarmánuðina stunda
margir starfsmenn RI.R
golf. . ."
Kápa Alþingistídinda er
skreytt med medfylgjandi
tnynd (höfundur er ekki get-
iö). Hún sýnir ótiltekinn þing-
mann í rwdupúlti og hunn er
uf einhverri dularfullri
ástœöu andlitslaus. En huer
er madurinn?
Augljóslega er þingmaður-
inn karlkyns. Þetta virðist
vera þingmaður í yngri kant-
inum, grannur með dökkt,
þykkt hár, skipt til hægri frá
áhorfanda séð. Augljóslega
koma því ekki margir til
greina nema reynt sé að fegra
ímynd einhverra.
Til að fá úr því skorið hvaða
þingmaður þetta gæti helst
verið var efnt til skoðana-
könnunar meðal starfs-
manna PRESSUNNAR. 14
tóku afstöðu. Steingrímur
Hermannsson fékk 3 atkvæði
og Jóhann Ársœlsson 2 at-
kvæði og að auki sagði 1 að
þetta væri bræðingur úr
þeim báðum. 2 nefndu Þor-
stein Pálsson, 2 Jón Sigurds-
son og 2 Árna Ragnar Árna-
son. 1 atkvæði fengu Sighvut-
ur Björgvinsson og Fridrik
Sophusson. Eitt er að
minnsta kosti Ijóst. Þetta er
ekki hann Davíð.
Síra Heimir Steinsson er
tekinn viö stööu útvarps-
stjóra og svo háttar til aö þaö
t’erisl þegur hann var um þuö
bil aö fara uö halda upp á aö
10 ár voru liöin frá því hanri
var skipaöur þjóögarösprest-
ur á Þingvöllum.
Þá skákaði hann þremur
kollegum sínum í baráttunni
um embættið og aftur er
embættisveiting til síra Heim-
is mannafellir; þrír hafa sagt
sig úr útvarpsráði vegna þess
að hann var tekinn framyfir
Irigu Jónu Þóröardóttur.
Menntamálaráðherrann
þekkir vel til sfra Heimis, Ól-
afur G. Einarsson situr enda í
Þingvallanefnd og hefur sjálf-
sagt oft komið austur í kaffi.
Hitt er annað mál hvort Ól-
afur réð réttan mann, miðað
við að nú skal skorið og spar-
að, ef ekki selt. 1982, á fyrsta
embættisárinu hjá síra Heimi
við rekstur þjóðgarðsins,
Þingvallabæjar og Þingvalla-
nefndar, fór hann 248% fram-
úr fjárlögum, 1983 fór hann
191% framúr, 1984 til 1986
fór hann að meðaltali 52%
framúr, en loks eftir 1987 var
framúraksturinn undir 20%.
lðulega var framúrakstri í
rekstri mætt með miklum
niðurskurði á framlögum til
stofnkostnaðar og/eða við-
halds. En það er auðvitað sitt-
hvað, menningarsetrið við
Efstaleiti og á Þingvöllum.
KYNLÍF
Tídaverkir
Hver hefur ekki heyrt
fleygt i samhandi við upp-
stökkar konur; „hún lætur
svona af því hún er að hyrja
á þessu mánaðarlega" eða
„hún er svo slöpp af því
hún er á túr"? I fyrri at-
hugasemdinni er átt við
fyrirtíðaspennu og tíða-
verki í þeirri seinni. A síð-
ustu áratugum hafa konur
fengið uppreisn æru —
sársauki tengdur tíða-
hringnum er ekki hara
ímyndun heldur raunveru-
legt fyrirbæri. Læknisrann-
sóknir hafa staðfest það
sem konur hafa vitað alla
tíð — að tíðaverkir ættu sér
fyrst og fremst likamlegar
orsakir.
Konur eru heillandi við-
fangsefni og þvi til sönnun-
ar má nefna að heil fræði-
grein innan læknavísind-
anna er helguð þeim —
kvensjúkdómafræðin.
Læknisfræðin hefur hins
vegar ekki alltaf þótt hafa
nægan skilning á kvenleg-
um reynsluheimi. Til dæm-
is gáfu læknar á endur-
reisnartímabilinu orðinu
„hysteria" (leg) nýja merk-
ingu. Til að útskýra kven-
sjúkdóma hjuggu þeir til
kenningu um að legið gæti
stundum losnað úr stað,
farið á flakk um líkamann
og valdið því að konan
missti gjörsamlega vald á
hegðun sinni og sálarró.
Enn í dag tölum við um að
þessi og hinn sé „móður-
sjúkur" (hysterískur).
Það er engin nýlunda eða
vestræn nútímauppfinning
að konur geti fundið til á
meðan þær eru á túr. Á töfl-
um frá Nippur (3000 árum
fyrir kristsburð) má sjá
þessa setningu: „Konu-
verkur hefur yfirtekið lík-
ama minn. Látið guðina
rífa þennan sársauka
hurtu." Talið er að um þrjá-
tíu og fimmtíu prósent allra
kvenna fái sársaukafulla
legkrampa (dysmenorrhea)
meðan tíðir standa yfir. Um
tíundi hluti þeirra sem
finna til þjáist það mikið að
hann er nær óvinnufær í
einn til tvo daga í hverjum
mánuði. Kinkennin eru
mismikil svo sem bakverk-
ur, sár bylgjuverkur í neð-
anverðum kvið og innan-
verðum lærum, ógleði, nið-
urgangur eða hægða-
tregða, höfuðverkur, svimi
og jafnvel yfirlið. Svo virð-
ist sem dragi úr tíðaverkj-
um eftir að konur ná þrjátíu
ára aldri.
Hvers vegna finna konur
svona til í móðurlífinu? Til
að skilja það er nauðsyn-
legt að hafa lágmarksþekk-
ingu á tíðahringnum. I byrj-
un tíðahrings framleiðir lík-
aminn hormón sem veldur
því að eitt egg. af mörgum
þúsunda eggja sem geymd
eru í eggjastokkunum, byrj-
ar að þroskast. Á sjöunda til
fjórtánda degi eykst estró-
genframleiðsla, en það hor-
món örvar uppbyggingu
legslímhúðar svo legið geti
tekið á móti frjóvguðu eggi.
Egglos verður um það bil
fjórtán dögum eftir fyrsta
dag blæðinga. Þroskað
eggið kveður bernsku-
heimili sitt (eggjastokkinn)
og ferðast með neðanjarð-
arlestinni (eggjaleiðurun-
um) niður til blómlegra
haga (legslímhúðarinnar).
Á sama tíma eykst prógest-
erónhormónaframleiðsla,
sem enn frekar undirbýr
legið fyrir hugsanlegan
samruna sáðfrumu og
eggs. Ef sá atburður verður
ekki brotnar legslímhúðin
niður á tuttugasta og átt-
unda degi (blæðingar hefj-
ast) og ný hringrás hefst.
Talið er að þetta hor-
mónasamspil líkamans og
efnahópur er nefnist pro-
staglandín hafi áhrif á hvort
og hversu alvarlegir tíða-
verkirnir verða. Prosta-
glandín örva meðal annars
samdrátt sléttra vöðva-
fruma í legi og meltingar-
vegi og draga saman blóð-
æðar. Offramleiðsla prosta-
glandína er talin valda
slæmum tíðaverkjum.
Framleiðsla á prostagland-
ínum eykst í lok tíðahrings
og nær hámarki við tíðir.
Ýmislegt fleira getur haft
áhrif á verki við tíðir, svo
. . konuverkur
hefur yfirtekið
líkama minn.
Látið guðina rífa
þennan sársauka
burtu“
sem lykkjan, túrtappar.
sveppasýking eða blöðru-
bólga.
Eins og áður sagði fá
sumar konur svo slæma
tíðaverki að þær þurfa að
leggjast í rúmið. Aukin
hreyfing, til dæmis röskur
göngutúr, getur létt á túr-
verkjum og aukið blóð-
flæði til grindarbotnslíffær-
anna getur líka hjálpað.
Margar kannast líka við að
leggja hitapoka á kviðinn í
því skyni eða fara í heitt
bað — nú og svo má ekki
gleyma því að kynferðisleg
örvun eykur líka blóðflæð-
ið til innri kynfæra (huggu-
legra læknisráð er vand-
fundið)! Sumar mæla með
nuddi eða jurtatei, svo sem
hindberja- og kamillutei.
Meðganga og fæðing virð-
ast stundum draga úr tíða-
verkjum. Komi sjálfshjálp
ekki að notum er hægt að
leita læknis. Ýmis lyf, til
dæmis prostaglandín eða
getnaðarvarnarpillan, geta
dregið úr tíðaverkjum.
Brottnám legs verður að
teljast algjört neyðarúrræði
og er venjulega ekki mælt
með því nema um sé að
ræða mjög alvarlegt tilfelli
tíðaverks og þá vegna ein-
hverra sjúkdóma.
Spyrjió Jónu um kynlífið. Utanáskríft: Kynlíf c/o PfíESSAN, Hverfisgötu 8-10, 101 Reykjavík