Pressan


Pressan - 28.11.1991, Qupperneq 11

Pressan - 28.11.1991, Qupperneq 11
FIMMTUDAGUR PRESSAN 28. NÓVEMBER 1991 11 A m.uglýsingin á búningum körfu- knattleiksmanna Tindastóls frá Sauðárkróki hefur vakið nokkra at- hygli. Þar auglýsir nefnilega Geir- mundur Valtýs- son. Á búningunum stendur stórum stöf- um: Hljómsveit Geirmundar — skag- firska sveiflan. Þetta þykir nokkuð nýstárleg aðferð við að augiýsa hljómsveitir. Það skyldi þó aldrei fara svo að fleiri stórhljóm- sveitir tækju upp á því að auglýsa sig á þennan veg. Nú, bókaforlögin gætu líka athugað þetta sem leið til að auglýsa jólabækurnar ... Bú ð er að gera upp þrotabú Lækjarbrekku hf., sem áður rak samnefnt veitingahús undir fram- kvæmdastjórn núverandi rekstrar- aðila, Kolbrúnar Jóhannesdóttur í Móhúsum hf. Lækjarbrekka hf. var úrskurðað gjaldþrota í mars 1986. Andstætt því sem gengur og gerist í þessum bransa fengust vænar upp- hæðir upp í kröfur. Þannig tókst að greiða allar forgangskröfur upp á 2,2 milljónir og 2,6 milljónir upp í 14,5 milljóna almennar kröfur. Ekk- ert fékkst hins vegar upp í vexti og kostnað . . . * I grein í PRESSUNNI í dag er greint frá verulega auknum tekjum til kirkjumála undanfarin ár. í tölum fyrir yfirstandandi ár er þar gert ráð fyrir 434 milljóna króna ríkisframlagi, en nú er Ijóst að 2,8 milljóna króna aukafjárveiting rennur til embættis Biskups íslands. 1,4 milljónir eru vegna „vanáætlunar á launakostn- aði", 400 þúsund vegna viðhalds á Biskupsbústað og 1 milljón vegna heimsþings alkirkjuráðsins og kjörs Olafs Skúlasonar biskups í stjórn- arnefnd Lútherska heimssambands- ins . . . ^^^rator, félag laganema við Há- skóla íslands, verður með ókeypis lögfræðiaðstoð í vetur eins og und- anfarin ár. Þjónustan er rekin sím- leiðis. Hún takmarkast við það að laganemar geta ekki fylgt málum eftir, þar sem þeir hafa ekki heimild til að reka mál fyrir dómstólum. Auk þess að veita fólki ráð segja þeir því hvert það geti leitað, dugi ráð laga- nema ekki. .. B ú annars þekkts manns í veit- ingabransanum hefur verið gert upp. Kröfur í persónulegt þrotabú Skúla Hansen mat- reiðslumanns hljóð- uðu samtals upp á 43 milljónir, auk vaxta og kostnaðar, en ekkert fékkst upp í þær. Þá hefur þrotabú Tónabíós hf. verið gert upp. Almennar kröfur hljóðuðu upp á 45,5 milljónir og tókst að úthluta 6,5 milljónum til kröfuhafa ... M IT ieðal viðbótarheimilda i frumvarpi til fjáraukalaga fyrir yfir- standandi ár er 21 milljón króna til Ríkisspítalanna og 3 milljónir til sjúkra- húss Keflavíkur. Aukafjárveitingin til Keflavíkur er „vegna mjög sér- staks sjúkdómstil- fellis á árinu" og til Ríkisspítalanna „vegna tveggja sér- stakra sjúkdómstilfella á árinu", þar sem annað tilfellið kostaði 18 millj- ónir én hitt 3 milljónir. Ekki fæst uppgefið nánar hvers konar tilfelli hér eru á ferðinni, en í þeim öllum þurfti að grípa til fjárfrekra aðgerða til að bjarga lífi viðkomandi. Karl Steinar Guðnason, formaður fjár- laganefndar, tók fram í framsögu- ræðu um dýrasta tilfellið að um mjög sérstætt mál hefði verið að ræða sem vakti athygli langt út fyrir landsteinana . . . JL að er mikið á seyði hjá kvik- myndagerðarmönnum þessa dag- ana. Stutt- og heimildamyndahátíð- in „Leysingar" stendur yfir og í tengslum við hana heldur Félag kvikmyndagerðarmanna málþing á Hótel Sögu. Þar ræða íslenskir og erlendir gestir um þennan anga kvikmyndalistarinnar, siðfræði, fægurfræði og ekki síst dreifingu og fjármögnun, sem ýmsum virðist ætla að verða auðveldari þegar EES-samningarnir verða að veru- leika. Fyrirfram er búist við því að á imálþinginu verði skotið mikið og fast á ríkissjónvarpið, en kvik- myndagerðarmönnum þykir það standa sig hraksmánarlega í fram- leiðslu stuttmynda og raunveru- legra heimildamynda, en leggja í stað áherslu á gerð ódýrs sjónvarps- efnis sem krefst lítillar vinnu og íhugunar. Frummælandi sjónvarps- ins á málþinginu verður Pétur Guð- finnsson framkvæmdastjóri, en Sveinn Einarsson dagskrárstjóri er fjarri góðu gamni í útlöndum. Sagan segir að honum þyki ekkert verra að þurfa ekki að mæta reiði kvikmyndagerðarmanna... K aupmenn og verslunarfólk í Borgarnesi eru mjög ósátt við Verkalýðsfélag Borgarness þessa dagana. Ástæðan er sú að verka- lýðsfélágið leigði skóverksmiðjunni Strikinu frá Akureyri húsnæði undir stórútsölu á skóm. Útsalan stendur í tvo daga og hófst í gær. Verslunar- fólki finnst skjóta skökku við að verkalýðsfélagið greiði götu fjár- magns út úr bænum í stað þess að leggja áherslu á eflingu þjónustu innan heimabyggðar. Kaupmanna- samtök Vesturlands og Kaupfélag Borgfirðinga hafa mótmælt þessu harðlega og sent sýslumanni og bæjarstjórn meðal annarra mót- mælabréf. í Borgfirðingi 24. októ- ber er klausa eftir Jón Agnar Egg- ertsson þar sem hann átelur fyrir- tæki í Borgarnesi fyrir að leita eftir þjónustu utan við bæinn og leggur til að kannað verði í hve miklum mæli fyrirtækin versla í heima- byggð. Jón þessi er formaður Verka- lýðsfélags Borgarness ... JÓUJAPIS Hjá okkur í JAPIS getur þú fundið gott úrval hljómtækja stök eða í stæðum, lítil tæki og stór á þeim verðum sem henta þér. Verum hagsýn þessi jól og verslum í JAPIS. Panasonic S G H D 5 2 •Alsjálfvirkur plötuspilari •fullkominn geislaspilari •tvöfalt segulband •útvarp m/FM, MW, LW •magnari 180 w •7 banda tónjafnari m/minni •fallegir hátalarar í viðarkassa •fjarstýring. kr. 69.800 stgr. Panasonic S G H M 4 2 •hálfsjálfvirkur plötuspilari •fullkominn geislaspilari •tvöfalt segulband •útvarp m/FM, MW, LW •50 w. magnari •5 banda tónjafnari •fallegir hátalarar í viðarkassa •fjarstýring kr. 56.950 stgr. JAPIS Panasonic S G H M 2 2 •hálfsjálfvirkur plötuspilari •fullkominn geislaspilari •tvöfalt segulband •útvarp m/FM, MW, LW •20 w. magnari •5 banda tónjafnari •fallegir hátalarar í viðarkassa •fjarstýring kr. 49.970 stgr. BRAUTA RHOLTI 2 • KRINGLUNNISÍMI 625200

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.