Pressan


Pressan - 28.11.1991, Qupperneq 10

Pressan - 28.11.1991, Qupperneq 10
10. FIMMTUDAGUR PRESSAN 28. NÓVEMBER 1991 VIGDÍS DRÓÚR UTANFERDUM Samkvæmt skoðanakönnun SKÁÍS eru landsmenn á því að forsetinn eigi að ferðast til útlanda. Sem kunnugt er var fjallað lítillega um ferðir Vigdísar Finn- bogadóttur til útlanda og annan kostnað við forsetaembættið í nokkrum blöðum í haust, meðal annars hér í PRESSUNNi. Þessar fréttir urðu til þess að ferðamálafrömuðir og forsvars- menn úlflutningsfyrirtækja skrifuðu í blöð greinar til stuðn- ings ferðum forsetans. Nú hefur SKÁÍS leitt í ljós að landsmenn vilja að forsetinn ferðist. Vigdís dró úr ferðum sínum um það leyti sem fréttirnar birt- ust. Meðal annars afboðaði hún komu sína á kvikmyndahátíð- ina í Lúbeck. í prentaðri dagskrá hátíðarinnar er getið um komu forsetans og meðal annars sagt að hún muni opna hátíð- ina. Af því varð ekki og hljóp sendiherra íslands í Þýskalandi í skarðið. í sömu ferð var fyrirhugað að Vigdís yrði viðstödd þegar Berlínar-útibú íslenska sendiráðsins í Bonn yrði opnað. Áf því varð ekki. GLEDIHÚSIÐ DERLÍN LOKAD VEGNA DEILNA Skemmtistaðurinn Berlín hefur verið lokaður undanfarið. Ástæðan er sögð vera breytingar, en það mun ekki vera skýr- ingin. Aðalástæðan er deilur sem upp eru komnar milli Bjarna Oskarssonar veitingamanns og Gísla Gíslasonar lögfræðings annars vegar og Pharmaco, fyrirtækis Werners Rasmussonar, hins vegar. Pharmaco er eigandi Berlínar og keypti staðinn af Bjarna og Gísla, kaupverðið mun hafa verið um fjórtán milljón- ir. Nú stendur jafnvel til að Gísli og Bjarni kaupi veitingahúsið aftur, en þeir eru ekki tilbúnir að greiða það sem Pharmaco setur upp. Pharmaco vill fá það sama fyrir reksturinn og fyrir- tækið greiddi á sínum tíma þeim Bjarna og Gísla, sem telja hins vegar Berlín ekki jafnverðmætan stað nú og þegar þeir seldu hann. Þeir telja staðinn hafa drabbast niður undir stjórn Sueins Úlfarssonar, sem rak hann fyrir Pharmaco. Því nást nú hvorki samningar um kaup né leigu og meðan svo er verður gleðihúsið Berlín lokað. r EINFALT GLER HJA NEMENDUNUM EN TVÖFALT HJÁ HESTUNUM Mikil ólga er meðal núverandi nemenda í Garðyrkjuskóla ríkisins í Ölfusi með ástand mála þar á bæ. Nemendur segja að nýlegt skólahús haldi hvorki vatni né vindi og rúður á vistum nemenda séu einfaldar en tvöfaldar í hesthúsum skólastjórans. Grétars Unnsteinssonar. Garðyrkjuskóiinn er fimmtíu ára gamall og fær nú úthlutað 50 milljónum króna á ári á fjárlögum og samt eru hvorki til nauðsynleg tæki né áhöld í skólanum fyrir nemendur. Lítið upplýsingastreymi virðist milli núverandi nemenda og þeirra sem útskrifaðir eru, því aðeins er tekið inn í skólann annað hvert ár og aðrir útskrifaðir á sama tíma. Meðalstarfsaldur kennara við skólann er tvö ár og þar kenn- ir fjöldi réttindalauss fólks. Skólastjórastaðan virðist ganga í erfðir, því núverandi skólastjóri tók við af föður sínum. Hann þykir einráður á Reykjum og vildi í sumar láta banna eiganda sumarbústaðar í nágrenninu að leggja rafmagn í hús sitt og hótar nemendum brottrekstri af minnsta tilefni. Stærstu tilraunagróðurhús landsins eru rekin við Garðyrkju- skólann og þar eru stundaðar umfangsmiklar rannsóknir. Gróðurhúsin eru algerlega lokuð nemendum og þeir fá aldrei að fara þangað inn fyrir dyr. Frá Keflavíkurflugvelli. Þar verður herdómstóll settur til að fylgja eftir máli sem embætti ríkissaksóknara taldi ekki ástæðu til að halda áfram með. NAIIBGUNARMALSINS Þrátt fyrir að ríkissaksóknari teldi ekki ástæðu til að ákæra hermennina þrjá sem kærðir voru fyrir að nauðga íslenskri konu á Keflavíkurflugvelli í september er málinu ekki lokið. Heryfirvöld hafa ákveðið að málið komi fyrir herrétt. Það er gert til að freista þess að leiða hið rétta í ljós. Herréttur mun fjalla um nauðgunarmálið sem getið var um í PRESSUNNI í síðustu viku. Samkvæmt heimildum PRESSUNNAR eru bandarísk heryfirvöld ekki sátt við málalok og hyggjast því rétta um málið og reyna með því að leiða hið sanna í ljós. Þetta hefur PRESSAN eftir áreiðan- legum heimildum. Tveir hermannanna þriggja, sem kærðir voru vegna nauðgunarinnar, hafa áður brotið gegn lögum hers- ins. í þeim tilfellum var um ölvunarbrot að ræða. Ákvörðun ríkissaksóknara um að ákæra ekki í málinu virðist því ekki ætla að verða endalok þessa máls, eins og allt útlit var fyrir. Samkvæmt heimildum PRESSUNNAR innan Varnar- liðsins hafa boð þegar verið látin ganga til málsaðila um að rannsókn vegna herdóm- stólsmeðferðarinnar hefjist innan skamms. Fridþór Ey- dal, blaðafulltrúi Varnarliðs- ins, sagðist ekki geta staðfest þetta að svo stöddu. BROTTREKSTUR ÚR HERNUM Heimildir PRESSUNNAR herma að ein aí ástæðum þess að Varnarliðið heldur málinu áfram sé sú að leita eigi leiða til að reka mennina úr hernum. Þar kemur fleira til en nauðgunarmálið. Tveir mannanna hafa áður komist í kast við herlög. í þeim tilfell- um var ekki um mjög alvar- leg brot að ræða, að minnsta kosti ekki á mælikvarða óbreyttra borgara. Mennirnir voru teknir ölvaðir við akst- ur. Innan hersins er það litið alvarlegum augum. Heimild- ir PRESSUNNAR segja að kæran ein geti orðið til þess að mennirnir verði gerðir brottrækir úr hernum. Þær alvarlegu sakir sem á mennina eru bornar í nauðg- unarkærunni kalla á að rétt- að verði málinu. Ekki hefði komið til þess hefði ríkissak- sóknari ákært mennina, þar sem ekki er hægt að dæma þá í tveimur dómstólum. Is- lensk lögsaga gildir á Kefla- vikurflugvelli og þess vegna er ekki hægt að skipa herrétt til að taka upp mál sem ís- lenskir dómstólar hafa tekið fyrir. Fyrir fáeinum árum stálu nokkrir hermenn þjóðfánum á 17. júní, bæði ísienskum og eins frá sendiráðum erlendra ríkja í Reykjavik. Fyrir það voru hermennirnir dæmdir í sekt hér á landi og þess vegna var ekki hægt að kalla þá fyr- ir herrétt. Ef það hefði verið gert er talið fullvíst að refsing þeirra hefði orðið mun harð- ari, þar sem slík brot eru litin alvarlegum augum innan hersins. „Þetta er fáránlegt. Þetta hljóta að vera mistök. Það er einkennilegt að dómstólar skuli ekki vera látnir fá mál sem þetta til meðferðar. Ég veit að yfirmenn á Keflavík- urflugvelli eru undrandi á þessari ákvörðun," sagði einn’ þeirra sem hafa kynnt sér málið. HERRÉTTIR Herréttir eru margskonar. Minniháttar mál eru afgreidd nánast með tiltali. Alvarlegri mál eru hins vegar tekin fyrir í formlegu réttarhaldi. Það mun verða gert í þessu máli. Ekki er hægt að fá staðfest hvort með fyrirhuguðu rétt- arhaldi eigi að leiða í ljós að um nauðgun hafi verið að ræða eða hermennirnir ein- ungis gerst brotlegir við her- reglur. Hitt er ljóst að yfirmenn mannanna þriggja eru ekki sáttir við þau málalok ríkis- saksóknara að halda málinu ekki áfram. Við réttarhöld herréttarins verður stuðst við þau gögn sem þegar liggja fyrir í mál- inu. EKKI HÆGT AÐ ÁKÆRA Egill Stephensen, fulltrúi ríkissaksóknara, sagði í sam- tali við PRESSUNA að ekki væri heimilt að ákæra í mál- um ef ekki væri útlit fyrir að til sakfellingar kæmi. Hann sagði svo vera í þessu máli og þess vegna hefði verið ákveð- ið að ákæra ekki. Egill sagði ennfremur að það hefði verið spurning um sönnun, þar sem annars veg- ar var framburður konunnar og hins vegar framburðir her- mannanna þriggja. Lögmaður konunnar hefur sagst vera undrandi á að mál- inu var ekki vísað til dóm- stóla. Konan sem kærði nauðg- unina er enn á geðsjúkrahúsi ' og hefur verið þar frá því at- burðirnir áttu sér stað, um 1 miðjan september. Atburðarás þessa máls var rakin í PRESSUNNI fyrir viku. Þar kom fram að talsvert ber á milli í framburði konunnar og hermannanna þriggja. Konan hefur allan tímann haldið sig við fyrsta framburð sinn en hermennirnir neit- uðu öllu í fyrstu. Eftir því sem meira var rætt við þá tóku þeir að segja hver annan hafa átt samfarir við konuna. Ekki liggja fyrir játningar um of- beldi. Fram hefur komið að kon- an átti samfarir við einn mannanna. Það var eftir að hinir mennirnir tveir nauðg- uðu henni, samkvæmt henn- ar framburði. ALVARLEGAR AFLEIÐINGAR Hvort sem konan eða her- mennirnir fara með rétt mál er greinilegt að það sem gerðist þann 9. september hefur haft mjög alvarlegar af- leiðingar. Konan hefur, eins og áður sagði, verið á geð- sjúkrahúsi frá þeim tíma. Hún hefur ekki áður þurft að leita sér aðstoðar vegna andlegra erfiðleika. PRESSAN hefur leitað til nokkurra aðila sem tengjast þessu máli. Flestir hafa lítið viljað um það tala. Það á við um lögmann konunnar, rann- sóknarlögregluna og fleiri. Þau gögn sem PRESSAN hef- ur undir höndum sýna að annaðhvort var um nauðgun að ræða, eins og konan held- ur fram, eða hópsamfarir. eins og hermennirnir segja. Sigurjón Magnús Egilsson

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.