Pressan - 28.11.1991, Blaðsíða 30

Pressan - 28.11.1991, Blaðsíða 30
30 FIMMTUDAGUR PRESSAN 28. NÓVEMBER 1991 VANDINN VIÐ AÐ MARKAÐSSETJA eru séra Þorbergur Kristjáns- son, sóknarprestur í Kópa- vogskirkju, séra Guömundur Óskar Ólafsson, sóknarprest- ur í Neskirkju, og séra Sólveig Lára Guðmundsdóttir, sókn- arprestur í Seltjarnarnes- kirkju. Séra Pálmi Matthíasson var kallaður til starfa frá Akur- 'eyri fyrir u.þ.b. tveimur og hálfu ári af hr. Ólafi Skúla- syni, sem þá varð biskup. Margir hafa heyrt um uppá- tæki Pálma, eins og að halda messu í skíðabrekkum og bænastundir í búningsklefa landsliðsins í handbolta. Fólk sem gifti sig hjá hon- um í sumar valdi hann vegna þess að „ræðan hans er nú- tímaleg og höfðar til fólks, hann er ekki með neitt kjaft- æði sem fólk skilur ekki“, seg- ir Inga ívarsdóttir. „Við hjónaefnin vorum mjög hrifin af undirbúnings- tímanum sem hann hefur áð- ur en fólk giftir sig,“ segir Ól- afur Jón Jónsson, sem gifti sig hjá Pálma í sumar. „Hann talaði almennt um þau vandamál sem steðja að fjöl- skyldunni, peningavandamál og svoleiðis, og sagði okkur að vera viðbúin þessu. Hann talaði um kynlíf og hversu mikilvægt það er og svo um lagalega hlið hjónabandsins og það var engin helgislepja yfir þessu, því hann talaði al- þýðumál sem við skildum vel,“ segir Ólafur. KIRKJUSTARFIÐ EKKI BARA PRESTURINN „Við leggjum mikið upp úr þvi að taka vel á móti því fólki sem kemur í kirkju til okkar. Við höfum góða melódíska tónlist til að spila við mess- una og trúarlegan texta fyrir kórinn. Hluti af helgigöng- unni er mystískur og fólk á að skynja nærveru Guðs, þannig að allt þetta skiptir máli," seg- ir Pálmi. Prestar virðast eiga miserfitt með að ná til fólks. x Samkvæmt könnun PRESSUNAR gifti séra í Pálmi Matthíasson í Bústaðasókn þannig fjórum sinnum fleiri pör en aðrir prestar síðastliðið sumar. En þótt Pálma gangi vel að höfða til fólks virðist það ekki eiga við um alla presta og ekki um kirkjuna sem heild. Hún á í vandræðum með að koma boðskap sínum í gegn. Hún leitar leiða við að markaðssetja Guð Þórunn Bjarnadóttir Kirkjusókn íslendinga hef- ur oft ekki þótt mikil, þad er helst að þeir láti sjá sig uið há- tíölegar athafnir; skírnir, fermingar, giftingar og jarð- arfarir og kannski á jólunum, en ekki miklu meira en það. í könnun, sem gerð var á ueg- um Guðfrœðistofnunar Há- skólans, kemur fram að um átta prósent íslendinga fara í kirkju einu sinni í mánuði og um tuö prósent einu sinni í uiku. Fjörutíu og átta prósent fara hinsuegar einu sinni á ári og á hátíðum. Þjóðkirkjan hefur nú hrundið af stað átaki sem hef- ur að markmiði að stækka söfnuðinn á íslandi. Liður í þessu átaki er að virkja fólk í hverri sókn til að vinna að verkefninu. Meginmarkmið þessara hópa er að komast að því hvers konar fólk býr í hverri sókn fyrir sig og hvaða þarfir þetta fólk hefur sem kirkjan getur uppfyllt. „Kirkjan er oft hátíðleg stofnun og það getur virkað fráhrindandi. En eðli kirkj- unnar er að vera mitt á meðal fólksins, ekki fyrir ofan það," segir Örn Bárður Jónsson, verkefnisstjóri safnaðarupp- byggingarinnar. Örn segir að þjóðfélagið hafi breyst mikið síðan á síð- ustu öld og nú þurfi kirkjan að hafa meira fyrir því að fá fólk til sín. Hér áður fyrr var kirkjurækni miklu meiri meðal íslendinga og fólk las biblíuna fyrir fjölskylduna og lærði sálmana. Núna lifir það eitt eftir af þessum sið að kon- ur kenna börnum oft ein- hverjar bænir. KIRKJUR FINNA MARKHÓPA Til að höfða til fólksins hafa sumar kirkjur sett á laggirnar ýmsa félagslega starfsemi sem höfðar til ákveðinna hópa og þarfa þeirra. Af þess- um hópum má nefna: mömmu og pabba-hópa, Pálmi Matthíasson, sóknarprestur i Bústaðakirkju og einn af vinsælustu prestum borgarinnar: „Tóm vitleysa að ég sé vinsælasti presturinn, en ef mér er gefið eitthvað af Guði sem öðrum líkar er ég bara þakklátur fyrir það." Ræður Pálma þykja sér- stakar vegna þess að þær eru vel skiljanlegar og hafa feng- ið fólk til að hugsa: „Þegar ég sem ræðu hugsa ég um það hvernig ég get klætt þennan boðskap í búning sem passar við þjóðfélagið í dag. Hvaða orð ég ætti að nota til að koma kenningum kirkjunnar á framfæri við söfnuðinn minn." „Það er ekki síður aðstað- an sem prestar hafa í dag sem gerir það mögulegt að efla kirkjustarfið. Kirkjur hafa nú aðstöðu fyrir fleiri athafnir en bara bænastundina, og hafa starf alla vikuna," segir Sólveig Lára. Sólveig segist leggja mikið upp úr að fólk sé þátttakend- ur í guðsþjónustunni, en horfi ekki bara á, eins og þegar það fer í leikhús. „Eins og þegar ég fer með miskunnar- bænina, þá reyni ég að fá fólk til að vera meðvitað um að það er að biðja um fyrirgefn- ingu og þarf að gera það af lífi og sál," segir Sólveig Lára. Hún er svo með altarisgöngu í hverri messu og „ég er sann- færð um að það fólk verður fyrir meiri snertingu við Jes- úm sem tekur þátt í þessari máltíð að messu lokinni", seg- ir Sólveig Lára. NÝJUNGAR SÓTTAR TIL NOREGS í maí fóru tiu prestar til Nor- egs að kynna sér nýjungar í kirkjustarfi þar í landi. „Síðan við komum heim höfum við unnið saman að endurnýjun guðsþjónustunnar. Við höf- um hist einu sinni í mánuði og rætt hvað við getum notað hér á landi. Við ætlum svo að kynna þessar nýjungar öðr- um prestum á ráðstefnu í Skálholti þegar starfi okkar er lokið," segir Sólveig. starf fyrir aldraða, biblíulest- ur og sorgarhópa. Séra Sól- ueig Lára Guðmundsdóttir, sóknarprestur í Seltjarnar- neskirkju, setti fyrir tveimur árum á stofn foreldratíma á morgnana einu sinni í viku. „Þessir hópar hafa gengið vel og fólk virðist ánægt með þá. Við höfum haft fyrirlestra um íjölskyldumál, íþróttir og tón- Örn Báröur Jonsson, verkefn- isstjóri safnaðaruppbygging- ar: „Kirkjan verður að vera opnari og fjölbreyttari til að fólk komi." listaruppeldi," segir Sólveig. PRESTAR í KREPPU MEÐ RÆÐUNA Guðfræðin er mjög fræði- leg grein og prestar eiga sum- ir erfitt með að koma boð- skapnum til skila á alþýðu- máli. Sumir tala of hátíðlega og fólk hættir að geta fylgst með boðskapnum. „Við erum líka að fá prest- ana til að skoða sjálfa sig og spurja hvort þeir séu þrösk- uldurinn að kirkjunni; er eitt- hvað í fari þeirra eða messu- framkvæmd sem betur mætti fara? Annars er helgihaldið á vissan hátt listgrein sem stöð- ugt þarf að þróa," segir Örn. Ræðumennska er eitt af fögunum sem fólk þarf að læra í guðfræðinni og Einar Sigurbjörnsson, prófessor í guðfræði, segir að nemendur spái mikið í ræðustílinn: „Það er ekki hægt að kenna nem- endum að ná til fólksins í ræðunni, til þess þarf hæfi- leika sem ekki er öllum gef- inn," segir Einar. En það eru til margar ræðu- tegundir sem þróast út frá efni ræðunnar. Ræðustíllinn hefur þróast með tímanum. í Séra Sólveig Lára Guð- mundsdóttir, sóknarprestur i Seltjarnarneskirkju. „Mér finnst mikilvægt að vera op- in fyrir nýjungum og að prestar þori að brydda á nýj- ungum." gamla daga voru ræður frek- ar stífar og ákveðinn texti tekinn úr biblíunni sem var svo tekinn fyrir vers fyrir vers. í þá daga var hér bændaþjóðfélag og líf þorra fólks frekar svipað, þannig að til þess að skýra út eitthvert efni bíblíunnar var oft hægt að líkja því atriði við líf fólks. „En í dag er þjóðfélagið miklu flóknara og íslending- ar hafa mismunandi lífs- reynslu. Til að ná til þessa lit- ríka fólks er prestsefnunum kennt að nota myndmál sem íslendingar skilja í dag. Stundum geta þeir notað myndmál úr sjónvarpinu til að skýra boðskapinn fyrir söfnuðinum og svo er hægt að nota alþjóðaatburði eins og stríðið í Júgóslavíu eða eitthvert bókmenntaverk sem fólk þekkir," segir Einar. VINSÆLASTI PRESTURINN PRESSAN gerði könnun á vinsældum presta með því að athuga hverjir giftu flest pör á fjögurra mánaða tímabili frá maí fram í miðjan október, Séra Einar Eyjólfsson, sókn- arprestur i Fríkirkjunni í Hafnarfirði, séra Þorbergur Kristjánsson, sóknarprestur í Kópavogskirkju, og séra Guð- mundur Óskar Ölafsson, sóknarprestur í Neskirkju, eru allir í stórum sóknum með margt fólk á giftingar- aldri. aðalgiftingartímanum. Töl- urnar voru fengnar með því að telja þá sem giftu sig og birtar voru myndir af í Morg- unblaðinu. Ekki var hægt að komast yfir nákvæmari upp- lýsingar þar sem Hagstofan heldur tölunum ekki til haga. Af þessum prestum er séra Pálmi Matthíasson, sóknar- prestur í Bústaðakirkju, lang- vinsælastur. Hann var með um fjórum sinnum fleiri gift- ingar en næsti prestur. Næst- ur á eftir Pálma kom séra Ein- ar Eyjólfsson, sóknarprestur í Fríkirkjunni í Hafnarfirði. Næstu þrír prestar giftu jafn- marga samkvæmt upplýsing- um PRESSUNNAR, en þeir

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.