Pressan - 28.11.1991, Page 29
FIMMTUDAGUR PRESSAN 28. NÓVEMBER 1991
29
Fiskvinnslufólkið
malaði
mennfskælinöana
Nemendur í útskriftarárgöngum framhaldskólanna vita nánast
ekkert um land og þjóð. Það er að minnsta kosti niðurstaðan
sem draga má af könnun á landafræðiþekkingu þeirra, sem
nemar í Háskólanum stóðu að. í könnuninni kom einnig fram
að fískvinnslufólk er miklu betur að sér í landafræðinni en
menntskælingarnir.
Nýlega gerdu þrír nemend-
ur í stjórnmálafrœdi viö Há-
skóla Islands könnun á
landafrœbiþekkingu nem-
enda í efsta bekk mennta-
skóla annars vegar og fisk-
vinnslufólks hins vegar.
Könnunin fólst í því ab
krossapróf var lagt fyrir nem-
endurna og fiskvinnslufólkib.
Eingöngu var spurt um þab
sem ab íslandi lýtur.
Menntaskólanemendurnir
voru úr útskriftarbekkjum
Menntaskólans í Reykjavík
og Menntaskólans á Akur-
eyri, fjskvinnslufólkib starfs-
fólk Útgerbarfélags Akureyr-
inga. Niburstöburnar eru
vœgast sagt sláandi og gefa
til kynna ab þekking mennta-
skólanema á sínu eigin landi
sé mjög bágborin. Þekking
fiskvinnslufólksins var held-
ur ekki upp á þab besta en
samt sem ábur mun betri en
menntskœlinganna.
Spurningarnar voru mjög
mismunandi og tengdust
landi og þjóð með ýmsum
hætti. Einnig var ein spurn-
ing sem laut að þekkingu
fólks á stjórnmálum en þar
átti að tengja saman þing-
menn og kjördæmi þeirra.
Reiknuð var heildareinkunn
en gefin séreinkunn fyrir
spurninguna um stjórnmála-
mennina.
Ef öllu vár rétt svarað var
hægt að fá tíu en 0,1 var dreg-
inn frá fyrir hvert rangt svar.
Hæsta einstaka einkunn var
níu en lægsta núll.
MENNTSKÆLINGAR MEÐ
RÉTT RÚMA TVO
í MEÐALEINKUNN
Úrtakið var hundrað fimm-
tíu og sjö manns. Þrjátíu og
einn frá Útgerðarfélagi Akur-
eyringa, fimmtíu og níu frá
Menntaskólanum á Akureyri
og sextíu og sjö frá Mennta-
skólanum í Reykjavík. Þótt
úrtakið sé lítið er ekki ástæða
til annars en ætla að könnun-
hópanna var 3,002. Mennt-
skælingar á Akureyri fengu
2,67 að meðaltali en Reykvík-
ingarnir 2,66. Þarna er ekki
marktækur munur á milli.
Fiskvinnslufólkið fékk aftur á
móti 4,34 að meðaltali. Þarna
munar tæpum tveimur heil-
um, sem er mikill munur.
Einn úr hópi fiskvinnslufólks-
ins fékk níu, sem var hæsta
einkunnin yfir heildina. Úr
hópi skólafólksins fékk einn
Reykvíkingur átta og var
langhæstur skólafólksins.
ÞEKKJA EKKI
ALÞINGISMENN
Eins og áður er getið var
einnig gefin séreinkunn fyrir
spurninguna um stjórnmála-
mennina. Spurt var um átta
þingmenn og jafnmörg kjör-
dæmi gefin upp. Verkefnið
var að tengja þingmennina
við kjördæmi sín.
Alþingismennirnir voru
Karl Steinar Gubnason, Þór-
hildur Þorleifsdóttir, Alex-
ander Stefánsson, Þorvaldur
Garbar Kristjánsson, Jón Sœ-
mundur Sigurjónsson, Málm-
fríbur Sigurbardóttir, Hjör-
leifur Guttormsson og Eggert
Haukdal. Svo virtist sem
menntskælingarnir hefðu
litla hugmynd um að þetta
fólk sæti á þingi. Helst var að
menn könnuðust við Hjörleif
Guttormsson og einnig virt-
ust margir þekkja Jón Sæ-
mund en þá aðallega vegna
atviksins er hann stangaði
hurðina niðri í Alþingishúsi.
Hæsta einkunn var tíu en
sú lægsta núll. Meðaleinkunn
menntaskólanema á Akur-
eyri var 1,79 en Reykvíking-
anna 1,95. Fiskvinnslufólkið
fékk sem fyrr mun hærri ein-
kunn eða 4,16.
Þess ber að geta að ekki var
tekið tillit til aidurs i könnun-
inni en fiskvinnslufólkið var
frá tvítugu til fimmtugs og
menntaskólanemarnir allir í
kringum tvítugt.
VITA MIKIÐ UM ÚTLÖND
Tvær spurningar komu
áberandi verst út; stjórnmála-
in gefi nokkuð rétta
mynd. Menntaskóla-
nemar eru frekar ein-
sleitur hópur sem býr
yfir svipaðri reynslu
og fær svipaða
kennslu, sama hvert er
leitað. Niðurstöðurnar
ættu því að vera mark-
tækar og lýsandi fyrir
þekkingu ungs fólks í
skóla.
Meðaleinkunn allra
Hjörleifur
Guttormsson, að
ofan, var
þekktastur
landsbyggðar-
þingmannanna.
Næstur kom Jón
Sæmundur
Sigurjónsson, til
hægrl, „þessi sem
gekk á hurðina".
Nemendur í Menntaskólanum í Reykjavík fengu 2,66 t meðal-
einkunn sem telst fall, - og það hátt fall. Menntskælingar á
Akureyri fengu örlitlu hærri einkunn en þó ekki mjög, eða
2,67. Fiskvinnslufólk hjá Útgeröarfélagi Akureyringa gerði
hins vegar nemendum þessara skóla skömm til.
spurningin sem áður er vikið
að og spurning um hversu
margar sýslur væri ekið í
gegnum á leiðinni Akur-
eyri-Reykjavík.
Aðrar spurningar komu
svipað út, það er að segja illa,
en ekki þó eins illa og hinar
tvær. Meðal annars var spurt
um við hvaða fjörð Þingeyri
væri, í hvaða kjördæmi Dala-
sýsla væri, hvaða ár rynnu í
Ölfusá, við hvaða götu elsta
hús í Reykjavík væri, í hvaða
sveit Gljúfrasteinn væri og
svo framvegis.
Þessar niðurstöður hljóta
að vekja ýmsar spurningar,
og þá kannski þá helsta hvort
kennslu í íslenskri landafræði
sé mjög ábótavant. Þeir sem
að könnuninni stóðu segja
mjög marga hafa talað um
það að hafa enga kennslu
fengið í íslenskri landafræði
frá tíu eða tólf ára aldri. Aftur
á móti sagðist fólk vera ágæt-
lega að sér í landafræði út-
landa og spurði hvers vegna
ekki væri spurt um hana.
Hefði sú orðið raunin, og
spurt hvar Fílabeinsströndin
væri eða hvað Berlínarmúr-
inn hefði verið langur, hefði
útkoman trúlega orðið önnur
og betri. Enda þykjast íslend-
ingar fylgjast flestum þjóðum
betur með, þótt þessi könnun
sýni að þeir vita ekki hvað er
í túnfætinum heima.
Haraldur Jónsson
Könnunina aerbu Ari Sig-
valdason, Ármann Kr. Olafs-
son og Einar Örn Sigurdórs-
son
tengsl
mundsson ieins
Guðmundur
Guðmundsson
þjálfari Víkings
í handbolta
en hann starfar
hjá VISA ísland
eins og
Einar S. Einars-
son forstjóri
sem er mikill
skákáhugamað-
ur eins og
Guðmundur G.
Þórarinsson
fyrrverandi al-
þingismaður
sem er verk-
fræðingur eins
og
Guðrún Zoéga
borgarfulltrúi
sem hefur verið
aðstoðarmaður
ráðherra eins
og
Birgir Árnason
hagfræðingur
sem hefur
kennt í Háskóla
íslands eins og
■ Sigrún Stef-
ánsdóttir dokt-
or í fjölmiðia-
fræði
sem einnig er
íþróttakennari
eins og
Sigurlás Þor-
leifsson fót-
boltaþjálfari
en hann er
Vestmanney-
ingur eins og
Árni Johnsen
E. Kti1 alþingismaður
| sem spilar á
i gítar eins og
Magnús Þór
Jónsson tón-
listarmaður
sem notar lista-
mannsnafn eins
og
aGuðmundur
Guðmundsson
STHINI
STEINl MINN?!ERTU
EITHVAÐ BujSAÐUR?
HVAO ER AÐ
STEINA T DAG?
GLEIÞILEG30L
KRAKKAR*.!’.
Pt HANN ER
^fEITVWADAÐ
!m REYNA AÐ
HNEYK&LA-..
FEISAÐU ÞAÐ
SURTUR PIINN.
SONA 50NAH
SONA SONA..
KLÍS7UR!
J FÝLU..HVERNIG 'A SVO HANN
LEIFSSON AÐ FA KAUPHÆKKUN?
VIÐERUMBÚNIR 1
AÐ REYNA AUT!1.
SAMA HVAÐVID ER-
UM NASTI06 DÖNO;
UMNASTlOöDÖNO/
EKKI EIN KVÖRTUN
S'lÐAN 'I 3ÚLT,F0LK
FEREKKIEINUSINNI