Pressan - 28.11.1991, Page 9
FIMMTUDAGUR PRESSAN 28. NÓVEMBER 1991
9
fengu skell þar," sagði Astþór Ág-
ústsson, oddviti i Nauteyrarhreppi,
þegar hann minntist „atvinnuævin-
týra“ Byggðastofnunar. — En hvað
skyldi hann segja um þetta nýjasta
dæmi sem birtist í íslaxi? „Þetta
varð minni atvinnurekandi en við
gerðum okkur vonir um. Það varð
ekki eins mikil atvinnusköpun af
þessu og við bjuggumst við."
Sömuleiðis var Ástþór spurður
hvort hann gæti séð fyrir sér að
öðru vísi lánafyrirgreiðsla í nafni
byggðastefnu hefði nýst byggðarlag-
inu betur: „Ef Byggðastofnun hefði
verið tilbúin að hjálpa þessum hefð-
bundna landbúnaði á svæðinu í
sama mæli, til dæmis með kvóta-
kaupum í sauðfjárrækt, þá hugsa ég
að við stæðum betur eftir núna,"
sagði oddviti hreppsins sem fékk
120 milljónir í byggðaraðstoð.
SJÓÐIRNIR BORGUÐU TÆPAR
4 MILLJÓNIR MEÐ HVERJU
STARFI HJÁ FREYJU
Umdeildasta sjávarútvegsfyrir-
tæki sem komist hefur á framfæri
sjóðanna er án efa Fiskiðjan Freyja
á Suðureyri við Súgandafjörð. Síð-
ustu árin hefur fyrirtækið Hlaðsvík
verið þar innanborðs.
Þrátt fyrir ítrekaðar og viðvarandi
björgunaraðgerðir hefur aldrei tek-
ist að koma fótum undir fyrirtækið
og nú hefur Byggðastofnun gert
endanlega tilraun til að losa sig við
fyrirtækið með því að selja það ís-
firðingum. Áður var búið að verja
gífurlegum fjárhæðum til fyrirtæk-
isins. Fjárhagsleg „endurskipulagn-
ing" Freyju nær aftur til 1979 en
þegar upp var staðið hafði fyrirtæk-
ið fengið 189,1 milljón króna frá
Byggðastofnun á verðlagi dagsins í
dag. Frá Hlutafjársjóði fékk Freyja
103,7 milljónir og frá Atvinnutrygg-
ingasjóði útflutningsgreina, sem nú
er deild í Byggðastofnun, fékk
Freyja/Hlaðsvík 111,2 milljónir.
F
A ra og með áramotum verður
skipað í embætti nýs hæstaréttar-
dómara þar sem Bjarni K. Bjarna-
son hefur beðið um lausn frá emb-
ætti, en hann er að ná 65 ára aldri.
Þegar eru uppi vangaveltur um lík-
legan arftaka hans og eru þar helst
nefnd nöfn eins og Garðar Gísla-
son borgardómari og einnig er talið
hugsanlegt að starfssystir hans,
Auður Þorbergsdóttir borgar-
dómari, sæki um, en þau hafa bæði
sótt um áður ...
MT að hefur mikið verið rætt um
menningarfulltrúann okkar í Lond-
on, Jakob Frímann Magnússon,
og landkynningar
hans. Nýlega var á
rás 2 hjá BBC þáttur
sem heitir „Behind
the Headlines". í
þættinum í síðustu
viku voru íslenskir
gestir. Viðtöl voru
við hjónin Jakob Frímann Magnús-
son og Ragnhildi Gísladóttur.
Eins voru viðtöl við söngvarana
Sverri Guðjónsson og Helga
Björnsson. Þau fjögur buðu upp á
harðfisk og íslenskt vatn og sungu
saman „Land míns föður, landið
mitt“. Eftir viðtölin spilaði hljóm-
sveitin Síðan skein sól...
Guðmundur Malmquist, forstjóri Byggðastofnunar
„Auðvitað hefði venið
betra að byrja aldrei11
— Er Miklataxdœmiö byggda-
stefna eins og þid viljid hafa hana?
„Nei, en nú held ég að við verðum
að bakka aðeins. Kveikjan að því að
við fórum að tala um seiðaeldisstöð
þarna í Fljótunum var sú að það var
samdráttur í sauðfjárræktinni. Það
var verið að leita leiða til að skapa
aðra atvinnu og á sama tíma voru
væntingar til seiðaeldis á íslandi.
Þetta gekk hins vegar mun verr og
markaðurinn hrundi. Þá stóðum við
frammi fyrir ákvörðun um það
hvort þessu yrði bara lokað eða
byggja matfiskeldisstöð, sem stóð
aldrei til í byrjun. Þá kom til ákvörð-
un stjórnvalda um 800 milljóna
króna fyrirgreiðslu i sambandi við
matfiskeldi. Þá ferðuðust um
Reykjanesið erlendir fjárfestingar-
aðilar sem vildu fjárfesta og þú get-
ur rétt ímyndað þér hvort menn
vildu ekki reyna að efla veika byggð
ef hægt væri. Það var ákveðið að
fara af stað í þessu og framhaldið
kanntu. Auðvitað hefði verið best
að byrja aldrei ef menn líta á sviðið
í dag.“
— En ef viö tölum um bœdi Mikla-
lax og Silfurstjörnuna í einu, sem
eru stœrstu skuldarar Byggdastofn-
unar; finnst ykkur eins og þið séud
í sjálfheldu með þessi fyrirtœki?
„Ég lít á Miklalaxmálið sem
stærsta og mesta fjárhagsvandamál
Byggðastofnunar og ég hef líka sagt
að við séum að vissu leyti í sjálf-
heldu með þetta. Við stóðum
frammi fyrir því fyrir meira en ári að
það var ekki nægur hiti í stöðinni og
þá var annaðhvort að loka henni
eða eins og heimamenn vildu — og
varð ofan á — eða halda áfram.“
• — ínýlegu gjaldþroti íslax í Naut-
eyrorhreppi er stofnunin med 120
milljóna króna kröfu vegna þriggja
ársverka. Er þetta sú byggdastefna
sem þid viljið?
„Ymsir fiskverkendur og útgerð-
armenn á Vestfjörðum fóru af stað í
þetta meðal annars til að nýta fisk-
verkun sína betur. Ef stöðin hefði
komist upp hefði hún auðvitað
styrkt byggðina geipilega, því það
búa þarna ekki margir. Þetta er í
raun sama atburðarás og hjá Mikla-
laxi.“
— Nú eruö þiö aö losa ykkur viö
Freyjuna, sem hefur kostaö Byggöa-
stofnun mikiö. Samt tókst ykkur
ekki aö verja byggöina?
„Freyja var fyrst og fremst þungt
dæmi fyrir ríkið og Útvegsbankann,
en ég held ég fari með það rétt að
Byggðastofnun sem slík hefur ekki
tapað fjármunum á Freyju. Þetta er
spurning um kvóta og einhæfni
byggðarlagsins."
Samtals gerir þetta 404 milljónir
króna en 1989 voru skuldir Freyju
við Byggðastofnun felldar riiður
sem svaraði 145 milljónum. Þegar
síðan annarri fyrir greiðslu opinberra
sjóða við Suðureyri er bætt við
verður upphæðin um 600 milljónir
króna.
í fyrirtækinu Freyju/Hlaðsvík eru
um 100 ársverk þegar það er rekið
á fullum afköstum. Það má því segja
að opinberir sjóðir hafi greitt um 4
milljónir króna með hverju ársverki
í fyrirtækinu. Þrátt fyrir að upphæð-
in væri greidd á nokkuð löngum
tíma hefur megnið af henni komið
til greiðslu á allra síðustu árum.
Þá er spurnig hvort þessi fyrir-
greiðsla hefur orðið til þess að verja
byggðina á Suðureyri. Svo virðist
ekki vera því íbúum hefur fækkað
stöðugt og var þá ekki séð fyrir
röskunin undanfarið. íbúar á Suður-
eyri voru flestir 1978 eða 526. Nú
eru þeir hins vegar 365 — eða 161
færri en þegar best lét. Það er tæp-
lega 33 prósenta fækkun.
Sigurður Már Jónsson
*
Iþróttafélag Kópavogs, ÍK, hefur
verið úrskurðað gjaldþrota. Ríkisút-
varpið fór fram á gjaldþrotið í lok
síðasta mánaðar vegna rúmlega
100 þúsund króna skuldar, sem inn-
heimtudeild RÚV var búin að reyna
að ná inn í rúmt ár án árangurs,
enda skuldaði 1K rúmar 8 milljónir.
Sigurjón Sigurðsson, formaður
ÍK, batt vonir við að félaginu tækist
að semja sig út úr vandanum og var
þegar búinn að semja við um helm-
ing lánardrottna og fá einnar millj-
ónar króna styrk til að ganga frá
lausaskuldum þegar málin strönd-
uðu á þeim tveimur milljónum sem
eftir voru . . .
I-landsleikur íslendinga og
Frakka var sýndur í Eurosport fyrir
réttri viku, daginn eftir að leikurinn
var leikinn. Þulur
sjónvarpsstöðvar-
innar fór fögrum
orðum um frammi-
stöðu Birkis Krist-
inssonar mark-
varðar og eins þótti
mark Eyjólfs
Sverrissonar glæsilegt. . .
MT að eru ekki alltaf háar skuldir
sem verða til þess að eignir eru aug-
lýstar á nauðungaruppboðum. Hér
koma nokkur dæmi úr síðasta Lög-
birtingablaði, sem öll eiga það sam-
eiginlegt að vera úr Garðinum.
Lægsta krafan er 4.010 krónur, sú
næstlægsta er 4.585 og sú þriðja er
11.650 krónur auk vaxta og kostn-
aðar...