Pressan - 28.11.1991, Blaðsíða 14
14
FIMMTUDAGUR PRESSAN 28. NÓVEMBER 1991
gmm
Útgefandi
Blað hf.
Framkvæmdastj óri
Hákon Hákonarson
Ritstjóri
Gunnar Smári Egilsson.
Ritstjórnarfulltrúi
Sigurjón M. Egilsson
Auglýsingastjóri
Hinrik Gunnar Hilmarsson.
Dreifingarstjóri
Steindór Karvelsson
Ritstjórn, skrifstofur og
auglýsingar: Hverfisgötu 8-10,
sími 62 13 13.
Faxnúmer: 62 70 19.
Eftlr lokun sklptlborös:
Ritstjórr 621391, dreifing 621395,
tæknideild 620055.
Áskriftargjald 600 kr. á mánuði.
Verð 1 lausasölu 190 kr. eintakið.
Dellan í
Byggdastofnun
í PRESSUNNI í dag er meðal
annars fjallað um Byggðastofn-
un. 1 frétt blaðsins kemur fram
að stofnunin hefur varið ótrúleg-
um fjármunum til að skapa örfá
ársverk í nokkrum fyrirtækjum.
í raun er vafasamt að nota orðið
skapa í þessu sambandi, því flest
fyrirtækjanna eru farin á baus-
inn. Byggðastofnun tókst jrvi
ekki að búa til atvinnutækifæri
nerna rétt á meðan verið var að
gangsetja fyrirtækin og þar til
þau fóru á hausinn, fáeinum
misserum síðar.
Pau dæmi sem PRESSAN
greinir frá í dag ættu sjálfsagt að
nægja til að stjórnvöld hreinsuðu
út úr stofnuninni. Pau eru næg
sönnun þess að stjórn hennar og
æðstu starfsmenn hafa ekki vit á
|)ví sem þeir eru að gera.
Þótt deilt sé um hvort og með
hvaða hætti reka eigi byggða-
stefnu í landinu snertir það lítið
málefni Byggðastofnunar. Rugl-
ið þar innandyra á ekkert skylt
við neina stefnu í stjórnmálum.
Það hefur enn ekki verið fundin
upp svo vitlaus stefna að hún eigi
við um sukkið í Byggöastofnun.
FJOLMIÐLAR
I leit að nýjum töfralausnum
Frá því álverið var flautað
af hafa allir fjölmiðlar verið
að drukkna í fréttum af alls-
kyns töfralausnum á þeirri
stöðnun sem við íslendingar
höfum fjötrað okkur í. Raf-
orkusala í gegnum sæstreng
er ein. Vetnisframleiðsla önn-
ur. Þriðja lausnin er vatnsút-
flutningur, fjórða lúðueldi,
fimmta þilplötuverksmiðja
og svona mætti lengi telja.
Þótt lítið fari vanalega fyrir
samkeppni milli fréttamiðl-
anna hafa þeir keppst við að
verða fyrstir til að birta fréttir
af einhverjum svona töfra-
formúlum. Flestar hafa þær
verið settar fram í bjartsýnis-
tón, eins og lausnin á öllum
okkar vanda væri rétt hand-
an við hornið.
Það er í raun furðulegt að
hægt sé að bjóða fólki upp á
slíkt. Ástæða þess hversu illa
er komið fyrir þjóðinni er ein-
mitt trú hennar á slíkar töfra-
lausnir. Dæmin í nýliðinni
fortíð eru næg; loðdýrarækt,
fiskeldi, ráðstefnuhald, ullar-
iðnaður.
Ef hægt er að redda framtíð
landsmanna með einhverju
trixi held ég það sé falið í að
menn og konur snúi sér að
einhverju öðru en leit að
heildarlausnum fyrir þjóðina
og fari að hugsa um eigin
hag. í raun skiptir engu
hversu margir spekingar
komast að þeirri niðurstöðu
að tækifærin liggi í náttúr-
unni, fiskinum, orkunni og
fólkinu sjálfu ef enginn sér
sér hag í að nýta þau. Allt
þetta tal og allir þessir spá-
dómar hafa í raun minna gildi
fyrir framtíðina en ef einhver
mundi stofna og reka pípu-
hreinsara-fabrikku með
glans.
En það er enginn á þeim
buxunum og í raun virðist
fátt nýtt ádöfinni í atvinnulíf-
inu. Hins vegar eru þúsundir
og aftur þúsundir tilbúnar að
kryfja til mergjar og ræða um
hvað þessari þjóð er fyrir
bestu.
Gunnar Smári Egilsson
Skipti út yfír
gröf og dauöa
„Svo var málið sent til
endurskoðanda en hann lést
áður en hann hafði lokið mál-
inu. Það var því ekkert hægt
að gera í málinu í mörg ár.“
Unnsteinn Beck skiptaráöandi
„Ekki læ ég séð
hvað það kemur
málinu við, frek-
ar en það, að
Kristján Ragnars-
son hefur aldrei
rekið nokkurn hlut
nema kontóra LÍÚ
eftir því sem ég best veit.j
HVER REKUR
FLÓTTANN?
„Þetta er pólitískur söfnuður
á flótta, í raun pólitísk
flóttamannasamtök á flótta
undan fortíð sinni.“
Jón Baldvin Hannlbalsson
hattasölumaður
cMúh, cetti oA
vit& jxoA
„Einn maður er allt of lítið
fyrir konu
með margar þarfir."
Joan Colllns leikkona
AUtaf jafnskýr!
”Ég get ekki neitað því að við
höfum sjálfsagt gert mistök
eins og aðrir án þess að ég sé
að segja að það hafi verið í
þessum tilfellum.“
Ólafur Ólafsson landlæknlr
JÓN SIGURÐSSON JÁRNFORSTJÓRI
Sterkasti blahrari heims
„Ef þú vilt iáta lyfta einhverju
yfirmáta þungu þá kaiiarðu í
mig. Sterkasti maður heims er
mjög vítt hugtak eða bara
titill."
Hjaltl Úrsus Árnason helmsmelstarl
Forstjóri sem hefur
fjarlægst hluthafana
Þegar fólk talar um að
verkalýðsforystan hafi fjar-
lægst fólkið og uppruna sinn
á það við Ásmund Stefáns-
son. Hann er ekki verkamað-
ur heldur bankaráðsmaður.
Hann talar ekki um kaup og
kjör heldur viðskiptakjör og
þenslu. Hann semur ekki um
launahækkanir heldur lækk-
að verð á opinberri þjónustu
og aðhaldsaðgerðir í pen-
ingamálum.
I Ásmundi holdgerast þær
breytingar sem hafa orðið á
verkalýðshreyfingunni á
undanförnum áratugum.
Hún er ekki lengur tæki
verkamanna til að bæta kjör
sín heldur tæki valdamanna
til að hafa áhrif í þjóðfélag-
inu.
Forystumenn í verkalýðs-
hreyfingunni hafa miklu
meiri áhuga á því í dag að
hafa áhrif á atvinnumála-
stefnu ríkisstjórnarinnar —
jafnvel móta hana — en deila
um krónu til eða frá fyrir eft-
irvinnustundina eða frían
vinnuvettling þar eða hér.
Það er einfaldlega meira kikk
Alþýðubandalagið er íhaldsflokkur
Landsfundur Alþýðu-
bandalagsins er afstaðinn.
Þar á bæ þykjast menn nú
vera hinir einu sönnu fulltrú-
ar jafnaðarstefnunnar á Is-
landi [dví Alþýðuflokkurinn
sé endanlega genginn í lið
með frjálshyggjunni. Heyr á
endemi.
Alþýðubandalagið er ekki
og verður seint jafnaðar-
mannaflokkur. Alþýðu-
bandalagið er fyrst og síðast
íhaldsflokkur í orðsins fyllstu
merkingu. Hann stendur fyr-
ir staðnaðar og úreltar hug-
myndir og beitir sér gegn
breytingum sem til bóta horfa
fyrir íslenska þjóð.
Þetta sést glöggt í hinni ný-
samþykktu stefnuskrá. Al-
þýðubandalagið kveðst nú
aðhyllast blandað hagkerfi
en það hugtak var nokkuð í
móð fyrir tuttugu til þrjátíu
BIRGIR ÁRNASON
árum. Á mæltu máli þýðir
þetta einfaldlega að Alþýðu-
bandalagið er hlynnt ríkisaf-
skiptum af efnahagsmálum
og rikisrekstri í atvinnulífinu.
Alþýðubandalagið er andvigt
því að ríkið hætti að deila út
almannafé á pólitískum for-
sendum til að hægt sé að
lækka skatta og það er and-
vigt því að ríkisfyrirtæki
verði seld til að unnt sé að
koma við hagræðingu í
rekstri þeirra. Alþýðubanda-
lagið hefur tekið að sér að
verja ríkjandi skipan efna-
hagsmála á íslandi þótt löngu
sé orðið ljóst að knýjandi þörf
er fyrir breytingar. Þetta er
íhaldssemi. Þess vegna er Al-
þýðubandalagið íhaldsflokk-
ur.
Tökum stjórn fiskveiðanna
sem dæmi. Landsfundur Al-
þýðubandalagsins heyktist á
því að lýsa stuðningi við
veiðileyfagjald eða kvóta-
leigu. Með öðrum orðum það
hafnaði því aðalatriði að eig-
endur fiskstofnanna — þjóðin
öll — fái að njóta afraksturs
þeirra. Ef þetta á eitthvað
skylt við jafnaðarstefnu er
neirum en mér farið að förl-
ast. í raun hefur Alþýðu-
bandalagið enga stefnu í sjáv-
arútvegsmálum aðra en þá
að vera á móti tillögum sem
horfa í skynsemis- og réttlæt-
isátt. Það er svo sannarlega
íhaldssemi.
Alþýðubandalagið og þau
sjónarmið sem það stendur
fyrir eru úrelt. Forystumenn
þess leitast við að slá ryki í
augu almennings með digur-
barkalegum yfirlýsingum og
orðaleikjum í marklausri
stefnuskrá. Þegar allt þrýtur
grípa þeir til þess vopns sem
þeim hefur dugað best og
lengst, þjóðernisáróðurs af
grófri sort, gegnsýrðum af
fordómum í garð útlendinga
og alls sem útlenskt er. En nú
dugir ekki lengur að hamast
á Átlantshafsbandalaginu og
samstarfsþjóöum okkar þar. I
staðinn kýs forystulið Al-
jjýðubandalagsins að beina
spjótum að samningnum við
Evrópubandalagið um Evr-
ópska efnahagssvæðið —
EES. í stefnuræðu sinni á
landsfundinum gekk formað-
ur flokksins svo langt að lýsa
því yfir að íslendingar væru
betur hólpnir í samstarfi við
Indverja, Indónesíumenn og
Mexíkana en nágrannaþjóð-
irnar í Evrópu.
Sá sjónleikur sem Alþýðu-
bandalagið setti á svið um
síðustu helgi minnir mig helst
á blekkingarvef serbneskra
kommúnista sem á einni
nóttu umhverfðust í æsta
þjóðernissinna þegar komm-
únisminn hrökk ekki lengur
til að halda þeim við völd.
Evrópa situr nú uppi með
styrjöld í fyrrum Júgóslavíu.
Ómælanlegar hörmungar
hafa gengið yfir Króata.
Hverjum er Ólafur Ragnar
líkur?
Birgir er hagfrædingur hjá
EFTA i Genf.
að hafa áhrif á stærri hluti.
Þess vegna eru kjarasamn-
ingar hættir að snúast um
kaupgjald. Þeir snúast um
innflutningsgjöld á bíla, lán
úr byggingarsjóðum ríkisins,
vexti af spariskírteinum ríkis-
sjóðs og þar fram eftir götun-
um. Þótt eitthvað af þessu
geti komið verkamönnunum
til góða er það ekki aðalatrið-
ið. Málið er að með því að
blanda þessu inn í kjarasamn-
inga geta verkalýðsforkólf-
arnir haft víðtækari áhrif en
ef þeir einskorðuðu sig við að
ræða við vinnuveitendur.
Það má sjá þessa sókn
verkalýðsforkólfanna eftir at-
hygli og völdum í sjónvarps-
fréttunum. Þar birtast þeir
reglulega og úttala sig um af-
stöðu sína til ýmissa mála.
Fæst þeirra hafa hins vegar
nokkru sinni komið til með-
ferðar hjá viðkomandi verka-
lýðsfélagi eða samtökum.
Önnur breyting sem orðið
hefur á verkalýðshreyfing-
unni og kristallast í Ásmundi
er sú, að hún er orðin flugrík.
Með öllum milljörðunum
sem erú í lífeyrissjóðunum
geta forystumenn verkalýðs-
ins sjálfsagt haft meiri völd en
þeim tekst að ná í gegnum
kjarasamninga. Hreyfingin er
líka eignaraðili að fyrirtækj-
um og Ásmundur situr fyrir
hönd hennar í bankaráði ís-
landsbanka. Ekkert í störfum
hans þar bendir til að verka-
lýðurinn sé betur settur með
að eiga fulltrúa í ráðinu,
nema náttúrlega til að líta eft-
ir fjármunum hreyfingarinn-
ar. Þar starfar hann eftir lög-
málum stórfyrirtækja.
Þannig holdgerist í Ás-
mundi saga verkalýðshreyf-
ingarinnar undanfarna ára-
tugi og í honum birtist líka
framtíð hennar. Það eru
menn eins og Ásmundur sem
munu reka hana á næstu ára-
tugum eins og önnur stórfyr-
irtæki, sem tapað hafa tengsl-
um við hluthafa sína. Þeir
munu fyrst og fremst hafa
eigin metnað og hag að leið-
arljósi.
ÁS
HÁLFDÁNl U<JGí ER STBínhíssa í WkJAVi'jc
FRAMVÍDARiNNAR., MLS KdaJaP, ERLENP
FyRíRTÆJCi HAPA spj^rrif) upp
m 3EiBÍ,YA
HAVA NÆS Wl?
ezALit/fiUz
,MhnL<L
HíNAR ÝtAStK EíNK/Uo££EGUᣠVÍRDAST
RÆRA Si& KPLLðrrA UM ALLA SPÍLLJhJ&gNA
5 .
J/ / rT 1
w
Tv
©
ro
n
ro
to
c
©
ro
SZ
E
rc
ul