Pressan - 28.11.1991, Síða 40

Pressan - 28.11.1991, Síða 40
40 FIMMTUDAGUR PRESSAN 28. NÓVEMBER 1991 líl eltisi uUuut'í Hressingarskálamenn hafa ákveöið aö aumka I sig yfir allar hljómsveitir í höfuðborginni sem hvergi fá inni á veitinga- stööum borgarinnar. Ætl- unin er aö á miðviku- dagskvöldum fái ein eöa tvær hljómsveitir í senn aö koma fram og leika fyrir gesti. sigurður ól- afsson hjá Hressó von- ast til aö þetta uppátæki veröi til þess að öll bíl- skúrsbönd bæjarins skríði nú úr felum og hafi samband við sig sem fyrst. Islensk tónverkamiöstöö hefur gefiö út hljómdisk meö tónlist eftir lárus grímsson. Á diskinum eru 7 raftónverk frá árun- um 1986 til 1990 og eru fimm þeirra samin fyrir leikhús eöa kvikmyndir. Hljómdiskinum fylgir bæklingur á þremur tungumálum sem ríkarð- ur örn pálsson hefur skrifaö og þar segir meö- al annars: „Þrátt fyrir alla raftæknivæöingu er Lár- us Grímsson ekki á hvít- um slopp; hann rannsak- ar ekki rannsóknanna vegna, heldur til aö mús- isera." Þaö er orðið alveg óguð- lega dýrt að stunda hið Ijúfa líf og það endar með því að þessi djöfulsins kreppa rekur mann í hjóna- band. Meinið er að í kreppu er minna um skiln- aði og því erfiðara að krækja sér einhverja sem á í það minnsta hús og bíl. Hilmar B. Jónsson matreiðslumeistari „Mér kemur fyrst í hug þaö. vín sem ég drakk síöast, en þaö heitir Chateau Ducla frá 1987. Víniö fcest í ríkinu og þaö smakkast ágœtlega og er Ijómandi gott. Annars á ég mörg uppáhaldsvín. Einna. oftast drekk ég Chateau de Saint Laurent. Þaö vín er mjög gott, sérstaklega ef miöaö er viö verö." Á föstudagskvöldið veröa Blautir dropar á Staðið á önd- inni og á laugardagskvöldið Pentagon, sem áður hét Kor- mákur afi. Þeir breyttu nafninu vegna fjölda áskorana. í Pent- agon eru staddir Pétur Hrafns- son söngvari, Sævar Árnason U gitarleikari, Siguröur Hagnars- son hljómborðsleikari, Ás- grímur Ásgrímsson trommari og Sævar Þór Sævarsson bassaleikari. Það verður mögnuð blús- og rokkhelgi á jééatOft U2 ACHTUNG BABY Væntingar voru ekki miklar eftir að hafa heyrt „æfingaupp- töku" og fyrstu litlu plötuna en „Achtung Baby" er ótrúlega góð og vinnur stöðugt á. í sama klassa og „Jos- hua Tree" og „Unfor- gettable Fire" en allt öðru vísi. Fær 9 af 10 t einkunn. (Kannski 10 ef hún heldur áfram að vinna á!) Hörður ú Borginni ,,Éger ekki kominn heim til ad deyja úr eyðni eins og margbúið er að gefa í skyn við mig að undanförnu. Þœr eru alveg ótrúlegar þessar kjaftasögur. Ég er stálsleg- inn,“ segir Hörður Torfa sem heldur tónleika á Hótel Borg í kvöld. Tónleikarnir eru óháðir út- gáfu nýja geisladisksins „Kveðju" sem kom út nýlega og mun Hörður flytja bæði nýtt og gamalt efni á tónleik- unum. Hörður Torfason hefur jafn- an verið umdeildur maður. Hann er fyrsti homminn sem kom fram í dagsljósið á Is- landi og neitaði að láta kúga sig til þagnar. Hann stofnaði Samtökin 78 en þegar þjóð- félagið sneri við honum baki og hann fékk hvergi vinnu neyddist hann til að flytja úr landi. Nú er Hörður kominn heim eftir 14 ára útlegð, lengst af í Kaupmannahöfn. ,,Eg er feginn að vera kom- inn heim þótt ég búi enn í pappakössum. Mér líkaði aldrei útiveran en ég festi að mörgu leyti rætur ytra, þar á ég marga vini og fjölskyldu að hluta. Ég kom meðal ann- ars heim vegna þess að ég hef Utaf haft mikinn áhuga á álefnum kynhverfra á ís- .andi, enda er í þeim málum risavaxið verk óunnið. For- dómarnir eru svo miklir enn- þá-“ Púlsinum um helgina. Vinir Dóra leika bæði kvöldin ásamt fjölda gesta. Má þar nefna franska trompetleikarann Je- an Vincent Lancilotti, sem hér er staddur af sérstökum ástæðum. Síðan koma Helgi Björnsson Sólarmaður og Dóri fram og flytja brjálæðislega syrpu af Stoneslögum. Sönn- uðu sig á Stöð 2 um daginn. Fjölmiðlablúsinn verður á sín- um stað og að þessu sinni kemur fulltrúi Stjörnunnar, Sigurjón Skæringsson, og blúsar út. Sigurjón fékk sér- staka viðurkenningu í Kara- oke-keppni fjölmiðlanna á dögunum fyrir líflega sviðs- framkomu. Sigurjón stal líka senunni á Akureyri þegar hann stalst upp á sviðið með Stjórninni og GCD. Ætlar að láta drauminn rætast um helgina með því að syngja Hendrix-lagið Purple Haze við undirleik Guðmundar Péturs- sonar. Laugardagskvöldið ber í skauti sér óvænta uppákomu á Vinunum og enginn veit nú hvað það verður fyrr en baliið skellur á. Red House með Ge- org Grosman, James Olsen og Pétri Kolbeins spilar á Gikkn- um á laugardagskvöld og á Borginni spila Orgill og Soul- blómi sóltónlist og rokk, Hendrix- og Deep Purple- og Led Zeppelin-tónlist. A laug- ardagskvöldið verður Nætur- vaktin með þeim Halla, Ladda Lifandi - þrdtt fyrir allt „Okkur hefur ekki sýnst auglýsingarnar borga sig. Þrátt fyrir það er staðurinn kjaftfullur allar helgar og hefur treyst sig í sessi t mið- bœnum," segir Kristján Har- aldsson, veitingamaður í Gullinu við Austurvöll. Veitingahúsið hét lengst af Óðal en síðan það hætti rekstri fyrir mörgum árum hefur staðurinn heitið fleiri nöfnum en tölu verður komið á. Fyrir þremur árum hófu þrír feðgar úr Vogum á Vatns- leysuströnd rekstur hússins og nefndu staðinn Gullið. Þangað sækir ungt fólk á aldrinum 20 til 23 ára og er Gullið opið alla daga vikunn- ar nema sunnudaga. „Ég vinn á hjólbarðaverk- stæði á daginn og bróðir minn á beitingaverkstæði og þess vegna sér pabbi um rekstur hússins virka daga en við strákarnir um helgar. Þetta gengur mjög vel og það er síður en svo fararsnið á okkur. Við erum með góða tónlist sem höfðar til mjög breiðs áheyrendahóps, ein- staka sinnum með nektar- dansmeyjar og svokallaða „happy-hour“ milli tíu og ell- efu á kvöldin, sem felst í því að þegar þú kaupir glas á barnum færðu annað frítt," sagði Kristján. jbTuutma dlUuvesi Jóhannes Kristjánsson eftirherma PRESSAN bað Jóhannes Krist- jánsson eftirhermu að taka að sér gestgjafahlutverkið í ímynduðu kvöldverðarboði þessa vikuna. Gestir Jóhann- esar eru: Halldor Laxness til að ræða sérkenni íslendinga. Vigdís Finnbogadóttir til að halda uppi húmornum. Genadi Janajev til að velja rauðvínið með matnum. Stöllur mcö bók „Við erum að yrkja okkur frá efni sem við erum búnar að ganga með í maganum í tvö ár. Okkur fannst nauð- synlegt að koma Ijóðunum á prent til að geta byrjað á ein- hverju nýju. Bókin er ákveðið uppgjör við jortíðina," segir Eva Heiða Onnudóttir, sem ásamt vinkonu sinni, Ágústu Hlín Gústafsdóttur, hefur gefið út Ijóðabókina Hugleið- ingar til ykkar —... þið sem ekkert fenguð. Bókin hefur að geyma 34 Ijóð og er skipt í tvennt með inngangsljóðum í upphafi hvors helmings. „Við gerum allt saman. Við hittumst á kaffihúsi fyrir rúmu ári og hófum stuttu síð- ar báðar störf á Hressó. Upp úr því ákváðum við að taka okkur litla risíbúð á leigu og þar sátum við oft á kvöldin og lásum frumsamin ljóð hvor fyrir aðra.“ Ágústa og Eva gáfu ljóða- bókina út sjálfar með dyggri aðstoð vinar síns, Braga Hall- dórssonar. í síðustu viku héldu þær út- gáfukvöld í Hressingarskál- anum og fengu Dean R. Ferr- el, kontrabassaleikara í Sin- fóníuhljómsveit íslands, til að leika undir við ljóðalesturinn. Gaddafi til að spjalla um alþjóða- stjórnmál. Ragnar Reykas til að allar skoðanir fái að njóta sín. Baldur Þórhallsson hann verður með til að þræta við. Einar Oddur Kristjánsson einhver verður að taka að sér að skemmta. Dóra oa ívar Húni tu að velja eftirréttinn. og Bessa í síðasta skipti á Hót- el Sögu, en dúettinn Stefán Jökulsson, fyrrum útvarps- maöur, og Hildur heldur sínu striki á Mímisbar. Á sunnudag kemur einn vin- sælasti trúbador landsins, Guðmundur Rúnar, á Tvo vini og leikur af alkunnri snilld. Anna Vilhjálms syngur í Borg- arvirkinu með Borgarsveitinni. Á sunnudagskvöldið er síð- asta tækifærið til að heyra í djassaranum Paul Weeden, sem er búinn að vera á landinu undanfarnar vikur. Látum þetta gott heita. ÞUNGA GÁTAN LÁRÉTT: 1 kútur6orrusta 11 rækta 12 sár 13 konunafn 15 yfirgang- ur 17 neyslu 18 roð 20 seyði 21 steintegund 23 rjáfur 24 eyktamark 25 röltir 27 fnyk 28 fljótfæru 29 ábúð 32 illu 36 vaða 37 skeifu 39 innyfli 40 hlóðir 41 styggt 43 uppvaxandi 44 rándýr 46 vísa 48 göt 49 glerjjynnu 50 skertur 51 marin. LÓÐRÉTT: 1 sendimann 2 skapvond 3 sighljóð 4 mild 5 heysæti 6 kjálka 7 dingla 8 eðja 9 braka 10 vondan 14 fjær 16 moldarkofa 19 tindabikkja 22 tunnu 24 jarð vöðull 26 áform 27 mynnis 29 barningur 30 hleypa 31 hanskar 33 pípunum 34 hönd 35 gremjuna 37 stólpi 38 lítilsverð 41 gerjun 42 dyggur 45 fé 47 flökta.

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.