Pressan


Pressan - 28.11.1991, Qupperneq 32

Pressan - 28.11.1991, Qupperneq 32
32 Eiríkur Jónsson fréttamaður Hef fyrst og fremst sett mannorðíð að veðí Allt frá því hann hóf af- skipti af fjölmidlum hefur hann farid meira og minna ----ótrodnar slóöir. Stundum hef- ur hann hneykslad fólk óskaplega, stundum skemmt mönnum meira en flestir aðr- ir, en síðast og ekki síst hefur djarfur og óhefðbundinn frá- sagnarmáti einkennt ferilinn. Margir minnast hans frá því hann var fréttaritari Ríkisút- varpsins í Kaupmannahöfn þar sem hann bjó um árabil og sendi þaðan öðruvísi frétt- ir, fréttir sem fólk gat brosað að, og íslendingar kynntust því í fyrsta sinn að fréttir gátu líka verið skemmtilegar. Hann kom heim og hélt uppteknum hœtti, að fjalla um og skoða ýmislegt sem áður hafði legiö í þagnar- gildi. Lesendur hans voru ánœgðir, en sumir hugsuðu honum þegjandi þörfina. Honum fóru að berast morö- hótanir, bíllinn hans varð vin- sœlt skotmark þeirra sem töldu sig eiga óuppgerð mál við fréttamanninn og það var líf og fjör. Árin hafa liöið og hann hefur víða komið við. Og ennþá er hann að koma mönnum á óvart meö nýstár- legum efnistökum; hann hef- ur valiö hljóðnemann í stað pennans og ferst þaö vel úr hendi, því fólk hlustar, sumir til þess að geta hneykslast, en flestir vœntanlega til að hafa gagn og gaman af. Hann er talsmaður þess aö frjáls sam- keppni ríki í fjölmiðlaheimin- um. „Pví til hvers að halda úti miðli sem enginn hefur áhuga á, það er eins og að vera skemmtikraftur á sviði sem reynir að fá viðbrögð úr tómum sal!“ Um þessar mundir stjórnar hann morgunútvarpi Bylgj- unnar og kann því ágœtlega. Þetta er morgunhaninn Eirík- ur Jónsson. En hvaða skýringu kann hann á því að hann varð svo fljótt eftir að hann hóf störf við fjölmiða þekktur og um- deildur? „Ég held að kappið hafi verið svo mikið og mér hafi legið svo mikið á, flest ungt fólk vill vinna sig upp og koma sér áfram, því það skiptir máli að vera nafn í þessum bransa til að fá borg- að, og því valdi ég þá leið að fara í þau mál sem gátu vakið eftirtekt. Ég var líka í þeirri stöðu að vera að byrja í þess- um bransa tíu árum á eftir jafnöldrum mínum, því ég hafði verið á þvælingi úti í heimi og varð þess vegna með einhverjum ráðum að reyna að vinna upp bilið til að standa öðrum jafnfætis. Eftir veruna í Kaupmanna- höfn held ég að ég hafi verið undir nokkrum áhrifum frá danska Ekstrabladet, sem stóð sig vel og var vinsælt. Þetta blað matreiddi fréttirn- ar þannig að fólk hafði eitt- hvað að spjalla um í kaffitím- anum, og menn voru ekki með á nótunum nema þeir hefðu lesið Ekstrabladet. Blaðið flutti skandaifréttir úr pólitíkinni, því sem fólk vill smjatta á, og þeir voru dug- legir við að leggja út frá frétt- um sem t.d. höfðu komið í sjónvarpi, og vinna þær á sinn hátt. Ef menn höfðu tal- að af sér í sjónvarpinu mátti búast við að blaðið birti mynd af fjölskyldu þeirra og heimili daginn eftir, og þetta seldi. Og þegar ég kom heim og fór að vinna á Dagblaðinu var ég undir sterkum áhrifum frá svona fréttafiutningi. Það sem ég var að gera á Dagblaðinu í fyrstu var ein- göngu vegna þess að ég var hvattur til þess af yfirmönn- um mínum; ef ég fékk nógu mikið skítkast utan úr bæ þá voru þeir ánægðir. Og þegar maður fær hvatningu frá vön- um fagmönnum eins og Jón- asi Kristjánssyni og Ellert Schram er maður ekkert að tvínóna við hlutina, þeir stóðu alltaf eins og klettur við bakið á mér. Það má vera að einhverjum hafi þótt nóg um, en það var ekki hinn almenni lesandi sem kvartaði, því fólk vildi lesa þetta. Málið snýst m.a. um það að maður skrifi fréttir sem eru lesnar, því ef blað er ekki lesið til hvers þá að gefa það út?“ ÞAÐ SEM HNEYKSLAÐI UM 1980 ÞYKIR SJÁLFSAGT í DAG Eiríkur segir að þegar verið sé að rifja þetta upp verði menn að átta sig á því að ís- ienska fjölmiðlaflóran hafi verið önnur á þessum árum en hún er í dag. „Þessar nei- kvæðu athugasemdir sem settar voru fram vegna skrifa minna í Dagblaðið á árunum eftir 1983 eða svo komu ekki síst frá starfsbræðrum mín- um. Þetta var á þeim tíma þegar menn voru heppnir ef þeir fengu vinnu við blaða- mennsku. Menn fengu t.d. alls ekki vinnu hjá Ríkisút- varpinu nema hafa stjórn- málaflokk eða sterka klíku á bak við sig. Það voru fimm blöð á markaðnum og allt var njörfað niður í fastar skorður, ný efnistök við fréttaflutning ógnuðu því að einhverju leyti þeim sem fyrir voru í stétt- inni.“ Það hefur þá ekki verið leit- in eftir frægð, eða þá þessi heimsfrelsunarárátta (rödd samviskunnar), sem fjöl- miðlamenn telja sig oft rekna áfram af, sem réð því að þú þorðir að gera hluti sem ekki féllu öllum í geð? „Nei, nei, þetta var bara eitthvað sem ég vissi að var að gerast í fjölmiðlum úti í heimi. Ég held bara að ég hafi verið skrefi á undan mörgum hér heima. Núna þætti þetta ákaflega sjálfsagt, ég get bara nefnt sem dæmi „Stjörnu- fréttirnar" sem ég sá um á sínum tíma og þóttu hneyksl- anlegar, slíkur frásagnarstíll þykir sjálfsagður í dag. Um það hvort ég hafi verið að reyna þessar nýjungar til að verða frægur, þá held ég að það hafi ekki verið megin- málið, heldur hafi löngunin til þess að reyija ný form rekið mig áfram. Ég var líka búinn að vera í þeim sporum að vinna fréttir lon og don upp úr fréttatilkynningum sem 'V - • FIMMTUDAGUR PRESSAN 28. NÓVEMBER 1991 aðrir höfðu samið, og mig langaði til að gera eitthvað nýtt. Vinna margra frétta- manna felst fyrst og fremst í því að endurskrifa texta sem aðrir hafa samið og það er lít- ið spennandi til lengdar. Það getur stundum verið neyðar- legt fyrir þá sem vinna á fréttastofum að hlusta á fréttaflutning sumra fjöl- miðla; menn hafa kannski lesið yfir fréttatilkynningu á miðjum degi, svo þegar kem- ur að fréttatímum þá heyrir maður þessa sömu tuggu lesna upp stundum orðrétt og fréttamaðurinn er þá bara orðinn eins og þulur." KANNSKl EKKI í LÍFSHÆTTU, EN MANNORÐJÐ STUNDUM I VEÐI Þegar menn þora verður jafnan ekki hjá því komist að þeir eignist andstæðinga, óvildar- eða jafnvel haturs- menn. Hvernig hefur þetta verið hjá Eiríki, hefur hann komist í hann krappan, jafn- vel lífshættu, vegna skrija sinna eða útvarpsþátta? „Ég held ég hafi aðailega sett mannorðið að veði, og þá fyrst og fremst innan stéttar- innar, en ekki meðal þeirra sem hafa lesið eða hlustað. Það er kannski stríðnin sem hefur komið mér í mestan vanda. En með að komast í lífs- hættu, jú ég hef verið barinn og ég hef orðið fyrir morð- hótunum í gegnum síma, menn hafa eyðilagt fyrir mér dyrasímann og ráðist á bílinn minn, þetta hefur verið eins og við sjáum stundum í bíó- myndunum. Þetta hefur ekk- ert farið hátt og ég er ekki sá eini sem hefur lent í þessu." Einn þeirra sem undirritað- ur ræddi við sagðist hafa Ei- rík á dauðalistanum, eins og hann orðaði það, vegna sam- skipta þeirra á árum áður, en telur Eiríkur sig hafa eignast marga óvildarmenn vegna starfs síns? „Þessir dauðalist- ar eru náttúrlega ekki til. Þeir sem tala um dauðalista og koma sér upp slíku eru ekki einu sinni menn til að segja manni að halda kjafti þegar þeir hitta mann á götu. Auð- vitað má alltaf búast við því að einhverjum sé í nöp við mann, en það fylgir bara ein- faldiega þessu starfi að lenda stundum í slíkri aðstöðu." Um þessar mundir ber meira á umræðum um breytta stöðu og hlutverk fjöl- miðla en oft áður. Flest bend- ir til þess að gömlu flokks- blöðin séu að líða undir lok, rætt er um að selja Rás 2 og samkeppnin í fjölmiðlaheim- inum er hörð og óvægin. Hvernig líst Eiríki á? „Það hlýtur bara að vera spurning um tíma hvenær ríkið hættir að senda út popptónlist allan sólarhringinn, í samkeppni við aðra sem eru að reyna að lifa á þessu, með niðurgreidd- um auglýsingum og öllum þeim mannafla sem þeir hafa á kostnað skattborgaranna. Nú eru þeir hættir að gefa úr Prövdu, hver mundi kaupa dagblað sem ríkið gæfi út, ég spyr? Svo þegar maður minn- ist á þetta með útvarpið er því líkt við landráð, ég tala nú ekki um ef maður minnist á hvenær ríkið ætli að hætta að sjá um að segja landsmönn- um fréttir. Þetta þykir voða- legt og menn fara strax að tala um öryggismál og hlut- leysi, hver gæti verið hlut- drægari en ríkið? Fólk er bara orðið svo vant þessu að það þarf nýja kynslóð til að koma auga á hversu fáránlegt þetta er. Ég hef engar áhyggjur af ríkisreknum fjölmiðlum, þeir koma sér sjálfir þangað sem þeir eiga heima." En hefur aldrei hvarflað að Jú, ég hef veríð barínn og hef orðið fyrir morðhótunum í gegnum síma, menn hafa eyðilagt fyrír mér dyrasímann og ráðíst á bílinn minn." þér að hætta og snúa þér að einhverju allt öðru, einhverju léttara og þægilegra starfi þar sem þú þarft ekki að leggja persónu þína undir? „Ég hef náttúrlega oft staldrað við og ætiað að fara að gera eitthvað allt annað. Nú er ég hins vegar kominn á það stig, getum við sagt, að ég get ráðið því sem égjgeri nokkurn veginn sjálfur. I því liggur munurinn frá því ég byrjaði." Hvað vildirðu fást við ef þú værir ekki fjölmiðlamaður? „Ég á mér þann draum að komast á svið í argentínskum næturklúbbi." Bjöm E Hafberg I

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.